Tíminn - 16.11.1991, Page 8

Tíminn - 16.11.1991, Page 8
16 T HELGIN Laugardagur 16. nóvember 1991 4 Laugardagur 16. nóvember 1991 HELGIN 17 Ap hverju þarft þú að huga: Aður en af stað ti ðu leggur rjúpna Rjúpnaveiðitímabilið er hálfnað og veiðin er treg það sem af er. Þeir sidpta þúsundum og jafnvel tugþúsundum, sem stunda þetta vetr- arsport sér til gamans og heilsubótar. Ein af þekktari skyttum landsins er Einar Páll Garðarsson, íslandsmeistari í leirdúfuskot- fimi og afgreiðslumaður í Veiðihúsinu. Við fengum „Palla í Veiði- húsinu“ til þess að gefa upprennandi ijúpnaveiðimönnum góð ráð á síðum Tímans. „Þaö fyrsta, sem menn þurfa að huga að áður en þeir fara til rjúpna, er að vera í hentugum klæðnaði," segir Ein- ar Páll. „Margir gera þau mistök að kiæða sig of mikið. Þá koma menn út úr heitum bílunum á veiðistað og byrja á því að hlaða utan á sig fötum þar til þeir finna ekki fyrir kulda. Síð- an, þegar gengið er af stað, rennblotna þeir af svita og eftir það situr í þeim kuldi, jafnvel þó þeir séu á gangi. Menn eiga að klæðast hlýjum nær- fatnaði, sem andar vel og utan yfir mæli ég með Gore-Tex hlífðarfatnaði. Svo kallaður Thermo- nærfatnaður hefur gefist vel, en rjúpnaskyttur nota yfirleitt annað hvort nærfatnað sem er úr blöndu af ull og gerviefnum, eða fatnað sem er einungis úr gerviefn- um. — Hvað með skófatnaðinn? „Menn eiga að nota góða gönguskó. Allt of margir ganga til rjúpna í venju- legum gúmmístígvélum og það er ekki góður kostur. Venjulega eru það eldri mennimir sem notast við stígvélin, menn um fimmtugt og þar yfir. Það er í fyrsta lagi miklu kaldara að ganga í þeim. Stígvélin anda ekki og menn svitna í þeim og verða blautir í fæt- urna. í öðru lagi getur verið beinlínis hættulegt að ganga í þeim í brattlendi þar sem harður snjór er undir; þú heggur þér ekki neina braut í stígvél- um, en þú átt þó möguleika á að gera það í gönguskóm með góðum botni.“ — Hvað með öryggisatriði eins og neyðarblys? „Það er lítil fyrirhöfn, en mjög mikil- vægt að menn hafi með sér svokallað- an neyðarpenna, handhægt blys sem þú nælir í brjóstvasann eins og penna. Það er líka hægt að taka með sér merkjaskot í byssuna sjálfa, en það er ekki eins öruggt ef þú liggur einhvers staðar slasaður og nærð ekki til byss- unnar eða ef hún er skemmd." Benelli kemur best út Flestir, sem ganga til rjúpna, nota haglabyssur við veiðarnar. A Norður- landi og sér í lagi Norðausturlandi nota rjúpnaskyttur tuttugu og tveggja kalíbera smáriffla, en með þeim er ein- ungis hægt að skjóta fuglinn sitjandi. Haglabyssuna er hins vegar hægt að nota bæði til að skjóta fugl á flugi og sitjandi. Það er misjafnt hvernig vopn menn nota. Fyrr á árum voru ein- hleypur algengastar, en notkun þeirra fer minnkandi. Tvíhleyptar haglabyss- ur hafa verið vinsælar á rjúpaveiðum, vegna þess að þær eru fljótar í sigti þegar bregða þarf byssunni snöggt, Einar Páll, Benellíinn, tíkin Assa og tvö skyldmenni hennar. eins og til dæmis þegar rjúpnahópur flýgur upp í kjarri. Svokallaðar pump- ur eru mikið notaðar sem alhliða veiðibyssur, og hálfsjálfvirkar hagla- byssur hafa komist mjög í tísku hin síðari ár. ,Af öllum þeim byssum, sem ég hef notað, hefur sú sem ég nota núna, hálfsjálfvirk Benelli, komið langbest út,“ segir Einar Páll. ,A veiðum verður þú að geta treyst því verkfæri sem þú hefur í höndunum. Þessar byssur eru einfaldar, missa ekki úr skot og bila ekki. Þannig eiga góðar byssur að vera og það spillir heldur ekki fýrir að Benelli er bæði létt og meðfærileg. Ég held að ég hafi prófað flestar tegundir af hálfsjálfvirkum haglabyssum, ég átti á tímabili Browning A 5, gömlu baks- lagsbyssuna, hún reyndist mér vel og sömuleiðis kunni ég vel við Berettu 303 á meðan ég átti hana, en án hlut- drægni mæli ég með Benelli." Norðlendingar nota stærri högl „Það virðist vera misjafnt eftir lands- hlutum hvemig skot menn nota. Ég hef það á tilfinningunni að Norðlend- ingar noti stærri högl en aðrir, þeir taka mikið skot með höglum númer fjögur og fimm. Á Suðurlandi nota rjúpnaskyttur hins vegar mest frá fimm og upp í númer sjö. Flestir nota 36 gramma hleðslu á rjúpuna. Ég sjálf- ur nota frá 36 upp í 42 gramma hleðslu. Sumum finnst 42 grömm full öflug hleðsla á rjúpuna, en við sumar aðstæður, eins og t.a.m. í kringum veðrabreytingar, er fuglinn styggur og þá þýðir ekkert annað en að nota sterk- ar híeðslur. Þijú hundruð fugla maður! Ef menn líta á verð og gæði einstakra tegunda, myndi ég mæla með skotun- um frá Hlað hf. á Húsavík. Þau hafa verið í gífurlegri sókn að undanfömu, þeir eru að selja 500 til 600 þúsund skot á ári og ég gæti trúað að það væri um það bil helmingurinn af markaðin- um hér.“ — En hvað er Einar Páll margra rjúpna maður? „Það er voðalega misjafnt," segir hann og glottir. „Þetta hefur gengið fremur illa í haust. Ég og veiðifélagi minn, doktor Olgeir Bjamason, veið- um mest á svæðum hér í nágrenni Reykjavíkur, og þau hafa í seinni tíð ekki verið talin góður kostur. Við för- um kannski einn til tvo túra út á land, en sjaldan meira. En fái ég tvö- til þrjúhundruð fugla á hausti er ég ánægður." UNDRAEFNSÐ GORE-TEX Fyrir tuttugu og tveimur árum síðan, árið 1969, var efnið Gore-Tex fyrst notað. Ekki hér- lendis og ekki einu sinni á þessari plánetu, heldur á tunglinu. Þetta efni, sem var fyrst not- að í hlífðarföt bandarískra tunglfara, er í dag svo útbreitt að reykvískir góðborgarar spóka sig í Gore-Tex sparifrökkum, og líklega kemur það ekki síður að notum í okkar ágætu láréttu rign- ingu heldur en á tunglinu. Leyndardómurinn á bak við þetta efni er sam- setning mólekúlanna í því, en hver fersentím- etri af Gore- Tex samanstendur af 1,4 milljörð- um mólekúla. Mólekúlin eru um það bil 700 sinnum stærri en vatnsgufumólekúl og þess vegna kemst sviti frá líkamanum út. Efnið hleypir samt sem áður ekki venjulegu rigning- arvatni í gegnum sig. Flíkur úr Gore-Tex sam- anstanda af ytra og innra byrði úr venjulegum efnum, en á milli þeirra er Gore-Tex filma. Þetta efni hefur undanfarin ár verið mjög vin- sælt í hvers kyns hlífðarfatnað sem þarf að anda, eins og til að mynda skíðaklæðnað og veiðigalla. Nú eru menn jafnvel farnir að nota það í spariklæðnað. Bob Gore, maðurinn sem fann Gore- Tex upp, er fyrir löngu síðan orðinn margmilljóneri. Hann er titlaður forstjóri eigin fyrirtækis, sem framleiðir efnið í Þýskalandi, en eyðir samt sem áður mestum tíma sínum í fríum í suðurhöf- um. Bandarískur geimfari í Gore-Tex geimbúningi. Tuttugu og tveimur árum eftir tunglferðina er hægt að kaupa sparifrakka úr þessu efni í Kringlunni í Reykjavík. LOFTPRESSUR ÁTTATÍU ÁRA REYNSLA TÆKNI OG GÆÐI Stimpilpressur Þrýstingur 3-35 bör. Skrúfupressur Þrýstingur 4-13 bör. Vinnsluvaki og hljóðeinangrun. BOGE hefur upp á að bjóða eitt fjölbeyttasta úrval af loftpressum - loftkútum - þurrkurum - síum og olíuhreinsurum til framleiðslu á lofti. Stimpiipressur Litlar og stórar. Með eða án kúts. Sölu- og þjónustuaðilar Geisli - Vestmannaeyjum, Glitnir - Borgarnesi Póllinn - (safirði, Snarvirki hf. - Djúpavogi RAFLAGNIR - TÖLVULAGNIR - MÓTORVINDINGAR - VERZLUN - ÞJÓNUSTA RAFVEVI hF== SlMAR 91-812415-812117 TELEFAX 1-680215 SKEIFAN 3F, BOX 8433, 128 REYKJAVfK Nokkur atriöi, sem vert er aö hafa í huga áður en lagt er af stað í rjúpnaveiði: Öryggið á oddinn! • Gerið ávailt grein fyrir því hvert þið ætlið, áður en lagt er af stað. Ef eitthvað kemur fyrir, getur skipt sköpum að menn viti hvar á að leita að þér. • Hafðu meö þér áttavita og kort af svæðinu sem þú ætlar að ganga til rjúpna á. • Það er öruggara að menn séu tveir eða fleiri saman þegar farið er til fjalia að vetrarlagi. Það segir fátt af einum. • Vertu öruggur um að þú sért með rétt skot í byssuna. Menn hafa slasað sig og eyðilagt haglabyssur með því að nota þyngri hleðslur en þær þola. • Passaðu að það fari ekki snjór eða önnur óhreinindi upp í byssuhlaup- ið. Sé veruleg fyrirstaða í hlaupinu, springur byssan þegar hleypt er af. • Vertu með neyðarblys eða neyðar- penna á þér. • Varastu að fara út á harðfenni í miklum bratta, sér í lagi ef það er lausamjöll yfir því. Menn hafa hrapað til bana á rjúpnaveiðum. HUGSAÐU UM HUÐINA en gleymdu ekki undirstödunni! Undanrennan er alveg fitusnauð mjólkurafurð og ein kalkríkasta fæða sem við neytum að jafnaði. Hún er einnig auðug af próteini, fosfóri, ýmsum B-vítamínum og inniheldur auk þess zink, magníum, kalíum og fleiri efni sem eru líkamanum nauðsynleg.£§§MJÓLKURDAGSNEFND HÚN VAR brosmild hún Ragnheiður Kristjónsdóttir, átján ára gömul skíðakona og afgreiðslustúlka í Kringlusporti í Borgarkringlunni, þegar við vorum þar á ferðinni í vik- unni. Hún var meira segja til í að stilla sér upp með allan þann útbún- að sem skíðafólk þarf á að halda. Skórnir, bindingarnar, skíðin, stafirn- ir, hanskarnir, gallinn og húfan kosta samtals um 65 þúsund krónur. Skíð- in sjálf eru ekki stór póstur í þeirrí tölu, þau kosta ekki nema tæp fimm- tán þúsund. Timamynd: Áml BJama

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.