Tíminn - 18.05.1991, Blaðsíða 7
14
T HELGIN
Laugardagur 18. maí 1991
Laugardagur 18. maí 1991
HELGIN
15
Sölutjöld 17. júní 1991 í
Reykjavík
Þeir sem óska eftir leyfi til sölu úr tjöldum á þjóðhátíðardaginn
17. júní 1991 vinsamlegast vitjið umsóknareyðublaða
að Fríkirkjuvegi 11, opið kl. 08.20-16.15.
Athygli söluhafa er vakin á því að þeir þurfa að afla
viðurkenningar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkursvæðis á
sölutjöldum og leyfis þess til sölu á viðkvæmum neysluvörum.
Umsóknum sé skilað í síðasta lagi
miðvikudaginn 5. júní kl. 12.00.
Vakin er athygli á því, að öll lausasala
frá tjöldum og á hátíðarsvæðinu er
stranglega bönnuð.
v\ ,rál
^Xstra
Farangursrýmið er stórt og
rúmgott og þægilegt í um-
gengni. . .
Timamynd: sa
SÉRÍSLENSK
CLAAS-ÚTGÁFA
MEÐ ÖLLU
Á FRÁBÆRU VERÐI
Við bjóðum CLAAS R-46 rúllubindivélar fyrir 120x120 sm bagga á aðeins
789 þúsund krónur, miðað við gengi 1/5 1991.
Meðal þess útbúnaðar, sem er innifalinn í verðinu hjá CLAAS, en telst gjarnan til
aukabúnaðar hjá öðrum, má nefna:
• Búnaður í ekilshúsi dráttarvélar sem gefur Ijós og hljóðmerki þegar baggahólf er
fullt. Þá er ýtt á hnapp og binding hefst.
• Vökvalyfta sópvindu (pickup)
• Matara fyrir aftan sópvindu, sem m.a. kemur í veg fyrir að hey flækist eða safnist < »
fyrir í aðfærslustokki.
• Sérstakan búnað, sem kemur í veg fyrir að smágert hey slæðist
• Sjálfsmurðar öflugri keðjur en áður
• Breið dekk (yfirstærð)
• Baggasparkara
• Landhjól á sópvindu
• Baggahólf, sem haldið er saman með vökvaþrýstingi en ekki læsingu, svo ekki er
hætta á skemmdum þótt oftroðið sé í vélina
Auk þessa er fáanlegur áreiðanlegur netbindibúnaður, sem styttir bindingartímann
um 75%.
Berið þessi frábæru kaup saman við það sem aðrir bjóða!
CLAAS-rúllubindivélarnar hafa nú verið sérstaklega aðlagaðar íslenskum aðstæð-
um. Aðalátaksrúllur hafa verið styrktar, svo vélin þolir betur hið smágerða íslenska
hey.
Þess má til gamans geta að „íslenska" útgáfan er aðeins seld hér og í einu héraði
Norður-Ítalíu, í hlíðum Alpanna, þar sem sami styrkleiki er talinn nauðsynlegur!
Kynnið ykkur prófanir á rúllubindivélum frá Bútæknideildinni á Hvanneyri
FÁÐU JÖTUN OG CLAAS TIL LIÐS VIÐ ÞIG í SUMAR!
inum. Fjöðrunin er fyrsta flokks -
hæfilega stinn til að bíllinn verður
aldrei laus á vegi. Jafnframt er
íjöðrunin slaglöng og tekur fyrir-
hafnarlítið grófar holur og krappar
hraðahindranir. Samfara þessu er
stýrið sérstaklega gott, bíllinn er
rásfastur svo af ber, sama hvort sé
ekið á malarvegi eða á föstu vegar-
yfirborði. Og þegar hratt er ekið er
nauðsynlegt að geta stöðvað í
snatri. Það er heldur ekkert mál á
Saab 9000 CD. Hann hefur ABS
hemla og þeir eru heldur ekkert
slor frekar en annað í þessum góða
bfl.
Ég endurtek að það var mér mjög
á móti skapi að skila þessum bfl en
ég býst ekki við að umboðsaðilinn
- Globus hafi efni á að gefa mér
vagninn, því hann kostar talsvert,
eða á þriðju milljón og það verð er
meira en ég get - og vil leggja í bfl.
Ég er hins vegar alls ekkert í fýlu
yfir því þótt einhverjir aðrir leggi
fé í hann. Þeir sem það gera fá
mjög skemmtilegan, þægilegan og
vafalaust mjög góðan bfl fýrir pen-
ingana sína, en samkvæmt niður-
stöðum bandarískra slysarann-
sókna, er þessi bfll sá öruggasti í
umferðinni sem völ er á. Það hlýt-
ur að vera einhvers virði í íslenska
umferðarfrumskógi num.
Vissulega er Saab ekki alfullkom-
inn, eða svo fullkominn að hann
falli sérhverjum að öllu leyti í geð.
Að sjálfsögðu eru bflaskrif af því
tagi sem hér eru ástunduð mjög
lituð af smekk og sérvisku skrifara.
Að nokkrum atriðum er hægt að
finna, án þess að með því sé verið
að kasta rýrð á vagninn. Mér fannst
td. nokkuð hvína í sóllúgunni og
mér fannst heyrast nokkur vegdyn-
ur á malarvegi. Það skal þó tekið
fram að ekki var um neinn ærandi
hávaða að tala, sannarlega ekkert á
móti þeim ógurlegu látum sem
mér fundust fyrir nokkrum árum
vera í miklu og rándýru Porsche-
tryllitæki sem ég ók eitt sinn. Það
var mikil upplifun á sínum tíma, en
mér fannst Saabinn geta næstum
allt það sama og Porsche sportbfll-
inn gat - en gefa mér sem fjöl-
skyldumanni til viðbótar lúxus- og
þægindatilfinningu auk ótvíræðs
notagildis. Stefán Ásgrímsson
Tímamynd: sá
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000
Saab 9000CD er fallega látlaus og ber ekki utan á sér hvað hann getur.
Tímamynd: sá
MEÐ BESTU BÍLUM SEM
AF FÆRIBÖNDUM RÚLLA
Það er best að segja hverja sögu
eins og hún gekk, en mér féll mið-
ur að þurfa að skila þessum bfl aft-
ur og bölvaði því sáran að eiga ekki
fýrir honum. Sannleikurinn er
nefnilega sá að þetta er einn besti
akstursbfll sem ég hef ekið, ef ekki
sá besti. Lítum nánar á gripinn.
Saab 9000CD er stór bfll og mik-
ill af evrópskum fólksbfl að vera og
ameríkanar telja hann með bflum
af fullri - eða eðlilegri stærð, en
eins og kunnugt er, er flestallt
stórt í henni Ameríku. Þrátt fyrir
stærðina er bfllinn sérlega lipur og
þægilegur í borgarakstri þar sem
hann leggur afar vel á, útsýni er
gott til allra átta og öll horn, endar
og kantar bflsins sjáanlegir og
skynjanlegir ökumanni úr sætinu
bæði út um glugga og eins um
speglana, en hliðarspeglar eru
stórir og góðir og ökumaður getur
auðveldlega stillt þá úr sæti sínu
þar sem þeir eru rafknúnir auk
þess að vera búnir hitaldi sem
heldur þeim lausum við móðu og
hrím.
Sætin í bflnum sem við reynslu-
ókum voru leðurklædd og hægt að
stilla ökumanns- og farþegasætið
frammi í bflnum á ýmsa enda og
kanta til þægilegasta máta fyrir
þann sem í þeim situr, eftir sköpu-
lagi hvers og eins. Þá er einnig hit-
ald í báðum þessum sætum sem
hlýtur að vera þægilegt á frost-
köldum dögum, þótt ekki reyndi á
það hjá Tímamönnum. Allar rúðu-
vindur eru rafknúnar og getur
ökumaður stjórnað þeim úr sæti
sínu og sama máli gegnir um topp-
lúguna, henni stjórnar ökumaður
með því að þrýsta á þar til ætlaða
hnappa.
Mælar og stjórntæki liggja einnig
vel við augum, höndum og fótum
og þarf ekki að fara mörgum orð-
um um þann þátt. í þeim efnum er
Saab 9000 CD turbo ekki svo frá-
brugðinn öðrum bflum. Það er
hins vegar í aksturseiginleikum og
vélarafli sem hann sker sig úr bfla-
flotanum. Þar koma til atriði sem
ekki sjást utan á bflnum, heldur
finnast. Þótt þessi bfll líti út fyrir
að vera góður fjölskyldubfll í vand-
aðri kantinum, sem hann vissu-
lega er, þá hangir fleira á spýtunni:
Hér er nefnilega einnig um að
ræða meiriháttar tryllitæki -
sportbfl sem ekki þarf að bera utan
á sér kraftana.
Ég var svo sem ekkert sérstaklega
að mæla hvað hann var fljótur að
ná 100 km hraða en þær sekúndur
sem það tekur eru sannarlega ekki
margar. Þegar græna ljósið kvikn-
aði á ljósunum við Höfðabakka á
norðurleið, ætlaði unglingur á
einhverjum japönskum GTI 16
DOHC eitthvað að sýna kallinum á
Saabinum á hægri akreininni aft-
urljósin. Kallinn á Saabinum týndi
honum hins vegar gersamlega.
Saabinn er með 2,3 lítra 16 ventla
vél forþjöppu og millikæli sem gef-
ur 200 hestöfl eða 147 kW. Tölva
sér um að stjórna bensín- og loft-
blöndu, kveikitíma og neista og
hvert kerti hefur sitt eigið há-
spennukefli. Þessi búnaður sér til
þess að hámarksnýting fæst út úr
eldsneytinu við öll skilyrði og nota
má blýlaust bensín 91-98 oktan.
Þessi búnaður sér líka til þess að
þessi aflmikli bfll er ekkert svo af-
skaplega eyðslufrekur. Erlend bfla-
blöð gefa upp meðaleyðslu undir
10 Iítrum á hundraðið.
Sjálfskiptingin er fjögurra hraða
og vinnur afar vel með vélinni og
skiptingar eru mjúkar og finnast
raunar varla, heldur heyrast í vél-
inni og sjást á snúningshraðamæl-
Hér er allt sem þarf.
IG TA-88268
GASGRILL
imso
staögreitt áaöeins
Olíufélagiö hf. hefur nú til afgreiöslu, á
ESSO bensínstöövum um allt land,
fullkomiö gasgrill á einstaklega
hagstæöu verði.
Eiginleikarnir eru þessir:
• Afkastamikill 30.000 BTU (8,8 kW)
tvöfaldur H-laga brennari sem
tryggir jafna dreifingu á
eldunarflötinn.
• 1809 cm2 eldunarflötur.
• 1040 cm2 færanleg efri grillrist.
• Fellanleg tréhilla aö framan.
• Tvær hliðarhillur úr tré.
• Botnhilla úr tré.
• Glerrúöa í loki og hitamælir.
• Örugg festing fyrir gaskút.
• Leiðbeiningar um samsetningu á
fslensku.
• Notkunarleiöbeiningar á íslensku.
Gaskútar fyrir grillið fást á
ESSO bensínstöövum um
allt land.
Skiptiþjónusta á tómum
og áfylltum kútum.
Olíufélagið hf
Sími: 60 33 00