Tíminn - 26.02.1991, Blaðsíða 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
AKTU EKKI ÚT
í ÓVISSUNA.
AKTUÁ
Ingvar
Helgason hff.
Sævarhöföa 2
Sími 91-674000
Tí niiiin
ÞRIÐJUDAGUR 26. FEBRÚAR 1991
Um 320 störfum ofaukið á landsbyggðinni samkvæmt könnun Þjóðhagsstofnunar:
ALDREIÁÐUR VERH) OF
MARGT FISKVINNSLUFÓLK
Fiskverkendur á landsbyggðinni vildu gjarnan fækka starfs-
fólki sínu um 220 nú í janúar. Má segja að þama sé um
grundvallarbreytingu að ræða. Því þau 6 ár sem Þjóðhags-
stofnun hefur staðið að könnunum á atvinnuástandi og horf-
um á vinnumarkaði hefur það aldrei áður gerst að fískverk-
endur hafí viljað fækka við sig fólki. Þvert á móti hafa þeir
jafnan viljað fjölga starfsfólki töluvert, t.d. um 115 manns í
sama mánuði bæði 1990 og 1989. Á öðrum árstímum hefur
oftast vantað mörg hundmð manns til fískvinnslustarfa.
Þjóðhagsstofnun telur nú viðun-
andi jafnvægi á vinnumarkaðn-
um, þ.e. þegar litið er á landið í
heild.
Útlitið virðist eigi að síður frem-
ur uggvænlegt á landsbyggðinni.
Þar vilja vinnuveitendur fækka
störfum hjá sér um 320 (1,3% af
mannafla), borið saman við 80
störf í janúar í fyrra. Þar af telja
þeir 220 störfum ofaukið í fisk-
iðnaðinum sem fyrr segir og álíka
mörgum byggingamönnum er
sömuleiðis talið ofaukið. Þar á
móti vantar nokkra tugi fólks til
starfa á sjúkrahúsunum og um
hálft hundrað í önnur þjónustu-
störf.
Á Reykjavíkursvæðinu virðist
vinnumarkaðurinn á hinn bóginn
vera að lifna verulega við, a.m.k.
borið saman við janúar í fyrra
þegar vinnuveitendur töldu 290
störfum ofaukið. Nú hins vegar
vilja þeir ráða fólk í 200 viðbótar-
störf. Svo dæmi sé tekið vantar
nú fólk í 110 störf á sjúkrahúsum
höfuðborgarinnar og um 70 í
verslunarstörf. Seinkun á ákvörð-
un um byggingu nýs álvers veldur
mikilli óvissu í byggingarstarf-
semi. Eigi að síður vilja atvinnu-
rekendur á höfuðborgarsvæðinu
fjölga störfum í greininni um
nokkra tugi. Úti á landi vilja
menn á hinn bóginn fækka störf-
um byggingamanna um 210 á
næstunni.
Verslun og veitingastarfsemi
virðist vera að glæðast í höfuð-
borginni, þar sem vinnuveitendur
vilja fjölga störfum um 60 nú í
janúar. Þetta er töluverð breyting
frá 1990, þegar menn vildu í janú-
ar það ár fækka þessum störfum
um 70 og um 200 í september sl.
í samgöngum er einnig umtals-
verð breyting milli ára. Nú í janú-
ar vildu vinnuveitendur bæta við
fólki í 70 störf, fyrst og fremst á
Reykjavíkursvæðinu. í sama
mánuði í fyrra töldu þeir hins
vegar 170 störfum ofaukið í
greininni.
Þjóðhagsstofnun gerir kannanir
sem þessar þrisvar á ári, í janúar,
apríl og september. Leitað er til
fyrirtækja í öllum greinum nema
landbúnaði, fiskveiðum og opin-
berri þjónustu, nema hvað sjúkra-
húsin eru með í könnuninni. M.a.
er spurt hvort einhverjar breyt-
ingar á starfsmannahaldi hafi ver-
ið taldar æskilegar í janúar miðað
við umsvif. Niðurstöðurnar
byggja á svörum 130 fyrirtækja
sem greiða um 30% allra launa í
þeim greinum sem könnunin nær
til. Miðað við landið allt vildu fyr-
irtæki fækka um 120 störf.
í janúar voru um 3.200 manns
skráðir atvinnulausir, eða um
2,5% af mannafla á vinnumark-
aði. Þetta var heldur minna at-
vinnuleysi en í janúar í fyrra og
sömuleiðis nokkru minna en
Þjóðhagsstofnun hafði gert ráð
fyrir í sínum spám. Stofnunin tel-
ur þetta samt ekki vísbendingu
um minnkandi atvinnuleysi,
heldur að um breytingu sé að
ræða á árstíðamynstri atvinnu-
leysis.
Frá því að þessar kannanir hóf-
ust snemma árs 1985 og næstu
þrjú ár á eftir var niðurstaðan
jafnan sú að fólk vantaði venju-
lega í 1.600 til 3.200 störf. Um
mitt ár 1988 snerist dæmið við.
Síðan hafa atvinnurekendur oft-
ast viljað fækka störfum um
nokkur hundruð.
- HEI
Jámplata fauk í andlitið á manni í Grafarvogi í gær með þeim afleiðingum að hann rotaðist og var fluttur
á slysadeild. Nokkuð hvasst var í höfuðborginni í gær og vonj þakplötur famar að fjúka í Breiðholti og
Grafarvogi. Tímamynd: Pjetur
Strand Steindórs GK:
Mannleg mistök orsökin
Ástæðan fyrir því að Steindór GK
strandaði við Krísuvíkurbjarg í síð-
ustu viku er sú að stýrimaður sem
var á vakt sofnaði og vaknaði hann
ekki fyrr en skipið var komið upp í
bjargið.
Þetta kom fram í sjóprófum sem
fóru fram hjá bæjarfógetanum í
Keflavík í gær. Stýrimaðurinn við-
urkenndi þar að hafa sofnað þegar
hann var á vakt en áhafnarmeðlimir,
aðrir en vélstjóri á vakt í vélarrúmi,
voru sofandi þegar skipið strandaði.
Gögn í málinu verða send ríkissak-
sóknara, sjóslysanefnd og rannsókn-
arnefnd sjóslysa. Ríkissaksóknari
mun síðan taka ákvörðun um fram-
haldið.
—SE
FYLLTIST AF SJO
Rúna SH, 3,5 tonna trilla, fvllt- ur vindur var á Suðumesjum i
Rúna SH, 3,5 tonna trilla, fyllt-
ist af sjó í höfninni í Keflavík í
gær. Slökkviliðsmenn og starfs-
menn hafnarinnar náðu að flytja
bátinn og slökkvillðið dældi síðan
sjónum upp úr bátnum. Töluverð-
ur vindur var á Suðuraesjum í
gær og gaf talsvert á bátinn með
fyrrgreindum afleiðingum. Ein-
hveijar þakplötur fuku í Keflavík
og Njarövík en gerðu ekki mikinn
skaða. —SE
BSRB og KÍ um kröfur um launahækkanir:
„Á við rök
að styðjast“
í frétt frá launanefndum BSRB og
KÍ segir að hvort sem litið er á allt
tímabilið frá því samningar voru
enduskoðaðir í nóvember sl. eða
eingöngu frá desember og fram á
við er niðurstaðan í öllum tilvikum
sú að um marktækan viðskiptakjar-
abata umfram forsendur samninga
sé að ræða. Þessi frétt frá launa-
nefndunum eru viðbrögð við um-
mælum í fjölmiðlum undanfarið
um launahækkanir vegna viðskipt-
akjarabata.
í fréttinni segir að þegar kjara-
samningar voru framlengdir í nóv-
ember var það gert með sérstakri
bókun þar sem segir m.a.: „Vegna
þeirrar sérstöku óvissu um þróun
viðskiptakjara sem leitt hefur af ol-
íuverðshækkunum eru aðilar sam-
mála um að taka viðskiptakjörin til
sérstakrar skoðunar í febrúar- og
maímánuði nk. Hafi þau batnað um-
fram forsendur samninga munu að-
ilar í sameiningu taka afstöðu til
þess á hvern veg launafólki verður
veitt hlutdeild í þeim viðskiptakjar-
abata sem verða kann umfram for-
sendur samninganna á síðari hluta
samningstímans."
„Þegar viðskiptakjörin í desember
eru skoðuð kemur á daginn að þau
eru 3,7 prósentustigum fyrir ofan
forsendur samninga og tæpu pró-
senti umfram forsendur sé tekið til-
lit til þess að hluti viðskiptakjarabat-
ans er geymdur inni í Verðjöfnunar-
sjóði sjávarútvegsins. Sé litið á allt
tímabilið frá endurskoðun í nóvem-
ber kemur í Ijós að þróun viðskipta-
kjara umfram forsendur samninga
er mun hagstæðari en ef eingöngu
er miðað við desember. Og ef litið er
fram á við þá kemur fram í endur-
skoðaðri þjóðhagsspá Þjóðhags-
stofnunar nú í febrúar að þrátt fyrir
óvissu um þróun olíuverðs bendi
allt til þess að verð á sjávarafurðum
muni hækka á milli ára og því er
spáð enn meiri viðskiptakjarabata
en reiknað var með í síðustu þjóð-
hagsáætlun í október," segir jafn-
framt í fréttinni.
Launakjaranefnd BSRB og KÍ svar-
ar þeirri gagnrýni að þeir einblíni á
febrúarmánuð einan, þrátt fyrir að
endanlegar tölur um febrúar liggi
ekki fý'rir er ekki ástæða til bölsýni
vegna þess sem þegar er vitað um
viðskiptakjörin eftir áramót. „í öðru
lagi eru spár um þróun viðskipta-
kjara á árinu hagstæðar. í þriðja lagi
var alltaf um það rætt að við endur-
skoðun samninga skyldu viðskipta-
kjörin skoðuð nokkra mánuði í senn
en ekki einn mánuð. í fjórða lagi
getum við alls ekki fallist á að miða
eingöngu við þá stærð sem líklegust
er til að verða launafólki óhagstæð-
ust, febrúarmánuð einan,“ segir
jafnframt í fréttinni.
—GEÓ