Tíminn - 13.07.1991, Qupperneq 10

Tíminn - 13.07.1991, Qupperneq 10
18 T HELGIN Laugardagur 13. júlí 1991 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL róngum stað röngum tíma „Ég sá hana á hverjum morgni og hugsaði um hvað hún værí falleg. Hún kom frá svo góðrí og sam- hentrí fjölskyldu. Þetta er eitt af því sem enginn fær skilið.“ Svona lýsti nágranni hinni 14 ára gömlu Wendy Masuhara, nemanda við gagnfræðaskóla í út- hverfl Los Angeles. Kennarar hennar og foreldrar voru stoltir af námsárangrí hennar. Bekkjarfélagar hennar lýstu henni sem mjög duglegum og sam- viskusömum nemanda, en sögðu jafnframt að hún hefði veríð skemmtileg persóna og vinsæl. Marsha Erickson var fýrir löngu búin að missa alla dómgreind vegna fíkniefnaneysiu og tók þátt í athöfnum félaga síns athugasemdalaust Réttarlæknirinn sagði að hún væri stirðnuð og látin. Áður en Wendy lést bjó hún ásamt foreldrum sínum í litlu húsi í ró- iegu hverfi í úthverfi Los Angeles. Myrkfælnin varð örlagarík Föstudaginn 19. september 1987 hafði vinkona hennar verið hjá henni og þær höfðu horft á sjón- varpið allan daginn. Um kiukkan 11 um kvöldið fylgdi Wendy vin- konu sinni heim. Vinkonan, Sandy Davis, var aðeins 13 ára og enn fremur myrkfælin. Wendy stríddi henni stundum á því að hún væri hugleysingi. Þegar Wendy kom ekki heim aftur fóru foreldrar hennar að leita hennar í hverfinu. Einnig fengu þeir nágranna sína til liðs við sig. Haft var samband við foreldra Sandy og þá kom í ljós að stúlkurn- ar höfðu aldrei komið heim til þeirra. í dögun var leitarflokkur 50 manna farinn að leita. Útihús, akr- ar, húsasund og nærliggjandi skóg- ar voru þaulkembdir, en hvergi fannst tangur eða tetur af stúlkun- um. Helst var að sjá sem þeir hefðu hreinlega gufað upp á milli heimil- anna tveggja. Snemma á laugardagsmorguninn var maður á bfl um fimm mílur frá heimili stúlknanna. Þá sá hann hvar unglingsstúlka stóð í kjarrinu fyrir utan veginn og veifaði til hans. Hann sá að það blæddi mikið úr höfði hennar og hann stöðvaði bflinn. „Hvað er að?“ spurði hann stúlk- una. „Ég var skotin,“ svaraði stúlkan. „Hjálpaðu mér.“ Skömmu síðar komu þau að slysa- deild sjúkrahússins í Chatworth. Stúlkan hlaut þar viðeigandi með- ferð vegna skotsára og Iosts. Þar sem sjúkrahúsum ber skylda til að tilkynna um öll skotsár, var sam- stundis haft samband við lögregl- una í Los Angeles. Þegar lögreglan kom á slysadeild- ina var henni tjáð að stúlkan væri Sandy Davis og læknir fóru fram á að hún yrði ekki yfirheyrð ná- kvæmlega fyrr en hún hefði jafnað sig frek n En Sandy var samvinnu- þýð og mbúin til að skýra lög- reglunni frá því sem gerst hafði. Saga hennar virtist beint upp úr glæpamynd eftir Alfred Hitchcock. Saga Sandy Sandy skýrði lögreglunni frá því að hún og Wendy hefðu verið á leið heim til hennar, þegar þær gengu fram á brúnleitan húsvagn. Þær veittu vagninum enga sérstaka at- hygli, þar sem slíkir vagnar eru al- geng sjón á þessum slóðum. Þegar þær komu að bflnum var hurðin opnuð og kona stakk út höfðinu og ávarpaði stúlkurnar. „Væruð þið ekki tilbúnar til að hjálpa mér aðeins," sagði konan kurteislega. „Mig vantar aðstoð við að koma bílnum í gang.“ Stúlkurnar voru reiðubúnar að koma til hjálpar og fóru inn í hús- vagninn. Þegar inn var komið hittu stúlk- urnar fyrir gráhærðan mann sem miðaði á þær skammbyssu. Hann skipaði þeim að setjast niður og steinþegja „ef þær vissu hvað þeim væri fyrir bestu“. Hann var hinn fólskulegasti útlits. Sandy fannst hann nákvæmlega eins og hún hafði ímyndað sér morðingja. Dauðskelfdar stúlkurnar gerðu eins og þeim var sagt. Konan setti síðan húsvagninn í gang og ók af stað. Húsvagninn yfirgaf öryggi út- hverfisins og var ekið um í þrjátíu mínútur. Þegar konan stöðvaði vagninn voru þau komin á alger- lega óbyggt svæði. Á leiðinni hjú- fruðu stúlkurnar sig hvor upp að annarri og héldust í hendur. Bæði maðurinn og konan neyttu kókaíns á meðan á ferðinni stóð. Þegar á áfangastað var komið sagði maður- inn og benti á Sandy: „Ég vil fá þessa.“ Síðan var kókaíni sprautað í San- dy og konan batt og keflaði Wendy. Þegar kókaínið var farið að hafa áhrif á Sandy var henni nauðgað og hún neydd til alls kyns kynferðis- legra athafna. Á meðan á þessu stóð var Wendy svo hrædd að hún gat sig hvergi hrært eða komið upp stunu. Hnú- arnir á höndum hennar voru ná- hvítir og tárin streymdu niður kinnar hennar. Wendy fylgdi vinkonu sinni heim kvöld eitt, þar sem sú yngri var myrk- fælin. Þærvoru reiðubúnar að aðstoða konu, sem kvaðst vera í vand- ræðum, og það reyndist þeim örlagaríkt. Þegar karlmaðurinn hafði lokið sér af við Sandy fóru skötuhjúin með stúlkurnar út úr húsvagnin- um og settu þær inn í yfirgefinn skutbfl, sem stóð þarna rétt hjá. Maðurinn setti byssuna í hnakka Wendy og hleypti af. Síðan sneri hann sér sallarólegur að Sandy og miðaði byssunni á hana. Ótrúleg heppni Enginn heyrði skothvellina sem bergmáluðu um eyðilegt svæðið. Sandy bar fyrir sig höndina og sneri sér undan. Til allrar ham- ingju lenti kúlan í fingri hennar og hljóp þaðan í hálsinn. Sandy lét sig falla og þóttist vera dáin þar til par- ið fór. Þá klifraði hún upp á veginn til að freista þess að fá hjálp. „Hún sá byssukúluna koma,“ sagði Warren Knowles lögreglu- fulltrúi við fréttamenn, sem höfðu hópast til sjúkrahússins. „Hún bar fyrir sig höndina og það varð henni til bjargar. Þetta virðist ekki hafa verið vel úthugsað." Kúlan, sem tekin var úr hálsi San- dy, var sent til rannsóknar og fram- burður hennar var settur í möppu sem merkt var „Óupplýst morð“. Þó svo að Sandy væri illa farin gat hún gefið lögreglunni góða lýsingu á árásarmönnunum. Hún sagði að maðurinn hefði 55-60 ára gamall, hvítur, um 170 sentimetrar á hæð og um 85 kfló, með grásprengt hár, þykkar dökkar augabrúnir og beyglað nef. Konan var líka hvít, um fertugt, lágvaxin og grönn, með axlasítt, slétt, brúnt hár. Einnig gaf hún góða lýsingu á húsvagninum. Teikningar af bflnum og morð- ingjunum voru nú birtar á öllu Los Angeles-svæðinu. Lögreglan skír- skotaði til almennings um að gefa allar upplýsingar sem að gagni kynnu að koma. Skiptiborð lögreglunnar voru rauðglóandi næstu daga. Flest voru símtölin frá velmeinandi fólki, sem taldi öll pör í húsvögn- um vera morðingjana. Nokkrir, sem hringdu, voru ruglaðir og „upplýsingarnar", sem þeir gáfu, úrðu til þess eins að tefja framgang málsins. Ekkert þessara símtala bar nokkurn ávöxt. Þó svo að Sandy þyldi mikinn sársauka og hefði orðið fyrir losti gat hún bent lögreglunni á árásar- staðinn þar sem vinkona hennar hafði verið myrt. Þetta var vinsæll staður meðal hesta- og göngu- manna. Um klukkan hálftvö kom lögregl- an að yfirgefna skutbflnum. Wendy fannst í aftursætinu og hafði blóð fossað úr djúpu skotsári í hnakka hennar. Krufning leiddi í Ijós að henni hafði ekki verið misþyrmt kynferð- islega og að hún hafði látist sam- stundis. Sérfræðingar könnuðu vettvang og fylgdu leiðinni sem húsvagninn mun hafa ekið. Þeir hirtu upp flöskur, áldósir, pappírsrusl, allt sem leit út fyrir að hafa verið hent nýlega. Skutbfllinn var vandlega rannsakaður og leitað að möguleg- um sönnunargögnum. Eftir að bfllinn hafði verið grandskoðaður var hann Ijósmyndaður frá öllum sjónarhornum. Eitthvað fannst af óskýrum fingraförum í honum. Lögreglan var á þeirri skoðun að parið væri illilega brenglað og væri á ferðinni í leit að saklausum fórn- arlömbum sem það gæti veitt ann- arlegum hvötum sínum útrás á. Vitað var að skutbfllinn hafði ver- ið á þessum stað mánuðum saman. Útigangsmenn höfðu notað hann fyrir svefnstað og það fór ekki á milli mála að elskendur höfðu leit- að í honum athvarfs. Nærbuxur og notaðir smokkar fundust allt í kringum hann. Lögreglunni tókst að ná gifsmót- um af hjólförum þeim, sem nýleg- ust voru á svæðinu, þar sem talið var að þau hlytu að vera eftir hús-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.