Tíminn - 05.05.1990, Blaðsíða 1
Islendingar meðal
„svertingja
og eskimóa"
„Skrælingjasýningin“ í Kaupmannahöfn 1905 olli
uppnámi meðal landa heima og erlendis
Vorið 1904 gaf etatsráð H.
Andersen danska heimilis-
iðnaðarfélaginu (Dansk
Kunstflidforening) fýrírheit
um að vilja styrkja og stuðla
að því að efnt yrði til al-
mennrar sérsýningar í
Kaupmannahöfrí á heimilis-
iðnaði og öðru frá dönsku
Vesturheimseyjunum.
Þessi etatsráð Andersen
var mjög áhrífamikill kaup-
sýslumaður, sem lengi
hafði búið í Thailandi, er þá
hét Síam, og auðgast mjög.
Síðan stofnaði hann og
stjómaði hinu gríðarstóra
kaupsýslu- og siglingafé-
lagi „Östasiatisk Komp-
agni“. Hann var talinn vell-
auðugur maður.
Nú kom það í ljós er undirbúning-
ur að þessari sýningu hófst að efht
hafi verið til slíkrar sýningar í húsa-
kynnum Iðnaðarmannafélagsins í
Kaupmannahöfn tiltölulega nýlega.
Það þótt því eigi tiltækilegt að stofna
til sérsýningar fyrir Vesturheimseyjar
einvörðungu svo skömmu á effir
þessari sýningu. Var því hafist handa
um að víkka svið sýningarinnar
þannig að hún næði einnig til „ný-
lendunnar Grænlands og hjálendn-
anna Islands og Færeyja", eins og
það var orðað í fundargerð heimilis-
iðnaðarfélagsins frá árinu 1904. Átti
þannig að vekja áhuga fjöldans á
högum hinna fjarlægari þegna Dana-
veldis, afurðum þeirra, lifnaðarhátt-
um og náttúru landanna.
Sýningarsvæði
í Tívoií
Formaður danska heimilisiðnaðar-
félgsins var um þessar mundir Emma
Gad flotaforingjaffú og þekktur rit-
höfundur í Danmörku. Henni var fal-
ið að hefja samninga við forstjóra Tí-
volí í Höfn um afhendingu á nokkurri
spildu hins ffæga skemmtigarðs und-
ir sýningarskála, sem óhjákvæmilegt
þótti að reisa fýrir sýningarmuni og
Dr. Valtýr. Við sjálft lá að hann
yrði rekinn úr stúdentafélaginu í
Höfri.
til veitinga. Tókust þeir samningar
vel. Væntanlegur hagnaður skyldi
skiptast jafnt á milli félgsins og Tí-
volí, en felagið hugðist nota sinn hlut
til ókeypis kennslu í heimilisiðnaði
fyrir ungar stúlkur frá sýningarlönd-
unum, þar á meðal frá Islandi og S-
Jótlandi.
Félagsstjómin sneri sér svo til Lou-
vise krónprinsessu, eiginkonu Frið-
riks, sem síðar varð Friðrik VIII
Danakonungur og fór þess á leit við
hana að hún gerðist vemdari sýning-
arinnar, og varð hún við þeirri ósk.
„Stór nöfn“
Konumar í heimilisiðnaðarfélaginu
er fyrir þessu stóðu vom allar lands-
þekktar og þær söfnuðu um sig mikl-
um fjölda málsmetandi manna og
„finna“ kvenna í höfuðstaðnum og
skipuðu stórar nefndir til að sjá um
sýninguna. Skal hér fáeinna getið er í
aðalnefhd sátu auk ffú Emmu Gad og
H. Andersens etatsráðs:
Þama var Moses Melchior stór-
kaupmaður, Henningsen ctatsráð,
Ramsing flotaforingi, sem fulltrúi
fyrir Vesturheimseyjar, Ryberg for-
stjóri fyrir Grænland og Möller jus-
titsráð fyrir Færeyjar. Þá vom hér
Ame Petersen forstjóri, Thrane for-
stjóri, Krieger skrifstofustjóri, Knud
Sehested kammerherra, Westermann
prófessor, Knud Steffensen rithöf-
undur, Anna Bissen prófessorsffú, A.
Kragh prófessorsffú, greifafrú Polly
Ahlefeldt, frú Ida Christensen-
Gelmuynden, frú Mathilde David-
Sveinn Bjömsson, síðar forseti fslands. Hann lagði til að hver maður
skrifaði heim og hvetti til andstöðu við sýningaráformin.
sen, ungfrú Susanne Rubin, von
Krogh kammerherra, Marius Jensen
ritstjóri, H. N. Andersen etatsráð og
Lassen Landorph forstjóri.
Fulltrúar íslands
Ekki em þó allir nefhdarmenn enn
upp taldir, þar á meðal íslenskir full-
trúar, sem vora Thor E. Tulinius stór-
kaupmaður og konsúlsfrú Helga Ví-
dalín, kona Jóns konsúls Vídalín.
Moses Melchior var kjörinn formað-
ur nefndarinnar og sátu þau næst
honum Emma Gad og Emil Gluckst-
ad, bankastjóri. Þetta var löngu áður
en upp komst að Gluckstad hafði
gerst sekur um stórkostleg fjársvik
við banka þann er hann stjómaði og
fleiri banka. Námu svikin mörg
Hannes Hafstein sagði sig úr
sýningamefndinni í Reykjavík.
hundmð milljónum króna og höfðu
mikil áhrif á allt framkvæmdalíf í
Danmörku í mörg ár. En þó má sjá
að hér var á ferðinni mikið lið og
frítt.
I framkvæmdanefhd sýningarinnar
var fulltrúi kosinn fyrir hvert land,
sem sýningin náði til og fýrir ísland
sat í henni Thor E. Tulinius. Sérstak-
ar sýningamefndir vom einnig skip-
aðar og í þá íslensku var Thor E. Tul-
inius enn skipaður, ásamt þeim Finni
Jónssyni prófessor, Valtý Guð-
mundssyni dósent, Hannesi Hafstein
ráðherra, frú Helgu Vídalín, fýrrv.
landshöfðingjaffú Thorberg og loks
þeim mæta manni, Daniel Bmun,
herforingja.
Smávörur fyrir
2000 krónur
Á sameiginlegum fundi nefndanna
14. október 1904 gerði ffú Emma
Gad grein fýrir tilhögun hinnar vænt-
anlegu sýningar. Var samþykkt að
kaupa ýmsa smámuni ffá Vestur-
heimseyjum fýrir 3000 kr., sumpart
til sölu á sýningunni og sumpart sem
hluti í hlutaveltu, sem fram átti að
fara á sýningarsvæðinu í Tivolí. Frá
íslandi átti að kaupa smávömr fýrir
2000 kr., ffá Færeyjum fyrir 1500 kr.
og frá Grænlandi fýrir 1000 kr.
Finnur Jónsson, prófessor, gat þess á
fundinum að sérstök sýningarnefhd
hefði verið sett á laggimar í Reykja-