Tíminn - 14.12.1991, Blaðsíða 15

Tíminn - 14.12.1991, Blaðsíða 15
Laugardagur 14. desember 1991 23 HELGIN -*■ MÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL Herbert Brenk var ekki skemmtilegur maður, enda kom í Ijós að eini vinur hans var hundur. út af blettunum á lokinu og því sett hana inn á lager. Þar fyrir innan var líka salemið sem Brenk hafði oft feng- ið að nota. Það kom honum á óvart að sjá töskuna, því hann hafði ekki gert sér grein fyrir að hún var horfin. Kaupmaðurinn sagðist seinast hafa séð þau hjónin saman í byrjun ágúst Eftir það hefði hann hitt Brenk einan og hann hefði sagt að kona sín væri í heimsókn hjá ættingjum. Hann sagð- ist aldrei hafa heyrt Brenk hafa í hót- unum við konu sína. „Hann á eftir að ganga frá mér“ En þá var annar afgreiðslumaður kallaður til vitnis og sá hafði aðra sögu að segja. Hann minntist þess að eitt sinn þegar þau hjón hefðu komið í verslunina, hefði Brenk bent á konu sína og sagt ,^Má ég ekki skilja tíkina eftir héma?“ Þegar Herbert Brenk fór út úr búð- inni fór Lou Alice að gráta. Hún tók skyrtukragann frá hálsinum og sýndi afgreiðslumanninum ljóta marbletti. „Hann á eftir að ganga frá mér," hafði vitnið eftir henni. En Lou Alice átti þó eina vinkonu, sem hún gat snúið sér til í raunum sínum. Hún var vön að heimsækja þessa vinkonu sína og mann hennar og hlustaði á þau lesa upp úr biblí- unni. Lou Alice var mjög trúuð,. en trúði þessum vinum sínum fyrir því að maður hennar bannaði henni að hafa biblíu á heimilinu. Eitt kvöldið sofnaði Lou Alice undir biblíulestrinum. Þetta kom vinkonu hennar mjög á óvart, því hún vissi að þessar stundir voru Lou Alice mikils virði. Lou Alice trúði þá vinkonu sinni fyr- ir því að hún þyrði helst ekki að sofa heima hjá sér af ótta við að eiginmað- urinn dræpi hana í svefni. Hún sagðist oft sofa fyrir utan hjólhýsið og þá á vélarhlíf bílsins, því hún var hrædd við slöngur. Vinkonan bar að hún hefði margoft hvatt Lou Alice til að fara frá Herbert Lou Alice skýrði henni síðan frá því í lok júlí eða í byrjun ágúst, að hún hygðist skilja við mann sinn. Skýrslur leiddu í ljós að Lou Alice hafði haft samband við kvennaathvarf skömmu áður en hún hvarf. Lögreglan í Salem hafði oftar en einu sinni haft afskipti af Herbert vegna þess að hann misþyrmdi konu sinni. Lögreglumaður var kallaður til sem vitni: „Herbert barði konu sína illa. Hann hafði gefið henni glóðarauga oftar en einu sinni. f raun flokkuðust þessar misþyrmingar undir hegningarlögin, en hún dró kærumar alltaf til baka. Honum tókst einhvem veginn að tala hana til.“ Örorkubætumar En starfsstúlka á pósthúsinu í Salem gat varpað nýju ljósi á málið. Saksókn- ari hafði gert ráð fyrir að ástæða Her- berts fyrir að myrða konuna væri sú að hún hafði í hyggju að skilja við hann. Lou Alice fékk 368 dollrra á mánuði frá félagsmálastofnun. Herbert, sem var atvinnulaus pípulagningamaður, notaði megnið af þessum peningum til eigin þarfa, keypti sér bjór og sígar- ettur fyrir þá. Starfsstúlkan sagði að þau hefðu alltaf komið saman til að sækja peningana og einu sinni hefði svo virst sem Lou Alice hefði verið bar- in. En þann 3. ágúst kom Herbert einn til að sækja örorkubætur konu sinnar. Hann sagði afgreiðslustúlkunni að kona hans hefði farið í heimsókn til ættingja. Hann hafði umboð undir höndum, en við rannsókn kom í Ijós að undirskriftin á því var fölsuð; einn- ig hafði hann falsað nafn Lou Alice aft- an á ávísunina. Þann 12. ágúst hafði Herbert komið í heimsókn til vinar síns og var þá á bílnum hennar Lou Alice. Vininum kom þetta spánskt fyrir sjónir, þar sem hann vissi að Lou Alice vildi ekki lána honum bílinn og leyfði honum ekki að aka honum nema hún væri með í för- inni. Vinurinn leyfði honum að búa hjá sér, því Herbert kvaðst vera einmana af því að kona hans hefði farið að heimsækja ættingja sína. Síðar breytti hann sögu sinni og sagði að hún væri farin frá sér með öðrum manni. Vinurinn sagði að Herbert hefði ávallt talað um Lou Al- ice sem „tíkina" eða „það“, aldrei sem hún væri manneskja og ætti sér nafn. Vmurinn skýrði einnig frá því að þeg- ar kafaramir voru að leita þess, sem eftir var af líkinu, á botni vatnsins, hefði Herbert hlegið og sagt: „Þeir geta leitað þar eins lengi og þeir vilja." Hann skýrði líka ffá því að Brenk hefði haft hundinn sinn, lítinn púðul- hund að nafni Boomer, með sér. Eitt sinn hefði hundurinn verið með há- værara móti og ekki fengist til að hætta að gelta. Þá sneri Brenk sér að hundinum og lét hann vita af því að „það væru til kælitöskur í þeirri stærð sem honum hæfðu“. Ein af sögum þeim, sem fundust höfðu heima hjá þessum vini Her- berts, var blámáluð og málningin á henni reyndist sú sama og fundist hafði á líkamshlutanum. Einnig kom í ljós að tennur sagarinnar pössuðu við tannaförin á beinunum. Vinurinn kvaðst ekki vita til þess að Herbert hefði fengið sögina lánaða. „Stærð sem ég ræð við“ Verjendumir fengu annað áfall þegar einn kunningi Herberts til var kvadd- ur í vitnastúku. Sá sagði að Herbert hefði beðið sig um að aðstoða við að koma Lou Alice fyrir kattamef. Herbert hafði sagt þessu vitni að hann hefði gifst Lou Alice út af ör- orkubótunum og að hann sætti sig ekki við að hún hlypi nú frá honum. “Hann sagðist ætla að berja hana í höfuðið, en að hann vantaði aðstoð til að fleygja henni í vatnið. Hann sagði að hún væri á annað hundrað kíló á þyngd og hann réði því ekki við hana einn. Hann sagðist verða að koma henni niður í þá stærð sem hann réði við,“ sagði vitnið. Maðurinn hafði aldrei snúið sér til lögreglunnar, þó svo að Herbert hefði margoft haft orð á því að drepa Lou Al- ice. Hann sagðist ekki hafa trúað að Herbert væri alvara. Þegar verjendurnir spurðu vitnið hvort Herbert hefði verið undir áhrif- um áfengis þegar hann var að ræða um þessi áform sín, sagði hann svo hafa verið. „Ég hef aldrei séð hann öðruvísi," bætti hann við. Við húsrannsókn í hjólhýsinu höfðu tæknimennirnir beitt nýrri aðferð við að finna blóðbletti, sem reynt hefði verið að hreinsa. Við þessa aðferð er notað efhi sem nefnist Luminol og sagt er að blanda þurfi einn blóðdroga í 75 lítra af vatni til þess að Luminol geti ekki fundið blóðdropann. Lum- inolið er sett á þá staði þar sem talið er að blóð kunni að finnast. Þetta er gert í niðamyrkri og ef blóð er á staðnum verður Luminolið sjálflýsandi. Með þessari aðferð var leitt í ljós að mikið blóð var í hjólhýsinu og einnig f bflnum hennar Lou Alice. Eitt, sem vömin taldi sér til tekna, var það að engin merki um lyf höfðu fund- ist í líkamsleifunum, en aftur á móti vottur af áfengi. Þetta kom ekki heim og saman, því vitað var að Lou Alice neytti lyfja vegna offitunnar, en var aftur á móti alger bindindismanneskja á áfengi. Verjendur reyndu því að halda því fram að líkamsleifamar væm alls ekki af Lou Alice Brenk. En þá var kallaður til meinafræðing- ur sem bar það að við rotnun geta lyf- in horfið og myndað vínanda. Klefafélaginn Eins og fyrr er sagt hafði Brenk mátt flækjast á milli fangelsa og hafði setið í klefa með mörgum, þá tfu mánuði sem hann var í varðhaldi. Einn þess- ara klefafélaga var nú laus úr prísund- inni og þegar hann las um málið í blöðunum hafði hann samband við saksóknara. Þann 13. nóvember kom þessi klefa- félagi Brenks í vitnastúkuna og sagði sögu sína: Hann sagði að Brenk hefði sagt sér frá því að hann hefði stolið kælitösk- unni og jafnframt látið þau orð falla að „ef hann hefði gert það sama við líkamsleifarnar í kælitöskunni og hann hefði gert við afganginn af henni, væri hann sko ekki f neinni klípu og að lögregluna hefði aldrei grunað neitt." Verjendur Herberts Brenk reyndu að fá framburð vitnis þessa dæmdan ógildan, þar sem þeir hefðu ekkert um það vitað fyrr en réttarhöldin vom hafin. Dómarinn vísaði þeim tilmæl- um þeirra frá. Saksóknari fór nú að leita uppi aðra klefafélaga Brenks, en Brenk hafði setið inni öðm hverju áratugum sam- an. Það hafðist uppi á einum gömlum klefafélaga, sem setið hafði inni með Brenk fyrir tveimur ámm. Sá skýrði frá því að Lou Alice hefði komið að heimsækja mann sinn og þá hefði hún verið með glóðarauga á báðum augum og spmngnar varir. Klefafélaginn sagði að Brenk hefði sagst hafa barið hana þegar hún var ekki nægilega snögg að hlýða skipun- um hans um að sækja bjór og sígar- ettur. Hann sagði að Brenk hefði hælt sér af því að hann stjómaði Lou Alice með harðri hendi og byggi aðeins með henni vegna örorkubótanna. Fyrrí konan segir sögu sína Brenk og Lou Alice höfðu aðeins ver- ið gift í þrjú ár. Áður hafði hann verið giftur annarri konu á ámnum 1965 til 1984. Fyrrverandi eiginkonan var nú köll- uð fyrir réttinn og hún hafði óskemmtilega sögu að segja. Hún sagði að Herbert hefði ítrekað lagt á sig hendur. Einu sinni hefði hann hert svo að hálsi hennar að hún missti meðvitund, og hótað henni að hann skyldi dreifa stykkjum úr henni frá Arkansas til Louisana. Hún skildi við hann eftir þetta og f langan tíma eftir skilnaðinn þorði hún ekki að vera ein, ef hann skyldi snúa aftur til að ná sér niðri á henni. Ættingi Lou Alice bar að hún hefði fengið örorkubætumar vegna andlegs vanþroska. Ættinginn sagði ennfrem- ur að Lou Alice hefði ávallt þolað harðræði af völdum þeirra manna sem hún hafði lent í slagtogi við. Svo virtist sem hún þyrfti á athygli að halda, hversu neikvæð sem sú athygli væri. Réttarhöldin stóðu í sex daga. Sak- sóknari hafði lagt fram 98 mismun- andi sönnunargögn og kallað til 47 vitni. Verjendumir börðust hetjulega fyrir Herbert Brenk. Þeir höfðu lagt fram alls kyns mótmæli, sem flestum hafði verið hafnað. Tvisvar sinnum höfðu þeir reynt að fá réttarhöldin dæmd ógild. í annað skiptið vegna klefafé- lagans, sem hafði komið fram eftir að réttarhöldin hófust, og í hitt skiptið vegna þess að röntgenmyndir af Lou Alice og líkamsleifunum höfðu horfið um tíma. Þeir héldu því fram að þeir hefðu ekki haft nægilegan tíma til að kynna sér þessi gögn. En allt var þetta unnið fyrir gýg. Réttarsalurinn var troðfullur af for- vitnum áhorfendum hvem einasta dag réttarhaldanna. Dómarinn hafði leyft fréttamönnum sjónvarps að vera viðstaddir og senda út myndir frá rétt- arhöldunum. Æsingurinn og fjöl- miðlaumfjöllunin jókst með degi hverjum. Dæmdur til dauða Verjendurnir notuðu 40 mínútur til að koma sínum málstað á framfæri. Þeir lögðu fram þrjú sönnunargögn og kölluðu til þrjú vitni. Brenk var ekki látinn bera vitni sér til vamar. Allan tímann sem á réttarhöldunum stóð, sýndi hann ekki minnstu svip- brigði. Kviðdómur dró sig í hlé, eins og lög gera ráð fyrir, og tók sér tvær klukku- stundir til að reifa málið og komast að niðurstöðu. Niðurstaðan varð sú að Brenk væri sekur um morðið á konu sinni og skyldi dæmast til dauða með því að sprautað væri í hann eitri. Slík- ur úrskurður áfrýjast sjálfkrafa til hæstaréttar. Herbert Brenk hafði ekki sýnt neinar tilfinningar á meðan á réttarhöldun- um stóð og hann deplaði ekki auga þegar Iesinn var yfir honum þessi þungi dómur. Hann fékk engar heim- sóknir eða stuðning frá vinum eða ættingjum á meðan á þessum hremmingum stóð. Skömmu áður en hann var fluttur í ríkisfangelsið, fór hann fram á að fá hundinn sinn f heimsókn, því hann væri eini vinur- inn sem hann hefði nokkurn tíma átt. Fangelsisyfirvöld urðu við þeirri bón hans. Þrátt fyrir ítarlega leit hefur afgang- urinn af Iíki Lou Alice Brenk ekki fundist. Fjölskylda hennar hélt minn- ingarathöfn um hana í kyrrþey.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.