Tíminn - 27.11.1991, Blaðsíða 16

Tíminn - 27.11.1991, Blaðsíða 16
A UGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300 RÍKISSKIP NUTIMA FUJTNINGAR Hofnarhusinu v Tryggvagofu S 28822 HARVANDAMÁL? ” Lausnin er: Enzymnl JVy« í Evrópu EUQO-HAIR á Islandi - r a t M »Engln hárígræðsla ' ■* BEngin gerfihár ■Engin lyljameðferð ■ ■Einungis timabundin notkun ■ Eigid hár með hjálp lífefha-orku ■ p:ö,l2i.liM?i2iR,ik 091 -676331e.ki.i6oo ■■■■■■■■■■■■■■■ Áskriftarsími Tímans er 686300 Tímiim MIÐVIKUDAGUR 27. NÓV. 19911 Kærunefnd Jafnréttisráðs hefur komist að niðurstöðu í máli Hrefnu Kristmannsdóttur gegn Orkustofnun: Jafnréttislög brotin af hálfu Orkustofnunar Kærunefnd Jafnréttisráös hefur komist að þeirri niðurstööu að Orkustofnun hafi brotið jafnréttislög árið í desember 1990, þegar Ólafur G. Flóvents var settur í stöðu yfirverkefnisstjóra Orkustofnunar, en Hrefna Kristmannsdóttir hafði tvo undan- farna mánuði gengt þessu starfi í orlofi Axels Bjömssonar og átti að gera næstu tvö árin, samkvæmt orðsendingu Axels, í launalausu leyfi hans. Hrefna Kristmannsdttir jarð- fræðingur og fagssviðsstjóri jarð- efnafræðisviðs Orkustofnunnar, óskaði þess að Kærunefnd ráðsins athugaði lögmæti tímabundnar „setningar" í stöðu yfirverkefnis- stjóra Jarðhitadeildar Orkustofn- unnar. Forsaga málsins er sú að Axel Björnsson yfirverkefnisstjóri hjá Orkustofnun fékk launalaust leyfi frá l.desember 1990, en þess að auki tók hann orlof frá 24.sept- ember og tilkynnti Axel það til yf- irmanna sinna í orðsendingu dag- settri 17.september. Þar segir jafnframt að staðgengill hans skuli vera Hrefna Kristmanns- dóttir. Þar sem þegar orðsending- in var skrifuð var Axel starfandi forstjóri deildarinnar og tók því Hrefna við starfi hans þegar hann fór í orlof sitt. Hrefna gengdi síð- an því starfi til l.desember, eða allt þar til Axel Björnsson fór í launalaust leyfi. Þann dag tók Ól- afur G. Flóvents falið starf yfir- verkefnisstjóra jarðeðlisfræði- sviðs Orkustofnunnar. Það sem gerst hafði var að forstjóri Orku- stofnunnar hafði dregið til baka ákvörðun Axels og sagt Hrefnu að hún myndi aðeins vera stað- gengill Axels í orlofi hans, en ekki þau tvö ár sem hann yrði í launa- lausu leyfi. Forstjórinn segir í minnisblaði sem hann sendir stjórnarformanni Orkustofnunar, að það sé ekki í verkahring yfir- verkefnisstjóra, að setja stað- gengil í sinn stað og mótmælir því að gengið hafi verið frá því munnlega við Hrefnu, að hún gegndi starfi Axels í leyfi hans. Þann 6-desember, eða samdægurs og Ólafur G. Flóvents var settur í starf yfirverkefnisstjóra, óskaði Hrefna eftir því að jafnréttisráð athugaði hvort það hefði verið gengið fram hjá henni vegna kyn- ferðis. Þrátt fyrir margítrekaðar tilraunir fékk Jafnréttisráð ekki upplýsingar um menntun og starfsreynslu þeirra Hrefnu og Ólafs, frá Starfsmannastjóra Orkustofnunnar og það var ekki fyrr, en leitað var til ráðherra að upplýsingar fengust uppgefnar, en þó aðeins um Ólaf. Kærunefnd Jafréttisráðs komst að þeirri niðurstöðu að nefndin fái ekki séð að ólafur sé hæfari en Hrefna til að sinna umræddu starfi. Þrátt fyrir margítrekuð til- mæli hefur Orkustofnun ekki fært rök fyrir ákvörðun sinni. Þá bendir nefndin á þá staðreynd að meirihluti yfirmanna Orkustofn- unnar séu karlar og segir að í ní- undu grein jafnréttislaga beri at- vinnurekenda að vinna að því að jafna hlut kynjanna innan fyrir- tækis eða stofnunnar. Ekki er ljóst hvert framhald málsins verður, eða hvort Orku- stofnun ætlar að fara að tilmæl- um Kærunefndar eða ekki. -PS Ný endurhæfingarstöð SAA við Saltvík á Kjalarnesi tilbúin: Vík á Kjalarnesi í stað Sogns, Ölfusi í gær afhenti byggingafyrirtækið Álftarós SÁÁ nýja endurhæfingar- stöð sem taka mun við hlutverki því sem endurhæfingarstöðin að Sogni í Ölfusi hefúr gegnt til þessa. Stöðin nefnist Vík og er á 14 hektara lóð í landi Saltvíkur á Kjalaraesi. í endurhæfingarstöðinni Vík munu 30 manns geta verið í einu til eftir- meðferðar en það er sami fjöldi og var að Sogni. Húsið er 850 fermetrar að grunnfleti og er reist á einni hæð. Meginhluti hússins er byggt um- hverfis garð en álma með herbergjum vistmanna liggur út frá kjama húss- ins. Fyrstu sjúklingamir munu koma til Víkur 16. desember. Það var byggingafélagið Álftarós sem reisti Vík. Fyrirtækið varð hlutskarp- ast í alútboði um hönnun hússins og átti auk þess lægsta tilboðið í smíði þess. Heildarkostnaður nemur um 80 milljónum króna og er þar meðtalin vatnsveita, jarðvegsframkvæmdir og endanlegur frágangur. Öm Kæmested til hægrí afhend- ir Tryggva Sigurbjamarsyni for- manni byggingamefndar Víkur hina nýju endurhæfingarstöð SÁÁ á Kjalamesi. Fyrír aftan standa Theódór S. Halldórsson framkvæmdastjóri SÁÁ, Gunnar Kvaran og Bjami Ólafsson en þeir tveir síðastnefndu sitja í stjóm SÁÁ. Tfmamynd: Ami Bjama Sólvangur Hafnarfírði: Bygging 40 þjónusfuíbúða hafin Hafln er á Sólvangi í Hafnarfirði bygging 40 íbúða fjölbýlishúss fýrir aldraða. Það er sjálfseignar- stofnunin Höfn sem byggir. Stuðst er við það fyrirkomulag sem Sunnuhhöarsamtökin í Kópavogi hafa unniö eftir. Áætlað er að íbúðimar kosti fullbúnar að innan sem utan 76.000 krónur hver fermetri. Eldri borgarar > Hafnarfirði hafa sýnt málinu mik- inn áhuga og nú rúmum mánuði eftír að hugmyndin var fyrst kynnt hafa fjölmargir lagt inn um- sókn. f dcilistdpulagi sem nýiega var samþykkt er gert ráð fyrir að á Sólvangi rísi tvö fjölbýlishús með samtals 65 íbúðum og að auki 35 ibúðir í sérbýli. s-aá. Boðið upp á eðalvín í Flugleiðavélum Næstu fjórar vikuraar gefst far- þegum í millilandaflugvélum Flug- leiða og gestum Hótels Loftleiða Samkvæmt tóbaksvarnalögum er óheimilt að reykja í hvers konar verslunum, þar með taldir gangar fyrir framan verslanirnar! SH verktakar fá verkið á 53 mill. TÓBAKSVARNANEFND Sóknamefnd Grafarvogs hefur tek- ið tilboði í uppsteypu á nýrri kirkju. Að loknu forvali fór fram útboð á þeim skilmálum að lægsta tilboði yrði tekið. Þeir sem buðu í verkið voru: Ár- mannsfell 62.508.806 kr. Byggða- verk 66.671.912. Fjarðamót 58.701.178. Hagvirki-Klettur 79.400.000. ístak 69.877.416. SH verktakar 53.391.104. Sveinbjöm Sigurðsson 58.248.700. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 78.877.955. Munur á henni og lægsta tilboði eru 25 milljónir. Tilboði SH hefur verið tekið. Verk- ið hefst í næstu viku og skal lokið innan þriggja ára. -aá. kostur á að bragða á Beaujolais No- veau rauðvíni, sem unnið er úr upp- skeru síðasta sumars. Þeirrar rauðvínstegundar er ávallt beðið með mikilli eftirvæntingu, en þetta er þriðja árið í röð sem Flug- leiðir bjóða upp á slíkt vín. Aðeins lítill hluti haustuppskeru er settur á markað svo snemma, en samkvæmt hefð má ekki senda vínið á markað fyrr en þriðja fimmtudag í nóvem- ber ár hvert. Á miðnætti aðfaranótt þess fimmtudags leggja flutninga- bílarnir af stað frá vínbændum áleiðis til neytenda, sem yfirleitt bíða í eftirvæntingu. Vínið verður einnig á boðstólnum á Hótel Loft- leiðum, með réttum af jólahlað- borðinu. -PS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.