Tíminn - 16.11.1991, Síða 10

Tíminn - 16.11.1991, Síða 10
18 Tíminn Laugardagur 16. nóvember 1991 Að byrja rólega er mikilvægt, þegar líður á nrjá svo fara að taka á. Það er áríðandi að teygja eftir æfingar. „Spurning um lífss r n Stjörnudagar 5 daga lykill, mánudagurtil föstudags Innifalið: 5 dagar 4 nætur, morgunverður, 3ja rétta kvöldverður. Fyrir manninn í 2ja manna hert). 12.900,- V___________J (----------------------\ Helgarlykill föstudagur, laugardagur, sunnudagur Innifalið: 3 dagar 2 nætur, morgunverður, 3ja rétta kvöldverður. Fyrir manninn í 2ja manna herb. 10.900,- V J /V "N Hvunndagsþrenna 3ja daga lykill, mánudagur til miðvikudags Lykillað Hótel Örk 1992, seldur á sérstöku tilboði til 7. desember í Jólagjafahúsi Hótel Arkar í Kringlunni. miðvikudagur til föstudags Innifalið: 3 dagar 2 nætur, morgunverður, 3ja rétta kvöldverður Fyrir manninn í 2ja manna hert). 6.900 j' HEILSULYKILL A HOTEL ORK BYRJAR 17. JANÚAR 1992. Gestgjafi: Elísabet Guðmundsdóttir Líkamsræktarsalurinn, laugin og gufan opin allan daginn. Tækjaþjálfun, sund- leikfimi, þolfimi (eróbikk), slökun, hreyfing, líkamsvitund, Grönn-námskeið, ásamt heilsukynningum og skemmtunum frá morgni til kvölds. Fyrsta flokks gistiaðstaða, morgunmatur og kvöldverður innifalinn ásamt leiðsögn sérhæfðra leiðbeinenda. Nudd- og hárgreiðslustofa á staðnum, tennisvellir, skokkbraut og golfvöllur. Láttu ekki þetta einstæða tækifæri fram hjá þér fara. Taktu þér tak og vertu í hópi frumkvöðlanna á HÓTEL ÖRK. Skráning er þegar hafin. VERÐ: 3 dagar: Kr. 8.800,- 5 dagar: Kr. 16.600,- 7 dagar: Kr. 24.400,- _____________J SÍMI: 98-34700 FAX: 98-34775 Á venjulegri líkamsræktarstöð eiga allir að fmna eitthvað við sitt hæfi, sama hvort þeir eru feitir, grannir, ungir eða gamlir. Stöðvamar em yf- irieitt með gmnnprógrömm, í tækj- unum og leikfimisölum, sem spanna allt frá mjög léttum byrjendaæfmg- um upp í viridlegt erfiði. Það er held- ur engin tilviljun að líkamsræktin er vinsælasta form almenningsíþrótta að vetrinum til, ef frá em taldir skyldutímar í leikfimi í skólum. Og nú í vetrarbyrjun flykkist fólk að, er almenningur byijar að æfa aftur í stöðvunum eftir að hafa tekið sér frí yfir sumartímann. Fólkið sem nennir eldri að byrja Byrjendum er ráðlagt að fara rólega af stað og mæta annan hvem dag fyrstu eina til tvær vikurnar. Þeir em yfirleitt látnir æfa í um það bil hálfan klukkutíma í senn og menn eiga bara að taka það rólega; átta sig á staðnum og finna aðeins fyrir hreyfingunni. Það versta, sem hægt er að gera, er að keyra sig út strax í upphafi. Þeir, sem gera það, heltast oft úr lestinni og hætta að koma, af því að þeim líður illa. Það er mikilvægt að fólk átti sig á því að það er engin skyndimeðferð til. Til að komast í gott form er rökrétt að ætla sér þrjá mánuði hið minnsta. „Það er Iíka til hópur fólks, sem er alltaf að tala um að það ætli að fara að byrja, en finnur sér síðan afsökun til þess að gera það ekki,“ segir Bjöm, þjálfari og eigandi líkamsræktarstöðv- arinnar World Class. ,Aðal afsökunin fyrir fólk, sem ekki kemur, er sú að það geti ekki farið í World Class af því að þar er allt of mikið af fínu fólki og ung- lingum; það getur ekki farið í Mátt af því að þar er of gamalt fólk og það get- ur ekki farið til Jónínu af því þar er of feitt fólk. En þetta er bara fólkið sem nennir ekki og það þarf að hafa afsök- un til þess að þurfa ekki að fara. Þessi hópur er því miður allt of stór.“ Fólk flokkar sig eftir stöðvum „Það er nokkuð misjafnt eftir líkams- ræktarstöðvum hvers konar fólk sækir þær. Hér er til dæmis fólk frá fjórtán ára aldri upp í sextugt, en meginkjarn- inn er fólk á milli sextán ára og þrí- tugs. Yfirleitt kemur eldra fólkið fýrri hluta dags, en krakkamir koma hér saman á kvöldin. Hjá líkamsræktarstöðinni Mætti er meira um eldra fólk, kannski frá þrí- tugu og uppúr. Máttur hefur fengið þá ímynd á sig að þetta sé eins konar end- urhæfingarstöð. í stöðinni hjá Jónínu og Ágústu er meirihlutinn konur á aldrinum frá tuttugu og fimm ára og uppúr og þar er líka þónokkuð af þybbnu fólki. Líkamsrækt er ekki bara spum- ing um hreysti, heldur einnig útlit og ímynd. Spurning um heilsu og hreysti en ekki ímynd „Það virðist vera að líkamsræktar- stöðvar séu flokkaðar eftir ákveðinni ímynd. Sú ranga ímynd hefur til dæm- is loðað við World Class að hingað sæki tískugengi og fólk í glansgöllum. Ég veit ekki hvort hún er góð eða slæm, en það þarf ekki annað en að líta yfir salinn héma til þess að sjá að hér er alls konar fólk, á öllum aldri og af öllum stigum, þó meginuppistaðan sé ungt fólk.“ — En kemur fólk ekki í líkamsrækt til þess að byggja upp ímynd af sjálfu sér? „Nei, þetta er spuming um heilsu og hreysti, en hvaða stöð þú velur þér byggist á því hvaða ímynd þú vilt hafa á sjálfum þér. Líkamsræktin er ekki eitthvað sem menn stunda í einhvem tíma til að koma sér í form og hætta síðan. Þetta er miklu fremur spurning um lífsstfl og að láta sér annt um sjálf- an sig.“ Eins konar kommún ismi Samkeppnin á milli líkamsræktar- stöðva er mikil og verðið inn á þær hefur lítið hækkað undanfarin tvö til þrjú ár. Líkamsræktarstöðin Máttur hefur samið við stéttarfélög um afslátt til félagsmanna þeirra, sem síðan er endurgreiddur af félögunum. Þetta telur Bjöm mjög ósanngjamt. „Þetta er eins og kommúnismi, það er verið að stýra fólki hvert það fer. Mér finnst að fólk eigi að fá að ráða því sjálft hvar það stundar líkamsrækt og fá þá niðurgreiðslu frá sínum vinnu- veitendum eða stéttarfélögum gegn framvísun kvittana. Sé litið á Mátt sem endurhæfingarstöð má alveg eins segja að hjá okkur fari fram forvama- starf og að sjálfsögðu á að styrkja það alveg jafnt og viðhaldið. Að þessu leyti ættu allir að sitja við sama borð.“

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.