Tíminn - 19.01.1991, Blaðsíða 13
Laugardagur 19. janúar 1991
Tíminn 25
V
Útför
Stefáns Hilmarssonar
fv. bankastjóra
verður gerð frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 22. þessa mánaðar
kl. 13.30.
Sigríður K. Thors
og fjölskylda
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
Laus staða
Við Raunvísindastofnun Háskólans er laus til um-
sóknar rannsóknastaða við reiknifræðistofu sem
veitt ertil 1-3jaára.
Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt frá 1. mars nk.
Fastráðning kemur til greina.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsækjendur skulu hafa lokið meistaraprófi eða til-
svarandi háskólanámi og starfað minnst eitt ár við
rannsóknir.
Starfsmaðurinn verður ráðinn til rannsóknastarfa,
en kennsla hans við Háskóla íslands er háð sam-
komulagi milli deildarráðs raunvísindadeildar og
stjórnar Raunvísindastofnunar Háskólans, og skal
þá m.a. ákveðið, hvort kennsla skuli teljast hluti
starfsskyldu viðkomandi starfsmanns.
Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum
um menntun og vísindaleg störf, auk ítarlegrar lýs-
ingar á fyrirhuguðum rannsóknum skulu hafa borist
menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150
Reykjavík, fyrir 15. febrúar nk.
Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dóm-
bærum mönnum á vísindasviði umsækjanda um
menntun hans og vísindaleg störf. Umsagnir þessar
skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnaðarmál og má
senda þær beint til menntamálaráðuneytisins.
Menntamálaráðuneytið,
18. janúar 1991.
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar Borg-
arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í málningu á leiguíbúðum á
vegum Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12. febrúar kl.
14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
(Reykjavík Purchasing Center)
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 - P.O. Box 878
Vigdís Finnbogadóttir, forseti fslands og Ólafur V. Noregskonungur.
Kveðja frá forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur:
Ólafs V. Noregs-
konungs minnst
Ólafur V. Noregskonungur var ein-
lægur vinur fslands og íslensku
þjóðarinnar. Þegar leiðir okkar lágu
saman erlendis lét hann það einatt í
Ijós og rifjaði upp hve allar stundir
sem hann hefði dvalið á íslandi
væru gleðiríkar í minningunni.
Hann var af þessari sterku ræktar-
sömu aldamótakynslóð, sem þakk-
látlega hefur litið til þess að marg-
víslegir draumar og hugsjónir henn-
ar hafa ræst og æðraðist hvorki né
lét bugast þótt móti blési. Sú kyn-
slóð ræktaði af sömu umhyggju
land, þjóð og frændgarð. Mér fannst
ætíð sem Ólafi konungi fyndist hann
vera í innri frændgarði þegar hann
ræddi við íslending um málefni
þjóðanna tveggja, hinnar norsku og
íslensku.
Ólafur konungur kom fjórum sinn-
um til Islands. Hið fyrsta sinn sem
krónprins Noregs þegar hann á
Snorrahátíð í Reykholti árið 1947
afhjúpaði styttu af Snorra Sturlu-
syni, sem Norðmenn gáfu íslending-
um. Síðasta sinni árið 1988 þegar
hann kom einnig færandi hendi
með stórgjöf frá Norðmönnum til
Snorrastofu í Reykholti. Þá tók land-
ið á móti þessum bjartleita höfð-
ingja í sólskini og gróðurskrúða, og
þjóðin fagnaði honum af djúpri vin-
áttu.
Við íslendingar minnumst Ólafs V.
Noregskonungs með virðingu og
hlýju og vottum Haraldi konungi V.,
sem tekið hefur við af föður sínum,
konungsfjölskyldunni og norsku
þjóðinni allri innilegan samhug
okkar.
Minningarbók vegna and-
láts Ólafs Noregskonungs:
Samúðarkveðja
til norsku
þjóöarinnar
Vegna andláts hans hátignar Ólafs
V. Noregskonungs liggur frammi í
norska sendiráðinu í Reykjavík
minningarbók fyrir alla sem votta
vilja fjölskyldu konungs og norsku
þjóðinni samúð.
Minningarbókin liggur frammi í
bústað sendiherra Noregs, Fjólugötu
15, nk. mánudag og þriðjudag kl. 10-
12 og 14-16 báða dagana, en frá og
með miðvikudegi í norska sendiráð-
inu, Fjólugötu 17, á sömu tímum
dags.
HEILSUGÆSLUSTÖÐ
Á SIGLUFIRÐI
Tilboð óskast í breytingar og innréttingu á hús-
næði fyrir heilsugæslustöð á Siglufirði í hluta nú-
verandi húsnæðis Sjúkrahúss Siglufjarðar.
Verktími ertil 15. maí 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7, Reykjavík, til og með fimmtudags
31. janúar gegn 10.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R., Borgartúni
7, þriðjudaginn 5. febrúar 1991, kl. 11.30.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVlK
ÞJÓÐARBÓKHLAÐAN
Tilboð óskast í frágang innanhúss, þ.e. í kjörn-
um, brú og forhýsi, klæðningu útveggja, málun
o.fl. í húsi Þjóðarbókhlöðunnar við Birkimel.
Verkinu skal lokið fyrir 1. desember 1991.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri,
Borgartúni 7, Reykjavík, til og með 13. febrúar
1991 gegn 15.000,- kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R., Borgartúni
7, þriðjudaginn 19. febrúar 1991 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVÍK