Tíminn - 20.10.1990, Síða 5
12 Tíminn
Laugardagur 20. október 1990
Laugardagur 20. október 1990
liminn 13
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN:
að aðlaga verkið þeirri staðreynd.
Ballettinn er í augum leikmanns í
gamaldags, hefðbundnum stfl og
svífa dansmeyjarnar um á táskóm og
í slæðukjólum, í ágætri samvinnu
við karldansarana.
Fuglinum (Helena Jóhannsdóttir),
vini Péturs, tekst að plata úlfinn
(Hany Hadaya) þannig að Pétri
og kettinum (Guðmunda H. Jó-
hannesdóttir) tekst að koma
böndum á hann.
("nmamyndir Aml Bjama)
Danshöfundurinn
Tcrence Etheridge
Terence Etheridge, höfundur
tveggja af þessum þrem dönsum, er
íslendingum ekki alls ókunnur því
að það var hann sem samdi og æfði
dansana í sýningu íslensku óper-
unnar á Carmina Burana, sem sýnd
var hér sl. vetur við miklar vinsæld-
ir og gerði síðan garðinn frægan í
Gautaborg í haust í tengslum við
mikið umtalaða bókasýningu. Hann
hefur nú dvalist hér síðan í septem-
berbyrjun og starfað með dans-
flokknum. Hann kemur aftur á
næsta ári til að þjálfa dansara ís-
lenska dansflokksins og kveðst hafa
mikinn áhuga á að finna dramatíska
íslenska sögu til að semja dansa við.
Terence Etheridge er gamalreynd-
ur dansari og danshöfundur og hef-
ur víða starfað, segist reyndar bara
eiga Ástralíu eftir af heimsálfunum.
Hann er upprunninn í Suður-Afríku
og hóf dansnámið þar en fór ungur
að árum til Englands og hélt þar
áfram námi og starfi um langt skeið.
M.a. annarra afreka hans má nefna
að hann samdi dansa í Eugen Oneg-
in fyrir Aldeburg Festival þar sem
stjórnandi var Rostropovich, sá
frægi sellósnillingur. Etheridge hef-
ur mikið starfað í Asíu og þá ekki
síst í Hong Kong, þar sem hann var
listdansstjóri ballettsins í fjögur ár.
Konsert fyrir sjö
Konsert fyrir sjö samdi Terence Et-
heridge upphaflega fyrir ballettflokk
í Japan og var hann frumsýndur í
Tókýó. Þá hét dansinn Konsert fyrir
níu en vegna fámennis íslenska
dansflokksins eru dansararnir nú
ekki nema sjö og varð höfundurinn
Pétur og úlfurinn
bráðskemmtileg
barnasýning
íslenski dansflokkurinn heldur um þessar mundir sýn-
ingar á þrem ballettum og fara þær fram í húsi íslensku
óperunnar.
Dansamir þrír eru Konsert fyrir sjö við tónlist eftir
Sergei Prokofiev, Fjarlægðir við tónlist frá Marokkó og
Pétur og úlfurinn við hina gamalkunnu og vinsælu tón-
list Sergeis Prokofíevs. Danshöfundur fyrsta og síðasta
verksins er Terence Etheridge, sem staddur er hér á
landi til að stjóraa dansendum, en danshöfundur Fjar-
lægða, er Hollendingurinn Ed Wubbe, sem stjóraaði
sýningum íslenska dansflokksins á verkinu í Þjóðleik-
húsinu 1986.
Nýr Zetor turbo
Ennbætistviö hópþeirraZETORdráttarvélasem íboöieru. Núerþaö
ZETOR TURBO, meö 79 din. hestafla vél. Meöal annara nýjunga má
nefna HYDROSTATIC vökvastýri, utanáliggjandi vökvadælu, farþega-
sæti, loftbremsuúttak fyrir aftanívagna og radial hjólbaröa.
Vakin er sérstök athygli á aö viö fáum aðeins 10 vélar fyrir áramót á
sérstöku kynningarverði.
Kr. 1.130.000.-
Án VSK og skráningarkostnaðar.
Viö hvetjum bændur því til aö gera pantanir strax.
ZETOR VERÐLISTI 1. OKTÓBER 1990 *
5211 - Kr. 646.000.- Uppseldur 7245- Kr. 974.000,- Kemur f/áramót.
6211 - Kr. 723.000.- Á lager 7711 - Kr. 828.000,- Á lager
6245- Kr. 887.000.- Uppseldur 7745- Kr. 1.024.000.- Uppseldur
7211 - Kr. 752.000.- Á lager 7745 T Kr. 1.130.000.- Kemur f/áramót.
* VERD ÁN VSK OG SKRÁNINGARKOSTNAÐAR.
Umboöiö i L fpjr íslensk-tékkneska verslunarfélagiö hf. " Lágmúla5 Reykjavík Simi 91-84525
1 nSTG 8E7HING - HÖNHUH
Úr Pétrí og úlfinum. Afinn (Flosi Ólafsson) vill draga
Pétur (Einar Sveinn Þórðarson) inn í girðinguna af
ótta við úlfinn. Öndin (Ólafía Bjamleifsdóttir) er á
bandi Péturs og streitist á móti.
Fjariægðir
Fjarlægðir eru í allt öðrum dúr en
Konsertinn. Þar vill höfundur
skyggnast inn í hugarheim þeirra
kvenna sem komið hafa til Hollands
frá löndum eins og TVrklandi og
Marokkó og eru í þeim hópi fólks
sem vinnur lægst launuðu og
óþrifalegustu störfin í þjóðfélaginu.
Tónlistin er framandi og áhrifarík
og ekki síður dansarnir. M.a.s. bún-
ingamir eru framandlegir.
Það er kraftur í þessum döpru kon-
um sem sýnilega eiga ekki sjö dag-
ana sæla.
Leikmynd hafa Armenio og Marcel
Alberts gert og búninga Heidi De
Raad.
Pétur og úlfurinn
Og þá er komið að aðalburðarás
sýningarinnar, Pétri og úlfinum.
Tónlist Sergeis Prokofiev þekkja
trúlega flestir og hafa gaman af
flutningi hljómsveitar og sögu-
manns. Ekki er langt síðan Þórhall-
ur Sigurðsson sagði frá við hljóð-
færaleik Sinfóníusveitar fslands og
var sá flutningur m.a. sýndur í Sjón-
varpi. Á mínu heimili er til plata frá
1960 þar sem Helga Valtýsdóttir seg-
ir söguþráðinn í eigin þýðingu og
stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands er dr. Vaclav Smetácek. Önnur
plata, nýrri, er þar líka til. Þar segir
Bessi Bjarnason frá en Philadelphia
Orchestra, undir stjórn Eugene
Ormandy annast tónlistarflutning-
inn. Ekki er getið um útgáfuár á
plötuumslagi en þessi plata er áreið-
anlega til á mörgum heimilum. Það
mun vera þessi plata sem leikin er
við dansinn hans Terence Etheridge
í íslensku óperunni þessa dagana.
Já, flestir kannast við tónlistina og
fylgjast vel með þegar hin ýmsu
hljóðfæri gefa til kynna hvaða per-
sóna lætur mest til sín taka þá
stundina. En enn skemmtilegra er
að sjá dansara fylla upp í hlutverkin,
sem ekki hefur áður gerst hér á
landi. Hins vegar hefur Terence Et-
heridge farið vítt og breitt um Eng-
land og sett upp danssýningar á
Pétri og úlfinum og segir hann
dansana taka stöðugum breyting-
um.
Leikmynd og búninga gerir Gunn-
ar Bjarnason.
Dansarar
Dansarar í sýningunni eru: Ásdís
Magnúsdóttir, Helena Jóhannsdótt-
ir, Lára Stefánsdóttir, Ólafía Bjarn-
Ieifsdóttir, Helena Jónsdóttir, Guð-
munda H. Jóhannesdóttir, Ingibjörg
Pálsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Helga
Bernhard og karldansararnir tveir
Einar Sveinn Þórðarson og Hany
Hadaya.
Dansinn höfðar til
allra aldursflokka
íslenski dansflokkurinn tekur sér-
staklega fram að sýningin sé fjöl-
skyldusýning, eitthvað fyrir alla ald-
ursflokka. Það má til sanns vegar
færa, en það er áreiðanlegt að flestir
krakkar kynnu vel að meta upp-
færsluna á Pétri og úlfinum, þar
sem ýmislegt kostulegt er að sjá.
M.a.s. þurfa þeir ekki að taka nærri
sér þegar úlfurinn gleypir öndina í
heilu lagi, það heyrist í henni gaggið
úr kvið úlfsins þegar búið er að
handsama hann.
Það væri því kannski óvitlaus hug-
mynd að setja upp sérstaka barna-
sýningu á ballettinum um Pétur og
úlfinn og vinnst þá hvort tveggja að
vekja áhuga barnanna á tónlist og
ballett. E.t.v. væri fært að fara með
sýninguna í skóla.
Kristín Leifsdóttir