Tíminn - 14.09.1990, Blaðsíða 8

Tíminn - 14.09.1990, Blaðsíða 8
8 Tíminn Föstudagur 14. september 1990 Föstudagur 14. september 1990 Tíminn 9 Texti og myndir: Sigurður Bogi Sævarsson Það var hin sanna réttarstemming í Hrunaréttum í Hrunamannahreppi í gær- dag. Fólk dró fé í dilka af kappi og þegar því var lokið, var tekið til við að reka féð heim á bæi. Þótt það væri ausandi rigning í Hrunaréttum í gær var létt yfír fólki og það lét hana ekki hafa áhrif á sig. Auðvit- að eru göngur og réttir fyrst og fremst vinna, en grunntóninn er léttur enda er réttardagurinn dagur gleði og samfunda. Sveitungar hittast og brottfluttir sveita- menn koma, og raunar margir aðrir, til að komast í snertingu við þennan þátt sveita- lífsins. Og síðan er hnykkt á öllu með rétt- arballi, sem er ómissandi þáttur þessa alls. Stefán Jónsson, fjallkóngur Hrunamanna, sagði að göngumar hefðu gengið vel.enda hefði þetta verið hörkumannskapur. Á ell- efta þúsund fjár var réttað í Hrunaréttum í gær. Það leiðindaveður, sem var um síð- ustu helgi, hefði ekki sett strik í reikning- inn, nema hvað vatnavextir hefðu verið í einni á, Sandá, og þar hefði ekki verið hægt að reka féð yfir, heldur þurfti að sel- flytja það. í fyrra voru vatnavextimar í ánni raunar slikir að Hrunaréttum seinkaði um einn dag, ffam á fostudag, en fimmtu- dagurinn er hinn hefðbundni réttardagur Hrunamanna. Samkvæmt lista Búnaðaifé- lags Islands em þær réttir, sem eftir em, þessar: I dag, föstudaginn 14. september, verður réttað í Rauðsgilsrétt í Borgarfirði, Skeiðarétt í Ámessýslu og Valdarásrétt í V-Hún. Á morgun, laugardaginn 15. sept- ember, verður réttað í Auðkúlurétt í A- Hún., Laufskálarétt í Skagafirði, Skaftár- rétt í V-Skafb, Stafhsrétt í A-Hún., Undir- fellsrétt í A-Hún. og Víðidalstungurétt í V- Hún. Á sunnudaginn kemur, 16. sept. em eftirtaldar réttir haldnar; Brekkuréttir í Mýrasýslu, Hlíðarréttir í A-Hún., Skrapat- unguréttir í A-Hún. og loks Þórkötlustaða- réttir við Grindavík. Hinn 17. verða þijár réttir í Mýrasýslu; Hítardals-, Þverár- og Svignaskarðsréttir. Einnig verður réttað í Silfrastaðarétt í Skagafirði og Vogarétt í Gullbringusýslu þennan dag. Þriðjudaginn 18. em einar réttir á landinu þ.e. í Gríms- staðarétt í Mýrasýslu og daginn eftir, hinn 19. er réttað á tveimur stöðum: í Lang- holtsrétt á Snæfellsnesi og Klausturhóla- rétt í Ámessýslu. Næsti réttadagur á land- inu er síðan 22. september en þá verða fimm réttir á landinu, sem em Heiðarbæj- ar-, Húsmúla- og Nesjavallaréttir í Ámes- sýslu, Kaldárréttir við Hafharfjörð, og Skaftártunguréttir í V-Skaft. Daginn eftir em Fossvallaréttir haldnar sem er í ná- grenni Reykjavíkur. Dalsréttir í Kjós em hinn 24. og sömuleiðis Kjósar- og Kolla- fjarðarréttir í Kjósarsýslu og svo Selflatar-> og Selvogsréttir í Ámessýslu. Síðasti fjárréttadagurinn er svo þriðjudagurinn 25. september en þá er smalað í Ölfusrétt í Ár- nessýslu. Norðanlands em síðan stóðréttimar sem heQast á sunnudaginn kemur, en þá verða þijár slíkar í Skagafirði: Skarðs-, Reynis- staða-, og Silfrastaðaréttir í Skagafirði. Sunnudaginn 23. er stóðið réttað í Hlíðar-, og Skrapatunguréttum í A- Húnavatns- sýslu. Síðastar koma svo Laufskálaréttir í Skagafirði og Víðidalstunguréttir í V- Hún., en í þeim verður stóðið réttað hinn 6. október. Ámi Johnsen var meðal þeirra sem mættu í Hmnaréttir í gær. Féð rekið úr gerðinu inn í almenninginn í Hmnarétt Guðni Ágústsson alþingsmaður ræðir við Guðmund Kiistmundsson bónda í Skiphoiti. Stefán Jónsson, bóndi í Hrepphólum, Qallkóngur Hmnamanna á spjalli við Dagbjart Einarsson úr Grindavík, formann SÍF.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.