Tíminn - 16.02.1991, Page 1

Tíminn - 16.02.1991, Page 1
Fáir stúdentar hlutu meiri stuðning úrföðurgarði en Grímur Thomsen. Þó var hann ætíð í hönk og foreldr- arnir héldu um tíma að hann mundi líklega fara í hundana. Æskuár Gríms Thomsen Hinn 15. ágúst 1815 liggur ung kona á sæng í Gufunesi og skrifar veikum burðum bróður sínum bréf, en hann er þá staddur úti í Kaup- mannahöfn. Konan heitir Ingibjörg Jónsdóttir, kona Þorgríms Tómassonar gulismiðs, en bróðirínn er Grímur Jónsson, sem um þetta leyti er kennarí í dönskum herskóla, en verð- ur síðar amtmaður á Möðruvöllum. Fyrír fjór- um árum hefur Ingibjörg Jónsdóttir eignast dreng og hefur látið skíra hann í höfuðið á Grími, hinum heittelskaða bróður úti í Kaup- mannahöfn. Hún biður bróður sinn „að láta drenginn taka að erfðum elsku og góðvild þá, sem þú frá fýrsta hefur glatt mig með“. En á þessum árum var sigð dauðans bitur við hin litlu strá á íslandi. Rúmum hálfum mánuði síðar segir Ingibjörg Grími bróður sínum að nafni hans litli sé dáinn, hann hafði látist úr taksótt, sem þá stakk sér víða niður. Uppvöxtur Gríms Fjórum árum síðar er Ingibjörg Jónsdóttir sest að á Bessastöðum, Þorgrímur gullsmiður, maður hennar, orðinn ráðsmaður eða bryti í latínuskólanum, og hver kynslóð ungra menntamanna sem um skólann fer fær mat sinn úr höndum Ingibjargar. Þá er enn sonur fæddur. Hún hefur látið hann heita Jón í höfuðið á föður sínum. En 18. september 1820 gengur Jón litli inn í þá fjölmennu sveit fslenskra barna, sem falla í valinn fyrir aldur fram í landfar- sóttum. Þó er syrgjandi móður hans nokkur huggun í því að hún hefur fyrr á þessu ári eignast son hinn 15. maí 1820 og leitað enn giftu af nafni bróður síns. Það var Grímur Þorgrímsson, sem kunn- astur er undir nafninu Grímur Thomsen. Vér mundum sjálfsagt gefa mikið til að fá nokkra vitneskju um æsku þjóðskálda vorra, fá að vita hvernig þau dönguðust, hvernig þau voru í viðmóti í uppvextinum, hvernig gáfnafari þeirra var háttað. En vér höfum um fæst þeirra slíkar heim- ildir. Grímur Thomsen er hér þó undantekning og er það að þakka bréfum Ingibjargar Jónsdóttur til Gríms bróður síns. Hún segir hon- um jafnan fréttir frá sínum litla húsmóðurheimi á Bessastöðum og þess vegna getum við fylgst nokkuð með hinum unga sveini, sem kynntist tilverunni í hlaðvarpanum á Bessastöðum og tók inn í sína gljúpu sál sýnir af bláum fjallahring og miklu hafi. Móðirin vakir yfir syni sínum veik- um, því að sjálfsögðu eru íslensk börn um þetta leyti alltaf veik. Hann tekur barnaveikina, sem Jón bróðir hans deyr úr, en hann hjarn- ar við og tæplega ársgamall er hann orðinn efnilegur og heilsugóður og rúmlega ársgamall tekinn að ganga með. Tæplega tveggja ára er Grím- ur orðinn „öflugur drengur. Hann hleypur nú um allt og er digur og feitur. Hann er laglegur í andliti með blá augu, mikið hörð og snör. Hann er illur og harður“. Þannig lýsir móðir hans yngsta barni sínu 1. mars 1822. Hrifningin leynir sér ekki, blandin nokkrum kvíða um skap sveinsins. Síðar á sama ári segir hún bróður sínum að Grímur sé orðinn efnilegur og vænn dreng- ur, „en ekki er hann fagur sýnum. En augu hefur hann fögur og líf- leg“. Því fer fjarri að húsfreyjan á Bessastöðum sé haldin móðurlegri blindni íyrir syni sínum, þrátt fyrir móðurstoltið. Átti að verða „eitthvað extra“ Frumbernskan líður og við taka námsárin. Það er auðsætt að það á ekki að draga af uppeldi einkasonar gullsmiðshjónanna og síðasta barnsins sem þau eignuðust. Átta ára gamall er hann farinn að læra latínu hjá sérstökum heimiliskenn- ara og þótt hægt og seint gangi er haldið að drengurinn sé rétt vel gáfaður. „Hann er ofboð fjörugur og ég held að maður megi segja að hann sé efnilegur". Snemma var það ætlunin að Grímur yrði „eitt- hvað extra“, eins og Benedikt Grön- dal komst að orði um hann í Dægradvöl sinni. Honum er ekki ætlað að ganga í Bessastaðaskóla, heldur eru honum fengnir einka- kennarar. Sumrið 1831 á Svein- björn Egilsson að segja honum til, en að vetri er ætlunin að koma honum til kennslu hjá séra Árna Helgasyni, stiftsprófasti í Görðum. Þremur árum síðar, 1834, segir móðirin að Grímur hafi í hjáverk- um verið að lesa þýsku og frönsku, en telur þá ekki líkur á að hann sigli til Kaupmannahafnar og í ág- GrímurThomsen um tvítugt úst 1836 finnst henni hann vera of ungur til að komast í landsmanna- hópinn þar, enda sé hann „auðmót- aður til alls“. En 3. mars 1837 er af- ráðið að hann fari til náms í Kaup- mannahafnarháskóla, enda útskrif- ast hann stúdent sama vor úr heimaskóla Árna prófasts Helga- sonar og siglir samsumars til Kaupmannahafnar 17 vetra að aldri. Vel að heiman búinn Til Hafnar liggur leið tápmikilla íslenskra menntamanna á 19. öld, þeirra sem ekki vilja una við mis- jafnlega góð brauð heima á íslandi. Vistin á Garði Iéttir undir með þeim, enda eru margir með léttan mal. En Grímur Þorgrímsson er ekki meðal þeirra stúdenta sem ættu að þurfa að kvíða Hafnardvöl- inni. Faðir hans er vel efnum búinn á íslenska veraldarvísu, græðir margan ríkisdalinn á gullsmíði sinni og hefur einnig lagt fé í jarðir, svo sem þá var siður í landinu, þeg- ar erfitt var að ávaxta fjármuni sína með öðrum hætti. Á því er enginn vafi að fáir ef nokkrir íslenskir stúdentar á 19. öld hafa verið svo vel haldnir með fé og Grímur Thomsen á stúdentsárum sínum í Kaupmannahöfn. En fáir virðast hafa verið í slíku fjármálabasli og hann. Og þótt hann kæmist með góðra manna hjálp klakklaust út úr fjármálaóreiðunni, þá verður þó ekki annað sagt en að dýrt hafi það orðið áður en lauk, þetta íslenska atgjörvi á Hafnarslóð. Hirðulaus námsmaður Þegar sonurinn hverfur sjónum sitja foreldrarnir eftir á Bessastöð- um með áhyggjur sínar og efa- semdir, þeim líst þetta að mörgu leyti hættuför. í augum Ingibjargar móður hans er hann bara lítill drengur, enda ávarpar hún hann í fyrstu bréfunum: Grímur litli, stundum kallar hún hann alþýð- legu gælunafni: litli garmur. Þor- grímur faðir hans uppáleggur syni sínum að heimsækja ekki Grím, móðurbróður sinn, sem nú er orð- inn embættismaður í Middelfart, fyrr en hann hafi lokið 1. og 2. lær- dómsprófi við háskólann, sem voru einskonar inntökupróf að háskóla- náminu. Svo mjög er gullsmiðnum í mun að hann slái ekki slöku við námið. Próf þessi tók Grímur með lítili prýði og foreldrarnir tóku sér þetta mjög nærri, svo miklar vonir höfðu þau gert sér um drenginn. En Grími frænda líst vel á nafna sinn og telur hann mannsefni og kom nú snemma fram að í fari Gríms Thomsens var einhver töfr- andi persónuleiki og máttur, sem lagði bæði karla og konur að fótum hans. „Þú heldur Grímur verði maður. Ég læt þig ráða því. Ég held þú hafir meiri sálarlangsýni en mér er gefin. Það er orðið illt við mig að fást. Ég trúi sjaldan fyrr en ég tek á,“ segir Ingibjörg á Bessastöðum í bréfi til Gríms bróður síns, 3. mars 1839. Hún sparar heldur ekki móð- urlegar áminningar við soninn, biður hann að vera iðinn og kapp- samur við að lesa, góðsaman og karpa ekki við landa sína. Gamla konan þekkti hvatvísa tungu sonar síns. Það er ekki liðið ár frá því Grímur sigldi til háskólans, en

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.