Tíminn - 27.11.1991, Side 10
10 Tíminn
Miðvikudagur 27. nóvember 1991
■Hll FRÍMERKI I Amnfjlr
'ÍJ'X' 111 p M J
Jólafrí-
merkin 1991
Jólafrímerkin 1991 sýna að þessu
sinni jólaljósið og ljós stjarnanna í
íslensku skammdegi. Er það í ellefta
skiptið, sem sérstök jólafrímerki
eru gefin út hér á landi. Eiríkur
Smith listmálari er hönnuður
þeirra. Hann er fæddur árið 1925 og
ólst upp í Hafnarfirði þar sem hann
býr enn. Haustið 1946 hóf hann
nám í Handíða- og myndlistaskól-
anum í Reykjavík og lagði stund á
myndlist og teikningu. Síðan fór
hann til Kaupmannahafnar og Par-
ísar til frekara náms.
FVrstu einkasýningu sína hélt
hann 1948 í Hafnarfirði og fjórum
árum síðar í Listamannaskólanum í
Reykjavík. Erlendis hélt hann fyrstu
einkasýningu sína 1967 í Alwin
Gallery í London. Áður hafði hann
tekið þátt í fjölmörgum samsýning-
um á vegum Félags íslenskra mynd-
listarmanna bæði hérlendis og er-
lendis.
Mörg söfn og opinberir aðilar eiga
verk eftir Eirík Smith, þar á meðal
Listasafn íslands, Háskóli íslands
og listasöfn í Þýskalandi, Bandaríkj-
unum og víðar.
Þá eru einnig stjörnumynstur og
kross í fyrsta dags stimplinum, sem
notaður verður við þessa útgáfu.
Auk þess voru svo sérstakir stimplar
á tveim erlendum frímerkjasýning-
um í október og nóvember. Annar
stimpillinn var í Köln 25.-27. októ-
ber, en hinn í París 7.-11. nóvember.
Nú er löngu kominn sá tími, sem
póstmálastofnanir senda út skrá um
hvaða frímerki á að gefa út á næsta
ári. Man ég ekki eftir neinni nema
þeirri íslensku, sem ekki er búin að
þessu nú þegar. Aukin heldur eru
rrrrffiiirf'yifi wvm
» ÍSLAND 3000 !
Köln
\ Philatelia 91 /
sumar póstmálastofnanir farnar að
segja frá fyrstu samstæðum sem
gefa á út árið 1993.
Nokkuð mun vera hægt að geta sér
til um hvað koma muni á næsta ári.
Þar verða sennilega fyrst tvö
íþróttamerki. Fuglamerki gætu
samt einnig komið út og þá á fyrri
NÝJAR
Cofherine Anjjq/f
f. . •>
/ (Wj . II ■ 'tÉj .JJ,'
Ný bók eftir Krist-
inn Reyr
Glaðbeittar línur heitir ný ljóðabók
eftir Kristinn Reyr. En þegar hann
sendi frá sér fyrsta Ijóðakver sitt árið
1942 þótti mörgum sem þar birtust
strax þau sérkenni hans sem hafa
fylgt honum síðan: Þýður léttleiki og
lýrik, en þó einatt djúp alvara undir-
niðri.
Því að við endurtekinn og náinn
lestur ljóðanna kynnist lesandinn við
dýpri merkingu I sjálfum einfaldleik-
anum, víðari skírskotun en orðafjöld-
inn gefur til kynna. Síðari ljóðabækur
höfundar hafa og sýnt, að hann hefur
á valdi sínu mjög breytileg form. Og í
áranna rás hafa yrkisefnin oftast kraf-
ist þess, að skáldið felldi ljóðin í
næsta ólíkt mót.
Þar af leiðandi er mikil fjölbreytni í
heildarverki Kristins sem Ijóðskálds.
En þó ef til vill hvergi meiri í einni og
sömu bókinni heldur en einmitt þess-
ari, Glaðbeittum línum, sem hefur að
geyma 48 ljóð. Ekkert þeirra hefur
birst I fyrri bókum og því splunkuný
sem sl£k. Vitna þau glöggt um list-
sköpun Kristins Reyrs, sem er f tölu
eldri og virðulegri skálda.
Glaðbeittar línur er tólfta ljóðabók
hans. Höfundur hannaði, en ísafold-
arprentsmiðja sá um setningu, prent-
im og band.
Á hjólum
Ný skáldsaga eftir Pál Pálsson
Bókaútgáfan FORLAGIÐ hefur gef-
ið út skáldsöguna Á hjólum eftir Pál
Pálsson. Þetta er þriðja skáldsaga
hans, en áður hefur hann sent frá sér
sögumar Hallærisplanið og Beðið
eftír strætó.
JÓL 1991
skipunum. Þá koma örugglega út
Evrópufrímerki, einhverskonar
merki varðandi póstþjónustuna á
degi frímerkisins, jafnvel einhver
merki er varða íslenska atvinnuvegi
og svo auðvitað samstæða með
merkum íslendingum. Þarna væru
þá komin um 14 frímerki þegar
I háttinn - Hjálparhönd - Dýravinir -
Dægradvöl
Harðspjaldabækur fyrir yngstu bömin
Bókaútgáfan FORLAGIÐ hefur sent frá sér fjórar harðspjaldaækur fyrir
yngstu bömin. Þær eru úr bókaflokknum Nóg að gera og heita „í háttinn,
Hjálparhönd, Dýravinir og Dægradvöl". Bækumar eru eftir breska teiknarann
Catherine Anholt.
í kynningu FORLAGSINS segir: „Bækur þessar em einkum ætlaðar bömum
sem em að læra að tala. Á hverri sfðu er mynd af bömum og fyrir neðan sagn-
orð sem þeim er ætlað að festa sér f minni með hjálp myndanna. Þannig ríma
myndir og orð saman og úr verður þroskandi og heillandi leikur."
Hver harðspjaldabók er 20 bls. í litlu brotí sem fer vel f smáum höndum. Bæk-
umar em prentaðar á Ítalíu.
Á hjólum segir frá ungum manni
sem nýtur lífsins eins og ungum
mönnum er einum lagið þegar hann
missir skyndilega fótanna - í bókstaf-
legum skilningi. Og það á tilviljunar-
kenndan og fáranlegan hátt. En hvað
þýðir að reyna að útskýra fyrir fólki
hvemig það er að sitja f stól og geta
ekki staðið upp? Eða hvemig það er
að sjá fallega konu og fá hugsanlega
aldrei fullnægingu? Eða horfa á böm
að leik og eiga senniega aldrei eftir
að verða pabbi? Eða vera bara innan
um fólk sem gengur, og það er sjálf-
sagðastí hlutur f heimi, eins sjálfsagt
og að anda og maður hættir ekki að
hugsa: AF HVERJU ÉG?
í kynningu FORLAGSINS segir:
„Þetta er öðrum þræði átakanleg
saga. Engu að sfður leiftrar hún af
óstýrilátu fjöri og þeirri smitandi
fyndni sem söguhetjunni er nærtæk.
En hér er fleira en sýnist, því að í
kröm sinni afhjúpar Nonni innsta
eðli sitt og heyir harða baráttu við
kröfur heimsins, karlmennskuna og
einsemdina. I þeirri baráttu er vonar-
neistí sögunnar fólginn."
Á hjólum er 200 bls. Grafít hf. hann-
aði kápu. Prensmiðjan Oddi hf.
prentaði.
jólafrímerkin eru svo talin með,
jafnvel 16.
Tíminn á svo eftir að leiða í ljós
hversu mikið af þessu er rétt og
hversu mikið kemur í viðbóL
Ég gat þess hér á undan, að
stjörnumynstur og krosstákn væru
í fýrsta dags stimplinum sem jóla-
frímerkin voru stimpluð með. Það
er ekki að ástæðulausu, sem ég tók
þetta fram. Það er nefnilega ein-
staklega skemmtilegt táknmál í frí-
merkjateikningum Eiríks Smith. Ef
við lítum fyrst á 30 króna frímerkið,
þá er það samþætt tákn fæðingar og
upprisu og síðan í 35 króna frí-
merkinu er þríhyrningurinn, en í
honum er maðurinn, sem Guð
skapaði í sinni eigin mynd, en ekki
hið alsjáandi auga, sem er algeng-
ara tákn. Þarna eru aðeins tekin
dæmi. Mun fleiri tákn er að finna í
þessum frímerkjum.
Því miður fór svo að rauði liturinn
í frímerkjunum er ekki nógu stöð-
ugur, heldur er hann stundum
sterkrauður en í annan stað nær því
brúnn. Það er í raun óþolandi að
svona vinnubrögð skuli liðin af
þeim aðilum, sem prenta frímerki
fyrir okkur. Eru þetta ekki fyrirtæki
sem kalla sig á erlendu máli „Secu-
rity Printers"? Hvar er öryggið sem
á að vera fólgið í góðri og öruggri
prentun?
Sigurður H. Þorsteinsson
LESENDUR SKRIFAll
Fáein orð
um kvik-
mynd
Ég hef horft á tvo ágæta þætti um
ævi og starf Árna Magnússonar, sem
fluttir voru í sjónvarpinu tvö sunnu-
dagskvöld. Samt fannst mér vera á
þeim einn ágalli. Ekki var viðeigandi
að taka þarna upp, athugasemda-
laust, þjóðsöguna um fólk sem hafi
notað hin dýrmætu handrit til skó-
og fataviðgerða. Heldur hefði átt að
koma þarna þáttur um varðveislu
handritanna. Hvernig forfeðrum
okkar tókst í ófullkomnum húsa-
kynnum, í köldu landi þar sem flesta
daga rignir eða snjóar, að verja
þennan dýra arf fyrir möl og fúa.
Á öllum tfmum hefur auðvitað ver-
ið til fólk sem litla virðingu hefur
borið fyrir verðmætum. Trúað gæti
ég að ástandið hafi aldrei verið verra
en á okkar tímum. Því hefur til
dæmis verið haldið fram, af þeim
sem málum eru kunnugir, að þriðji
hver stórbruni hér á landi verði af
mannavöldum. Virðing fyrir öðrum
verðmætum er ef til vill í einhverju
hlutfalli við það. Við getum ekki van-
virt minningu forfeðranna með
þessum hætti. Við búum sjálf í gler-
húsi.
Þessi fróðleiksþáttur um varðveislu
handritanna var ágætlega leikinn,
en það þarf samt að klippa hann burt
úr myndinni, því að hann er ekki
viðeigandi. Ég held mönnum hljóti
alltaf að hafa verið Ijóst að mörg
hundruð ára gamalt skinnblað væri
ekki nothæft til annars en að halda
áfram að geyma þá stafi sem á það
voru skráðir.
Steinar Pálsson
Kvöld-, nætur- og holgidagavarsla apóteka I
Roykjavik 22. til 28. nóvember er I
Holtsapótekl og Laugavegsapótekl. Það
apótek sem fyrr er nefnt annast eltt vörsl-
una frá kl. 22.00 að kvöldi tll kl. 9.00 að
morgni vlrka daga en kl. 22.00 á sunnudög-
um. Upplýsingar um læknis- og lyfjaþjón-
ustu eru gofnar I slma 18888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Isiands
er starfrækt um helgar og á stórhátíðum. Slm-
svari 681041.
Hafnarfjörðun Hafnarfjarðar apótek og Norð-
urbæjar apótek eru opin á virkum dögum frá
kl. 9.00-18.30 og til skiptis annan hvem laug-
ardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-
12.00. Upplýsingar I simsvara nr. 51600.
Akureyrl: Akureyrar apótek og Stjömu apótek
eru opin virka daga á opnunartima búða. Apó-
tekin skiptast á sina vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er
opiö I þvl apóteki sem sér um þessa vörslu, til
kl. 19.00. Á helgidögum er opiö frá kl. 11.00-
12.00 og 20.00-21.00. Á öðrum timum er lyija-
fræðingur á bakvakt. Upplýsingar em gefnar I
slma 22445.
Apótek Keflavtkur: Opið virka daga frá k.
9.00-19.00. Laugardaga, helgidaga og al-
mennafridaga kl. 10.00-12.00.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá
kl. 8.00-18.00. Lokaö I hádeginu mllli kl. 12.30-
14.00.
Selfoss: Selfoss apótek er opiö til kl. 18.30.
Opiö er á laugardögum og sunnudögum kl.
10.00-12.00.
Akranes: Apótek bæjaríns er opið virka daga
til kl. 18.30. Opiö er á laugardögum kl. 10.00-
13.00 og sunnudögum kl. 13.00-14.00.
Garðabæn Apótekiö er opið rúmhelga daga
kl. 9.00-18.30, en laugardaga kl. 11.00-14.00.
Alnæmisvandinn. Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann vilja styöja smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra, slmi 28586.
Læknavakt fyrir Reykjavlk, Soltjamames og
Kópavog er I Heilsuvemdarstöð Reykjavlkur
alla virka daga ftá kl. 17.00 til 08.00 og á laugar-
dögum og helgidögum allan sólarhringinn.
Á Seltjamamosi er læknavakt á kvöldin kl.
20.00-21.00 oglaugard. kl. 10.00-11.00. Lokaöá
sunnudögum. Vitjanabeiðnir, slmaráðleggingar
og tlmapantanir I sima 21230. Borgarspltalinn
vakt frá kl. 08-17 alla virka daga fyrir fölk sem
ekki hefúr heimilislækni eöa nær ekki til hans
(slmi 696600) en slysa- og sjúkravakt (Slysa-
deild) sinnir slösuðum og skyndiveikum allan sól-
arhringinn (slmi 81200). Nánari upplýsingar um
lyljabúöir og læknaþjónustu erugefnar i sim-
svara 18888.
Ónæmlsaögerðirfyrirfulloröna gegn mænusótt
fara fram á Heilsuvomdarstöð Reykjavfkur á
þriðjudögum Id. 16.00-17.00. Fólk hafi með sér
ónæmisskírteini.
Garðabær: Heilsugæslustöðin Garöaflöt 16-18
er opin 8.00-17.00, simi 656066. Læknavakt er I
sima 51100.
Hafnarfjöröun Heilsugæsla Hafnarfjarðar,
Strandgötu 8-10 er opin virka daga kl. 8.00-
17.00, sími 53722. Læknavakt slmi 51100.
Kópavogun Heilsugæslan er opin 8.00-18.00
virka daga. Simi 40400.
Keflavfk: Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn
á Heilsugæslustöð Suðumesja. Slmi: 14000.
Sálræn vandamál: Sálfræðistöðin: Ráögjöf I
sálfræðilegum efnum. Sími 687075.
ss^sS’S^
Landspitalinn: Alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19
til kl. 20.00. Kvennadelldln: kl. 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Alla daga vikunnar kl.
15-16. Heimsóknartími fyrir feður kl. 19.30-
20.30. Barnaspltall Hringslns: Kl. 13-19 alla
daga. Öldrunariækningadeild Landspital-
ans Hátúni 10B: Kl. 14-20 og eftir samkomu-
lagi. - Landakotsspftali: Alla virka kl. 15 til kl.
16 og Id. 18.30 til 19.00. Barnadeild 16-17.
Heimsóknartími annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. - Borgarspftalinn I Fossvogi: Mánu-
daga til fóstudaga kl. 18.30 til 19.30 og eftir
samkomulagi. Á laugardögum og sunnudögum
kl. 15-18.
Hafnarbúðir Alla daga kl. 14 til kl. 17. - Hvita-
bandið, hjúkrunardeild: Heimsóknartimi frjáls
alla daga. Grensásdeild: Mánudaga ti föstu-
daga kl. 16-19.30. - Laugardaga og sunnudaga
kl. 14-19.30. - Heilsuverndarstöðin: Kl. 14 til
kl. 19. - Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. - Kleppsspftali:
Alla daga kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl.
19.30. - Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl.
17. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 tii kl.
17 á helgidögum. - Vifilsstaðaspítall: Heim-
sóknartlmi daglega kl. 15-16 og kl. 19.30-20. -
SL Jósepsspftall Hafnarfiröi: Alla daga kl.
15-16 oo 19-19.30.
Sunnuhllð hjúknjnarheimili I Kópavogi: Heim-
sóknartlmi kl. 14-20 og eftir samkomulagi.
Sjúkrahús Keflavíkuríæknishéraðs og
heilsugæslustöövar: Vaktþjónusta allan sólar-
hringinn. Slmi 14000. Keflavík-sjúkrahúsið:
Heimsóknartlmi virka daga kl. 18.30-19.30.
Um helgar og á hátíðum: Kl. 15.00-16.00 og
19.00-19.30. Akureyri - sjúkrahúslö: Heim-
sóknartimi alla daga kl. 15.30-16.00 og 19.00-
20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra
Sel 1: Kl. 14.00-19.00. Slysavarðsstofuslmi frá
kl. 22.00- 8.00, slmi 22209. Sjúkrahús Akra-
ness: Heimsóknartimi Sjúkrahúss Akraness er
alla daga kl. 15.30-16.00 og kl. 19.00-19.30.
Reykjavik: Neyöarsími lögreglunnar er 11166
og 000.
Seltjamames: Lögreglan slmi 611166,
slökkvillö og sjúkrabifreið síml 11100.
Kópavogur Lögreglan slmi 41200, slökkvilið
og sjúkrabifreið slmi 11100.
Hafnarfjöröun Lögreglan sími 51166, slökkvi-
lið og sjúkrabifreið slmi 51100.
Keflavfk: Lögreglan simi 15500, slökkviliö og
sjúkrabill slmi 12222, sjúkrahús 14000, 11401
og 11138.
Vestmanneyjan Lögreglan, simi 11666,
slökkvilið simi 12222 og sjúkrahúsiö slmi
11955.
Akureyri: Lögreglan símar 23222, 23223 og
23224, slökkviliö og sjúkrabifreið slmi 22222.
Isafjöröur Lögreglan simi 4222, slökkvilið slmi
3300, bnjnasfmi og sjúkrabifreið sfmi 3333.