Tíminn - 07.02.1991, Qupperneq 2
2 Tífninn
Fimmtudagur 7. febrúar 1991
Sjúkraliðafélag íslands:
Áformar stofnun
stéttarfélags
Flugtak og Arnarflug innanlands sameinast í nýtt flugfélag:
íslandsflug hf.
Sjúkraliðafélag íslands hélt fjöl-
mennan félagsfund í gær þar sem
rædd voru áform félagsins um að
stofna sérstakt stéttarfélag, en
Sjúkraliðafélagið hefur fram að
þessu einungis verið fagfélag.
Sjúkraliðar hafa hingað til tilheyrt
hinum ýmsu stéttarfélögum eftir
vinnustað og heyra þau flest undir
BSRB.
Að sögn Kristínar Guðmundsdótt-
ur, formanns Sjúkraliðafélagsins, þá
er mikill áhugi innan sjúkraliða-
stéttarinnar um stofnun sérstaks
stéttarfélags sem færi með kjaramál
og hagsmunamál sjúkraliða og sæki
um séraðild að BSRB. „Sjúkraliðar
eru um 2000 manna stétt og við er-
um dreifð í um 27 starfsmannafélög
vítt og breitt um landið, sem hvert
og eitt fara með kjaramál sjúkraliða.
Með stofnun stéttarfélags höfum við
hugsað okkur að sjá um okkar mál
sjálf,“ sagði Kristín í samtali við
Tímann í gær.
Kristín sagði að nú væri máiið á
undirbúningsstigi og að ætlunin
væri að ganga til atkvæðagreiðslu
um stofnun stéttarfélagsins í mars
n.k. —GEÓ
Fyrirtækið Alpan hf. á Eyrarbakka hefur framleitt og selt yfir eina
milljón af pottum og pönnum úr áli frá því fyrirtækið hóf útfiutning
árið 1986. Af þessu tilefni var milljónasta og milljónasta og fyrsta
eintak pannanna, sem Alpan h.f. framleiðir, afhent Jóni Sigurðssyni
iðnaðarráðherra og hr. Bemhard Brasack, fyrsta sendiráðsritara
þýska sendiráðsins, á blaðamannafundi í gær.
Að sögn Jóns Búa Guðlaugsson-
ar, stjórnarformanns Alpan hf., er
mikill meirihluti framíeiðslunn-
ar seldur á erlenda markaði og er
Þýskaland stærsti markaðurinn,
en framleiðslan er nú seld til um
16 landa. Um samfellda sölu-
aukningu hefur verið að ræða hjá
fyrirtækinu undanfarin ár og er
gert ráð fyrir að heildarsalan í ár
verði um 400 þúsund pottar og
pönnur, sem er meira en nokkru
sinni fyrr í sögu þess.
Jón Búi sagði einnig að velta fyr-
irtækisins hafi verið um 315
milljónir króna árið 1990, þar af
var útflutningsverðmæti tæplega
300 milljónir króna. Velta fyrir-
tækisins var um 230 milljónir ár-
ið 1989. Má segja að heildarsölu-
verðmæti framleiðslunnar á Eyr-
arbakka sé um einn milljarður
króna á núvirði. Fjölbreytni gæt-
ir í framleiðslunni, en þeir fram-
leiða um 50 stærðir og útfærslur
af pönnum og pottum úr áli.
í fréttatiikynningu frá Alpan hf.
segir frá því að fyrirtækið var
stofnað árið 1984 og hóf rekstur
með því að kaupa danskt ál-
steypufyrirtæki, Pandefabrikken
Look International A/S, en það
hafði þrjátíu ára reynslu á steik-
arpönnum úr áli. Arin 1987 og
1988 var framleitt í báðum verk-
smiðjunum, á Eyrarbakka og í
Frá vinstrí: Jón Búi Guðlaugsson stjómarformaður Alpan hf., Bemhard Brasack fyrsti sendiráðsrítarí þýska
sendiráðsins og Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra með pönnumar góðu. Tímamynd: Pjetur
Alpan hf. á Eyrarbakka hefur selt yfir 1 milljón pönnur:
Stórútflutningur á
álpönnum og pottum
Danmörku. Árið 1989 var öll
framleiðslan flutt til Eyrarbakka,
eftir að hluti dönsku verksmiðj-
unnar hafði brunnið. Nú starfa
nálægt 50 manns við fyrirtækið á
Eyrarbakka. Einungis fimm
starfsmenn eru eftir í Danmörku,
en þeir voru um 40 á árunum
1987 og 1988. Alpan hf. kaupir
ýmis hráefni til framleiðslunnar,
meðal annars ál frá ÍSAL, glerlok
á potta og pönnur frá Frakklandi
og handföng og fleira frá Þýska-
landi. ,
—GEÓ
Þorvaldur Garðarsson hjá Smára í Þorláks-
höfn vísar á bug ásökunum um veðsvik:
Bankinn vill
„Þetta eru algeríega rangar ásak-
anir,“ sagði Þorvaldur Garðarsson,
fyrrum framkvæmdastjóri Smára
hf. í Þorlákshöfn, af þvf tilefni að
Landsbankinn hefur óskað eftir
rannsókn á því hvort fiskur, sem
aldrei var til, hafi verið veðsettur
fyrir lánum til stöðvarinnar.
.Jttaður spyr sjálfan sig að
ástæðu: Fiskeldið rtrðist gersam-
kga vera að hiynja. Landsbanldnn
er að lenda í gífuriegu tapi sem
skiptir ábyggilega hundruðum
milljóna. Bankamenn viija vænt-
anlega firra sig ábyrgð og benda
því á einhveija aðra sem hugsan-
lega sökudólga,“ sagði Þorvaldur.
Það var síöasta haust að kýlaveiki
greindist í seiöaeldisstöö Smára
og fékk hún þá á sig dreifingar-
bann. „Við tilkynntum það til
bankans um áramót og afþökkuð-
um þá hækkun á afurðaláni, sem
samþykkt haföi verið að veita okk-
ur, en þegar þegar þessir erfiðleik-
ar okkar komu í Ijós og við höfðum
skoðað stöðuna betur, sáum við
okkur ekld annað fært en að lýsa
fyrirtækið gjaldþrota. Það var því
brugðist við með eins skjótum
hætti af okkar hálfu og hægt var.
Hins vegar er bankinn að bera
saman einhveijar tölur eftir að
tjónið kom upp við eldri skýrsiur
og það hlýt égað kalla rangfærslur
á sannleikanum,“ sagðí Þorvaldur.
Þorvaldur telur vinnubrögð
Landsbankans f málinu furðuleg
og líkir þeim viö galdrabrennur.
,JÞað er furðulegt að stofnun eins
og Landsbankinn skuli kjósa að
vinna störf sín með æsifrétta-
mennsku. Ég vísa því öllu til föð-
urhúsanna sem nefnt er falsanir
eða rangar upplýsingar."
-sbs.
Nýtt innanlandsflugfélag hefur
verið stofnað og ber það nafnið ís-
landsflug hf. Það voru fyrirtækin
Flugtak og Arnarflug innanlands
sem sameinuðust við stofnun
þessa nýja flugfélags. Flugtak er í
eigu fyrirtækisins Höldur hf. á Ak-
ureyri, og keypti það meirihlut-
ann í Arnarflugi innaniands og
sameinuðu fyrirtækin þar með.
Eigendur íslandsflugs er Höldur
hf. á Akureyri, sem er í eigu
Skúla, Vilhelms og Birgis Ágústs-
sona eða Kennedybræðranna svo-
kölluðu, Ómar Benediktsson sem
er nýráðinn framkvæmdastjóri ís-
landsflugs og Gunnar Þorvalds-
son, auk nokkurra starfsmanna
félagsins.
Hiutafé íslandsflugs hf. verður
50 milljónir króna. Hlutaféð
skiptist til helminga milli Flug-
taks og Arnarflugs innanlands.
—GEÓ
Sigurvegarar í tölti á vetrarmóti Geysis. Magnús Hreinsson og Kleópatra frá Árbakka lengst til hægri.
KLEÓPATRA FRÁ
ÁRBAKKA SIGRAÐI
Sigurmon Hart-
mannsson er látinn
Sigurmon Hartmannsson lést á
Dvalarheimili aldraðra á Sauðár-
króki sl. föstudag. Sigurmon var
fæddur 1905 og bjó lengst af í
Kolkuósi í Viðvíkursveit. Hann var
landsfrægur fyrir hrossarækt sína,
sérstaka ættlínu hrossa af Svaða-
staðakyni, Kolkuósshrossin. Sig-
urmon gegndi fjölda trúnaðarstarfa
fyrir sveitarfélag sitt og var m.a.
oddviti Viðvíkursveitar. Eftirlifandi
eiginkona Sigurmons er Haflína
Björnsdóttir, en þau eignuðust þrjú
böm.
Fjögurra vetra hryssa, Kleópatra frá
Árbakka, sigraði á fyrsta vetrarmóti
hestamannafélagsins Geysis, sem
haldið var á Hellu sl. Iaugardag.
Knapi á hryssunni var Magnús
Hreinsson, en eigendur hennar eru
Lars og Anders Hansen á Árbakka.
Diljá frá Skarði varð í öðru sæti,
eigandi Fjóla Runólfsdóttir, knapi
Kristinn Guðnason. Sverta frá
Stokkhólma varð þriðja, knapi Gylfi
Gunnarsson, en eigendur eru Anders
og Lars Hansen á Árbakka. TVygg-
lynd frá Selfossi varð í fjórða sæti,
eigandi og knapi Kristjón Kristjáns-
son. Stjarna frá Hvammi varð
fimmta, eigandi Kristján Kristjóns-
son á Hellu en knapi Kristján Jóns-
son. Sokka frá Árbakka varð sjöunda,
eigandi Jakop Hansen frá Árbakka.
Knapi í forkeppni Gylfi Gunnarsson
en Gunnar Már Gunnarsson í úrslit-
um. Vorsól frá Dalvík varð áttunda,
eigandi Kristján Karlsson en knapi
Reynir Aðalsteinsson. Eldur frá
Skarði varð níundi, eigandi Kristinn
Guðnason og knapi Marjolyn Tiepen.
Smári frá Hellu varð tíundi, eigandi
og knapi Kristinn Guðnason.
Ibarnaflokki var Sigríður Theódóra
Kristinsdóttir efst á Riddara. Funi og
Rafn Bergsson í öðru sæti, Káinn og
Magnús Agústsson þriðju, Stjami og
Erlendur Ingvarsson fjórðu, Skotta
og Guðmundur H. Guðmundsson
fimmtu, Irpa og Fannar Bergsson
sjöttu, KIó og Ólafur Þórisson sjö-
undu, Börkur og Helgi Guðmunds-
son áttundu og Smellar og Steinar
Freyr í nfunda sæti.
Folöld verða veitt í verðlaun í báð-
um flokkum fyrir besta árangur á
öllum fjórum vetrarmótum þessa
árs, en næsta móti verður haldið
laugardaginn 2. mars.