Tíminn - 16.02.1991, Síða 12
20
Laugardagur 16. febrúar 1991
HELGIN
II!
W Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Rafmagnsveitu Reykja-
vlkur, óskar eftir tilboðum í jarðvinnu o.fl. vegna lagningar 132 kV
jarðstrengja milli Aðveitustöðvar 2 við Meistaravelli í Reykjavík
og Aðveitustöðvar 7 á Hnoðraholti í Kópavogi.
Verkið skiptist í 2 áfanga og er óskað eftir tilboðum í hvorn
áfanga fyrir sig:
Áfangi 1 í Reykjavík, 3900 m skurðlengd og áætlaður verktími 8.
apríl til 10. ágúst.
Áfangi 2 í Kópavogi, 6450 m skurðlengd og áætlaður verktimi 8.
apríl til 20. september.
Helstu verkþættir eru: skurðgröftur, fleygun og sprengingar, lagn-
ing jarðvíra, lagning strengpípna í götur og innkeyrslur, söndun
undir og yfir strengi og pípur, útdráttur strengja (að hluta), lagn-
ingu steinhellna og hlífa, fylling skurðar, brottflutningur umfram-
efnis og frágangur lands.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 12. mars kl.
14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
B B I
BBÍ r
T Utboö
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Byggingadeildar borg-
arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í 134 fermetra viöbyggingu
við skemmu í Árbæjarsafni.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 7. mars kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
FANGELSISMÁLA-
STOFNUN
RÍKISINS
auglýsir eftir starfskrafti til að annast félagslega þjón-
ustu við fanga og sjá um eftirlit með þeim sem
dæmdir eru skilorðsbundið, fá skilorðsbundna
reynslulausn, náðun eða frestun afplánunar. Æski-
legt er að viðkomandi hafi félagsráðgjafamenntun
eða sambærilega menntun. Nánari upplýsingar eru
veittar í síma 623343.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf, sendist Fangelsismálastofnun ríkisins, Borgar-
túni 7, REYKJAVÍK, eigi síðar en 1. mars nk.
Fangelsismálastofnun ríkisins,
12. febrúar 1991
«|g». HEILSUVERNDARSTÖÐ
ÍMÍM REYKJAVÍKUR
Btó# BARÓNSSTÍG 47
Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur auglýsir eftir
skólatannlækni við Seljaskóla.
greina kemur að ráða tvo tannlækna í 50% starf
eða einn tannlækni í 100% starf.
Upplýsingar gefur yfirskólatannlæknir í síma
22400.
Umsóknum skal skila á skrifstofu starfsmanna-
stjóra Heilsuverndarstöðvarinnar, Barónsstíg 47,
fyrir kl. 16 fimmtudaginn 28. febrúar nk.
AUGLÝSINGASÍMAR TÍMANS:
680001 & 686300
Darcey Bussell er orðin aðaldansmær breska konunglega ballettsins, aðeins tvítug að aldri. En hún læt-
ur velgengnina ekki stíga sértil höfuðs, segist aðeins hafa verið svo heppin að vera á réttum stað á rétt-
um tíma.
Tvítug ballettstjarna við kon-
unglega breska ballettinn
Yngsta aðaldansmær breska kon-
unglega ballettsins fyrr og síðar
heitir Darcey Bussell. Upphefð
hennar kom í fyrra þegar hún var
aðeins tvítug að aldri. Frumraun
hennar í þessu hlutverki var í sýn-
ingu á Hnotubrjótnum á jólun-
um.
Sem betur fer hefur þessi vel-
gengni ekki stigið Darcey til höf-
uðs og hún hefur látið sér fátt um
frægðina finnast. Hún þakkar
fyrst og fremst heppni fyrir að hafa
verið á réttum stað á réttum tíma.
Danshæfíleikana fékk Darcey frá
móður sinni sem sjálf hafði geng-
ið í konunglega ballettskólann í
tvö ár. Reynslan, sem hún hafði af
þeirri skólavist, varð til þess að
hún snerist gegn því að dóttir
hennar héldi út á hina þyrnum
stráðu dansbraut. En Darcey hélt
sínu striki, þó að hún segi að
fyrsta árið í skólanum hafi verið
hræðilegt. Það hafí átt sinn þátt að
hún hafði áður verið við nám í al-
mennum listaskóla og kom ekki í
ballettskólann fyrr en 13 ára göm-
ul, en flestir hefja þar nám 11 ára.
Darcey hefur verið líkt við gaml-
ar, frægar breskar dansstjörnur
s.s. Margot Fonteyn og er ekki
leiðum að líkjast. Hún segist samt
ekki leita fyrirmyndar hjá öðrum,
heldur vildi hún að litið væri svo á
að hún byði upp á eitthvað nýtt.
„Ég er ekki að reyna að vera eins
og einhver annar og langar ekki til
þess,“ segir hún.
Darcey býr heima hjá foreldrum
sínum, ásamt yngri bróður, systur
og afa. Hún er ánægð með það, en
er þó að leita að íbúð. Hún heldur
líka tryggð við gömlu vinina, en
enginn þeirra, né kærastinn sem
hún vill ekki nafngreina, er viðrið-
inn ballett. Og það hvarflar ekki að
henni að neita sér um félagsskap
við þetta fólk, þó að vinnan sé
kröfuhörð og nú séu margir sem
leita eftir samvistum við hana eft-
ir að hún er orðin fræg.
Aðdáendur Darceys benda á
að hún beri af í
tækni, glæsileik, lipurð og styrk.