Tíminn - 16.11.1991, Qupperneq 14

Tíminn - 16.11.1991, Qupperneq 14
22 HELGIN Laugardagur 16. nóvember 1991 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL Robert Steptoe var í stöðu sem hann hefði án efa misst, ef upp hefði komist að hann var samkynhneigður. Hann neyddist því til að íeggja lag sitt við svikara og vændiskarla, sem að lokum varð honum að fjortjom Hús Steptoes var í svokölluðu góðu hverfi og nágrannar hans fylgdust grannt með gestakomum. TVÖFALT LÍF SKÓLA STJÓRANS Kennslukona nokkur við framhaldsskóla í Washingtonborg hafði reynt í fimm daga að ná sambandi við skólastjóra skólans, en sím- inn stöðugt verið á tali. Það hvarflaði að henni að hann hefði farið að heiman í jólafríinu, sem hafði hafist þann 21. desember, og lagt símann skakkt á, en taldi það ólfldegt þar sem skólastjórinn annað- ist fatlaðan ættingja sinn sem bjó hjá honum. Að lokum greip kennslukonan til þó nokkurn tíma. þess ráðs, þann 26. desember, að fara heim til skólastjórans til að ná af honum tali. Fatlaða frænkan kom til dyra og hún spurði eftir skóla- stjóranum. „Hann er veikur,“ sagði frænkan. „Má ég koma inn?“ spurði kennslu- konan þá. Frænkan hristi höfuðið. Hún var tortryggin í garð alls og allra og greinilegt að engrar samvinnu var að vænta frá henni, því fötlun henn- ar var mikil andlega. Svo kennslu- konan hvarf á brott. Póstur og sími taka til sinna ráða Hún var þó ekki ánægð með gang mála og ákvað að grípa til frekari að- gerða. Ef Steptoe skólastjóri var veikur, hvernig stóð þá á því að sím- inn hafði verið á tali svo dögum skipti? Kannski að hann þyrfti á að- stoð að halda? Hún ákvað því að hringja á símstöðina og láta kanna númerið. Skömmu síðar birtist símvirki á tröppunum hjá skólastjóranum. En frænkan vildi ekki hleypa honum inn heldur. Símvirkinn fór í skrár símafélagsins og hafði samband við aðra frænku Steptoes og skýrði henni frá aðstæðum. Sú hraðaði sér heim til Steptoes og frænkan gat varla annað en hleypt henni inn. Konan gekk um húsið. Þegar hún kom að svefnherbergi Steptoes rak hana í rogastans. Á gólfmu, að hálfu leyti inni í herberginu og að hálfu leyti frammi á ganginum, Iá Steptoe. Hann var á nærfötunum og um háls hans var snúra sem hert hafði verið að. Andlit hans var marið og blóðugt. Augljóst var við fyrstu sýn að mað- urinn var látinn. Og lyktin gaf til kynna að hann hafði verið látinn í Fatlaða frænkan var illa á sig kom- in. Hún var ekki fær um að sjá um sig sjálf og hafði því ekkert fengið að borða eftir að frændi hennar lést. Lögreglan var næsti gestur sem barði að dyrum. Fyrst komu al- mennir lögreglumenn til að kanna vettvang og sáu strax að þetta var mál fyrir morðdeild. Þeir gerðu þær ráðstafanir, sem gera þurfti til að vernda vettvang glæpsins, og köll- uðu síðan til starfsmenn morðdeild- ar, sem komu á staðinn fyrr en varði. Hæfur og gáfaður maður Steptoe hafði verið talinn mjög hæfur kennari og skólastjóri og vel látinn bæði af samkennurum sínum og skólayfirvöldum borgarinnar. Steptoe hafði búið alla sína ævi í Washington. Hann hafði útskrifast úr kaþólskum háskóla og unnið við kennslu þar til hann var skipaður skólastjóri. Hann var 56 ára gamall og ógiftur og barnlaus. Formaður skólanefndarinnar átti ekki orð til að lýsa ánægju sinni með skólastjórann. „Hann var góður fræðimaður, hafði frábæra kímni- gáfu og mjög skarpur. Hann hélt uppi góðum aga og sætti sig ekki nema við það besta frá nemendum sínum." Fyrrverandi aðstoðarfræðslustjóri, sem mælt hafði með Steptoe í stöð- una, sagði: „Hann var frábær kenn- ari sem gerði miklar kröfur. Hann var sjálfstæður í starfi og lét hvorki skólayfirvöld né foreldra nemenda ráðskast með sig.“ En ekkert hafði enn komið upp á yfirborðið sem skýrði hvers vegna þessi hæfi og vel gefni maður hafði verið myrtur. Tvöfalt líf Krufning leiddi í ljós að hann hafði látist af völdum kyrkingar og höfuð- högga. Tálið var að hann hefði látist 12 til 36 klukkustundum áður en lík hans fannst. Frænka hans, sem bjó hjá honum, gat engar skýringar gefið. Hún var það illa fötluð að þó svo að hún hefði orðið vitni að morðinu, gat hún ekki skýrt frá því. Nágrannarnir höfðu heldur ekki frá neinu að skýra. Sumir þeirra höfðu kvartað yfir atburðum sem áttu sér stað í húsi Steptoes, en vissu ekkert um hvað átt hefði sér stað nú. Við húsleit hjá skólastjóranum fundust mörg hommatímarit og myndbönd af sama toga. Þessi fund- ur leiddi lögregluna á vissa slóð. lál- ið var að einhver, sem átt hefði í kynferðislegu sambandi við Steptoe, hefði orðið honum að bana. Samstarfsmenn hans við skólann komu af fjöllum. Skólastjórinn hafði haldið í jólafrí þann 21. desember eins og allir aðrir, og eftir það vissu menn ekkert um athafnir hans. En lögreglumennirnir vonuðust til að hafa komist yfir vísbendingu þeg- ar þeir fundu kvittun fýrir áfengi heima hjá Steptoe. Kvittunin var dagsett þann 24. desember. Lög- reglumenn fóru í áfengisverslunina og sýndu kvittunina, í þeirri von að einhver myndi eftir Steptoe og þá hugsanlega í fylgd með öðrum. En ekki voru þeir svo heppnir. Bfll Steptoes, Nissan Sentra árgerð 1985, var horfinn, og lét lögreglan lýsa eftir honum. Blaðamenn voru önnum kafnir við að grafa upp það sem þeir gátu hjá nágrönnum og öðrum um hinn látna. Einn nágranni skýrði svo frá að Steptoe hefði verið einrænn og stundum hefðu liðið heilu vikurnar án þess að til hans sæist. En það, sem nágranninn var mest hissa á, var félagsskapurinn sem skólastjór- inn valdi sér. „Um helgar komu stundum til hans menn sem helst litu út fyrir að vera glæpamenn. Þetta voru margir hverjir mjög hörkulegir náungar. Þeir sáust kannski einu sinni til tvisvar, en þá birtust nýir.“ „Ég hálfvorkenndi honum," hélt nágranninn áfram. „Það var eins og James E. Baker laug fyrst til nafns og reyndi síðan að koma eigin glæp yfir á vin sinn. hann væri að leita eftir einhverju sem hann aldrei fann, einhverri hamingju eða tilgangi í lífinu. Hann var svo einmana að það var áþreifan- legt.“ „Það komu alltaf öðru hverju ung- ir menn að heimsækja þennan gamla piparsvein," sagði annar ná- granni.,Aidrei konur eða aðrir gest- ir. Okkur fannst hann dálítið ein- kennilegur, því hann hafði ekkert samband við nágrannana eða tók þátt í félagslífi hverfisins." Þegar farið var nánar ofan í kjölinn, kom í ljós að borgarráðsmaður nokkur hafði fariö fram á að húsleit væri framkvæmd heima hjá Steptoe. Ástæðan var að honum hafði borist til eyrna að skólastjórinn umgengist fólk í frístundum sem engan veginn hæfði stöðu hans. Borgarfulltrúinn óttaðist að eitthvað misjafnt kæmi í ljós um Steptoe, sem gæti komið skólayfirvöldum Washington í bobba. Húsleitin var gerð, en ekkert fannst sem bent gæti til þess að siðferði skólastjórans væri á nokkurn hátt ábótavant. Þeir, sem húsleitina framkvæmdu, viðurkenndu þó að þeir hefðu engan veginn lagt sig alla fram, því lögreglan hefði allajafna mikilvægari hlutum að gegna en grafast fyrir um siðferði opinberra starfsmanna. Banvænn feluleikur Sálfræðingur lögreglunnar sagði að morðið á Steptoe væri talandi dæmi um þá hættu sem laumu- hommar væru í, þegar samfélagið viðurkenndi ekki kynhneigð þeirra. „Það er greinilegt að staða hans leyfði ekki að hann gæti verið eðli sínu samkvæmur og staðið í sínum samböndum á opinskáan og ábyrgan hátt. Þetta hefur leitt til þess að hann hefur leitað á náðir svikara og vændismanna, sem margir hverjir eru hættulegir. Honum var þröngv- að inn í aðstæður sem að lokum urðu banvænar," sagði sálfræðing- urinn og ennfremur að þetta væri

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.