Tíminn - 19.01.1991, Page 16

Tíminn - 19.01.1991, Page 16
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 AKTU EKKI ÚT í ÓVISSUNA. AKTUÁ Ingvar Kelgason hf. Sævarhöfða 2 Slml 91-674000 Tíminn LAUGARDAGUR19. JANÚAR1991 LEIFTUR- FRYSTING MATVÆLA Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins kynnti sl. fimmtudag frystiaðferð sem er frábrugðin hefð- bundnum frystiaðferðum að því leyti að frysti- hraðinn er mun meiri og því verður myndun ís- kristalla öðruvísi. Frystiaðferðin er kölluð leift- urfrysting og þykir hún henta vel fyrir dýrar af- urðir s.s. humar og hrogn og ýmsa tilbúna rétti. Leifturfrysting byggist á því að fljótandi lofttegundum, gjarnan köfnunarefni, er úðað inn í fry- stiklefa með afurðunum sem á að frysta. Þar gufar það upp og kröftugir blásarar sjá um að hringrása þeim og viðhalda jöfnu hitastigi í klefanum. Fyrirtækið ÍSAGA hefur í samvinnu við fyrir- tækin Yleiningu hf. og Klaka sf. ásamt Geir Þ. Zoéga vélaverk- fræðingi, smíðað frysti þar sem fljótandi köfnunarefni er notað sem kælimiðill. Frystirinn var, eins og áður sagði, kynntur blaðamönnum sl. fimmtudag og verður hann prófaður á næstunni í Fiskvinnsluskólanum í Hafnar- firði undir umsjá Rannsókna- stofnunar fiskiðnaðarins. Frystiaðferð þessi var prófuð hjá Fiskiðjuveri KASK á Hornafirði við heilfrystingu á humri á síð- ustu humarvertíð og þótti gefa góða raun. Helstu kostir leiftur- frystingar eru þeir að sá tími sem Gunnar Bragi Guðmundsson véltæknrfræðingur og Halldór Þórarinsson matvælaverkfræðingur kynna lerftur- frystinn fyrir blaðamönnum. Tímamynd: Ami Bjama tekur að frysta vöruna er mun styttri en við hefðbundna hrað- frystingu. Þetta þýðir að ef frysti- hraðinn er nægjanlega mikill verður minna vökvatap eftir upp- þíðingu vörunnar, sem hefur bein áhrif á nýtingu og gæði hennar. Þar sem leifturfrysting er tiltölu- lega dýr valkostur má ætla að þessi frystiaðferð henti helst dýr- um afurðum, eins og áður sagði. Hins vegar kemur það á móti há- um rekstrarkostnaði að stofn- kostnaður er mun lægri en við hefðbundna frystingu. Þar að auki er frystirinn mjög meðfæri- legur og einfaldur í uppsetningu. Leifturfrystirinn verður eins og áður sagði prófaður í Fisk- vinnsluskólanum í Hafnarfirði og gefst fyrirtækjum tækifæri til að frysta afurðir sínar þar án endur- gjalds. —SE RENAULT Bílaumboðið hf Fer á kostum Krókhátsi 1 -3. Reykjavík, sírni 686633

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.