Tíminn - 12.12.1991, Blaðsíða 16
AUGLYSENGASSMAR: 680001 & 686300
RÍKISSiqP
NXJTIMA FLUTNINGAR
Hatnarhusmu v Tryggvagotu
S 28822
tykmiuw,Kn
Lausnin er: Enzymol
Nýtt í Evrópu
EURO-HAIR
á Islandi
■ Engin hárígræösla
‘ ' rfihár
('M
’ aEngin gerfil
"Engin lyfjameöferö
■ Einungis tímabundin notkun
Eigid hár med hjálp lífefna-orku
@91 -676331e.ki.i6.oo
■ ■■■■■■■■■■■■■
Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar sýnir að stjórnarandstæðingar eru almennt andsnúnir EES:
ÞJOÐIN ER KLOFIN
I AFSTÖDU TIL EES
Ef marka má skoðanakönnun sem
Félagsvísindadeild Háskólans hefur
gert er þjóðin klofin í tvo jafnstóra
hópa í afstöðunni til samningsins
um evrópskt efnahagssvæðis (EES).
Um 40% þjóðarinnar hefur hins
vegar ekki tekið afstöðu til samn-
ingsins. Mestur stuðningur við
samninginn er hjá kjósendum
stjómarflokkanna, en veruleg and-
staða er við hann hjá kjósendum
stjómarandstöðuflokkanna, mestur
hjá framsóknarmönnum. Samning-
urinn nýtur mun meiri stuðnings
hjá höfuðborgarbúum en íbúum á
landsbyggðinni. Samningurinn
virðist njóta meira fylgis hjá körlum
en konum og yngra fólk styður
hann betur en eldra fólk.
Könnunin var gerð dagana 22.-28.
nóvember. Úrtak var 1500 manns
alls staðar af landinu og úr öllum
starfsstéttum. 72% þeirra sem
spurðir voru svömðu.
Þegar spurt var hvort svarendur
væm hlynntur eða andvígir samn-
ingnum um evrópskt efnahags-
svæðið var stærstur hluti svarenda
óráðinn, eða um 40% allrasvarenda.
Ef aðeins er litið á þá sem afstöðu
tóku kemur í Ijós að naumur meiri-
hluti styður samninginn, eða
50,6%. Landsbyggðarmenn em
áberandi meira í andstöðu við samn-
inginn en íbúar á höfuðborgarsvæð-
inu em ákveðnastir í stuðningi við
samninginn. Mjög almennur stuðn-
ingur er við samninginn í hópi sér-
fræðinga og atvinnurekenda. Tveir
þriðju stuðningsmanna Alþýðu-
flokksins styðja samninginn, 54%
kjósenda Sjálfstæðisflokksins, 19%
kjósenda Kvennalistans, 17,5%
kjósenda Alþýðubandalagsins og
12,4% kjósenda Framsóknarflokks-
ins.
Ein meginniðurstaða könnunar-
innar er að fólk hefur ekki nægar
upplýsingar til að geta metið inni-
hald samningsins. Um 75% svar-
enda segist ekki hafa fengið nægar
upplýsingar um hann. 60%, af þeim
24% sem segjast hafa fengið nægar
upplýsingar um samninginn, segj-
ast styðja hann, en 40% er honum
andvígur.
75% þeirra sem taka afstöðu telja
að í EES felist efnahagslegur ávinn-
ingur fyrir íslendinga. Þjóðin virðist
skiptast í tvo andstæða hópa þegar
spurt er um hvort hætta sé á að sjálf-
stæði þjóðarinnar verði í hættu ger-
ist ísland aðili að EES. Rúmlega
50% segja já, en tæplega 50% nei.
Við þessari spumingu eins og fleir-
um em það kjósendur Framsóknar-
flokks, KvennalistaogAlþýðubanda-
lags sem óttast þetta meira en kjós-
endur Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
bandalags.
Um 54% af þeim sem tóku afstöðu
töldu ekki hættu á að sérkenni ís-
lenskrar menningar verði í meiri
hættu en nú er ef Islendingar gerast
aðilar að EES.
Tæplega 69% þeirra sem tóku af-
stöðu telja að forræði þjóðarinnar
yfir auðlindum verði í meiri hættu
en nú er ef ísland gerist aðili að
EES. Landsbyggðarmenn óttast
þetta mun meira en höfuðborgar-
búar.
Um 76% svarenda sem afstöðu
tóku sögðu að Jón Baldvin Hanni-
balsson, utanríkisráðherra, hefði
staðið sig vel í samningagerðinni,
en 24% töldu hann hafa staðið sig
illa. - EO
Jólatréssalan er hafin og hann er nú ekki svo afleitur þessi. Nor-
mannsþinur. Timamynd: Áml Bjama
Sala á jólatrjám er komin í gang:
Normannsþinur
vinsælastur
Mikil andstaða er við þrengingu sjómannaaf-
sláttar og skólagjöld í stjórnarliðinu:
Ekki stuðningur
við skólagjöld
Kristinn Einarsson, sölustjóri í
Blómaval, segir í samtali við Tímann
að dönsku jólatrén Normannsþinur
séu nú seld með 25% afslætti. „Við
metum markaðinn þannig í dag að
það sé rétt að lækka verðið. Við telj-
um að það séu fleiri jólatré á markað-
inum en áður og fleiri söluaðilar að
koma inn á hann. Við viljum frekar
selja öll jólatrén á lægra verði heldur
en að sitja uppi með þau eftir jól. Það
má segja að við séum hreiidega að
lækka okkar álagningu á jólatrjám",
segir Kristinn.
Aðspurður segir Kristinn að barmál-
amar falli ekki af Normannsþini. Eig-
inleiki Normannsþins er sá að barr-
nálamar hanga fastar þrátt fyrir t.d.
vatnsskort. Kristinn segir að Nor-
mannsþinur 1.75 - 2 m á hæð kosti
3.185 krónur, en rauðgrenið kostar
hins vegar 2.525 krónur sama stærð,
þannig að verðmunur þessara trjáteg-
unda er nú minni heldur en áður hef-
ur tíðkast.
Kristinn segir að Normannsþinur
sé tvímælalaust vinsælasta jólatréð
og hefur verið það undanfarin ár.
Meirihiutinn af jólatrjám á íslensk-
um heimilum er Normannsþinur.
„Fólk vill ekki íslensk jólatré þrátt
fyrir að þau séu falleg og það er
gaman að geta verið með íslensk
jólatré. Þessi íslensku jólatré geta
bara ekki verið inni, fólk gerir ekki
annað en að ryksuga", segir Krist-
inn.
Kristinn segir aðspurður að heils-
öluverð á íslensku jólatrjánum
hækki í ár um 10%. En það eru allir
að selja íslensku jólatrén á sama
verði og í fyrra, þannig að þetta kem-
ur fram hjá okkur í lægri álagningu,
segir Kristinn. -js
Fimm þingmenn Alþýðuflokksins
eru andsnúnir því að lögð verði á
skólagjöld. Þar með hefur ríkis-
stjómin ekki meirihluta fyrir því að
koma skólagjöldum í gegnum þing-
ið. A.m.k. þrír þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins ætla að greiða atkvæði
gegn þrengingu sjómannaafsláttar.
Þá er veruleg andstaða innan Sjálf-
stæðisflokksins við tillögur um að
fresta beinum greiðslum til bænda,
um breytingar á jarðræktarlögum
og flutning á verkefnum frá ríki til
sveitarfélaga.
Össur Skarphéðinsson, Rannveig
Guðmundsdóttir, Gunnlaugur Stef-
ánsson og Sigbjörn Gunnarsson
hafa lýst því yfir að þau muni ekki
greiða atkvæði með skólagjöldum.
Gísli Einarsson situr nú á þingi sem
varamaður Eiðs Guðnasonar, um-
hverfisráðherra. Hann sagði í sam-
tali við Tímann að hann myndi
Einn hluti af áformuðum aðgerð-
um ríkisstjómarinnar til að ná
jafnvægi í rekstri rfldsins er að
hætta 30 milljón króna niður-
greiðslum á mjólkurdufti. Það hef-
ur í för með sér að verð á súkkulaði
hækkar um rúmlega 80%. Á móti á
að leggja jöfnunargjald á innflutt
sælgæti.
Félag íslenskra iðnrekenda ætlar
að funda með sælgætisframleiðend-
um á næstu dögum. Þar verður
einnig greiða atkvæði gegn skóla-
gjöldum. Ekki verða greidd atkvæði
um skólagjöld fyrr en við þriðju um-
ræðu, en óvíst er hvort Gísli mun þá
sitja á þingi.
Margir þingmenn hafa lýst því yfir
að þeir styðji ekki þrengingu sjó-
mannaafsláttar ef sú útfærsla sem
ríkisstjórnin hefur sett fram þýði
30-40% niðurskurð á sjómannaaf-
slætti eins og sjómenn halda fram.
Líklegt er að útfærsla á þessu atriði
verði breytt þannig að breytingin
skili ekki meiru en 180-200 milljón-
um í ríkiskassann.
Egill Jónsson og hugsanlega fleiri
þingmenn Sjálfstæðisflokks ætla að
greiða atkvæði gegn breytingum á
jarðræktarlögum, en sú breyting á
að skila um 35 milljónum króna.
Óvíst er hvort Egill styður tillögu
ríkisstjórnarinnar um að fresta
greiðslum til bænda. -EÓ
ákveðið til hvaða bragða sælgætis-
framleiðendur grípa. Ekki er ólík-
legt að þeir krefjist þess að innflutn-
ingur á mjólkurdufti verði leyföur.
Það fæst á sama verði og innlent
duft nú.
Slíkt væri auðvitað áfall fyrir
mjólkurframleiðsluna, bændur og
ekki síður þau tvö mjólkurbú sem
þurrka mjólk. Að hætta niður-
greiðslum er eitt og sér áfall fyrir
þau. -aá.
Niðurgreiðslur á mjólkurdufti lagðar af:
Súkkulaði stórhækkar
Tíminn
FIMMTUDAGUR 12. DES. 1991
Umferðarslys á Reykjanesbraut:
Tvær bílveltur
á 14mínútum
Tilkynnt var um tvær bflveltur
með fjórtán mínútna millibili á
Reykjanesbraut seinni part dags í
gær. Tilkynnt var kl. 17.42 um að
jeppabifreið hafði farið útaf braut-
inni í Kúagerði og oltið. Einn mað-
ur var í bflnum og var hann fluttur
á sjúkrahús í Keflavík, en fékk að
fara heim að lokinni skoðun. Öku-
maðurinn var í öryggisbelti. Bif-
reiðin sem hafnaði á toppnum er
mikið skemmd. Aðeins fjórtán
mínútum síðar var tilkynnt um
aðra bflveltu í Hvassahrauni, sem
er aðeins austan við Kúagerði. Þar
hafði fólksbifreið snúist á veginum
vegna mikillar hálku og oltið útaf.
Þrír voru í bifreiðinni og var einn
fluttur á slysadeild Borgarspítal-
ans, en hann er ekki talinn mikið
slasaður. Bflstjóri og farþegar í
fólksbifreiðinni voru allir í beltum.
Lögreglan í Keflavík, var rétt kom-
inn á slysstað í Kúagerði þegar til-
kynnt var um síðari veltuna í
Hvassahrauni og þar sem tilkynn-
ing sú, hljómaði verr var sú bifreið
send í Hvassahraunið, en önnur
lögreglubifreið send í Kúagerði.
Mikil úrkoma var í gær og bleyta lá
yfir Reykjanesbrautinni, sem fraus
og myndaðist þunn íshella á vegin-
um, með fyrrgreindum afleiðing-
um. -PS
Stekkjastaur er komlnn. Hann
verður (Þjóðmlnjasafni fslands
Aðventan í Þjóðmisnjasafni Istands:
Stekkjastaur
er kominn
íbyggð
Hefð er komhi á jólahald í Þjóft-
minjasafninu. Þangað hafa gömlu
íslensku jólasveinamir vanið kom-
ur sínar undanfarin ár við mildnn
fógnuö gesta á ölium aldri.
í dag er Stódgarstaur vænfanleg-
ur klukkan 11 fyrir hádegi, en áður
en hann kemur flytur bamakór úr
Tónlisfarskóla Hafnarfjarðar nokk-
ur lög. Síðan koma bræður hans 12
hver af öðrum og rekur Kertasnfk-
ir lestina á aðfangadag jóla. f tílefrii
af ári söngsins kemur fram bama-
kór í safninu daglega í tengslum
við heimsóknir jólasveinanna.
Komiðhefúrveriðjólasveinabröð-
um vfðs vegar í saininu og verða
þær tilefni tíl nokkurs konar rat-
leiks í sýningarsölunum, auk þess
sem jólasýning safnsins ,3önglff j
heimahúsum** verður opin á þriðju
hæð. -js