Tíminn - 15.02.1991, Page 6

Tíminn - 15.02.1991, Page 6
6 Tíminn Föstudagur 15. febrúar 1991 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavlk Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. Ingvar Glslason Aðstoðarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjórar: Birgir Guðmundsson Stefán Ásgrlmsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Glslason SkrifstofurLyngháls 9,110 Reykjavík. Síml: 686300. Auglýsingasíml: 680001. Kvöldsíman Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, taeknideild 686387. Setnlng og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaðaráskrift kr. 1100,-, verð I lausasölu kr. 100,- og kr. 120,- um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 „Skekkjumörk<c Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, segir í viðtali við Tímann í gær, að menn séu farnir að „setja spurningarmerki“ við loðnumælingar Hafrann- sóknastofnunar, „hvort þær gæfu raunhæfa mynd af stærð stofnsins." Hann talar um að „skekkjumörk- in“ séu mikil og segir að fiskifræðingarnir hafi í fyrstu gefið vísbendingar um að veiða mætti milljón tonn á þessari vertíð. Út af fyrir sig er ekkert rangt í því sem Kristján seg- ir. Bjartsýni milljón tonna spárinnar er ekki í sam- ræmi svartsýni kvartmilljón spádómsins sem nú er talað um. En þegar öllu er á botninn hvolft var hinni fyrrnefndu tölu hreyft á íyrstu stigum athugana með þeim fyrirvörum sem þar um gilda. Þetta var getgáta á ákveðnu tímabili, en engin spá, varla annað en framreikningur á reynslu fyrirfarandi missera með fyrirvörum. Fiskifræðingar eru ekki forspáir nema að því leyti sem þeir geta dregið ályktanir af rann- sóknum sínum og reynsluþekkingu. Af sjálfu leiðir að slíkar ályktanir eru ekki óskeikular, auk þess sem það er varla skynsamlegt að krefjast fullkominnar nákvæmni í vitneskju um hegðun slíks flökkufisks sem loðnunnar, sem m.a. hefur átt það til að hverfa fyrirboðalaust og sjást ekki fyrr en eftir nokkur ár, eins og gerðist fyrir 10 árum og mönnum má vera í fersku minni. Nú liggur hins vegar fyrir ný reynsla um ástand loðnustofnsins. Þar er ekki eingöngu um að ræða reynslu fiskifræðinganna, heldur einnig og engu síður reynslu loðnuveiðimanna sjálfra, útgerðar- manna og eigenda loðnuverksmiðja. Þrátt fyrir góð- ar vonir og líkindareikninga kom engin loðnuganga á miðin í sumar og haust, hvorki samkvæmt álykt- unum fiskifræðinga né bjartsýni skipstjóra og út- gerðarmanna. Fiskifræðingar og sjómenn eru hins vegar sammála um það nú, að loðnuveiði sé að glæðast og hafi sýnt þess merki eftir áramótin. Þessu ber sannarlega að fagna, enda hefur sjávarút- vegsráðherra heimilað að veiða megi að svo komnu 175 þúsund lestir af loðnu sem skilað getur miklu verðmæti ef vel tekst til um nýtingu aflans. Þótt e.t.v. megi líta svo á að spádómar Hafrann- sóknastofnunar hafi ekki í öllu reynst réttir um göngu loðnunnar og tímasetningar í því sambandi er mikill misskilningur að halda að aðrir viti betur um lífshætti þessa fisks og annarra fisktegunda en starfsmenn stofnunarinnar. Að sjálfsögðu verða hagsmunaaðilar og ríkisvaldið að reiða sig á þekk- ingu fiskifræðinganna og beita dómgreind sinni hver fyrir sig um hvaða ályktanir megi af henni draga í hagnýtum tilgangi í atvinnulífinu. Það væri heldur frumstætt að fara að kenna fiskifræðingum um aflabrest og dæma þá á bálið eins og Svíar gerðu við konung sinn Ólaf trételgju þegar hallæri reið yf- ir landið einhvern tíma í grárri forneskju. Svíar voru vanir að kenna konungi bæði árgæsku og hallæri, segir í fornum bókum. íslendingar nútímans ættu að hlífa vísindamönnum við þess háttar oftrú á mátt sinn til góðs eða ills. GARRI 1 Umræ&ur hér á landi um inngöngu í Efnhagsbandalag Evrópu hafa alltaf vcrið á alvariegum nótum. Mcnn hafa bcnt á óskoraðan rétt okkar til landgrunnsins, scm viö fengum efBr mikla baráttu, og bent hefur verið á ótakmarkað úatbi fóiks hingað í atvinnuieit. Sam- ræmdur markaður hefur líka sínar dekkri hliðar. En það sem stendur ofar ÖUu er réttur okkar tíl fiski- miðanna við landíð. Hann afhend- um við ekki. I grannlöndum okkar á sér líka stað umræða um inn- göngu í EB. Hún er kannsld eidd eins alvöruþrungin og bér heima, vegna þess aö þar er af fleiru að taka. Svfar hafa m.a. látið á sér skilja að þeir muni innan skamms tíma ganga í EB og virðist ekki mikii andstaða vera við þá ákvörð- un meðal almennings. Samt er komið upp eitt mál, sem gengur þvert á hagsmuni Svía, en það varðar notkun neftóbaks. Fréttir bárust af því í gærmorgun, að EB- löndin ætiuðu að innieiða bann við sölu neftóbaks. Svíar hrukku við og teija að siíkt bann sé ótækt með ÖUu. „ Sugu pontuna Þannig geta neysiumál eins og f vegi sameiningar. Svíar hafa margt gott gert, en það er ektó fyrr en EB tetlar að fara að banna notk- un neftóbaks sem kemur í Ijós að Svíar eru neftóbaksmenn ágætír. Hér heima hefur ekki enn komið tíl þess, að menn hafi þurft að tjá sig um bann neftóbaks. Á tímum i „ annarra Isiandsvina vorum við frægir nef- tóbaksmenn. Tefkningar birtust af okkur í eriendum ritum feróa- garpa, sem urðu að ganga bognir inn í okkar lágu hús, þar sem menningin biómstraði á kvöidvök- um við ljós kniunnar, við að taka í neflð. Islendingurinn stóð bí- sperrtur í stuttjaidra sínum og hné- buxum með tóbakspontuna í ann- arri nösinni en höfuðið halit aftur svo nikótfnið kæmíst nógu greið- eins og menn kölluðu það, sem iyrir innan var. Svíar taka í vörina Þessar myndbírtíngar af afkára- iegum myndum af íslendingum við tóbaksiöjuna þýddu f raun að abnennt var álítlð að við værum meiri neftóbaksþjóð en almennt gerðist. Nú er hins vegar komið á daginn, þótt lægra haft farið, að Svíar munu hugsa sig tvisvar um að ganga í EB eigi að taka af þeim neftóbakið. Þetta kom Garra svo á óvart, eftir að hafa lengi lifað f þcirri trú að neftóbaksnotkun f dag væri fyrst og fremst siður á ís- iandi, að hann getur eldtí upidýst tfl hvers Svfar nota neftóbakið. Þeir eru snyrtilcgt fólk, og bera því eldd vitni að þeir taki f neflð. Vel getur verið að þeir tald tóbak í vör- ina. Einhver dæmi eru þess að hér taki menn f vör, en helst var notað tjól og tuggið gríðariega af þeim sem vöndu sig á það. Eru margar sögur tfl af því hvað menn spýttu fagurlega og hvað þeir voru hittnir á hrákadallinn, jafnvel aftur fyrir sig eða til hliðar. EB ætlar engar „Brödrene Braun" verða ekki bannaðir í bráð. Forysta í neftóbaki En öflu fer aftur. Neftóbaksnotuu við það sem áður var. Helst munu það vera ekiri meon, sem nota rjól búðum. Líkiega hafa Svár tekið við því hlutverid að vera forystuþjóð í neftóbaki. Fer vei á því, enda hlutverid, a.m.k. innan Norður- landanna. liit er tii þess að hugsa verði þeir fyrir því, vegna þarfa al- þjóðlegrar samvinnu, að þurfa að missa ueftóbakið. En þeir finna þá eitthvað annað tfl að taka í vörina. Ath.: Garra hefur verið bent á, að heilsuþjónustan á Hressó, hvað tóbaksbann snertir, nái aðeins til átta borða í veitingastaönum. Þau séu tekin frá fyrir tóbaksiausa samvæmt reglugerð. Heímiit er um ii, svo f EB. VÍTT OG BREITT I Tíminn birti í gær mynd af bíl á hliðinni og stóð undir að harður árekstur hafi orðið á mótum Hálsa- brautar og Krókháls. Tveir bílar ultu og skemmdust allsvakalega. Fólk meiddist. Varla er þetta í frásögur færandi þar sem nokkrir tugir árekstra verða daglega og er helst fréttnæmt ef svo og svo margir deyja á stund- inni þegar umferðin krefst fórna sinna. Stöð 2 birti einnig frétt af þessum árekstri og var sú frásögn eftirtekt- arverð, því tekið var fram að annar bflstjórinn hefði tekið réttinn af hinum. Síðan var farið yfir þá grein umferðarlaga sem víkur að bið- skyldu. Á mótum gatna þar sem hvorug er aðalbraut og bflar fara um samtímis ber þeim sem hefur ökutækið á hægri hönd að stansa. Biðskyldan er gagnvart þeim sem kemur frá hægri. Réttur og réttleysi Þetta tók fréttamaður fram skýrt og greinilega og eins hitt að bfll á aðalbraut á réttinn gagnvart þeim sem ekur inn á aðalbrautina. Hálsabraut og Krókháls eru rétt við bæjardyr Stöðvar 2 og Tímans og fara starfsmenn því oft þarna um og iðulega framhjá klesstum bflum. Ekki er að sjá þarna, fremur en annars staðar á götum og vegum, að bflstjórar hafi hugmynd um hver á réttinn og hver ekki. Langflestir djöflast áfram þvert yfir öll gatna- mót og láta guð og lukkuna ráða hvot klessuverk verður úr eða ekki. Þegar svo stansað er fyrir umferð frá hægri er allt eins víst að sú um- ferð stansi líka og hafa bflstjórar þá enga hugmynd um að þeir eigi rétt- inn. Það er sem sagt svínað eða réttur- inn gefinn eftir á víxl vegna þess að ökumenn hafa ekki hugmynd um hvaða reglur gilda og eina svarið við óskapnaðinum er að hækka iðgjöld bflatrygginga. Bragð er að Bragð er að þá barnið finnur og það er áreiðanlega engin tilviljun að fréttamenn, sem oft leggja leið sína um hættuslóðir hálsa og brauta, reyna að leiðbeina öku- mönnum hvernig ber að aka til að forðast háskann. Ökukennsla er í slíkum molum að réttast væri að leggja hana niður með öllu. Þeir sem prófa og skrifa upp á réttindi vita sjálfsagt hvað þeir eru að gera, en árangurinn af starfi þeirra ber hæfni þeirra ekki fagurt vitni. Umferðardeildir lögreglu ætti einnig umsvifalaust að leggja niður. Þær eru ekkert annað en baggi á skattgreiðendum. Umferðarstjórn er engin til og aldrei er gert neitt til að leiðbeina ökumönnum eða reynt að koma einhverju skipulagi á óskapnaðinn. Strákiingar í lög- reglubflum, sem sjálfir ganga á undan með slæmu fordæmi og brjóta hverja grein umferðarlaga af annarri í skemmtireisum sínum um götur og vegi, gætu gert meira gagn í öðrum störfum. Ef ferðir strætisvagna eru skipu- lagðar á þann veg að þær standist ekki án lögbrota bflstjóranna verð- ur að skipta um yfirmenn á þeim bæjum. Svona má lengi telja. Það er betra að setja engin lög en að lögbinda ákvæði sem ekki er ætlast til að nokkur maður þekki eða fari eftir. En þannig er farið með íslensk um- ferðarlög. Þá er umferðarráð þarflaus stofn- un og ekki meira um það að sinni. En athugandi væri að finna smugu í tröllauknu menntakerfi fyrir öku- kennslu og alvörukennslu í um- ferðariögum. Vel mætti sleppa margri hjáfræðinni til að koma slíkum námsbrautum að. Kostnað- ur þarf því ekki að aukast. Það þýðir ekki endalaust að kenna fáráðunum í umferðinni um allt sem þar fer aflaga. Það eru allar yf- irstjórnir umferðarmála sem eru liðónýtar og meðan þar er hvergi bætt úr fer allt í klessu. OÓ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.