Tíminn - 03.08.1991, Blaðsíða 13
Laugardagur 3. ágúst 1991
Tíminn 25
10 ára afmælisþing L.F.K.
Landsþing Landssambands framsóknarkvenna verður haldið í
Reykjavík dagana 4. og 5. október nk. að Borgartúni 6.
(tilefni af 10 ára afrriæli Landssambands framsóknarkvenna býð-
ur Félag framsóknarkvenna í Reykjavík til skoðunarferðar föstu-
daginn 4. október. Við heimsækjum fyrirtæki og stofnanir borgar-
innar, sem ekki eru alltaf til sýnis almenningi, undir leiðsögn Sig-
rúnar Magnúsdóttur og Sigríðar Hjartar.
Um kvöldið verður sameiginlegur kvöldverður í boði FFK.
Laugardagskvöldið 5. október er lokahóf Landsþingsins að Borg-
artúni 6, sem jafnframt verður afmælishóf með skemmtidagskrá.
Við hvetjum framsóknarkonur um land allt til að taka frá dagana
4. og 5. okt. og fjölmenna á afmælisfagnaðinn.
Undirbúningsnefndin
Stefna ’91 — Sauðárkróki
Fræðsluráðstefna SUF verður haldin helgina 30. ágúst-1. sept-
ember n.k. Ráðstefnan er opin öllum ungum framsóknarmönnum
alls staðar af landinu og verður ráðstefnugjaldi stillt i hóf. Gist
verður I heimavist Fjölbrautaskólans á Sauðárkróki og fyrirlestrar
munu fara fram í sal skólans. Eftir ráðstefnuna verður tjölmennt á
héraðsmót framsóknarmanna í Skagafirði, sem haldið verður að
Miðgarði og mun hinn þjóðfrægi Geirmundur Valtýsson leika fyrir
dansi.
Dagskrá ráðstefnunnar verður auglýst síðar. SUF-arar eru hvatt-
irtil að skrá sig sem fyrst á skrifstofu Framsóknarflokksins, Hafn-
arstræti 20, eða í síma 624480.
Framkvæmdastjóm SUF
Sumarhappdrætti Framsókn-
arflokksins 1991
Dregið var í Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins 12. júll sl.,
en númerin eru í innsigli hjá Borgarfógeta til 5. ágúst 1991. Vel-
unnarar flokksins, sem ekki hafa greitt heimsendan gíróseðil, eru
hvattir til að gera skil eigi síðar en 5. ágúst. Það er enn tækifæri
til að vera með. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokks-
ins, Hafnarstræti 20, III. hæð, eða í síma 91-624480.
Framsóknarflokkurinn.
Félagsmót framsóknarmanna
í Skagafirði
verður haldið í Miðgarði laugardaginn 31. ágúst.
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar fer á kostum og leikur fyrir dansi.
Jóhannes Kristjánsson verður meðal skemmtiatriða. Nánar auglýst slöar.
Nefndin.
AUGLÝSINGASÍMAR TÍMANS:
JEPRA)
HJÓLBARÐ-
ARNIR
VINSÆLU
»HANK00K
Jeppahjólbarðar
frá Suður-Kóreu:
215/75 R15, kr. 6.320.
235/75 R15, kr. 6.950.
30- 9,5 R15, kr. 6.950.
31- 10,5 R15, kr. 7.950.
31-11,5 R15, kr. 9.470.
33-12,5 R15, kr. 9.950.
Hröð og örugg
þjónusta.
BARÐINN hf.
Skútuvogl 2, Reykjavfk
I Síman 91-30501 og 91-84844
V ^
BILALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNID ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Klæðaburður unglinga
í sjónvarpsþáttum
Roxanne Camron, ritstjóri eins
mest lesna unglingablaðs í
Bandaríkjunum, útnefndi nýlega
best og verst klæddu unglingana
sem leika í sjónvarpsþáttum þar
vestra. Þar fengu unglingamir þó
engin sérstök sæti á lista sem
best eða verst klæddi unglingur-
inn heldur fengu þeir stutta um-
fjöllun um klæðaþurð sinn.
Roxanne segir undirrót vinsæl-
asta klæðaburðarins meðal ung-
linga vera klæðaburð Madonnu
þegar hún var að verða fræg. Þá
hafi hún klæðst gallajakka,
þröngum pilsum, legghlífum,
sokkum og strigaskóm. Hún
sagði það vera vinsælt að vera í
góðum strigaskóm svo sem Air
Jordan, Nike og LA Gear. Ung-
lingarnir vildu síðan hafa glitr-
andi skóreimar og síðast en ekki
síst vilja þeir helst ekki hafa
skóna reimaða. Hún sagði að
strákar vildu hafa einn eyrnalokk
en stelpur helst marga. Jafnframt
væru legghlífar og dýrar rifnar
gallabuxur mjög vinsælar hjá
unglingum í Bandaríkjunum.
Það sem er ekki í tísku hjá ung-
lingum segir Roxanne til dæmis
vera veski og háir hælar. Ómálað-
ar stelpur og málaðir strákar þyk-
ir ekki heldur flott. Óþægileg og
óeðlilega þröng föt eru alls ekki
vinsæl meðal unglinga. Roxanne
sagði einnig að það að líta út eins
og skítugur hippi þætti mjög
hallærislegt svo og allur sá
klæðaburður sem ekki gæfi til
kynna hreinlæti og snyrti-
mennsku.
Bart Simpson ber þungann af
klæðarburði almennings. Stutt-
buxumar hans svo og bolurinn
hafa haft þau áhríf á unglingana að
margir hverjir hafa tekið upp hina
áhyggjulausu tískustefnu hans
ParkerXewis (Corin Nemec) sem er aðalpersón-
an í Skálkar á skólabekk fær umsögnina að hann
líti alltaf vel út hvort sem hárið á honum sé greitt
aftur eða það lafi niður í augu. Hann er afsiapp-
aður unglingur og klæðist þægilegum, víðum og
áberandi silkiskyrtum.
Hver á að ráða? Alyssa Mil-
ano, eða Sam eins og hún
heitir í þáttunum, vann titilinn
fyrír sinn sígilda og fyrsta
flokks klæöaburð. Útlit henn-
ar er ef til vill venjulegt en það
er ferskt og fínt. Aftur á móti
er Daríene (Sara Gilbert) í
þáttunum um Roseanne ekki
sögð vera mjög smart Leið-
beiningarnar sem hún fær eru
á þá leið að ef hún vilji ná sé (
kærasta þá eigi hún að segja
skilið við flannelskyrtuna sína
og reyna að klæða sig á kven-
legrí máta. Jafnframt segir að
hún þurfi ekki alltaf að vera
strákaleg í útliti til þess að ná
árangrí í íþróttum.
Tvíburasystkinin í framhalds-
þáttunum Vinir og vandamenn,
þau Brandon Walsh (Jason Prí-
estly) og Brenda Walsh (Shann-
en Dohertly) eru vinsæl og uppá-
hald margra unglinga. Klæða-
burður þeirra er keimlíkur þeim
sem var í tísku á sjötta áratugn-
um en sá klæðaburður er einmitt
mjög mikið í tísku núna.
HPö',- \ * 1 1 ffll WmÞiiw \ • \ 1 fl |||§yh^ § ^ _
■ ' / - m * 'œmuf * j S j£S£+ Um Whitley Gilbert í Vistaskiptum, sem leikin er af Jasmine Guy, seg- ir „Hversu margar stúlkur fara í minkapels f skólann?" Persónan Whitley er „rík tík" og lætur ætíð mikið á sér bera.“ Theo Cosby (Malcolm Jamai Wamer) i sjón- varpsþáttunum Fyrirmyndarfaðir er sagður vera í allt of stórum og miklum peysum sem gerí hann fyrirferðarmeiri.