Tíminn - 26.02.1991, Blaðsíða 2
2 Tíminn
‘''Þriðjuda'gur -26. 'febrúár 1991
Júlíus Sólnes boðar nýtt afl í íslenskum stjórnmálum:
Samtök frjáls-
lyndra kjósenda
Jútíus Sólnes, formaður Borgaraflokksins, hefur kynnt Samtök
fijálslyndra kjósenda sem nýtt afl í íslenskum stjórnmálum. Það
gerði hann á sameiginlegum fundi íslenskra stjómmálamanna sem
eru staddir á þingi Norðurlandaráðs og var haldinn meðal íslend-
inga í Jónshúsi í Kaupmannahöfn á sunnudaginn.
Eins greint hefur verið frá hafa
að undanförnu verið í gangi við-
ræður fólks úr Borgaraflokki ann-
ars vegar og hins vegar meðal ein-
staklinga á svipaðri gráðu í stjórn-
málum. Óli Þ. Guðbjartsson, vara-
formaður Borgaraflokksins, sagði
í gær að síðustu daga og vikur
hefðu verið í gangi þreyfingar af
þessu tagi. Þar hefði Borgara-
flokkurinn haft nokkurt frum-
kvæði undir forystu Júlíusar Sól-
nes.
Það er bæði óflokksbundið fólk
sem hefur sýnt þessu áhuga en
einnig fólk úr flokksbrotum á
borð Samtök um jafnrétti og fé-
lagshyggju, Bandalag jafnaðar-
manna og Samtök frjálslyndra og
vinstri manna. Óli sagði að við-
ræður af þessu tagi hefðu átt sér
stað í Reykjavík og Norðurlandi
eystra en nálægt þeim hefur hann
sjálfur ekki komið en í sínu kjör-
dæmi, Suðurlandi, hefur Óli verið
að vinna þessu máli farveg. Þar
eru það einstaklingar úr ýmsum
áttum sem hafa verið að vinna að
þessu máli.
-sbs.
Ungur maður lendir í hrakningum á sæsleða á Kjalarnesi.
Hálfdán Henrýsson hjá Slysavarnafélaginu segir:
„Slík ferðalög eru
algjört glapræði“
Björgunarsveitir á Reylqavíkur-
svæðinu og Kjalamesi ásamt fjór-
um björgunarbátum vom kallaðar
út um helgina til að leita að ungum
manni sem hafði farið á sæsleða
frá Hvalfirði og á leið til Snarfara-
hafnar í Reykjavík. Eftir hálftíma
leit kom í ljós að maðurinn var
kominn heill á húfi til síns heima,
en hafði gleymt að láta félaga sína,
sem hann ætlaði að hitta við Snar-
farahöfn, vita af sér.
Að mati Hálfdáns Henrýssonar hjá
Slysavarnafélagi íslands er algjört
glapræði að fara svona leið á slíkum
sæsleða, því enginn öryggisbúnaður
er í honum sem gerir kleift að gera
vart við sig ef bilaði á leiðinni, í sleð-
anum var engin talstöð, enginn
ljósabúnaður eða neyðarblys.
Að sögn Hálfdáns voru tildrög
málsins þau að 3 ungir menn voru
að leika sér að sæsleða í Hvalfirði á
laugardag. Þegar þeir héldu heim
ákvað einn þeirra að fara með sleð-
ann sjálfur sjóleiðina, fyrir Kjalar-
nes og að Snarfarahöfn í Reykjavík.
„Þegar hann kemur fyrir Kjalame-
stangann eykst bæði vindur og alda
og sleðinn verður bensínlaus, hann
skiptir yfir í varatank en þá verða ein-
hverjar gangtruflanir í sleðanum.
Þannig að hann ákveður að reyna að
komast í land á í Hópsvík á Kjalamesi.
Hann kemst þangað og er þá orðinn
mjög kaldur og hrakinn. Hann hring-
ir þaðan í bróðir sinn, sem fór með
hann í bæinn og heim til þeirra, en
þeim láðist að láta félaga hans vita
sem biðu inn í Snarfarahöfn.
Þegar félagar hans urðu hans ekki
varir óskuðu þeir eftir aðstoð og var
þá snarlega kallað út allt tiltækt lið
því það var að koma myrkur. Það
hefði litið illa út ef hann hefði ekki
verið kominn í land,“ sagði Hálfdán.
„Þeir kraftmestu af svona sæsleð-
um komast um það bil 30 sjómflur,
en þeir þola illa mikinn sjógang og
sérstaklega þegar mjög kalt er því
þessi sleði er alveg opinn og því ligg-
ur maðurinn undir ágjöf," sagði
Hálfdán jafnframt í samtali við Tím-
ann í gær. —GEÓ
Hlass, sem var á tengivagni flutningabifreiðar, rakst á skiltabrú, um-
ferðarijós og Ijósastaura og skemmdi hlutina nokkuð um hádegis-
bilið á laugardaginn. Ökumaður bifireiðarinnar hefur greinilega ekki
gætt að því hversu hátt hlassið náði á tengivagninum með áður-
greindum afleiðingum. Enginn slasaðist en tjónið er talsvert
Tímamynd: Ámi Bjama
Árni Friðriksson á loðnuslóð við Reykjanes:
Hafrannsóknastofnun gengur
til móts við kröfur sjómanna
Troðfullur salur var í Háskólabíó sl.
laugardag á fræðsluráðstefnu sem
Læknafélag Reykjavíkur hélt um
streitu. Að sögn Ingólfs Sveinssonar
geölæknis sem sá um ráðstefnuna
var tilefni ráðstefnunnar sú að að
mati lækna er streita allt of algeng í
okkar þjóðfélagi.
„Það er allt of algengt að fólk lifi of
spenntu lífi og sé of þreytt, jafnvel
orðið of spennt til að geta sofið.
Þetta veldur sjúkdómum, magasár-
um, höfuðverk, vöðvagigt og endan-
lega hjartasjúkdómum og skemmir
lífið. Það skiptir miklu máli fyrir al-
menning að þekkja einkenni streitu
svo að hann geti gripið í taumana,"
sagði Ingólfur.
A dagskrá ráðstefnunnar voru ýmis
erindi. Ingólfur Sveinsson flutti
m.a. erindi um hvað streita er,
hvernig er hægt að stjórna henni.
Júlíus Björnsson sálfræðingur flutti
erindi um svefn og hvernig svefn
getur orðið hjá fólki sem er þreytt
og spennt. Anna Lea Björnsdóttir,
íþróttakennari í Keflavík, flutti er-
indi um líkamsrækt, leikfimi og
mataræði þar sem hún mælti gegn
megrunarkúrum og sagði að skyn-
samlegt mataræði og hreyfing sé
lykillinn að vellíðan.
Eiríkur Örn Árnason flutti erindi
um slökun og fór í gegnum slökun-
aræfingu. Eysteinn Björnsson kenn-
ari flutti erindi um jákvæðar og nei-
kvæðar hugsanir.
Fleiri erindi voru flutt og sóttu yfir
300 manns ráðstefnuna, hún var
styrkt af Mjólkursamlagi Reykjavík-
ur.
—GEÓ
Hafrannsóknaskipið Árni Friðriks-
son, sem lét úr höfn síðastliðinn
laugardag til að mæla göngu við
Ingólfshöfða, hefur nú verið tvo sól-
arhringa á ferð um Faxaflóann og
mælt loðnuna sem fannst við
Reykjanes.
Áð sögn Jakobs Jakobssonar, for-
stjóra Hafrannsóknastofnunar, hafa
enn ekki fengist neinar niðurstöður
af mælingunum og því ekkert hægt
að segja um þær fullyrðingar loðnu-
sjómanna að þarna séu um milljón
tonna göngu að ræða.
Upphaflega átti aðeins að mæla
gönguna við Ingólfshöfða, en Haf-
rannsóknamenn, sem hingað til
hafa ekki verið trúaðir á kenningar
sjómanna, hafa nú gengið til móts
við loðnusjómenn, sem kröfðust
þess að gangan við Reykjanes yrði
mæld aftur.
Á miðnætti 25. febrúar var búið að
veiða 130.000 tonn af þeim 190.000
tonnum sem heimilt er að veiða. Að
sögn Björns Jónssonar í sjávarút-
vegsráðuneytinu hefur ekki komið
til tals að auka loðnukvótann þó
gangan virðist nú stærri en ætlað
var í fyrstu. - aá.
Fullur salur var á fræðslustefnu Læknafélags Reykjavíkur um streitu sl.
laugardag. Ttmamynd: Ámi Bjama
„Streita er of algeng“
Verðlagskönnun Verðlagsstofnunar í matvöruverslunum á Akureyri:
Meðalverð óbreytt
Á þriggja mánaða tímabili hefur
meðalverð á 51 algengrí vöruteg-
und í 16 matvöruverslunum á Ak-
ureyrí haldist nokkuð óbreytt.
Verðlagsstofnun hefur á sl. ári
fylgst með vöruverði þessara teg-
unda í sömu verslunum með
reglubundnum könnunum og er
þetta ein helsta niðustaða könn-
tmar sem gerð var í lok janúar sl.
Voru niðustöður hennar bomar
saman við sams konar könnun
sem gerð var í nóvember sl.
Auk þess að meðalvöruverð hafi
haldist nokkuð óbreytt vom
helstu niðurstöður janúarkönn-
unarinnar þær að verð 23 af þeim
vömtegundum sem kannaðar
vom hafði lækkað en verð á 28
vömtegundum hafði hækkað lítil-
lega eða haldist óbreytL Meðal-
verð á vömnum í könnunlnn)
hafði lækkað á bilinu 0,1 - 2,2% í
9 verslunum og meðalverð hækk-
að á bilinu 0,1 -1,2% í 7 verslun-
um. Þær vömr sem mest lækkuðu
í verði vom ýmsar gerðir af sykri.
Strásykur og púðursykur lækkaði
t.d. að meðaltali um rúmlega 7%
á þríggja mánaða tímabili. Þær
vömr sem helst hafa hækkað í
verði em ýmiss konar hreinlætis-
vörur. Auk þessa seglr í frétt frá
Verðlagsstofnun að þess megi
geta að sams konar könnun hafi
verið gerð á höfuðborgarsvæðinu
og virðist þróun verðlags á Akur-
eyri vera sú sama og á höfuðborg-
arsvæðinu. —GEÓ