Tíminn - 14.09.1990, Blaðsíða 14

Tíminn - 14.09.1990, Blaðsíða 14
14 Tíminn Föstudagur 14. september 1990 Við Miðjarðarhafið: Leitað er nýrra vatnsuppspretta Palermo þarf fólk aö sækja sér vatn á brúsa í almenningstanka. I Parthenon-hofinu á Akro- polis settu gömlu Aþening- amir upp styttu af gyðjunni Jörð, sem sárfoað „þann sem færir skýin“, guðaföðurinn Seif um regn. Nú, 2400 árum síðar, á ákallið síst minna er- indi. Það er ekki bara í Aþenu, heldur því sem næst við alla norðurströnd Miðjarðarhafs- ins, frá Suður- Frakklandi til Bosporus-sunds, sem gætir æ meiri vatnsskorts. Stöðu- vötn og fljót þoma upp, rækt- arlönd faíla í auðn, drykkjar- vatnsforði þverr. Grísk blöð flalla um að „skelfingar- ástand í þeim mæli sem rætt er um í biblíunni" sé í nánd. Annað mikla þurrkaárið í röð Þegar á árinu 1989 varð Suður- Evrópa að þola margra mánaða þurrk, en á árinu 1990 er útlitið enn svartara. í Frakklandi hefúr úrkoma í þriðjungi landsins verið helmingi minni en venjulega. Á Ítalíu féll 40% minna regn en í fyrra. Grikk- land hefúr orðið að þola versta og mest eyðileggjandi þurrk í heila öld. í Istanbul rennur vatn úr krönum einungis í fjórar klukkustundir á dag. Borgarstjómin hefúr fengið bandarísku fyrirtæki það verkefúi fyrir 577.000 dollara að koma skýj- unum til að hleypa úr sér rigningu yfir borgina. Vatnslón og forðabúr í Grikklandi eru fyrir löngu orðin þurr. Á Suður- Ítalíu skrælnaði helmingur ólífú- uppskerunnar. Lönd, sem um lang- an aldur hafa flutt út uppskeru af ökrum verða nú í fyrsta sinn að flytja inn ávexti og grænmeti. I lok júlímánaðar fluttu Grikkir inn tóm- ata ffá Hollandi. Greiði EB skaða- bætur sparar það niðurgreiöslur Suðurrikin í Evrópubandalaginu snúa sér til Brussel í leit að aðstoð. Fagfélög þeirra sem vinna við land- búnað í Grikklandi hafa tilkynnt að fyrstu tölur um skaða af völdum þurrka séu upp á 58 milljarða isl. kr. og fara ffam á skaðabætur. Kröfú- hafamir rökstyðja tilmæli sín klók- indalega með því að verði skaða- bætur reiddar af hendi hljóti það að koma EB til góða fjárhagslega þar sem það þurfi þá ekki að greiða nið- urgreiðslur. Landbúnaðarráðherrar EB hafa til- kynnt að þeir taki ákvörðun í lok september, en hafa heimilað af- hendingu á 250.000 tonnum af byggi og 300.000 tonnum af maís Grikkjum að kostnaðarlausu, til að fóðra búpening þeirra. Bómullarbændur í landbúnaðar- héraðinu Kopais í miðhluta Grikk- lands hafa ekki áhyggjur af því þó að borgarbúa þyrsti, þeir sækja sér vatn í vatnsforða borgarbúa til að Svona er ástandið vfða orðlð í Grikklandi. Fólk gengur þurrum fótum á botni uppþomaðs stöðu- vatns. vökva akrana sína. Nú lætur vatn- sveita Aþenu vopnaða verði gæta vatnsbirgða sinna allan sólarhring- inn til að vemda það gegn „vatns- ræningjum", sem tappa af vatni úr vatnslónum og leiðslum að nætur- lagi. Skrælnuð jörðin er gróðrarstía alls kyns skaðræðiskvikinda. í fjóram sveitarhéraðum á Krit eta ormar vínþrúgumar og eta sig jafnvel inn í íbúðir fólks. Það era fyrst og ffemst borgarbúar sem verða illa úti. Drykkjarvatns- miðlun á mörgum þéttbýlisstöðum við Miðjarðarhafíð er að niðurlot- um komin. Áratugavanræksla einn- ar ríkisstjómarinnar og sveitar- stjómarinnar af annarri hefhir sín nú. Mannleg vanræksla á sinn hlut í vandanum Það er nefnilega langt í ffá að það sé aðeins hægt að kenna lítilli úr- komu um vatnsskortinn, þar á líka sinn hlut lélegt ástand vatnsleiðsln- anna. I Aþenu og Píreus tapast um 35% neysluvatnsins vegna bilaðra leiðslna. Um 750.000 vatnsmælar eru í ólagi og vegna þess er ekki hægt að rakka fyrir meira en þriðj- ung notkunarinnar. Sífellt skora út- varps- og sjónvarpsauglýsingar auk blaðaauglýsinga á Aþenubúa að spara vatnið. Áætlun um að flytja vatn úr stöðu- vötnum og fljótum með tankskip- um til Aþenu var lögð á hilluna. Bygging nauðsynlegra hafna og dælubúnaðar, auk vatnsleiðslna tæki átta mánuði. Nú vofir yfir neyðar- ástand við norðanvert Miðjarðarhaf vegna gífurlegra þurrka. En það er ekki bara við þurrkana að sakast, mannleg vanræksla á sinn þátt í ófremdar- ástandinu. Vatnsleit í fullum gangi Þá er ekki annar möguleiki fyrir hendi en að leita að nýjum vatns- uppsprettum. Sveitarstjómamenn fengu sérstakt leyfi til að bora eftir drykkjarvatni í landi borgarinnar. Vatnsveitan hefúr m.a.s. höfðað til vatnsleitarmanna sem era flinkir með spákvist og fá þeir greitt skv. árangri. Bóndinn Charalampos Lambrinidis skundaði til Aþenu ffá Rrít og er sagður hafa fúndið neð- anjarðará undir Aþenu með spá- kvistinum sínum. Hann hyggst leysa vatnsvanda höfúðborgarinnar. Grískir sérffæðingar ráða eindreg- ið ffá þvi að taka upp vatnsskömmt- un, eins og ekki aðeins Istanbul, heldur líka Palermo og aðrar borgir á Sikiley hafa gripið til. Röksemd þeirra er að ef vatnsstreymið verði rofið, þó ekki sé nema um stundar- sakir, aukist hættan á því að pestir gjósi upp. Sjúkdómavaldandi bakteriur geti þá komist i brotnar og sprungnar vatnsleiðslumar og rannið beint til neytandans þegar vatnsstraumnum er aftur hleypt á. Reyndar hefúr 400 prósenta hækk- un á vatnsskatti sýnt nokkum ár- angur. Neyslan dróst saman um fimmtung. En engin varanleg lausn felst þó i því. Vatnsbirgðir Aþenu duga í besta lagi til októberloka. „Næstum hálf griska þjóðin á nú á hættu að líða hræðilegan fjölda- dauða, þorstadauða, eftir þijá mán- uði,“ stendur í fjármálablaðinu Oi- konomikow Tachydromos. Skriffæðisbáknið á líka sinn þátt i vatnsneyðinni á öðrum stöðum. Í Napólí sagði borgarstjórinn af sér til að mótmæla því að embættis- menn á svæðinu hafa ekki enn lagt ffam það fé sem heimilað var fyrir þrem áram til að fúllgera vatns- leiðslu sem á að bera 11.000 lítra af vatni á sekúndu til borgarinnar. Undir borginni Napólí eru 2500 km vatnsleiðslur, sem náð hafa 100 ára aldri. Stríð vegna vatns brjótast út Víða við Miðjarðarhafið hefúr þegar brotist út stríð vegna vatns. Franskir bændur eyðilögðu vatns- leiðslur sem liggja að borgum. Vopnaðir lögreglumenn innsigla vökvunarkerfi þegar opinberlega leyft magn hefúr úðast út í loffið.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.