Tíminn - 27.10.1990, Qupperneq 5

Tíminn - 27.10.1990, Qupperneq 5
12 Tíminn Föstudagur 26. október 1990 Föstudagur 26. október 1990 Tíminn 13 RIÐRIK er maður nefndur Sigurðsson bónda á Ytri-Reistará í Möðruvallasókn við Eyjafjörð. Friðrik gekk í Möðruvallaskóla og hlaut ágæt- iseinkunn. Fór síðan í Reykjavíkurskóla, en smitaðist þar af berklum, sem þar voru landlægir, og andaðist ungur árið 1903. Á námsárum sínum hóf hann að safna ýmsum þjóðlegum fróðleik og rita niður, t.d. ættartölur og rúnir, þ.á m. galdrarúnir með teikning- um, enda var hann í skóla kallaður Galdra- Friðrik. í fórum hans fannst m.a. fróðleg og skemmtileg ætt- fræðiritgerð eftir Pétur Zóphóníasson. Pétur skrifar á þessa leið: ,/Ettfræði og ættartölur mætti heita máttarstoðir sögu íslands bæði að fornu og nýju; en þekking á sögu landsins í heild sinni, sem styðst eigi við ættvísina, verður aldrei annað en hálfgerð botnleysa, sem lítið vit og gagn er í. Einmitt á þeim tíma þegar ættfræðis- ritan lá í dái hér hvíldi hið svartasta myrkur yfir sög- unni, og er það eðlilegt, því þó að aðalsættir væru fá- ar á íslandi voru þó allar ríkari ættir aðalsættir í óeig- inlegum skilningi svo að fyrirfram eftir var fslands- saga einungis saga einstakra frumætta, þeirra er réðu mestu. Höfuðból ættanna gengu í erfðir í karllegg svo öldum skifti. Stórættirnar giptust saman til þess að auka veldi sitt og verða sterkari. Hinir fornu íslensku sagnritarar tóku fljótt eptir því hve merkileg fræði- grein ættfræðin er og hve mikið hún hjálpar mönn- um til að átta sig á sögunni enda eru ættartölurnar eitt af því fyrsta, er menn hafa sögur af að fært væri í letur. Eftir að söguritunin hófst magnaðist ættvísin svo hún var eins og leiðarljós og verða menn oft að reikna tímatalið út eftir aldri manna og ættliðanna. Áður en Island byggðist hefur ættartölufræði verið stunduð í Noregi, því það er ekki nóg með það að við íslendingar getum rakið ættir til landnámsmanna, heldur og upp í gráa forneskju til hersa, höfðingja og konunga í Noregi. Sama virðist og eiga sér stað um þá sem koma vestan um haf, t.d. frá íslandi. ; / NOREGI týndu menn niður ættartölufræðinni / eins og öðrum fróðleik, en á íslandi geymdust ættartöiurnar kynslóð frá kynslóð og einn lærði af öðrum. Á dögum Ara fróða hafa þannig verið uppi margir ættfróðir menn. Hallur Þórarinsson í Hauka- dal var maður stórvitur og minnugur. Teitur fóstbróð- ir Ara var sá maður er hann kunni spakastan, og margan fróðleik nam hann af honum, er hann ritaði síðan. Þorkell mundi langt fram, Þuríður margspök, og eftir Oddi Kolssyni ritaði Ari konungaæfi, en Odd- ur nam af Þorgeiri afráðskoll. Sæmundur fróði var hverjum manni betur heima í ættartölufræði, og skoðuðu samtímamenn hans hann sem hið öruggasta bjarg í sagnfræði. Þannig mætti lengi telja. Svo virð- ist sem Sæmundur hafi látið kenna niðjum sínum ættfræði, því höfundur Noregskonungatals segist hafa einasta svá æfi þeirra sem Sæmundur sagði hinn fróði. NORRI STURLUSON segir með berum orðum að sér hafí verið kennd ættfræði. Svo var ætt- fræðin sterk að allar sögur byrja með ættfræði, og sýnir það best hvað söguritararnir hafa haft glöggt auga fyrir því að leiða menn inn í efnið og sýna af- stöðu hvers manns í sögunni. Á miðri 14. öld fór ættartölufræðinni að hnigna, en aftur rétti hún við fyrst á 16. öld og koma þá í ljós margir ættfræðingar og eru þessir helstir: Magnús prúði sýslumaður í Ögri d. 1591, Oddur biskup Ein- arsson d. 1630, Þorsteinn Magnússon sýslumaður d. 1656 og Ketill Jörundsson próf. í Hvammi d. 1670. Þar á eftir koma margir ættfræðingar s.s. séra Guð- brandur Jónsson í Vatnsfirði. Það mætti telja hér upp marga ættfræðinga er hafa gjört landinu mikið gagn með því að vinna að ættfræði. Alþing fór hér um árið að sýna rögg í sér og veita styrk til ættfræðistarfa Bjarna Guðmundssyni, en botninn datt úr því öllu saman, og nú kvað vera kom- ið svo að þingmönnum kvað fátt vera ver gert en að minnst sé á ættfræði. Ekkert á að gefa út nema tómar alþýðubækur svo nefndar og yrðu það dáyndis lagleg- ar bókmenntir, þótt slíkt sé gott með öðru góðu. Það er jafn einstrengislegt og bjánalegt að varpa öllum fróðleik fyrir borð eins og að vilja að engin alþýðubók væri gefin út, eða ættfræðibók. Það væri líka hálf fá- kænskulegt að vilja varpa þeim fróðleik fyrir borð sem margir hinir bestu íslendingar fyrr og síðar hafa látið sér mjög annt um, og það einmitt á þeim tíma þegar aðrar þjóðir eru að stofna félög til þess að endurvekja þessa fræðigrein. Það væri eflaust hagfeldt til að halda við þessari fræðigrein hér á íslandi að t.a.m. hjón út- veguðu sér ættartölu sína og rituðu þar í nöfn barna sinna jafnóðum og svo niðja þeirra þegar fram liðu stundir, hver af öðrum, myndi þá reka að því að hver kynni sína ætt. Það eru einkum tvö atriði merkileg á íslenskri ættfræði og er það fyrra útlendar ættir þær er blandast hafa íslenskum og orðið innlendar. Fer fyrst að bera á því að marki um og eftir 1500. Hér er alltof lítið pláss til að rekja þær eða telja þær allar upp, en þær helstu Gottskálks biskups og Hannesar hirðstjóra; eru þær elstar og báðar merkar. EÐ SIÐASKIFTUNUM koma út bræður tveir jóskir að ætt, og er af þeim mikill ætt- bálkur kominn. Dorothea hin þýska átti og Árna sýslumann Oddsson, og er þaðan margt fólk komið. Lýðsættin frá Hamborg, Manasættin frá Hol- —-•5-SSS5"' w«ö009t o* landi, Hafsteinsættin dönsk og eins Schevingsættin. Zoégaættin ítölsk. Nú á þessari öld hafa verið allmargir ættfræðingar og eru þessir helstir: Magnús sýslumaður Ketilsson d. 1803, Espólín sýslumaður d. 1836, Ólafur Snóksdal d. 1843, Steingrímur biskup d. 1845, Bogi Benedikts- son, Daði Níelsson d. 1857, Jón Pétursson d. 1895, Gísli Konráðsson d. 1877, Bjarni Guðnason d. 1892. Af núlifandi mönnum (um aldamótin 1900) eru þess- ir helstir: Hannes ritstjóri Þorsteinsson og Jón Þor- kelsson dr. yngri. Einnig eru þeir talsverðir ættfræð- ingar Jón Borgfirðingur, Jakob á Húsavík og Friðrik á Skála. Við ættum nú að fara að leggja meiri stund á ættartölufræðina en við höfum gjört hingað til. Leggjum stund á ættartölufræðina sem uppheldur sögunni og er okkur til sóma.“ ANNIG RITAR Pétur Zóphóníasson um eða fyrir aldamótin 1900. Var erindið e.t.v. líka flutt í Reykjavíkurskóla? Pétur gerðist mikill ættfræðingur og hefur skrifað merk ættfræðirit. Margir ættfræðingar koma fram á okkar öld og ætt- fræðin blómgast á ýmsan veg. Áhugi á ættfræði hefúr mjög aukist. Ýmsar útlendar og hálfútlendar ættir hafa bæst og bætast í hópinn síðan Pétur skrifaði rit- gerð sína, t.d. Schiöthættin, Ryelsættin o.fl. danskar ættir á Akureyri, Zimsenarnir, Thorsararnir o.fl., o.fl. Norskar ættir eystra t.d. Wathneættin gamalgróin á Seyðisfirði, franskar ættir eystra o.s.frv. Fyrr á öldum „bronsuðu11 ýmsir meiri háttar menn íslenskir nöfn sín til að tolla í tískunni. Dæmi Stephensen, Thorar- ensen, Thoroddsen, Thorlacius o.s.frv. „Fisher, Bryde og Thomsen tefur templara lýð og Bensi Þór“ var kveðið á mínum unglingsárum. Þetta voru menn út- lenskra ætta, nema Bensi Þór. Margar ættagusur úr INGOLFUR DAVÍÐSSON enska heiminum bárust hingað á stríðsárunum. Og í seinni tíð hefur fólk frá Indía- og Arabalöndum látið á sér kræla. Hingað til hefur þetta allt runnið saman árekstralítið. LL ERUM VIÐ árangur af ættanna kynlega I blandi. Hugsum kannski ekki mikið um það að S jafnaði, og þó. Sumum er það mikið áhugamál að rekja ættir og leggja ómælda vinnu í það. Man ég það, að þegar gestir komu heima, og það var oft, sleppti mamma þeim ekki fyrr en hún hafði fræðst um ættir þeirra. Hún var stálminnug, en ritaði held ég ekkert niður hjá sér. Ég hafði þá engan áhuga á ættfræðum, því miður. Hugsaði meira um ættir blóma en manna. Sagt er að áhugi á ættfræði aukist oft með aldrinum. Aldraðir vilja vita af hvaða rótum þeir eru runnir. Minnast þess einnig „að fjórðungi bregður til fóst- urs“. Hæfileikar meðfæddir þurfa viss kjör til að þroskast og njóta sín. ogkonuhans Margrethe Andreu Höfter H

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.