Tíminn - 03.08.1991, Side 10

Tíminn - 03.08.1991, Side 10
Laugardagurff:, 3gúgt4.9Q1' 22 Tíminn ÁRNAÐ HEILLA Níræður Skúli Jónsson fyrrum bóndi í Þórormstungu í Vatnsdal Skúli Jónsson, fyrrum bóndi í Þór- ormstungu í Vatnsdal, nú á Grænu- mörk 3, Selfossi, er níræður í dag. Skúli fæddist að Þórormstungu 3. ágúst 1901, sonur Jóns Hannessonar og Astu Margrétar Bjamadóttur, er þar bjuggu, og síðar að Undirfelli. Vatnsdalur er rómaður fyrir mikla fegurð og þar er búsældarlegt um að litast Enn fer um menn hin sama tilfinning og á dögum Ingimundar gamla þegar komið er í Vatnsdal, „þar sjá menn góða landakosti að grösum og skógum, var fagurt um að litast, lyfti þá mjög brúnum manna." í Vatnsdal eru margar vildisjarðir, þar bjuggu menn stórt, vom fjárrík- ir og stórir í sniðum, ekki síst fram yfir miðja þessa öld, eða eins og Ág- úst á Hofi sagði að þar væri „fullt af smákóngum". Vatnsdalurinn hrífur ferðamanninn en þeir sem fóstraðir em í dalnum búa að því allt sitt líf. Skúli Jónsson var næstyngstur í hópi sex systkina, foreldrar hans flytja frá Þórormstungu að Undirfelli 1907. Undirfell var mikil og góð bú- jörð, kirkjujörð og höfuðból, þar vom heyskaparlönd meiri og betri en gerðist Skúli vann að búi foreldra sinna á Undirfelli og flytur með þeim að Þór- ormstungu aftur tuttugu ámm síðar en Hólmfríður systir hans og Hann- es Pálsson taka við allri jörðinni að Undirfelli. Þórormstunga er af mörgum talin ein besta bújörðin í dalnum og hygg ég að það hafi verið Skúla að skapi að sú ákvörðun var tekin að flytja þang- að á ný. Skúli Jónsson er aldamótamaður, hann hreyfist af boðskap og sóknar- hug skáldanna, gerist ungur þátttak- andi í félagsskap manna sem börðust fyrir betra og fegurra mannlífi. Börðust fyrir frelsi og fúllu sjálfstæði þjóðarinnar, ræktun lýðs og lands. Skúli var kosinn til hreppsnefndar Áshrepps ungur að ámm og enn meðan hann var búlaus, sem ekki var nú algengt á þeirri tíð, og það í sveit sem var setin af sterkríkum bændum, eins og áður sagði. Hann var formaður í lestrarfélagi Ásahrepps í tíu ár, en lestrarfélögin gegndu miklu hlutverki í alþýðu- fræðslunni og margur maðurinn náði því í gegnum þau að verða víð- lesinn og vel að sér. Skúli var fulltrúi Ásahrepps á kaup- félagsfundum og hjá Mjólkursamlagi Húnvetninga. Hann starfaði mikið í ungmennafé- lagi sveitar sinnar, enda áhugamaður um íþróttir, ekki síst knattspymu. Ungmennafélögin vom á þeim tíma baráttutæki ungs fólks til framfara- sóknar, þar stigu menn á stokk og strengdu heit um betra og réttlátara þjóðfélag, hygg ég að það hafi ekki verið síst unga fólkið sem studdi Skúla til hreppsnefndar. Skúli starf- aði í sáttanefnd sem var oft erfitt í mörgum sveitum en starfið byggðist á því að setja niður deilur og sætta menn. Húnvetningar hafa nú margir haft það fyrir íþrótt að deila en Skúla fórst sáttastarfið vel úr hendi, enda vill hann hvers manns vandræði leysa. Skúli kvæntist 17. janúar 1939 Ástríði Helgu Sigurjónsdóttur frá Tindum í Svínavatnshreppi. Þau eignuðust einn son, Sigurjón, skrifstofustjóra í Hveragerði, kvænt- an Arnþrúði Ingvadóttur og eiga þau þrjú böm. Skúli og Ásta bjuggu að Tindum til að byrja með. En 1944 taka þau við búskapnum af foreldr- um Skúla í Þórormstungu og reka þar bú til 1959. Búskapur þeirra var farsæll, þau bjuggu blönduðu búi. Skúla féll vel að starfa að búskap, skemmtilegast þóttu honum þó göngur og fjallferðir, hann átti góða hesta og kann frá mörgu skemmti- legu að segja úr slíkum ferðum. Skúli fór ungur að fara með skot- vopn og var ágætur veiðimaður. Snemma fór hann að liggja á gren- um frammi á heiðum með Snæbimi bróður sínum og fleiri mönnum, en lengst og oftast með Lámsi í Grím- stungu. Skúli þekkti orðið vel eðli skolla, en slíkar ferðir og útilegur á heiðum uppi voru ekki síst heillandi vegna þess hve vomóttin er björt, hversu þögnin er seiðandi eða eins og Skúli segir þegar hann minnist þessara stunda. „verða vitni að endumýjun náttúmnnar, þegar fuglamir vökn- uðu og tóku að syngja í þúsund radda kór í morgunsólinni." Árið 1959 bregða Skúli og Ásta búi og flytja suður á land hér að Selfossi og hafa búið hér síðan, lengst af að Kirkjuvegi 16 og nú að Grænumörk 3. Lengi starfaði Skúli hér hjá Kaupfé- Iagi Árnesinga við verslunarstörf, var m.a. sýningarmaður við Rjómabú Baugsstaða í ein átta ár. Kynni mín af Skúla Jónssyni hófust fyrir átján ámm er við hjónin leigð- um kjallaraíbúð hans að Kirkjuvegi 16. Með okkur tókst fljótlega ágæt vinátta og hef ég átt á heimili þeirra hjóna margar ágætar stundir. í fyrstu fannst mér Skúli nokkuð hrjúfur á yfirborði, snöggur í tilsvör- um og var um sig, en slíkt er oft yfir- bragð manna sem em vinfastir og vinavandi sem og kom á daginn. Skúli og Ásta eignuðust fljótt marga góða vini hér á Suðurlandi sem halda við þau tryggð. Ásta lærði fatasaum sem ung stúlka, hefur hún sinnt því auk þess að starfa við heim- ilishjálp hér á Selfossi. Þau hjón em góð heim að sækja, enda gestkvæmt á heimili þeirra. Skúli hefur alltaf fylgst vel með því sem er að gerast, á gott með að greina aðalatriði máls og tekur af- stöðu að vel athuguðu máli. Glöggur á menn og hefur gaman af að greina hverrar gerðar þeir em, ekki síst stjómmálamenn. Ef ég ætti að lýsa Skúla þá seilist ég til að grípa lýsingu af einum fyrsta manni sem ólst upp í Vatnsdalnum, Þorsteini, syni Ingimundar gamla, „vænn og gervilegur, stilltur vel, orðvís og langsýnn, vinafastur og hófsmaður um alla hluti.“ Skuli getur sagt eins og stórskáldið: „Minn skóli er lífið, annars enginn, þar hef ég numið, heyrt og séð." Hér á Selfossi hafa þau hjón nú bú- ið í yfir þrjátíu ár, þó Vatnsdalurinn og Húnaþing sé þeim ofarlega í huga og tryggð við vini sína þar, þá hafa þau unað vel sínum hag hér og hafa metnað fyrir hönd Selfoss og Suður- lands. Sakir þess hversu Skúli er hrein- skiptinn og ráðhollur leita margir til hans um álit og ráðagjörð. Þá á hann að trúnaðarvinum menn úr öllum stiómmálaflokkum. Á góðri stundu er Skúli gamansam- ur, segir vel frá og er orðheppinn, hann á létt með að tala á mannfund- um og flytur ágætar tækifærisræður. í allri umhirðu og störfum er Skúli mikill reglumaður, hefur óvenju fagra rithönd og þau hjón prýða heimili sitt með fögmm munum. Eftir því tók sá er þetta ritar, meðan Skúli sinnti störfum mætti hann á vinnustaðinn gjaman klukkustund fyrr en vinna hófst. Þetta gerði hann án endurgjalds og fyrst og fremst til að sinna ýmsu því sem sat annars á hakanum. Skúli Jónsson er gæfumaður sem gott er að hafa kynnst og átt að með hollráð og geta borið undir hann ýmis álitamál. Allar ákvarðanir sem hann tók, hvort sem var fyrir samferðamenn sína eða sjálfan sig, voru teknar að vel athuguðu máli. Ein þeirra var þó stærst og viðkvæmust eða sú að láta af búskap og flytja yfir í ókunnugt hérað. Þessa ákvörðun tóku þau hjón á réttu augnabliki meðan enn var starfsdagur og þrek til vinnu. Hygg ég að það hafi verið þeim létt- bærara að hverfa á braut úr Vatns- dalnum með þessum hætti. Söknuð- urinn orðið minni og hugurinn upp- tekinn af nýjum stöðum. Hér syðra hafa þau sinnt sinni æskubyggð með öflugu staríi í Húnvetningafélagi og reglulegum heimsóknum norður. Hús þeirra hefur staðið Húnvetning- um opið hér syðra. Ég vil að lokum þakka Skúla og Ástu vinskap og tryggð við mig og mitt heimili um leið og ég óska þeim alls hins besta á ókomnum árum. Guðni Ágústsson tækniskóli t íslands Tækniskóli íslands óskar að ráða stundakenn- ara til kennslu í stærðfræði í tæknifræðideildum skólans. Um er að ræða kennslu í stærðfræðigreiningu á háskólastigi. Um kjör fer eftir gildandi reglum Menntamála- ráðuneytisins um greiðslur fyrir stundakennslu á háskólastigi. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst n.k. Rektor GARÐSLATTUR Tökum að okkur aö slá garða. Kantklippum og fjarlægjum heyið. Komum, skoðum og gerum verðtilboð. Upplýsingar i síma 41224, eftir kl. 18.00. FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Síðumúla 39 -108 Reykjavík - Sími 678500 Fax 686270 Staða forstöðumanns Við Unglingaathvarfið, Tryggvagötu 12, er laustil um- sóknar staða forstöðumanns. Um er að ræða með- ferðarstarf með 8 unglingum og ber forstöðumaður ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd meðferðar- starfsins. Félagsráðgjafamenntun eða önnur menntun er nýtist í þessu starfi, svo og reynsla af meðferðarstarfi með unglingum. Á sama stað er laus til umsóknar staða starfsmanns í 46% starf. Æskilegt er að viðkomandi hafi menntun og/eða reynslu sem nýtist í skapandi meðferðarstarfi með unglingum. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 20606. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst n.k. Umsóknum skal skila til Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á umsóknareyðu- blöðum sem þar fást. Kvöld-, nætur- og holgldagavarsla apóteka I Roykjavfk 2. til 8. ðgúst er I Háaleitlsapótekl og Vesturbæjarapótekl. Þaö apótok sem fyrr er nofnt annast eltt vörsluna frá kl. 22.00 aö kvöldi tll kl. 9.00 að morgnl virka daga en kl. 22.00 A sunnudögum. Upplýs- Ingar um læknls- og lyfjaþjónustu eru gefn- ar I sfma 18888. Neyðarvakt Tannlæknafélags fslands er starfrækt um helgar og á stórhátlöum. Slm- svari 681041. HafnarQöröur Hafnarfjarðar apótek og Nonö- urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug- ardag Id. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00- 12.00. Upplýsingar I slmsvara nr. 51600. Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjömu apótek eru opin virka daga á opnunartlma búða. Apó- tekin skiptast á slna vikuna hvort aö sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er oplö I þvl apótekl sem sér um þessa vörslu, til kl. 19.00. A helgidögum er opiö frá kl. 11.00- 12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum tlmum er lyfja- fræðingur á bakvakt. Upplýsingar enj gefnar I slma 22445. Apótek Koflavíkur: Opiö virka daga frá k. 9.00-19.00. Laugardaga, helgidaga og al- menna frldaga kl. 10.00-12.00. Apótek Vestmannaeyja: Opiö virka daga frá kl. 8.00-18.00. Lokaö I hádeginu milli kl. 12.30- 14.00. Selfoss: Setfoss apótek er opiö til kl. 18.30. Oplö er á laugardögum og sunnudögum kl. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opiö virka daga til kl. 18.30. Opiö er á laugardögum Id. 10.00- 13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00. Garðabæn Apótekiö er opið rúmhelga daga kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00. Alnæmlsvandlnn. Samtök áhugafólks um alnæmisvandann vilja styöja smitaöa og sjúka og aðstandendur þeina, slmi 28586. Læknavakt fyrir Reykjavfk, Seltjamames og Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavlkur alla virka daga frá kl. 17.00 til 08.00 og á laugar- dögum og helgidögum allan sólarhringinn. Á Seltjamames! er læknavakt á kvöldin kl. 20.00-21.00oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaðá sunnudögum. Vitjanabeiönir, slmaráöleggingar og tlmapantanir I sfma 21230. Borgarspftallnn vakt frá kl. 08-17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (slmi 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysa- deild) sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sól- arhringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um lyfjabúöir og læknaþjónustu erugefnar I slm- svara 18888. Ónæmlsaógerðir fyrir fulloröna gegn mænusótt fara fram á Hellsuvemdarstöð Reykjavfkur á þriöjudögum Id. 16.00-17.00. Fólk hafi meö sér ónæmissklrteini. Garöabær Heilsugæslustööin Garöaflöt 16-18 er opin 8.00-17.00, slmi 656066. Læknavakt er I slma 51100. HafnarQöröur Heilsugæsla Hafnarfjaröar, Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00- 17.00, slmi 53722. Læknavakt slmi 51100. Kópavogur Heilsugæslan er opin 8.00-18.00 virka daga. Slmi 40400. Keflavfk: Neyöarþjónusta er allan sólarhrínginn á Heilsugæslustöð Suðumesja. Slmi: 14000. Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráögjöf I sálfræöilegum efnum. Slmi 687075. Landspltalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til Id. 20.00. Kvennadelldln: kl. 19.30-20.00. Sængurkvennadelld: Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartimi fyrir feður kl. 19.30- 20.30. Bamaspftall Hrlngsins: Kl. 13-19 alla daga. Öldrunarfæknlngadelld Landspltal- ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomu- lagi. - Landakotsspftall: Alla virka kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17. Heimsóknartlmi annarra en foreldra kl. 16-17 daglega. - Borgarspltallnn I Fossvogi: Mánu- daga til föstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir samkomulagi. Á laugardögum og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúölr Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvfta- bandiö, hjúkrunardeild: Heimsóknartlmi frjáls alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu- daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnudaga kl. 14-19.30. - Hellsuvemdarstööln: Kl. 14 til kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavlkur Alla daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspftall: Alla daga Id. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. Kópavogshællð: Eftir umtali og kl. 15 tll kl. 17 á helgidögum. - Vffilsstaðaspftall: Helm- sóknartlmi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. - SL Jósepsspftall Hafnarfirðl: Alla daga Id. 15-16 00 19-19.30 Sunnuhlið hjúkrunarhelmili I Kópavogi: Helm- sóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkrahús Keflavfkuriæknlshéraðs og heilsugæslustöðvar: Vaktþjónusta allan sólar- hringinn. Slmi 14000. Keflavfk-sjúkrahúslð: Heimsóknartlmi virka daga kl. 18.30-19.30. Um helgar og á hátlöum: Kl. 15.00-16.00 og 19.00-19.30. Akureyrf- sjúkrahúsiö: Heim- sóknartimi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00- 20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraöra Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarösstofuslmi frá kl. 22.00- 8.00, slmi 22209. SJúkrahús Akra- ness: Heimsóknartlmi Sjúkrahúss Akraness er alla daga kl. 15.30- 16.00 og kl. 19.00-19.30. Reykjavík: Neyðarslmi lögreglunnar er 11166 og 000. Seltjamames: Lögreglan slmi 611166, slökkviliö og sjúkrabrfreiö simi 11100. Kópavogur Lögreglan simi 41200, slökkviliö og sjúkrabifreiö slmi 11100. Hafnarflöröur: Lögreglan sími 51166, slökkvi- liö og sjúkrabifreiö slmi 51100. Keflavfk: Lögreglan slmi 15500, slökkvilið og sjúkrabill simi 12222, sjúkrahús 14000, 11401 og 11138. Vestmanneyjan Lögreglan, slmi 11666, slökkviliö slmi 12222 og sjúkrahúsiö slmi 11955. Akureyrl: Lögreglan slmar 23222, 23223 og 23224, slökkviliö og sjúkrabifreiö simi 22222. IsalJöröur: Lögreglan slmi 4222, slökkvilið sími 3300, brunaslmi og sjúkrabtfreiö slmi 3333.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.