Tíminn - 06.06.1991, Page 15
‘ •'* ■'/ ** « - ; 1 "• - ■
Fimmtudagur 6. júní 1991
Tíminn 15
MINNING
Sigurður Ágústsson
Birtingaholti
Heil þú, dásöm drottning meðal lista
dýrðarljóssins sœti stigin frá.
Ástarmild, er mannheim vildir gista,
mundar töfrasprotann fríð og há.
Dóttir himins móðurmáli hæða
mætirþú, sem birtir alla sál,
og um háleik œttarþinnar fræða
áhrif þín er guðdóms tendra bál.
(Steingrímur Thorsteinsson)
Einhver innri rödd kallar fram úr
leynum hugans þennan lofsöng
skáldsins við fráfall bóndans í Birt-
ingaholti sem ef til vill við bústörf,
plóg eða orf, nam óma og töfra nátt-
úrunnar, sem urðu að lagi eða söng
í sál hans.
Grein þessi verður engin tæmandi
lýsing á æviferli þessa merka
manns. Hér er aðeins reynt að
bregða upp mynd af stopulum kynn-
um tveggja manna sem hvergi nærri
stóðu það djúpt sem æskilegt hefði
verið. En í kynningu einstaklinga
getur komið það fram, sá skilningur
skapast, sem hvergi er annars staðar
að finna.
Sigurður Ágústsson fæddist í Birt-
ingaholti'þann 13. mars 1907. Ekki
verður hjá komist að lýsa hér að
nokkru ætt hans og uppruna. En
þar sem hér er allt séð frá persónu-
íegum sjónarhól þess sem skrifar,
liggur beinast við að rekja ættir
saman og þarf þar ekki langt að
leita, þótt mörgum hafi það verið
þoku hulið.
Árið 1788 hófu búskap í Bryðju-
holti í Ytri-Hrepp hjónin Einar
Bjarnason og Guðrún yngri Kol-
beinsdóttir prests í Miðdal. Af fimm
börnum þeirra, sem upp komust,
skulu tvö þau yngstu nafngreind
hér: Sigurður, f. 1798, langafi undir-
ritaðs, og Arndís, f. 1800, langamma
Sigurðar Ágústssonar. Sigurður
Einarsson varð stórbóndi í Gelti í
Grímsnesi, einn efnuðustu bænda á
öllu Suðurlandi.
Arndís Einarsdóttir giftist Guð-
mundi Magnússyni bónda í Birt-
ingaholti árið 1829. Og enda þótt
þessi kona félli frá á unga aldri í
blóma lífs, mátti segja að gullvæg
væri sú ráðstöfun forlaganna, því að
frá þeim hjónum er komið mikið
mannval fjölhæfra gáfu- og athafna-
manna. Eina barn þeirra var Guð-
rún er giftist Helga Magnússyni
Andréssonar alþingismanns í Syðra-
Langholti. Heimili þeirra í Birtinga-
holti varð gróið höfðingjasetur í
sveit. Þau eignuðust margt barna; af
þeim urðu þrír landskunnir prestar:
sr. Guðmundur í Reykholti, sr.
Magnús skólastjóri Kennaraskólans
og sr. Kjartan í Hruna. Og síðast en
ekki síst faðir Sigurðar, Ágúst
Helgason, bóndi í Birtingaholti,
varð fyrirmynd annarra í bændastétt
og brautryðjandi í framfaramálum
sunnlenskra bænda á fyrri hluta
þessarar aldar. Kona Ágústs og móð-
ir Sigurðar var Móeiður Skúladóttir
Thorarensen frá Móeiðarhvoli, al-
bróður Bjarna amtmanns og skálds.
í móðurætt Sigurðar komu fram
margir stórbrotnir, hugsjónaríkir
athafnamenn. Þaðan kom móðir
hans með gáfu sönglistar og tóna,
sem hann erfði svo í ríkum mæli.
Sigurður varð maður fjölmenntaður
á fyrri tíma vísu, þótt barnafræðslu
hlyti hann ekki utan síns heimilis,
en síðar gagnfræðamenntun frá
Flensborgarskóla. Að því loknu fór
hann til Noregs og dvaldi þar eitt ár
við verknám.
Árið 1928 kvæntist Sigurður Sig-
ríði Sigurfinnsdóttur frá Keflavík.
Þau settust þar að fyrst í nokkur ár,
en brátt kom að því, þar eð foreldrar
voru aldurhnigin orðin, að eitthvert
barna þeirra tæki þar við búi. Varð
úr að þau hjón fluttu þangað vorið
1934 og hófu búskap. Þau eignuðust
6 börn, þrjá syni og þrjár dætur, en
einn son átti Sigurður áður. Hér
verður búskaparsaga hans ekki rak-
in frekar. Hann vissi að hann bjó á
höfuðbóli og reisn staðarins féll ekki
í höndum hans. Og nú búa eftir
hann tveir synir hans með rausn.
Fljótt fóru að hlaðast á hann ýmis
félagsmálastörf innan sveitar, að
nokkru vegna erfða en annarsvegar
vegna hæfileika hans og gáfna. Þau
verða hér ekki upp talin. En síðast
en ekki síst ber hér að nefna störf
hans að söngmennt og tónsmíðum,
bæði innan sveitar og utan, svo sem
forsöngvarastarf, stofnun og stjórn-
un kóra og tónlistarskóla.
En það var raunar fleira en hér var
upp talið, sem Sigurður Ágústsson
lagði á gjörva hönd. Haustið 1955
vantaði kennara við Flúðaskóla og
þar sem enginn kennari með rétt-
indi sótti um, tók hann þá að sér
kennslu og skólastjórn. Á þeim ár-
um átti ég börn í skóla og þá hófust
okkar fyrstu kynni. Enda þótt skóla-
ganga hafi orðið minni en efni stóðu
til þóttu kennarahæfileikar hans
ótvíræðir, einkum þótti íslensku-
kennsla hans með ágætum. Bflar
voru þá yfirleitt ekki komnir til sög-
unnar á heimilum. Þrátt fyrir það
hikaði ég ekki við að fara langa bæj-
arleið, sem þá var talið, að loknum
vinnudegi og gegningum í heim-
sókn til hans til viðræðna, stundum
jafnvel fram á nætur. Það voru frjó-
samar stundir og ég held báðum
minnisstæðar. Fremur lítið var, að
mig minnir, rætt um, eins og títt er,
landsins gagn og nauðsynjar. Held-
ur um forna búskaparhætti heima í
Birtingaholti og víðar, um kennslu
og skólamál, en þó einkum um
skáldskap, listir og menningarmál
sem svo eru nefnd. Þótt mig skorti
til þess hæfni og skilning vildi ég
eitthvað fræðast um tónlistariíf
hans. Hann tók því með ákveðinni
varúð. Það er háttur skálda og lista-
manna að bera sem minnst sinn
innri heim á torg.
Eitt var það, sem honum bjó í huga
og vildi við samræður koma upp á
yfirborðið. Það var þegar húsið í
Birtingaholti brann árið 1951. Það
veit víst enginn, sem ekki hefur
reynt, hvað það er að standa yfir
rústum heimilis síns. Þessi atburður
varð honum mikið harmsefni, sár
sem aldrei greri. Voru það einkum
óbætanleg menningarverðmæti.
„Hér fóru bækur, sem hvergi eru til
framar," varð honum að orði. Einnig
fór nótnasafn frá honum veg allrar
veraldar. Að minnast þess hrærði
hann djúpt.
Eitt er enn sem ég vil minnast hér.
Eitt sinn við skólaslit ritaði ég grein
í skólablað, þar sem ég fór viður-
kenningarorðum um starf hans.
Engin orð hafði hann um það þá. En
mörgum áratugum seinna hittumst
við eitt sinn. Þá þakkaði hann mér af
alúð fyrir þessi orð mín, þau hafi
verið honum minnisstæð. Hann
hafði þá borið það með sér öll þessi
ár. Ekki alls fyrir löngu flaug mér í
hug að færa honum þessa grein, en
það dróst og varð um seinan.
Sigurður átti við vanheilsu að
stríða hin síðari ár og hrörnun kom
í kjölfar þess. En með dvínandi lífs-
krafti sljóvgast minni og hæfileikar,
en það verður mörgum manninum
ofraun að skilja og viðurkenna.
Sigurður Ágústsson var yngstur og
fellur síðastur í valinn sinna systk-
ina. Með honum er genginn sá mað-
ur, sem setti stóran svip á samtíð
sína. Verk hans á sviði tónlistar
munu lifa tengd nafni hans. Þau
mætti kalla stórvirki af manni sem
hélt uppi búskap stóran hluta ævi
sinnar, auk þess hlaðinn félagsmála-
störfum langt fram yfir alla sann-
girni. Slíkt er bjarnargreiði, enda
þótt hann væri vel til þess fær og
hafnaði því ekki. Enginn er til frá-
sagnar um þá innri baráttu sem slíkt
getur valdið.
Gáfur hans voru bæði fjölþættar og
víðfeðmar. Hann var hugljúfur og
kurteis í framkomu, en bar þó með
sér stolt og stórlyndi ættar sinnar.
Hann var eldhugi á þann veg, að
bera hugðarefni sín fram til sigurs
— söng og tónlistarmál. En hann
bar einnig með sér einkenni sveim-
hugans — gleðimaður þar sem hrif-
næmi listamanns réð ferðinni ...
Fagrar konur og dýrar veigar...
Einar Benediktsson kvað í Einræð-
um Starkaðar:
Hvíti faðmur, varhjarta mitt kait?
því hljóðnaði ástanna nafn mér á vörurri?
Dgpi mins brjósts veit ég aldrei allt,
efi og þótti býr í þess svörum.
Og Mungát Einars Benediktssonar:
Svo há og víð er hjartans auða borg
að hvergi kennir rjáfurs eða veggjar.
En leiti ég manns, ég lít um múgans torg,
þar lifir kraftur, sem minn vilja eggjar.
Hvað vita þessir merm um sælu og sorg
ersupu aldrei lífsins veig í dreggjar.
Ég þrái dýrra vín og nýja vini,
og vel mér sessunaut afHáva kyni.
En Sigurður Ágústsson lifði ekki
eingöngu í heimi hljómlistar og
tóna. Hagmælska var honum gefin
og orti hann ljóð við mörg sönglaga
sinna. Ljóðheimur aldamótaskáld-
anna lifði og kveikti neista innra
með honum. Hann fór ekki dult
með, að þar bæri hæst og stæði hon-
um næst listaskáldið góða — Jónas
Hallgrímsson.
Sú gæfa fylgdi honum að sofna að
síðustu inn í aðra veröld, þar sem ef
til vill ríkti „Tónaseiður og svana-
flug“ eða svo mætti ætla, því að til
hvers væri annars lifað hér á jörð.
í Ferðalokum segir:
Háa skilur hnetti
himingeimur,
blað skilur bakka og egg,
en anda sem unnast
fær aldregi
eilífð aðskilið.
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför bróður okkar
Fríðríks Hafsteins Runólfssonar
Magna og Vigdís
Sigurður Sigurmundsson
PÓSTUR OG SÍMI
óskar að ráða
svæðisumsjónarmann
/rafeindavirkja
til afleysinga í rúmt ár hjá Pósti og síma,
Húsavík.
Nánari upplýsingar hjá stöðvarstjóra, Húsavík,
og umdæmisverkfræðingi á Akureyri.
Lögtök
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtunnar í
Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskurði, uppkveðn-
um 3. þ.m., verða lögtök látin fara fram fyrir van-
goldnum opinberum gjöldum utan staðgreiðslu, sem
féllu í gjalddaga 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, 1. maí og
1. júní 1991.
Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum, ásamt
dráttarvöxtum og kostnaði, verða hafin að átta dög-
um liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, verði til-
skildar greiðslur ekki inntar af hendi innan þess tíma.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík,
3. júní 1991
Auglýsing um lögtök
fýrir fasteigna- og
brunabótagjöldum í
Reykjavík
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtunnar í Reykjavík og
samkvæmt fógetaúrskurði, uppkveðnum 3. þ.m., verða lögtök
látin fara fram til tryggingar ógreiddum fasteignasköttum og
brunabótaiðgjöldum 1991.
Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum, ásamt dráttar-
vöxtum og kostnaði, hefjast að 8 dögum liönum frá birtingu þess-
arar auglýsingar, verði þau eigi að fullu greidd innan þess tíma.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík,
3. júní 1991
Sumartími skrífstofu
Framsóknarflokksins
Frá 15. mal verður skrifstofa okkar I Hafnarstræti 20, III hæð, opin frá kl.
8:00-16:00 mánudaga-föstudaga.
Verið velkomin. Framsóknarflokkurinn
MUNIÐ
að skila titkynningum (ftokksstarfið tímanlega -
daginn fyrir útkomudag.
þ.e. fyrirkL4
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmissambands framsóknarfélaganna á Suðuriandi, Eyrar-
vegi 15, Selfossi, verðuropin áþriðjudögumogfimmtudögumfrá kl. 15-17.
Sími 98-22547.
Félagar hvattir til að Itta inn.
KSFS
Stjómarmenn SUF
4. stjómarfundur SUF verður haldinn föstudaginn 7. júni nk. kl. 19.00 að
Hafnarstræti 20, 3. hæð.
FonmaðurSUF
I
Reyknesingar -
nærsveitamenn
Framsóknarféiög Kópavogs efna til ferðar um Reykjanes sunnudaginn 16.
júnl næstkomandi. Lagt verður af stað frá Kópavogi kl. 10 og komið aftur
um kl. 18.
Hægt verður að panta hádegisverð I Sjómannastofunni i Grindavik áður
en lagt verður af stað.
Leiðsögumaður verður Steinunn F. Harðardóttir og fararstjóri Guðrún
Alda Harðardóttir.
Áætlað verð 1500-2000 krónur.
Tekið verður á móti pöntunum hjá Sigurbjörgu Björgvinsdóttur I slma
43774 á kvöldin og Guðrúnu Öldu Harðardóttur i sima 45672 á kvöldin.