Tíminn - 03.08.1991, Blaðsíða 3

Tíminn - 03.08.1991, Blaðsíða 3
Laugardagur 3. ágúst 1991 Tíminn 3 5 MANNA FÓLKSBÍLL MEÐ VÖRUPALLI TRAUSTUR OG ENDINGARGÓÐUR Búnaður: ■ Dieselhreyfill ■ Tengjanlegt aldrif ■ Tregðulæsing á afturdrifi ■ Framdrifslokur Verð kr. 1.394.880.- m.vsk. EHl A HEKLA MITSUBISHI LAUGAVEGI 174 MOTORS SÍMI695500 Kjörinn bíll fyrir: ■ Vinnuflokka ■ Bændur ■ Iðnaðarmenn ■ Útgerðarmenn ■ Verktaka ■ Fjallamenn ÞRIGGJA. ÁRA ÁBYRGÐ Fæst einnig meö lengdum palli Kr. 1.534.880 + vsk. 302.044 Yerð kr. 1.232.836 Gífurlegur munur á útbreiðslu eyðni í Norður-Evrópu og annars staðar: Ungt fólk smitast í „kyn- Íífsferðum“ í grein Ólafs Ólafssonar landlæknis í nýjasta hefti Læknablaðsins kemur fram að gífurlegur munur er á útbreiðslu eyðni í Norður- Evrópu og annars staðar. f greininni segir m.a. að nú séu þekkt 334 þúsund eyðnitilfelli í heiminum og þar af eru 85% í Afr- íku, Norður- og Suður-Ameríku. Al- þjóðaheilbrigðismálastofnunin tel- ur að í raun séu tilfellin um 650 þús- und og 50% þeirra sé að finna í Afr- íku, tæp 40% í Bandaríkjunum, Mið- og Suður-Ameríku, en um 7% í Evrópu. Milli 77-87% eyðnitilfella á Vestur- löndum eru meðal samkyn- hneigðra, tvíkynhneigðra og fíkni- efnaneytenda. Útbreiðsla meðal gagnkynhneigðra eykst nokkuð í Miðjarðarhafslöndum og á Norður- löndum. Á Norðurlöndum smitast meirihluti gagnkynhneigðra (ungt fólk) í ferðum til suðrænna landa og til Suður-Asíu (kynlífsferðir). í grein Ólafs er áréttað að það beri að vekja athygli ungs fólks á þessu. Þá segir að nýgengi sjúkdómsins á undanförnum fjórum árum (1985- 1989) er hæst í þeim löndum þar sem fjöldi fíkniefnaneytenda (sprautusjúklinga) er mikill miðað við fjölda sýktra samkynhneigðra. Til þessara landa má telja meðal annars Ítalíu, Spán og Frakkland. Því ber, meðal annars sólarlandaför- um, að vera sérstaklega á verði við heimsóknir til þessara landa. Smitið breiðist mjög ört út á meðal sprautusjúklinga. í sumum borg- um, til dæmis Dublin, Edinborg og Varsjá, hefur tíðnin aukist úr örfá- um prósentum í yfir 50% á tveimur til þremur árum. í sumum löndum í Mið-Afríku er ástandið hrikalegt, en þar eru allt að 30% 20-40 ára fólks smitað. Athygli er síðan vakin á því að dreg- ið hefur úr veldisaukningu sjúk- dómsins (exponential incidence), sérstaklega á Norðurlöndum og nokkrum löndum á meginlandinu, en þar fjölgar nýjum tilfellum á lokastigi ekki sem áður. Trúlega hafa lyfin haft veruleg áhrif og mest þar sem allir HlV-sýktir hafa möguleika á að fá lyfin. Þetta eru fyrstu „bata- merkin" og vekja vonir. Vonin er að vísu létt í fangi, en afar styrkjandi. Landlæknir segir að lokum að við megum ekki sofna á verðinum gegn þessum lífshættulega sjúkdómi -js HlV-smit og alnæmi: 3 20-29 ára Fram að 31. júoí 1991 höfðu alls 65 einstaklingar með smit af völdum HlV-veirunnar (Human Immunodeflciency Virus) greinst á fslandi. Samkvæmt upplýsingum frá Landlæknisemb- ættinu, hafa 6 einstaklingar greinst með HlV-smit |»ð sem af er er efBr- smit, farandi: Hommar era 63.1% þeirra sem grcinst hafa með smit af völdum HIV, fíkniefaaneytendur sem sprauta sig í æð era 13.8% og gagnkynhneígðir 9.2%. Hlutfall blóðþega, sem greinst bafa með HIV, er 6.2%, óþekkt tHfelIi eru Hér á landi hafa samtai* 18 ein- staklingar greinst með alnæmi, lokastig sjúkdómsins, og eru 10 þeirra látnir. Samaniagt nýgengi sjúkdómsins er því 7.2/100.000 íbúa. Kynjahlutfall HlV-smitaðra og kona fyrir hveija 5 karimenn. Ðreifing elnstaldinga með HIV- 4.6% og 3.1% eru fíkniefnaneyt- endur og tvíkynhneigðir. Fiestlr þeirra, sem greinst hafa með HIV- vehtma, eru á aldrinum 20 til 29 ára, eða 31 einstakllngur. Næst flestir eru á aldrinum 30 tll 39 ára, eða 17 einstaktingar. Fiestir {þess- um aldurshópi bafa greinst með al- nsmi, eða 8, og 3 þeirra hafa látist. Alis hafa 11 einstaldingar á aldrin- um 40 til 49 ára greinst með HIV- smit, 3 einstaklingar 60 ára og eldri, 2 á aldrinum 50 til 59 ára og einn á aldrinum 10 til 19 ára.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.