Tíminn - 15.02.1991, Side 8

Tíminn - 15.02.1991, Side 8
8 Tíminn Föstudagur 15. febrúar 1991 Föstudagur 15: fébfúar 1991 Tíminn 9 iw8S»5SSíí83S»»«« Breyta þarf lögum, lækka skatta og auka einkavæðingu til að ísíensk fyrirtæki geti staðið sig í samkeppni við lönd EB: HEILBRIGDISÞJÓNUSTAN EINKA- VÆDD OG MARKADSSETT ERLENDIS Tengsl íslands við innri markað Evrópu og aðlögun atvinnulífsins að fyrirhuguð- um breytingum þar, var efst á baugi Við- skiptaþings Verslunarráðs íslands, sem haldið var á Hótel Sögu á miðvikudaginn. Á þinginu voru kynntar niðurstöður af starfi 70 manns í fimm nefndum og var meginniðurstaða nefndanna sú að til þess að ná árangri í viðskiptum við lönd EB, þurfi fyrirtækin að tengjast mörkuðum í Evrópu betur, án þess þó að ganga í bandalagið. Til þess að íslensk fyrirtæki séu samkeppnisfær við fyrirtæki í Evrópu þarf að breyta lögum og lækka skatta fyr- irtækja hér á landi í samræmi við lög og skatta í EB-löndum. Nefndirnar fímm sem starfað hafa sl. fimm mánuði, fjölluðu um fjármagnsmarkað, vöru- markað, þjónustumarkað, skattamál, mann- auð og náttúruauðlindir. Nefndarmenn voru 70 menn úr viðskipta- og atvinnulífinu og voru karlmenn þar í miklum meirihluta, ein- ungis fimm konur áttu sæti í nefndunum. Helstu viðfangsefni nefndar sem fjallaði um fjármagnsmarkað voru m.a. fjárfestingar er- lendra aðila á íslandi, endurskoðun á gjaldeyr- isreglum og verðbréfaviðskipti. Fram kom í niðurstöðum nefndarinnar að hún styður ein- dregið opnun íslensks efnahagslífs fyrir er- lendu áhættufjármagni. Þar er bent á að ís- lenskt atvinnulíf þurfi að tengjast erlendu at- vinnulífi með mun nánari hætti í framtíðinni eigi það að vera samkeppnishæft. Þá varaði nefndin við takmörkun á fjárfestingum er- lendra aðila og var á móti takmörkunum, sem koma fram í frumvarpi um fjárfestingar er- lendra aðila, á erlendri fjárfestingu í sjávarút- vegi sem og öðrum takmörkunum sem þar koma fram. í sambandi við endurskoðun á gjaldeyrisreglum fjallaði nefndin aðallega um framtíðarskref í kjölfar reglugerðar nr. 312 frá 1990, en með henni voru, að mati nefndarinn- ar, stigin stór skref í frjálsræðisátt. Hins vegar telur nefndin að eftir eigi aö gera fleiri breyt- ingar, m.a. að rýmka heimildir til ráðstöfunar gjaldeyris sem aflað er með sölu á vöru og þjónustu, ekki þurfi milligöngu banka til að flytja inn fé til fjárfestingar og að gengi krón- unnar geti breyst fyrirvaralaust en ekki aðeins einu sinni á dag. Meginniðurstaða nefndar- innar um opinbera og hálfopinbera sjóði, s.s. fjárfestingalánasjóð og húsnæðislánakerfið, var sú að þessir sjóðir verði að hverfa sem slík- ir. Hugsanlega megi breyta einhverjum sjóð- anna þannig að þeir geti starfað svipað ábyrg- um bankastofnunum. Nefndin telur að hús- næðislánakerfinu frá 1986 eigi að loka strax og flytja eigi húsbréfakerfið til banka, spari- sjóða og verðabréfafyrirtækja. Þá telur nefndin að ýmislegt sé óunnið áður en íslenskur verðbréfamarkaður hafi náð full- um þroska. Markaðurinn eigi væntanlega eftir að tvöfalda stofnstærð á næstu fimm árum og verða 250 milljarðar króna. Veltan eiga eftir að þrefaldast og verða a.m.k. 150 milljarðar króna árið 1996. Helsta niðurstaða nefndar- innar var sú að efla skyldi Verðbréfaþing ís- lands eða sambærilegan vettvang þannig að hann nái sambærilegri stöðu og kauphallir er- lendis. Aðalviðfangsefni nefndar sem fjallaði um vörumarkað voru afnám úreltra vinnubragða sem kallast viðskiptahindranir, nýjar leikregl- ur sem koma í staðinn fyrir þær og varða lög- mál markaðarins og skyldur opinberra aðila við hann og ný vinnubrögð í gæðastjórnun vöruframleiðslu og vottun þess að varan sé góð. Nefndin telur ljóst að draga þurfi upp nýja mynd af atvinnulífinu miðað við þær breyt- ingar sem á því verða við afnám landamæra á milli viðskiptalanda okkar og ekki síður miðað við þær breytingar sem við verðum að gera að eigin frumkvæði til að geta skipt áfram og keppt við aðrar þjóðir. Þetta þýðir, segir í áliti nefndarinnar, að hvorki stjórnkerfí okkar, framleiðslutæki né markaður mega líða fyrir eyjamennsku eða fornmennsku, en þjóni sem samvirkur, vel smurður vélbúnaður, gíraður inn á efnahagskerfi viðskiptaþjóðanna. Stjómsýsluhlutverkið fært frá Pósti og síma Nefnd sem fjallaði um þjónustumarkað skil- aði skýrslum um sex málaflokka. Þeir voru sjónvarp, fjarskipti, tryggingar, flugmál, flutn- ingar á sjó og ferðaþjónusta. Helst niðurstaða nefndarinnar um sjónvarp er sú að breyta þurfi skilgreiningu íslenskra laga á því hvað teljist útvarpsstöð. í EB er útvarpsstöð skil- greind sem upprunalegur sendandi útsend- ingar. Endurvarp á útsendingu annars aðila telst ekki útvarpsstöð. í sambandi við fjar- skipti benti nefndin á að samkeppni er að stór- aukast á sviði ijarskipta. Nefndin lagði til að stjórnsýsluhlutverk Pósts og síma verði fært frá stofnuninni og hún verði alfarið rekin sem fyrirtæki. Nefndin kynnti sér breytingar sem orðið hafa á lagaumgjörð flugrekstrar í EB og væntan- legar breytingar. Búið er að stíga nokkur skref í frjálsræðisátt og nú er m.a. stefnt að afnámi ríkisstyrkja og opnun heimilda til innanlands- flugs utan heimalands. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að hvernig svo sem sam- bandi íslands við EB verður háttað, sé Ijóst að flugfélög sem fljúga til EB þjóða, muni þurfa að hlíta reglum þess á mörgum sviðum. Nefndin fjallaði um þróun mála í flutninga á sjó í EB og áhrif hennar á íslensk skipafélög. Var m.a. fjallað um svokallaða EUROS skipa- skráningu en eitt af atriðum hennar er skatt- frelsi áhafna meðan siglt er utan lögsögu EB ríkja. Helsta niðurstaða nefndarinnar var sú að íslensk löggjöf yrði að vera samkeppnisfær. Bent var á að áhafnarkostnaður sé tiltölulega hár og á bilinu 25%-45% af rekstrarkostnaði skipa. Með aukinni samkeppni erlendis frá verði íslensku skipafélögin að skrá skip er- lendis og fá á þau erlendar áhafnir eða njóta sambærilegrar lagaumgerðar og erlendu keppinautarnir fá. Einkavæðing heilbrigðis- þjónustu og menntamála I niðurstöðum nefndar sem fjallaði um skattamál kom fram að sl. áratug hefur hag- vöxtur á íslandi verði óviðunandi. í OECD skýrslu um ísland frá því í maí 1990 er áætlað að árlegur hagvöxtur á íslandi verði að meðal- tali næsta áratuginn á milli 1,5-2%. í niður- stöðum nefndarinnar segir að þessi áætlun sé alvarleg aðvörun og megi í raun ekki rætast. Við verðum að taka til hendinni á öllum svið- um og þá ekki síst á skattasviðinu. Meðan skattlagning fyrirtækja á íslandi hafi hækkað verulega hafi samkeppnislönd okkar verið að lækka skattlagningu á fyrirtæki. Tryggingagjald og aðstöðugjald veikja að mati nefndarinnar samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs. í niðurstöðunum kemur fram að aðstöðugjaldið verði að hverfa eigi staða ís- lenskra fyrirtækja að vera sambærileg því sem gengur og gerist, því það eigi sér ekki lengur hliðstæðu hjá okkar helstu viðskipta- og sam- keppnisþjóðum. Nefndin gerði tillögu um að aðstöðugjaldið yrði afnumið og í staðinn komi til athugunar að leggja sérstakt álag á virðis- auka. Þannig yrði grunnur fyrirtækja til VSK notaður og lagður á sérstakur skattur óháður framleiðslu og því hvort hún væri seld innan- lands eða til útlanda. Þá fjallaði nefndin um skilvirkara virðisauka- óg tekjuskattskerfi. Nefndin lagði til að skatt- prósenta VSK yrði lækkuð niður í 15%. Með afnámi undanþága, meiri viðskiptum innan- lands og bættum skattskilum væri ekki víst að ríkissjóður yrði af ýkja miklum tekjum þótt skattprósentan lækki þetta mikið, segir í nið- urstöðum nefndarinnar. Þá telur nefndin að ísland skeri sig úr öðrum þjóðum fyrir afar hátt skatthlutfall í tekjuskatti fyrirtækja. Að- eins Þýskaland og Svíþjóð hafa nú svipað hlut- fall af hópi þeirra þjóða sem íslendingar bera sig gjarnan við. Nefndin telur að skatthlutfall í tekjuskatti verði að lækka í a.m.k. 35% ef fyr- irtæki á íslandi eigi ekki að búa við lakari skil- yrði að þessu leyti en gengur og gerist erlend- is. Nefndin leggur til að skattheimta ríkisins verði minnkuð og þar með umsvif ríkisins. „Þegar litið er á hvar draga megi úr ríkisút- gjöldum vaknar ekki aðeins sú spurning hvaða þjónustustig við viljum að hið opinbera tryggi, heldur einnig hvar og hvernig megi fara betur með það fé sem er til ráðstöfunar. Ljóst er að við höfum ekki efni á því miðstýrða velferðarkerfi sem nú er. Færð hafa verið rök fyrir því að ná megi meiri hagkvæmni með einkavæðingu. Því hlýtur sá kostur að einka- væða heilbrigðisþjónustu og menntamál að vera álitlegur," segir í niðurstöðum nefndar- innar. Heilbrígðisþjónustan markaðssett erlendis Fimmta og síðasta nefndin fjallaði um mann- auð og náttúruauðlindir. Aðalviðfangsefni hennar voru nokkrir grundvallarþættir sem snúa annars vegar að nýtingu helstu náttúru- legra auðlinda okkar og hins vegar að þeirri meginauðlegð sem býr í þjóðinni sjálfri. Til- gangurinn var að meta stöðu, aðstæður og möguleika, og leggja á ráðin um vænlegar og traustar áherslur á nýtingu þeirrar undirstöðu sem okkur er nærtækust og við höfum helst á okkar eigin valdi. Nefndin fjallaði um landnýt- ingu, nýtingu fiskimiða, orkunýtingu, menn- ingu, menntun og starfsþjáfun, heilbrigðis- mál og vinnulöggjöfina. Nefndin telur að end- urskipuleggja þurfi landnýtingu, miðað við fjölbreytileg not á grundvelli varðveislu og uppbyggingu landgæða, jafnt til ánægju og tekjuöflunar. Nytjar landsins á að miða við markaðsaðstæður, segir í niðurstöðum nefnd- arinnar. Hún telur að efla þurfi hafrannsóknir verulega frá því sem nú er með það fyrir aug- um að hagnýta sem flestar tegundir uppsjáv- arfiska, botnfiska og botndýra, án þess að of- bjóða einstökum þáttum vistkerfisins. Þá tel- ur nefhdin að íslensk sjávarútvegsstefna þurfi að sætta hagsmuni útgerðar og fiskvinnslu, með það fyrir augum aö gæta langtímahags- muna atvinnuvegarins í heild og annarra at- vinnuvega í landinu. Eftir Stefán Eiríksson Nefndin telur að sú staðreynd að okkur hefur mistekist síðustu tvo áratugi að selja og nýta vatnsorkuna í þeim mæli sem við ráðum við að virkja hana, muni endanlega kosta tap í þjóðartekjum, sem jafnist á við tífaldar þjóðar- tekjur okkar á árinu 1989. Nefndin telur að ef við gætum virkjað og selt a.m.k. 300 MW á áratug og selt hana á hæfilegu verði, megi bú- ast við 3% árlegri aukningu þjóðartekna á mann næstu þrjá áratugi, að öðru óbreyttu. Ef ekki, megi búast við minnkandi þjóðartekjum. Miklu fjármagni er varið í íslenska mennta- kerfið, segir í niðurstöðum nefndarinnar. Kerfið sé hins vegar svifaseint og ómarkvisst, mótað meðalmennsku og óhóflega langri skólagöngu. Sjálfstæði nemenda er sniðgeng- ið og tengsl námsins við atvinnulífið og hag- nýtar námsleiðir í litlum tengslum við þarfir nemenda og þjóðfélagsins. Þessu þurfi að snúa við með frjálsu og fjárhagslega sjálf- stæðu skólastarfi, sem hafi hag af að skila hverjum nemanda á rétta braut, í tengslum við það umhverfi sem hann lifir í. Um íslensku heilbrigðisþjónustuna segir nefndin að hún sé vel mannað en illa rekið ríkisfyrirtæki. Á sama tíma og slík kerfi séu að hrynja í Austur-Evrópu og Bretlandi, og meira að segja Svíar séu að rétta kompásinn, stefnum við beint í austur. Heilbrigðisþjónustunni á að breyta í eðlilegan rekstur, þar sem vega verður saman tekjur og gjöld og hægt er að velja um þjónustu. Tryggingakerfið á að vera fyrir sjúk- lingana en ekki sjúkrahúsin, segir í niðurstöð- um nefndarinnar. Þá leggur nefndin til að ís- lensk og frjáls heilbrigðisþjónusta verði mark- aðssett erlendis og fólk yrði flutt hingað til meðferðar og aðgerða, jafnt á sviði heilsu- ræktar og lækninga. Þannig mætti m.a. nýta þá 2/3 hluta ársins, sem eru utan aðalferða- mannatímans. í niðurstöðum um vinnulöggjöfina segir nefndin að Verkalýðshreyfingin byggi enn á skiptingu launþega eftir starfsgreinum, þrátt fyrir samþykktir um skiptingu eftir atvinnu- greinum. Þetta viðhaldi flóknasta stéttarfé- lagakerfi á byggðu bóli og tefji umbætur í kjaraþróun. Á 120.000 manna vinnumarkaði eru hátt í 400 stéttarfélög og kjarasamningar aðeins innan ASÍ eru um 250. Nefndin telur að á meðan fyrirtæki og samtök þurfi almennt að sanna markaðshæfni sína, haldi verkalýðs- hreyfingin í úrelt skipulag og standi fast á því að launþegum sé nauðugur einn kostur að vera í stéttarfélagi, þótt sú framkvæmd sam- rýmist ekki félagsmálasáttmála Evrópuráðs- ins. Nútímaskipulag á vinnumálum hér á landi, með frjálsri félagsaðild og í tengslum við skipulag atvinnulífsins, er ein af helstu forsendum þess að íslendingar standi jafnfæt- is öðrum þjóðum, þegar við blasi samkeppni á öllum sviðum, í umheimi sem þegar hefur viðurkennt aðrar og heilbrigðari leikreglur en hér hafa gilt og gilda enn, segir í niðurstöðum nefndarinnar.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.