Tíminn - 16.11.1991, Síða 4

Tíminn - 16.11.1991, Síða 4
12 HELGIN Laugardagur 16. nóvember 1991 Þaö vantar ekki nema herslumuninn upp á Verður metið slegið í Bláfiöllum í ár? Hríðarveöríð undanfarna daga hefur ekki veríð að öllu leyti slæmt, þó að það sé norölenskum línuviðgerðarmönnum enginn au- fúsugestur. Vegna fannfergis eru góðar líkur á að Bláfjallasvæðið opni óvenju snemma í ár. „Við opnum svæðið um leið og það er hægt,“ segir Kolbeinn Pálsson, formaður Bláfjallanefnd- ar. „Því fyrr sem sjórínn kemur, því bjarsýnni eru menn. Ef það snjóar og undirlagið frýs, þarf mikla hláku til þess að það hverfi; nái snjórinn að frjósa saman, heldur hann vatninu og það flæðir niður í stað þess að bræða snjó- inn upp. Um leið og slíkt undirlag er komið erum við nokkuð örugg með svæðið út veturínn. Sú und- irstaða, sem er komin núna, er allt að því nógu góð til þess að hægt sé að opna. Hluti hennar fraus, en því miður standa ennþá meiar uppúr á milli. Við gerum okkur samt vonir um að þetta veður skili okkur undirlagi í brekkumar." — Er möguleiki á nýju opnunar- meti? „Það er nú þegar hægt að nota göngubrautirnar," segir Kolbeinn. „Ég held að fyrsti opnunardagur, sem við höfum náð, hafi veríð í kríngum 20. nóvember. Ef við fengjum einn til tvo daga með snjókomu til viðbótar því sem nú er fyrir, væri jafnvel möguleiki á að slá það met. Við þyrftum helst blautan snjó eða slyddu, sem síð- an frysi til þess að undirlagið yrði gott.“ Biö í 25 til 35 mínútur Á góðum dögum hafa 12 til 14 þúsund manns af höfuðborgar- svæðinu og nágrenni þess lagt leið sína upp í Bláfjöll til þess að njóta útivistar og renna sér á skíöum. Þetta er um helmingi meiri fjöldi heldur en hægt er að taka við með góðu móti, en það myndi kosta um 110 milljónir að koma upp nýrri, afkastamikilli Iyftu, sem kæmi í veg fyrir að bið- raðir skíðafólks mynduðust í Blá- fjöllum. Enn um sinn verða menn að sætta sig við að bíða í 25 til 35 mínútur eftir lyftunum til þess að renna sér niður brekkurnar í þrjár til fjórar mínútur. Þetta er sem betur fer fátítt, en enn sem komið er hafa þau þrettán sveitarfélög, sem standa straum af kostnaði við framkvæmdir í Bláfjöllum, ekki séð sér fært að fjölga þar lyftum. Unnið aö endurbótum á svæðinu „Auðvitað erum við ekki ánægð- ir með að geta ekki þjónað fólki betur á mestu álagstímunum," segir Kolbeinn Pálsson, formaður Bláfjallanefndar. „En það má segja að svæðið þjóni fjögur til fimm þúsund manns sæmilega. Þaö er hins vegar alltaf unnið að því að bæta svæðið. í fyrra opnuð- um við beygjulyftu, sem tengir Pramsvæðið við svokallað aðal- svæði, en þar með eru skíðasvæð- in þrjú tengd saman. í fyrra var einnig komið í gagnið barnalyftu í Suðurgili og nú í ár var sett upp barnalyfta við skála Fram. Við höfum bamalyftur á öllum stöð- unura, sem þýðir að það er auð- veldara fyrir fólk að dreifa sér heldur en áður var. Auk þess erum við búnir að leggja veg að Suðurgilinu og bíla- stæði við endann á honum. Áður var talsveröum erfiðleikum bund- ið að komast þar á milli, en nú er þetta mun aðgengilegra fyrír fjöl- skyldufólk en var. Nýjasta stóla- lyftan á svæðinu var sett upp árið 1983, en lyftumar í Bláfjöllum em alls tóíf. Með vaxandi áhuga almennings fyrír skíðaíþrótinni hefur svæðið hins vegar hvergi dugað til. í hitteðfyrra fengum við til að mynda um hundraö þús- und gesti samtals, en af þeim vom um þríðjungur gönguskíða- fólk.“ Útilokað að láta gjöld- in borga framkvæmdir Undanfarin þrjú ár hefur Blá Iþróttin, sem var stunduð af forfeðrum okkar, nýtur vaxandi vinsælda á ný: í fótspor feðranna Flest okkar hafa einhvern tíma skautað sér til gamans. Á síðari öldum hefur lítið farið fyrir skautakeppnum hérlendis, en þar hef- ur orðið breyting á. Forfeður okkar fluttu ísknattleiksíþróttina með sér frá Skandin- avíu og í Gísla sögu Súrssonar er sagt frá knattleik á ís, sem endaði með illindum. Nú fetum við aftur í fótspor feðranna, enda eru hér ágætis aðstæður til að stunda ísknatt- leik, eða íshokkí eins og hann heitir núna. Þessi íþrótt hefur um árabil verið stunduð á Akureyri, en vinsældir hennar á Reykjar- víkursvæðinu fara vaxandi. Snorri G. Sig- urðarson er einn talsmanna ísknattleiksfé- lagsins Bjarnarins, sem auk Skautafélags Reykjavíkur gengst fyrir æfingum á ís- hokkí. „Þetta er virkilega mikið púl. ímyndaðu þér að þú hlaupir stanslaust án hvfidar, þetta er svipað, nema áreynslan á fæturna er meiri — þú brennir meiru á skautunum. Hokkí er erfitt en skemmtilegt. Þetta er íþrótt sem menn lifa fyrir, ég sjálfur hef til dæmis ekki ánetjast neinni íþrótt fyrr en ég kynntist hokkíinu." Talan þrefaldaðist „Það eru um fimmtíu strákar sem æfa stíft hjá okkur í barnadeildinni, og við í meist- araflokknum æfum reglulega tuttugu og fimm til þrjátíu," segir Snorri. „Íshokkíið hefur ekki verið stundað mikið hérlendis íyrr en á síðustu árum, en áhuginn fyrir þessari íþrótt fer hraðvaxandi. Ég get nefnt sem dæmi að síðastliðið vor vorum við með í kringum fimmtán stráka á æfingum síð- asta vor, en nú hefur sú tala meira en þre- faldast. Áhuginn virðist vera mikill fyrir íþróttinni og það er alltaf eitthvað að bæt- ast við.“ Það er dýrt að byrja Til að ná árangri í íshokkíinu þurfa menn að hafa náð góðu valdi á skautaíþróttinni, en fleira þarf að koma til. Hokkíið útheimt- ir auk skauta, kylfu, búning og ýmiskonar hlífar. Eftir að menn hafa komið sér upp

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.