Tíminn - 17.10.1991, Blaðsíða 1
1200 atvinnulausir á skrá, en sótt um 1500 atvinnuleyfi fyrir útlendinga:
Hvernig er atvinnu-
leysi okkar háttað?
Ráðuneyti Davíðs fékk
I árlegri könnun Þjóðhagsstofn-
unar á atvinnuástandi og -horfum
kemur fram að fólk vantar til að
sinna um 450 störfum í íslenskum
fiskiðnaði. Öll þessi lausu störf í
fiskiðnaðinum eru utan höfuð-
borgarsvæðisins. Þá vantar ís-
lensk sjúkrahús 280 nýja starfs-
menn. Flestöll þau sjúkrahús,
sem vantar starfsmenn, eru hins
vegar á höfuðborgarsvæðinu. Nú-
verandi skortur á vinnuafli í fisk-
iðnaðinum er sá mesti í þrjú ár. En
á sama tíma og það vantar 730
manns til starfa, er skráð atvinnu-
leysi á landinu 0,9%, sem svarar
til þess að 1200 manns séu án at-
vinnu. í septembermánuði sl.
höfðu vinnumálaskrifstofu fé-
lagsmálaráðuneytisins borist um-
sóknir um atvinnuleyfi fyrir um
1500 útlendinga, en reiknað er
með að milli 500 og 600 umsókn-
anna séu vegna starfa í fiskiðnaði
úti á landi, einkum á Vestfjörðum.
• Blaðsíða 2
Umræða um EES var utan dagskrár á Alþingi f gær, að ósk Steingríms Hermannssonar sem hér
sést í ræðustóli. Þar kom fram að þingmenn telja nær útilokað að íslendingarfái framgengt kröfum um
niðurfellingu tolla af sjávarafurðum (lokalotu viðræðna um evrópska efnahagssvæðið. • Blaðsíða 5
Tfmamynd: Ámi Bjama