Tíminn - 08.08.1991, Blaðsíða 16
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnarhusinu v Tryggvagolu
S 28822
UtBSBaÉfftUIBSKIim
SAMVINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 16. SlMI: 688568
r &£SS3
Ókeypis auglýsingar fyrir einstaklinga
91 SÍMI -676-444
Tíniinn
FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST1991
Ásmundur Stefánsson er þeirrar skoðunar að vextir séu of háir. Hann segir hins vegar að nafnvaxtahækkunin nú hafi verið óhjákvæmileg:
Aðlögi nn I m ikal kerl Fisii ns aö
vaxtal \æY ;ku ns tjór nar innar
trausta afkomu. Það er Ijóst að
fólk leggur ekki peninga í banka
sem ekki hefur sæmilega trausta
stöðu.“
Aðspurður um ástæðu nafnvaxta-
hækkunarinnar sagði Ásmundur
að það væri óhjákvæmilegt að
tryggja samræmi milli verð-
tryggðra og óverðtryggðra kjara.
Aðspurður hvort vaxtahækkanir
ríkisins í vor hefðu haft einhver
áhrif, sagði Ásmundur að það
mætti segja að með þessu væru
menn að laga sig að þeirri breyt-
ingu sem varð á vöxtunum fyrr f
sumar. „Það er inni í þessu líka að
lánskjaravísitalan endurspeglar
breytingar á kaupi, og kaup hefur
hækkað meira en verðlag núna yf-
ir sumarmánuðina. Þar kemur inn
hækkun sem mælist inni í láns-
kjaravísitölu og setur vexti upp
miðað við það kerfi sem við búum
við í því efni.“
— Áttu von á því að verðbólgan
lækki í haust?
„Já, en það er hins vegar ekki út-
séð með það heldur. Miðað við
spámar, sem núna liggja fyrir, ætti
það að gerast, og þá hlýtur allt
þetta að vera til endurskoðunar.
Áðalatriðið í málinu er eftir sem
áður að það er nauðsynlegt að ná
raunvöxtunum niður, því þessir
háu raunvextir setja ekki aðeins
einstaklinga í vandræði, heldur
stöðva þeir líka eðlilega fjárfest-
ingu í atvinnurekstrinum. Það
getur komið hættulega niður á
okkur þegar til lengri tíma er lit-
ið,“ sagði Ásmundur Stefánsson.
—SE
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ og bankaráðsmaður í ís-
landsbanka, segir að það sé töluvert til í þeim rökum, sem kom-
ið hafí fram hjá Davíð Oddssyni forsætisráðherra, að verðbólgu-
tölurnar hafí falið í sér tilefni til að hækka nafnvexti mun fyrr en
gert var. Hins vegar segir hann að þau rök ráðherrans æði lang-
sótt, að bankamir séu að bæta sér upp það tap, sem þeir urðu
fyrir þegar hin pólitískt skipuðu banlraráð hafí viljað fegra efna-
hagsviðskilnað síðustu stjómar með því að hækka ekki vexti.
„Ég held ekki að menn hafi dreg-
ið við sig að hækka vexti undir
pólitíska þjónkun fyrir einhvem
ákveðinn aðila. Mér þykir sú skýr-
ing æði langsótL Það er hins vegar
rétt að verðbólgutölumar hafa nú
um nokkurn tíma, að minnsta
kosti eftir stjórnarskiptin, verið
þess eðlis að það hefðu verið rök
fyrir meiri hækkun á nafnvöxtum.
Eg er ekki hins vegar þar með að
segja að það hefði verið heppilegt
að fara fyrr af stað með nafnvaxta-
hækkun, því það er auðvitað mjög
óæskileg staða sem upp er komin í
vaxtamálunum í heild. Fyrst og
fremst eru það þessir gífurlegu
raunvextir sem em vandamál,"
sagði Ásmundur.
— Af hverju eru þeir ekki lækk-
aðir?
„Raunvextir em í reyndinni ekki
sjálfstætt ákvarðaðir á einhverjum
einum stað. Þeir vextir, sem verða
til á þessum markaði, em ákvarð-
aðir af aðstæðunum á fjármagns-
markaðnum í miklu breiðari
skilningi en að það sé einföld
ákvörðun í bankakerfmu. Bank-
amir em að keppa um fjármagn
við aðra aðila, bæði ríkið og verð-
bréfamarkaðina, og fóm á síðasta
ári nokkuð illa halloka í sam-
keppninni um peninga, þannig að
þeir streymdu meira til annarra
aðila. Þess vegna þarf að ná jafn-
vægi á þessum fjármagnsmarkaði,
ef það á að ná jafnvægi í því efni.
Það em tveir kostir, annar kostur-
inn er að taka upp boðhátt og
skipa vexti, beita ósköp einfaldlega
handafli á allan lánamarkaðinn og
þar með talda alla verðbréfamark-
aðina. Hinn kosturinn er að beita
aðgerðum sem koma á auknum
jöfnuði á þessum markaði, sem
þýðir að það þarf að takast á við
fjárlagahallann og þá yfir eftir-
spum sem er eftir peningum í
gegnum húsbréfakerfið, sem m.a.
er að lána fólki gagnrýnislaust
með ríkisábyrgð allt að níu millj-
ónir. Það er ljóst að þetta tvennt
hefur valdið spennunni núna að
undanfömu, þ.e.a.s. hallinn á rik-
isfjármálunum og spennan á hús-
bréfamarkaðnum. Það er auðvitað
ríkisvaldsins að takast á við hvort
tveggja."
Nauðsynlegar ráðstafanir í hús-
bréfakerfmu ekki gerðar
Ásmundur sagði að það lægi
nokkuð ljóst fyrir að pólitískur
vilji til að beita handafli á lána-
markaðnum væri ekki fyrir hendi.
„Hann var ekki til staðar í síðustu
ríkisstjórn og enn síður til staðar í
núverandi stjóm. Þá er það í raun-
inni bara önnur leiðin sem er eft-
ir.“
— Er ríkisstjómin að þínu mati á
þeirri leið?
„Ríkisstjómin er að fjalla um fjár-
lögin. Það liggur ekki fyrir hvað
kemur út úr þeirri umræðu og því
ekki hægt að segja til um það á
hvaða leið hún er. Ég fæ ekki séð
að það sé verið að gera neinar þær
ráðstafanir í sambandi við hús-
bréfakerfið sem ég tel nauðsynleg-
ar. Ég tel að þar verði að takmarka
eftirspumina með þvf að draga úr
miklum lánum til fólks sem hefur
alla burði til að eiga við sín íbúðar-
kaup án aðstoðar ífá hinu opin-
bera.“
— Fram hefur komið hjá forsæt-
isráðherra að naftivaxtahækkunin
nú hafi verið of mikil. Hvert er þitt
mat á því?
„Þessi hækkun er samræming á
verðtryggðum og óverðtryggðum
vöxtum í bönkunum. Vextimir í
bönkunum em að mínu viti allt of
háir. Eins og ég segi em þeir ekki
að fullu sjálfráðir um gerðir sínar,
því þeir standa í samkeppni, bæði
við ríkið og verðbréfamarkaðinn,
um peningana, og því geta þeir
ekki tekið ákvarðanir án tillits til
aðstæðna. Það finnst mér vera
vandamálið. Ég held það megi
segja að með þessari ákvörðun sé
um nokkuð samræmi að ræða
milli nafnvaxta og verðtryggðra
Ásmundur Stefánsson, forsetl
ASÍ.
vaxta, miðað við þá breytingu á
lánskjaravísitölu sem er yfirstand-
andi. Við höfum hins vegar ástæðu
til þess að ætla að dragi úr hækk-
uninni á lánskjaravísitölunni þeg-
ar kemur fram á haustið, og þá
hlýtur þetta að vera til endurskoð-
unar.“
Bankamir eru að Iaga sig að
vaxtahækkunum stjómarinnar
Aðspurður sagði Ásmundur að
þessi ráðstöfun yki vaxtamuninn
frá því sem hann var fyrr á árinu.
„Það er hins vegar ljóst að fyrri
hluta ársins hafa bankamir verið
reknir með verulegum halla. Það
er bönkum nauðsynlegt umfram
önnur fyrirtæki að vera með
Ferðamönnum í júlímánuði hefur fjölg-
að um 240, aamanborið við júií í fyrra:
ÞJÓÐVERJAR
FJÖLMENNASTIR
í síðastliðnum júlímánuði 2.448 Svíar, 2.371 Dani, 1.629
komu sdl* 33.814 eriendir ferða- Norðmenn, 1.623 ítalar og
menn hingað til lands. I júlí í 1.600 Austurríldímenn. AUs
fyrra komu hingað 33.574 er« komu hingað 992 eriendir ferða-
lendir ferðamenn. I júlímánuði menn frá HoIIandi í síðasta
þetta árið voru þvf aOs 240 fleiri mánuði, 741 frá Fínnlandi, 401
erlendir ferðamenn staddir hér á fri Belgtu, 253 frá Spáni, 209
landi miðað við júlí í fyrra. frá Kanáda og 173 frf Japan.
Þjóðverjar voru langfjölmenn- Það vekur athygli að einn ferða-
astir ferðamanna hér á landi í maðnr, sem kom hingað til lands
júlimánuði eða alls 6.803. í júlí, var ríkisfangslaus.
NæstQölmennastir voru Frakk- Frá 1. janúar þessa árs ti! 31.
ar, en alls dvðldust hér 4.124 júK hafa afls komið hingað
Frakkar. Þar £ eftir vora Bretar, 90.921 eriendur ferðamaður. Á
en þeir voru 3.212. Þá komu sama tíma í fyna böfðu 88.507
einnig hingað 3.196 Svisslend- eriendir ferðamenq komið hing-
ingar, 3.165 Bandaríkjamenn, að tíl lands. -UÝJ
Samband veitinga- og gistihúsa telur brýnt að:
Danshús í borginni
fái næturklúbbaleyfi
Fulltrúar frá Sambandi veitinga-
og gistihúsa hafa að undanförnu átt
viðræður við Þorstein Pálsson
dómsmálaráðherra um nokkur mál,
sem sambandið telur brýnt að tekið
verði á. Meðal þess, sem farið hefur
verið fram á við dómsmálaráðherra,
er að danshús, sem uppfylli ákveðin
skilyrði, fái næturklúbbaleyfi og geti
því haft opið til kl. 5 að morgni.
Eðlilegt sé talið að slíkir skemmti-
staðir séu opnir lengur en krár, enda
tíðkist það alls staðar í veröldinni.
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra sagði að engar ákvarðanir
hefðu verið teknar, Samband veit-
inga- og gistihúsa hefði sett fram
ákveðnar óskir, sem yrðu skoðaðar í
ráðuneytinu. „Við höfum ekki tekið
neina afstöðu til þessara óska, þetta
er ennþá á umræðustigi," sagði Þor-
steinn.
SVG hefur lagt til í viðræðunum
við dómsmálaráðherra að því fárán-
lega ákvæði, að mati sambandsins, í
reglugerð um sölu og veitingar
áfengis þar sem kveðið er á um að
áfengisveitingum skuli hætt hálfri
klukkustund áður en leyfðum
skemmtanatíma lýkur, verði aflétt.
Sambandsmenn segja það óþolandi
að geta ekki veitt viðskiptavinum
þjónustu meðan á dansleik stendur,
enda verði barþjónar fyrir stöðugu
kvabbi frá gestum sem ekki skilji
slík ákvæði frekar en þeir. Þá leggur
SVG til við dómsmálaráðherra að
sumarhótel greiði lægra gjald fyrir
vínveitingaleyfi en veitingastaðir
sem opnir séu allt árið. SVG segir að
borið hafi á því í Reykjavík að refs-
ingar við brotum vínveitingahúsa
séu háðar duttlungum einstakra
embættismanna og að þær séu oft á
tíðum í litlu samræmi við brot. SVG
mótmælir harðlega að sömu refs-
ingar séu við brotum á öryggisregl-
um, sem SVG líti mjög alvarlegum
augum, og því broti að þjónn af-
greiði vfnglas nokkrum mínútum
eftir lokunartíma baranna. —SE