Tíminn - 19.10.1991, Side 1

Tíminn - 19.10.1991, Side 1
19.-20. október 1991 „Þao a aö syngja hærra þegar nótan er ofar“ Hér fer á eftir þáttur eftir Önnu Thorlacius, ritaður árið 1914 er höfundurinn var orðin 75 ára gömul og birtist hann í tímaritinu Eimreiðinni það ár. Hún segir hér af furðanlegri nákvæmni frá daglegu lífi í heimasveit sinni, Grundarfirði, því ekki var þá þorpsmyndun hafin þar, þótt verslun væri á staðnum. Ekki síst er mikils um vert hve nákvæmlega Anna lýsir búningi fólks og þá einkum kvennanna. Sömuleiðis er ávinningur að það megi geymast sem hún hefur hér um mataræði og aðra daglega háttu að segja. „Ég er fædd 1839 og uppalin í Grundarfirði. Faðir minn, Jón Daníelsson, var bæði kaupmaður og bóndi. Þegar ég fyrst man til mín voru aðeins þrjú hús á Grund- arkampi: íbúðarhús okkar og verslunarhús föður míns og var sölubúðin í norðurenda en vöru- hús í hinum, en þriðja húsið, sem var austar á kampinum, hafði gera látið Oddur læknir Hjaltalín, móð- urbróðir minn; því hann bjó fyrst í Grundarfirði þegar hann kom úr Læknisnesi, áður en hann flutti að Berserkjahrauni, en síðast fór hann til Bjamarhafnar og þar dó hann. Þetta Hjaltalínshús keypti Helgi nokkur er einnig verslaði í Grundarfirði. Ég man það svo vel að mér var sagt að þar sem móður- bróðir minn hefði haft lyfjabúðina, þar hefði Helgi gamli sölubúð sína. Svo var þar innar af svefnklefi og stofa fram af ekki alllítil, en eldhús og búr fremst. Svo kom skýli fram af með lofti, það var dúfnahús Odds Hjaltalíns. íbúðarhús föður míns var 14 álna langt og 9 álna breitt. Skýli (skúr) stórt og breitt var fram úr hliðinni. Þar var ekki nema einn inngangur, svo komu breið en stutt göng og hurðir á báðar hendur, önnur inn í gesta- stofu og þar inn af í svefnherbergi, eldhús gegnt útidyrum og búr all- stórt inn úr því. Hinum megin, gegnt gestastofu, var hin svo- nefnda suðurstofa, þar voru öll þing haldin. Faðir minn hafði látið gera aðra stofu suður af henni og í henni var setið og þar sváfum við og amma, móðir föður míns. Vinnufólk allt svaf uppi í miðlofti, þar uppi voru tvö herbergi sitt í hvorum enda; var annað geymslu- hús en í hinu bjó ljósmóðir okkar barnanna og maður hennar, Sig- urður smiður svonefndur. Hann smíðaði rokka og stokka, hús og kirkjur, en hafði þó hvergi lært að smíða. Rokkana smíðaði hann með tálguhnífnum (kutanum) sínum og þeir voru sem renndir í renni- smiðju. Vilmundarsaga viðutan Oftast hafði faðir minn 3 vinnu- menn, stundum 4, og 2 vinnukon- ur, og var ætíð önnur þeirra í fjósi, en ekki sótti hún vatn, nóg var samt, því aldrei voru færri en sex kýr og oftast naut. Þegar hún var búin í fjósinu verkaði hún sig upp og kom inn í stofuna, þar sem allir voru nú sestir við vinnuna, ungir og gamlir, nema Stefán bróðir minn; hann byrjaði undir eins og kveikt var að þylja sögumar, allar íslendingasögur, Árbækur Esp- ólíns, Sturlungu o.s.frv. En ekki man ég til að nokkur riddarasaga væri lesin, nema Vilmundar saga viðutan. Aldrei voru rímur kveðn- ar; það fékkst ekki fyrir föður mín- um, hann unni ekki þeim kveð- anda, en söng unni hann. Kvöldstundimar Ég man það enn í dag hvað mér leiddust verkin sem mér vom ætl- uð á kvöldin þegar ég var á 8. ár- inu; það var að gera kveik úr fífu, sem nóg er af í Grundarbotni, og prjóna illeppa. Ó, hvað mig syfjaði oft við þann starfa; en þó var mér sagt að taka eftir sögunum, en það vom nú einmitt þær sem gerðu Anna Thorlacius segir frá mannlífinu í Grundarfirði um miðja fyrri öld mig syfjaða, því á þeim ámm skildi ég lítið í þeim. Þá var það er mig tók að syfja að ég fór að skemmta mér við hundana, því snemma var ég dýravinur. Þar var tík sem oft lá á hvolpum, ég lagðist hjá þeim og mig syfjaði ekki á meðan, en bæði móðir mín og aðrir höfðu hugann við sögumar og veittu þessu ekki eftirtekt fyrr en um seinan. Seinna fékk ég sullaveiki og kenndi móðir mfn því um síðar meir að ég hefði verið svo mikil hundagæska; en enginn vissi þá að neitt væri að varast hvað hunda snerti. Móðir mín spann og vinnukonan einnig. Jón sálugi bróðir minn kembdi oft og var einnig að fást við talnafræði á kvöldin. Einn vinnu- manninn hafði faðir minn ávallt heima á vetrum, til að gæta fjár, og stóð hann hjá fénu þegar fært var, með rekur sína lammaði hann á eftir kindunum, eins og títt var, að moka snjóinn ofan yfir fyrir kind- umar þegar jarðskarpt var. Á kvöldin táði fjármaður hrosshár, og spann með snældu; setti hross- hársvindinn á eitthvað sem ekki lét undan, t.a.m. rúmmara eða stólpa rúmsins, sem svo vom nefndir, á hann var hrosshársvindlinum fest með sterku borjámi ofan í mar- ann. Stundum fékk ég fyrir sára bón að bera við að snúa snæld- unni. Mataræði Lesið var á hverju kvöldi; byrjað með föstur og sungnir Passíusálm- ar, sem ég ímynda mér að hvert mannsbarn kannist við. Síðan var borðuð flóuð mjólk og þykkur grautur ofan í eða blóðmör. öllum var skammtað í öskum nema föður mínum, hann fékk ávallt í pottskál, hvíta með rauðum rósum. Karl- mönnum var skammtað í 4 marka öskum (það var alls staðar venja) og kvenmönnum í 3 marka ösk- um. Við systkinin fengum í 2 marka öskum, uns við urðum 10- 11 ára; þá fórum við að verða lítt ánægð með askana, vildum fá í leirskálum eða djúpum diskum; en það var nú ekki að nefna, svo það urðu þá skálar. Tveir gluggar voru á stofunni, sinn á hvorum enda, og lítið borð undir öðrum glugganum, þar borðuðum við systkinin; pabbi á púltinu sínu, mamma á borði, sem ætíð stóð á miðju gólfi, og við það borðuðum við miðdegisverðinn, sem á sunnudögum var kjötsúpa og möluðum baunum kastað út á. Baunimar vom fyrst þurrkaðar í potti, látnar kólna og síðan malað- ar, þótti drýgra og var gott. Á mánudögum harðfiskur og hálf

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.