Tíminn - 13.07.1991, Qupperneq 12

Tíminn - 13.07.1991, Qupperneq 12
20 HELGIN Laugardagur 13. júlí 1991 Þjónustugreinar í stað hagræðingar Nú þykir það helst til bjargar í fjárlagagerðinni að hverfa frá velferðarkerfinu og láta menn borga fyrir þjónustuna sem nota hana, eins og það er kallað. Lyfjaskattar eru komnir á, nefnd eru skólagjöld, vext- ir á námslán, kaup nemenda á skólabókum og ýmis- legt fleira. Nú eru ráðherrarnir farnir að ólmast í fjöimiðlum vegna fjárlagagerðar fyrir árið 1992. Tilgangurinn er tvíþættur. í fyrsta lagi að koma því inn hjá þjóð- inni að þeir hafi tekið við afar slæmu búi frá síðustu ríkisstjórn, og í öðru lagi að búa sig undir næstu kjarasamninga með sem mestu krepputali. Hún er létt í hendi, kistan sem oddvitar stjórnarflokkanna taka á milli sín. Hvort þaö er ríkiskassinn eöa glatkistan vitum viö eigi svo gjörla, en í Viöey er hún og þar var henni lyft í tilefni þess að þar var núverandi ríkisstjórn sett á koppinn. Timamynd Aml Bjama. Var maðurinn erlendis? Einn broslegasti þátturinn í þessu öllu saman er hve mikið mál forsætisráðherrann gerir úr bréfum sem hann segir liggja í skúffum ráðuneytis síns um málefni atvinnuveganna og slæmar horfur. Engu er líkara en hann hafi haldið að engin vandamál væru uppi í þjóðfélaginu, þau væru öllsömul leyst. Þótt síðasta ríkisstjórn hafi gert margt vel, leysti hún ekki öll vandamál. Mál fiskeldis voru til meðferðar og langrar umræðu á Alþingi eftir áramót í vetur. Öllum var ljóst að Álafoss átti í erfiðleikum. Ríkis- fjármálin voru til stöðugrar umræðu, og ég held að engum stjórnarliða hafi dulist að þar var við vanda að etja, og við framsóknarmenn höfðum þar ákveðn- ar hugmyndir um úrbætur. Hins vegar er eins og núverandi forsætisráðherra hafi ekki verið á landinu síðastliðna mánuði, og tal- ar um að þessi vandi hafi dúkkað upp og er yfirmáta undrandi þegar hann rekst á bréf í möppum forsæt- isráðuneytisins um mál sem verið hafa á dagskrá í þjóðmálaumræðunni svo mánuðum skiptir. Alvaricgar blekkingar um sjóðina Ein alvarlegasta blekkingin, sem stjórnarliðar eru að bera á borð þessa dagana, er sú að starfsemi hluta- fjársjóðs og atvinnutryggingarsjóðs hafi verið til einskis og sóun á peningum. Sannleikurinn var sá að sú starfsemi kom rekstri margra fyrirtækja í sjávar- útvegi í lag, og án þeirra hefði riðið yfir hér slík gjald- þrotahrina sem aldrei fyrr. Með stöðugleika í efna- hagslífinu og lágri verðbólgu geta þessi fyrirtæki gengið, og stjórnendur þeirra gengið uppréttir til hagræðingar og þróunar í greininni, sem vissulega er þörf á. Það eru vissulega alvarleg teikn framundan. Alvar- legustu tíðindin, sem okkur berast nú, eru tillögur fiskifræðinga um aflamagn næstu ára. Vissulega eiga þau þó heldur ekki að koma með öllu á óvart. Stað- reyndin um mögru árgangana í fiskistofnunum hefur verið ljós um nokkurra ára skeið. hlutafélög og selja þá. Til þess að fegra þessi áform er gripið til þess að tala um sölu til starfsmanna. Eitt- hvað virðist samt hafa flökrað að forsætisráðherra að starfsmenn þessara stofnana hefðu ekki fullar hendur fjár, þannig að hann talar um að selja þessi bréf fyrir Iítið, með afslætti. Spyrja má þá hver verður hart">' ríkissjóðs þegar upp er staðið. Hciðin hugsun Kjarninn í stefnu ríkisstjórnarinnar nú, birtist í tveimur myndum: • í fyrsta lagi í þeirri heiðnu hugsun að láta gjaldþrot og nauðungarsamninga sjá um hagræðingu atvinnulífs- ins í landinu. Fólki er sagt að eftir þau ragnarök rísi upp iðjagræn jörð, eins og í Völuspá. O f öðru lagi að brjóta nið- ur velferðarkerfið, í stað þess að ganga til hagræð- ingar í ríkiskerfmu. Leggja á stórfellda skatta, og kalla þá þjónustugjöld. Allt er þetta leikur að eldi, og hlýtur að stór- spilla því góða sambandi sem fyrri ríkisstjórn var búin að ná við launþega- hreyfmguna í landinu og leiddi til þjóðarsáttar. Hins vegar heyrist ekkert um hagræö- ingu í ríkiskerfinu, sem er nauðsynleg. Hvað um að sameina rekstur sjúkrahús- anna í Reykjavík, sem að sögn fróðra manna getur sparað hundruð milljóna. Hinir málglöðu ráð- herrar, formenn stjórnarflokkanna, hafa ekkert minnst á þetta. Hins vegar er eins og núverandi forsætis- ráðherra hafi ekki ver- ið á landinu síðast- liðna mánuði, og talar um að þessi vandi hafi dúkkað upp og er yfir- máta undrandi þegar hann rekst á bréf í möppum forsætis- ráðuneytisins um mál sem verið hafa á dag- skrá í þjóðmálaum- ræðunni svo mánuð- um skiptir. Hins vegar heyrist ekk- ert um hagræðingu í rík- iskerfmu, sem er nauð- synleg. Hvað um að sam- eina rekstur sjúkrahús- anna í Reykjavík, sem að sögn fróðra manna getur sparað hundruð millj- óna. Hinir málglöðu ráð- herrar, formenn stjórn- arflokkanna, hafa ekkert minnst á þetta. Eitt bjargráðið í viðbót er að selja ríkisfyrirtæki, og eru Sfldarverksmiðjur ríkisins efstar á listanum. Það er sjálfsagt að breyta rekstrarformi Síldarverksmiðja ríkisins og stofna um þær hlutafélag. Hins vegar er það skrítin hagfræði að ætla að selja þær í bútum meðan óvissu- ástand ríkir um veiðar í bræðslu svo sem loðnuveið- ar. Með því fæst auðvitað ekki sannvirði fyrir þessar eignir. í öðru lagi er rætt um að breyta ríkisbönkunum í

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.