Tíminn - 13.07.1991, Page 4

Tíminn - 13.07.1991, Page 4
12Tíminn Laugardagur 13. júlf 1991 Nokkum veginn heilir skór af gerð, sem tíökaöist á miðöldum. „Ég reikna fastíega meö að þeir séu innfluttír, því fsiendingar sútuðu ekki leöur sjáifir á þessum tíma,“ segir Mjöil. Margt bjó í Borgarhólnum Um síðustu helgi hófst í Bogasal Þjóðminjasafns íslands sýning á munum, sem fundust í fornleifauppgreftri í gamla bæjarhólnum á Stóruborg undir Eyjafjöllum. Þeim uppgreftri lauk á síðasta ári, eftir 13 sumra starf sem hófst 1978. Þessi uppgröftur er um margt afar merkiiegur, því hóllinn hafði ekki einungis að geyma mikinn fróðleik um líf og starf fyrrí kynslóða, heldur voru varð- veisluskilyrði fornra muna í honum einstaklega góð, það er að segja þéttur moldarjarðvegur sem loft lék ekki um. Alls fundust 4578 munir í uppgreftrínum sjálfum, en áður hafði Þórður Tóm- asson, safnvörður í Skógum, bjargað miklu. Uppgröfturinn var að öðrum þræði björgunargröftur, því ágangur áa og sjávar ógnar bæjarhólnum mjög og hefur hann látið mikið á sjá. Því voru það síðustu forvöð að rann- saka hólinn. Jafnvel þó uppgröftur- inn hafi staðið þetta lengi, er talið að komist hafi verið yfir mestallar þær heimildir, sem hóllinn á Stóru- borg hafði að geyma. Það var Mjöll Snæsdóttir fornleifafræðingur sem stjórnaði uppgreftrinum, og nú hef- ur hún umsjón með sýningunni, sem stendur fram í nóvember. Stórbýlið Stóraborg Stóraborg er sögufrægur staður, enda var þetta stórbýli, höfðingja- setur til forna. Líklega er staðurinn þó þekktastur vegna sögunnar um önnu frá Stóruborg. Anna bjó þama á 16. öld og var dóttir Vigfús- ar Erlendssonar lögmanns. Miklar þjóðsögur spunnust um ástamál hennar og Hjalta Magnússonar vinnumanns, Barna-Hjalta. Ætt- menni Önnu reyndu sem þau frek- ast gátu að koma í veg fyrir ráða- haginn, það er að Anna og maður af mun lægri stéttum tækju saman. En að lokum urðu sættir og til að það mætti verða láta sögurnar Hjalta bjarga lífi Páls lögmanns, bróður önnu. Ástarævintýri önnu og Hjalta urðu Jóni Trausta síðar að yrkisefni í ritsafninu Góðum stofn- um. Um aldir stóð bærinn á Stóruborg á hinum foma bæjarhól, sem upp- Sýning á Þjóöminjasafninu á munum, sem fundust í fornieifauppgreftri á Stóruborg undir Eyjafjöll- um, var opnuð um síðustu helgi. Afrakstur vinnu síðustu 13 sumra að koma í Ijós. gröfturinn fór fram í. Bærinn var fluttur þaðan um 1840 vegna ágangs áa og sjávar og um síðustu aldamót fór eyðingin að verða enn hraðari. Munnmæli segja að góður skeiðsprettur frá bæjarhólnum hafi verið fram til sjávar og um síðustu aldamót voru grasi grónir hvammar fram af bænum, sem voru meira að segja slegnir. Nú á sjórinn hins veg- ar ekki eftir nema fáeina metra í hólinn. Bakkakotsá og Kaldaklifsá, sem renna sitt hvoru megin við hól- inn, hafa líka tekið sinn toll. Þórður í Skógum gerði sér oft ferðir að Stóruborg eftir ofsaveður og brim- sjói og gekk þá oft að gömlum mun- um þar sem þeir lágu á víð og dreif. Flestir þessara muna voru vel út- leiknir þegar þeir komu fram, enda opnaði það augu fornleifafræðinga fyrir því að í Borgarhól væru óvenju góð skilyrði til varðveislu fornra muna. Tvö ár í það heila Björgunarstarfið á Stóruborg hófst 1978. Fyrsta sumarið var aðallega grafið í fornum kirkjugarði og kirkjustæði suðaustan í hólnum, en kirkja var á Stóruborg fram undir 1700. Fundust 66 grafir, en Ijóst er að þær hafa verið talsvert fleiri. „Garðurinn stóð lægra en hóllinn og þegar við byrjuðum var sjórinn búinn að ganga yfir garðinn og flysja jarðveginn burt. Það var lík- legast að kirkjugarðurinn eyðilegð- ist fyrst og því eðlilegast að byrja á honum. Við sáum staðsetningu kirkjunnar, stærð hennar og fund- um rúmlega 60 grafir. f flestum þeirra, þar sem mátti sjá stellingar, voru hinir Iátnu með hendur lagðar þversum yfir bolinn miðjan en nokkrir með hendur krosslagðar uppi á brjósti. Nokkrar grafir voru þó það illa farnar að við gátum ekki séð neitt slíkt," sagði Mjöll Snæs- dóttir, þegar blaðamaður ræddi við hana fyrr í vikunni. Uppgröfturinn stóð í alls 13 sum- ur, allt frá 6 til 11 vikum á hverju sumri. Tíminn, sem unninn var á hverju sumri, fór eftir því hve mikla fjármuni úr Þjóðhátíðarsjóði Þjóð- minjasafnið fékk til þessa verkefnis. „Ég taldi saman vinnuvikurnar og þetta er í það heila eitthvað á þriðja ár. Auðvitað er heppilegra að vinna svona verkefni á skemmri tíma, ef hægt er. Þegar við byrjuðum vissum við ekki hvort ráðrúm fengist til að ljúka þessu eða hvort eyðileggingin yrði á undan. En þetta slapp til, nokkuð svo,“ segir Mjöll ennfremur. Húsin minnkuöu Húsum á Stóruborg var skipað saman í eina þyrpingu á bæjarhól, eins og venjan er á íslenskum bæj- um. Húsaskipan var ekki hin sama í gegnum aldirnar, en hún tekur þó ekki stórvægilegum breytingum. ,>lér sýnist að húsakostur á Stóru- borg hafi verið ríkmannlegur og góður, en hafi hins vegar dregist nokkuð saman á síðari öldum. Vel má vera að þessi afturför hafi ein- göngu verið bundin við þessa jörð, enda varð hún illilega fyrir barðinu á náttúruöflunum," sagði Mjöll. Yngstu bæjarhúsin, frá öndverðri 19. öld, voru efst í hólnum, en þau elstu neðst. Þannig urðu grafararn- Gríma, tálguð út í fjalarbút og talin vera frá 17 eða 18. öld. „Verið gæti að böm heföu gert þennan hlut í leik sínum, eöa þá einhver hefur gert hann handa bömum að leika sér með. í annan stað mættí láta sér detta í hug aö hlutur þessi hafi veríö gerður í einhverskonar Qöikynngistilgangi," segir í sýningarskrá. Tlmamyndir Pjetur ir að færa sig smátt og smátt neðar, lengra inn í fortíðina. Munirnir, sem fundust í uppgreftr- inum á Stóruborg, eru 4578 talsins eins og fyrr segir, auk þess mikla fjölda muna sem Þórður í Skógum var búinn að bjarga. Þessi fjöldi helgast af því hve hús voru lengi á bæjarhólnum og eins hve varð- veisluskilyrðin voru góð. Meðal þess, sem kom í leitirnar, voru nagl- ar, hnífar, brýni, bein, trémunir, steinkeröld og brot úr eirpottum. Þá fundust ókjör af fiskbeinum, langmest úr þorski. Margt fleira mætti nefna, svo sem krítarpípu- brot, kamba, vaðmál, skófatnað og skrauthluti og þá er aðeins fátt eitt upptalið. Mjöll segir það mjög óvenjulegt að vefnaður komi í leit- irnar í fornleifauppgreftri hér á landi, en hinn þétti jarðvegur Borg- arhólsins varðveitti það vel. Anna á mig Þekktasti hluturinn, sem fannst í uppgreftrinum, var líklega snældu- snúður sem gæti verið frá 16. öld. En það, sem er óvenjulegast við snældusnúðinn, er áletrunin á hon- um, sem er með einföldu höfðaletri. Hún er ekki alveg heil, en þar sem lesa má stendur: „..NNA A M...“. Þetta gæti þýtt „ANNA Á MIG“, en auðvitað er óvíst hvort þarna stend- ur í raun og veru Anna. Þetta gæti þýtt til dæmis Gunna eða Finna. En þó svo að þarna ætti að standa Anna er mjög óráðlegt að eigna Önnu Vigfúsdóttur gripinn, enda Önnu- nafnið algengt. Afkomendur Önnu og Hjalta munu hafa búið í Stóru- borg lengi eftir þeirra dag og líklegt að stúlkubörn hafi verið látin heita eftir þessari frægu ættmóður. í formálsorðum sýningarskrár seg- ir Þórður Tómasson, safnvörður í Skógum, meðal annars: „Ungum varð mér Borgarhóllinn frammi á sjávarbakkanum undir Austurfjöll- um líkt og goðsögn eða helgistaður. Það gerði sagan um ástir Önnu og Hjalta, sem oft var lesin og sögð á vökustundum heima í Vallnatúni... Og fleirum var þetta helgur sögu- staður. „Blessaður hóllinn minn," sagði hún oft, heiðurskonan Sigríð- ur Sigurðardóttir í Stóru-Borg, og lagði innileika í orðin. Samt gaf hún ljúflega samþykki til þess að honum var flett í sundur eins og blöðum í fornri sögubók, hún vissi hann kominn á vonarvöl. Henni og syni hennar, Sigurði Björgvinssyni, bónda á Borg, er þá einnig að þakka að saga, sem hann lumaði á, fór ekki forgörðum. Án velvilja þeirra hefði stórvirki Mjallar Snæsdóttur og fé- Iaga hennar aldrei orðið að veru- leika.“ - sbs, Selfossi.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.