Tíminn - 14.09.1990, Blaðsíða 13

Tíminn - 14.09.1990, Blaðsíða 13
Föstudagur 14. september 1990 Tíminn 13 r Lvixrxiiu i «nr Og ekki er hann sfðrí í hlutverki kapteinsins í „Leitinni að Rauða október", tæplega sextugur að aldri. Einn gamall og góður Sean Connery er eins og eðalvín — verður stöðugt betri með aldrinum. Hann er nú orðinn 59 ára gamall, býr á Spáni og hefúr aldrei haft það betra, bæði í einkalífí og atvinnu. Sean Connery sló í gegn sem Jam- es Bond á sínum tíma og lék í sjö kvikmyndum um hinn ffæga og orð- heppna njósnara. Þeir eru víst margir sem aldrei hafa getað sætt við aðra leikara í því hlutverki. Þegar hann var yngri var hann dáð- ur fyrir kyntöfra og karlmennsku. Flestum var sama hvort hann gæti leikið — bara ef hann væri ber að ofan og sýndi kassann. Nú kveðst hann hafa aflað sér virðingar sem góður leikari og hefúr á síðari árum leikið mörg góð hlutverk. Hátindur ferils hans var 1987, þeg- ar hann hlaut óskarinn sem besti leikari í aukahlutverki í kvikmynd- inni „Hinir vammlausu". Seinast sló hann í gegn í hlutverki kafbátsstjórans í „Leitinni að Rauða október“ og myndir sýna að karlinn verður stöðugt myndarlegri. „Mikil vinna heldur manni ungum bæði andlega og líkamlega," segir hann. Skyldu margir hafnarverka- menn taka undir það? Sean Connery tók sig vel út sem James Bond á sínum yngrí árum. Höfrunga- drápið er pabba að kenna — segir Patti Davis Patti Davis, elsta bam Ronalds og Nancy Reagan, hefúr löngum verið foreldrum sínum erfið. Hún er að vísu orðin 37 ára en virðist ekki enn vera búin að sætta sig við að vera dóttir foreldra sinna. Mikla athygli vakti bók hennar sem út kom 1986. Þar lýsti hún raunum ffumburðar forseta og leyndist engum að hún þekkti vel til þeirra vandamála. Nýjasta uppátæki dóttur fyrrver- andi forseta er að koma fáklædd ffam í sjónvarpi og gagnrýna dráp bandarískra túnfiskveiðimanna á 500.000 höffungum á ári. „Faðir minn ber höfúðábyrgð á þessu fjöldadrápum. Það var í stjómartíð hans sem þau vom leyfð,“ segir hún reið. Enn hefúr lítið ffést af við- brögðum foreldra hennar við þessu nýjasta hneyksli. Patti Davis ætfar seint að þreytast á því að koma föður sínum, Ronald Reagan, f bobba. Nú treður hún upp í sjónvarpi f bíkíní til að mót- mæla höfrungadrápi og skellir allrí skuld á pabba gamla eins og fýrri daginn. Aðalfundur Framsóknar- félags Reykjavíkur Umhverfismálaráðstefna: Virðum líf - verndum jörð Ráðstefna um umhverfismál verður haldin í Vestmannaeyjum laugardaginn 29. sept. nk. Ráðstefnan er öllum opin. Nánar auglýst síðar. Skráning hjá Þórunni, sími 91 -674580, og Svanhildi, sími 12041 e.h. Landssamband framsóknarkvenna, LFK. SPEGILL verður haldinn mánudaginn 24. september nk. kl. 20.30 í Hótel Lind, Rauðarárstíg 18. Auk venjulegra aðalfundarstarfa mun Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður ræða stjórnmála- viðhorfið. Guðmundur G. Þórarinsson Stjómin. Skrifstofa Framsóknarflokksins UU hefur opnað aftur að Höfðabakka 9, 2. hæð (Jötunshúsinu) Sími 91-674580. Opið virka daga kl. 8.00-16.00. Verið velkomin. Framsóknarflokkurinn. Keflavík — Opin skrifstofa Félagsheimili framsóknarmanna að Hafnargötu 62 er opið alla virka daga milli kl. 17 og 18. Starfsmaður framsóknarfélaganna, Guðbjörg Ingimundardóttir, verður á staðnum. Sími 92-11070. Framsóknarfélögin Suðurland Skrifstofa Kjördæmasambandsins á Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15.00-17.00. Síminn er 22547. Félagar eru hvattir til að líta inn. K.S.F.S. Borgnesingar - Nærsveitir Spiluð verður félagsvist í Félagsbæ föstudaginn 14. september kl 20.30. Allir velkomnir. Framsóknarfélag Borgarness. Ölfus - Þorlákshöfn Almennur fundur verður hjá framsóknarfélögum ölfus og Þorlákshafn- ar nk. sunnudag 16. sept. í gamla K.Á.-húsinu. Umræðuefni: Vetrarstarfið og væntanlegt kjördæmisþing. Stjórnin. Reykjanes Skrifstofa kjördæmasambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi, eropin mánudaga til fimmtudaga kl. 17-19. Sími 43222. K.F.R.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.