Tíminn - 19.01.1991, Blaðsíða 8

Tíminn - 19.01.1991, Blaðsíða 8
8 Tíminn Laugardagur 19. janúar 1991 P Guðjón Petersen, framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins, telur að ýmis- legt skorti á að Almannavarnir séu tilbúnar til að mæta stórum atburðum: Skortur á búnaði og tækjum til að mæta stórkostlegri vá Það er víst óhætt að segja að skammt sé stórra högga á milli hér heima og erlendis. Tæpum sólarhring eftir að styijöld hófst við Persaflóa hófst óvænt eldgos í Heklu. Guðjón Petersen, fram- kvæmdastjóri Almannavama ríkisins, hefur haft í mörgu að snúast vegna beggja þessara atburða og er viðmælandi Tímans í helgarvið- tali að þessu sinni. - Hvert er hlutverk Almannavama þegar ástandið hér heima og erlendis er eins og það er í dag? „Hlutverkið er að skipuleggja og fram- kvæma ráðstafanir sem miða að því að koma í veg fyrir líkams- og eignatjón af völdum hernaðarátaka, náttúruhamfara eða annarrar vár, eins og segir í lögum um Almannavarnir. Þetta er viðbúnaðarkerfi þjóðfélagsins gegn hvers konar vá sem get- ur dunið yfir það og ógnað lífi fólksins. Al- mannavarnakerfið kemur inn á nánast alla þætti þjóðfélagsins. Ef við bara tökum skipulag Almannavarna eins og það er byggt upp, þá er þetta eina stofnun landsins þar sem hægt er að setja í gang allt afl landsins í skyndi. Öll lögregla, Póstur og sími, Vegagerðin, Landhelgisgæslan, heil- brigðisþjónustan, björgunarsveitir og í rauninni allar opinberar stofnanir og mörg einkafyrirtæki koma inn í þetta. Það er skipulagt nákvæmlega fyrirfram hver gerir hvað, hvar, hvenær og hvernig, þegar eitt- hvað gerist. Stofnunin er stöðugt að skipu- leggja og fylgjast með þessum viðbúnaði og halda honum við um allt landið. Þjóðfélag- ið er alltaf að breytast og því þarf kerfið að vera í stöðugri endurskoðun og út á það gengur starfið dags daglega hjá Almanna- vörnum." - Er búist viö einhverju sérstöku öðru fremur hér á landi vegna stríðsins við Persaflóa? Er einhver sérstakur viðbúnað- ur hjá Almannavömum? „Nei, það er ekki búist við að þetta valdi beinni hættu fyrir líf eða eignir á íslandi. Á þessu stigi er eingöngu verið að ræða um efnahagsleg áhrif styrjaldarinnar. En al- mannavarnakerfið er auðvitað þannig byggt upp, að ef átökin breiðast t.d. út, þá á al- mannavarnakerfið að geta tekið tafarlaust til starfa með fullum þunga. Þegar ekkert er um að vera þá erum við hjá Almannavörn- um að undirbúa alls kyns atburði og búa til áætlanir og nú búum við að því að hafa all- ar þessar áætlanir klárar og þann viðbúnað annan sem við höfum. Almannavarna- nefndirnar hafa sínar áætlanir og grípa til þeirra ef þurfa þykir. Við höfum ekkert sér- staklega lagt þeim línurnar vegna ástands- ins við Persaflóa. Að vísu hefur verið farið yfir áætlanir hjá 14 almannavarnanefndum, þar sem við höfðum ástæðu til að ætla að ekki væri alveg nógu vel gengið frá hlut- um.“ - Nú þekkið þið hjá Almannavömum vel til afleiðinga heraaðarátaka. Hvaða áhríf hefur t.d. sýklaheraaður, getur hann kom- ið af stað farsóttum í heiminum? „Það er ekki vitað hvers konar sýkla írakar hafa undir höndum, en sýklahernaður bein- ist yfirleitt að því að sýkja beint þá sem verða fyrir sprengjuúðanum og það er ein- mitt gert til að koma í veg fyrir að eigin her verði fyrir sýkingum. Þetta eru ekki farsótt- arsýklar, heídur sýklar sem sýkja beint og er beint gegn hermönnum óvinaríkis. Hins vegar mætti alveg eins ímynda sér að sýkla- sprengjum væri hægt að koma fyrir og sprengja í öðrum borgum, svo sem New York eða Washington, því þeim er ekki endilega beint eingöngu gegn hermönnum óvinaríkisins." - Talað hefur veríð um að mikil eyðilegg- ing á olíulindum við Persaflóa geti leitt til olíukreppu. Hvað þýðir það fyrir ísland? „Ef olíubirgðir landsins færu niður fyrir hættulegt mark og hagvarnarráð myndi sjá að það væri erfitt að fá olíu, alveg óháð verðlagi, þá er gert ráð fyrir því að það færi fram skömmtun. Hugsanlega gæti slíkt komið til áður en að slíku lágmarksmarki yrði náð, ef menn hefðu mikla ástæðu til að óttast það að erfiðleikar yrðu í öflun olíu, þó svo að birgðastaða væri nokkuð góð. Skömmtun færi trúlega þannig fram að notkun einkabíla yrði takmörkuð. Það yrði reynt að sjá hvernig við gætum fullnýtt eldsneyti fyrir fiskiskipaflotann, án þess að sóa því en haldið jafnframt áfram matvæla- öflun og veiðum. Við erum blessunarlega óháð olíunni til húsakyndingar og nú bú- um við að því sem var gert á áttunda ára- tugnum eftir olíuvandræðin 1973 hvað það varðar." - Sumt fólk virðist vera skelkað yfir at- burðunum við Persaflóa. Er allt of mikið gert úr ástandinu þar og er verið að hræða fólk að ástæðulausu? „Það er mjög erfitt að segja ti! um það. Þetta er í raun spurning um það hvernig þetta er sett fram. Eins og þetta er túlkað, þá hefur fólk á tilfinningunni að komið sé heimsstríð. Auðvitað getur allt gerst hvað varðar þróun. Fleiri ríki gætu komið inn sem bandaménn íraka og annað slíkt, þó ekki sé sýnilegt útlit fyrir það nú. Miðað við ástandið eins og það er í dag er ekki sýnilegt að þetta geti valdið neinni hættu fyrir Is- lendinga eða aðra Evrópubúa og að því leyti til hefur skort á_að þær upplýsingar kæmu fram í umræðunni. Það er aðallega talað um að stríð geti brotist út, stríð muni brjót- ast út og að stríð hafi brotist út. Eins og þetta hefur verið matreitt í fjölmiðlum, þá hefur það valdið ótta. Það sem hefur verið lögð áhersla á hjá okkur, til þess að róa fólk, er að koma þeim skilaboðum á framfæri að á þessu stigi sé ekki nauðsynlegt að grípa til neinna aðgerða. Það er alveg klárt að fólk verður að fá að vita af því sem er að gerast í heiminum og fjölmiðlar eiga að flytja frétt- ir af því sem er að gerast og þeim hörmung- um sem fylgja stríði. Hins vegar á að fylgja með hvar við erum staðsett í heildarmynd- inni. Fólkið má ekki fá það á tilfinninguna að það sé sjálft inn í hringiðunni hér á land- inu. í umræðunni um Persaflóa megum við heldur ekki gleyma því sem er að gerast fyr- ir austan okkur, í Eystrasaltslöndunum. Það er líka vandamál sem við vitum ekkert hvernig getur þróast. Ég var að ræða við al- mannavarnaforstjórann í Danmörku og hann sagði mér að þeir væru með áhyggjur út af þeim vandamálum sem upp geta kom- ið út af flóttamannastraumi. Það getur komið holskefla af flóttamönnum þaðan, ef herinn eða afturhaldsöfl taka völdin." - En ef eitthvað geríst, hvað gera Al- mannavarair? „Ef einhver hætta yrði á t.d. loftárás á ís- land, þá erum við með aðferðir til að koma boðum til fólksins um þessa hættu. Við er- um með fullkomnar áætlanir um það að flytja fólk til, t.d. frá hernaðarlega mikil- vægum stöðum, ef á þarf að halda. Við erum með áætlanir til þess að undirbúa húsnæði sem getur þjónað sem loftvarnabyrgi með skömmum fyrirvara og höfum skrá yfir mikið af húsnæði sem má nota til þeirra hluta. Einnig erum við með áætlanir á reið- um höndum til þess að hýsa eða veita um- sjón þeim sem hugsanlega misstu heimili sín eða yrðu hart úti. Það eru þessi atriði sem aðallega snúa að Almannavörnum. Það er í fyrsta lagi að reyna að sjá hættuna fyrir, í öðru lagi að koma boðum til fólks um hættuna og leiðbeiningum um hegðun og í þriðja lagi að samræma og stýra þeim við- brögðum sem þarf til þess að komast undan henni. Ef það tekst ekki, þá eru til áætlanir til að bjarga og veita umönnun þeim sem verða fyrir loftárás eða afleiðingum stríðs og einnig að sjá um velferð þeirra sem þurfa að flytja sig.“ - írakar hafa hótað hermdarverkum og því að stríðið verði ekki einungis bundið við Persaflóann. Eruð þið með einhverjar áætlanir gegn hugsanlegum hermdarverk- um á flugvöllum héríendis eða við elds- neytisstöðvar, svo dæmi séu tekin? „Það heyrir beint undir lögregluna að vakta og fylgjast með mikilvægum stöðum vegna hugsanlegra hermdarverka og hafa upp á hermdarverkamönnum og fylgjast með hvort þeir koma inn í landið. Þessi hluti snýr ekki að Almannavörnum. Hins vegar snýr það beint að Almannavörnum ef hermdarverk takast og valda tjóni. Lögregl- an á að upplýsa okkur ef hún hefur grun um að hermdarverk geti verið yfirvofandi, þannig að við getum gripið til þeirra ráð- stafana að koma fólki burtu af hættusvæð- inu og einangra það. En allt, sem viðkemur beinum aðgerðum gegn hermdarverka- mönnum, snýr að lögreglunni. Víkinga- sveitin er t.d. sérstaklega sett upp til þess." - Nú hefur fólk mikið hríngt til Almanna- varaa út af stríðinu við Persaflóa. Hefur almenningur e.t.v. misskilið hlutverk Al- mannavama? „Nei, mér finnst núna á seinni árum að skilningur fólks á Almannavörnum hafi far- ið mjög vaxandi og að fólk líti á Almanna- varnir allt öðrum augum en t.d. fyrir tíu ár- um síðan. Fólk leit á þetta sem einhvern óþarfa, en núna höfum við það á tilfinning- unni að fólki finnist þetta eðlilegur og sjálf- sagður hlutur að vera með viðbúnað gegn vá og vilji hafa hann. Við höfum það einnig á tilfinningunni, þegar fólk talar við okkur, að það sé ánægt að vita af því að þetta sé til staðar ef á þarf að halda." - Almannavamaflautur hafa geflð frá sér hljóðmerki án nokkurs tilefnis að undan- förau. Er ljóst núna hveraig á því stendur? „Nei, en ég vil taka það fram alveg sérstak- lega að flauturnar eru 29 á höfuðborgar- svæðinu og í hvert skipti var það aðeins ein sem flautaði. Það hefur nefnilega komið fram í sumum fjölmiðlum að viðvörunar- kerfið hafi farið í gang. Guð hjálpi okkur ef það gerðist, því þá fyrst væri hávaði. En það hefur ekki enn fundist nein tæknileg skýr- ing á þessu. Það er búið að rannsaka þetta alveg ofan í kjölinn tæknilega og eina skýr- ingin, sem við getum látið okkur detta í hug í dag, er að það hafi einhver komist í kerfið. Það er mjög ólíklegt að það hafi ein- hver komist í stjórnstöðina þaðan sem kerf- inu er stjórnað. Það var tæknilegur mögu- leiki að komast inn á stýrilínur flautanna, en það er verið að setja fyrir þann leka núna. Það liggur lína í hverja einstaka flautu og þær dreifast því um borgina. Það er hugsanlegt að menn, sem þekkja til, geti komist inn á þessar stýrilínur. Flauturnar hafa flautað þrisvar og það merkilega við þetta er það að fyrst gerðist þetta tvær mín- útur yfir þrjú á mánudeginum, tvær mínút- ur yfir sex sama dag, nákvæmlega þremur tímum seinna og síðan tvær mínútur yfir sex á þriðjudeginum. Það rennir m.a. stoð- um undir að það sé einhver maður að þessu. Það eru svo ótrúlega litlar líkur á því að bilanir séu svona kerfisbundnar. í öðru lagi gáfu flauturnar frá sér mjög afmarkað hljóðmerki, eins og verið væri að senda á þær merki. Þær fáu bilanir, sem orðið hafa á þessu kerfi áður, þegar ein og ein flauta hefur klikkað, hafa verið þess eðlis að þá hafa þær farið í gang og flautað út, en núna var sent út merki. Einn möguleiki er sá að það hafi einhver getað gert þetta óviljandi án þess að gera sér grein fyrir hvað var að gerast." - Ef eitthvað geríst, hér heima eða er- lendis, eru Almannavarair tilbúnar og koma þær til með að virka rétt? „Við teljum að við séum tilbúnir, miðað við það umhverfi og stakk sem stjórnmála- menn hafa sniðið okkur. Það má ekki gleyma því að við leggjum til árlega tillög- ur til Alþingis um hvað við teljum að þurfi að gera til að tryggja viðbúnað Almanna- varna. Því miður er þeim að mestu hafnað árlega. Þannig hafa Almannavarnir sem slíkar ekki verið framarlega. Hvort sá við- búnaður, sem byggður hefur verið upp, myndi duga okkur í stríði getur reynslan ein leitt í ljós, en það færi mikið eftir um- fangi átaka og tegundum vopna. Sem dæmi má nefna viðbúnað gagnvart eiturefna- vopnum. Við eigum gasgrímur handa þeim liðsafnaði, sem við þurfum að kalla út til starfa, en það eru engar gasgrímur til fyrir almenning. Hinar Norðurlandaþjóðirnar, eins og Svíar og Danir, hafa verið að fram- leiða og kaupa inn gasgrímur til að eiga handa almenningi. Svíar hafa framleitt og sett á lager 300 þúsund gasgrímur á ári núna um árabil. Annað, sem að við teljum að sé of veikt hjá okkur, eru viðvörunar- kerfin. Við erum bara með viðvörunarkerfi í Reykjavík, Kópavogi og Seltjarnarnesi. Við erum búnir að leggja til núna í nokkur ár að það sé markvisst unnið að því að koma viðvörunarkerfi upp í stærri bæjum úti á landi, en ekki fengið hljómgrunn. Við höfum verið með tillögur um að tryggja frekar öryggi fjarskiptakerfisins, en það hefur ekki fengist ennþá. Þar að auki höf- um við lagt til miklu meiri þjálfun og æf- ingar. Því má segja að Almannavarnir séu ekki nægilega vel í stakk búnar hvað varð- ar búnað til að tryggja öryggi fólksins ef eitthvað meiriháttar gerist, en það er stjórnmálaleg ákvörðun. En Almannavarn- ir eru skipulagðar til að geta fullnýtt þá getu og afl sem er til staðar í þjóðfélaginu nú þegar til hins ýtrasta." Stefán Eiríksson. Laugardagur 19. janúar 1991 Tíminn 21 "" »I ..............I...... « I I 11

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.