Tíminn - 10.01.1992, Blaðsíða 7
Föstudagur 10. janúar 1992
Tíminn 7
Á Noröur-lrlandi er víöa veriö aö leggja á ráöin um frekari manndráp og voöaverk. Mótmælendur halda því fram aö nú séu þeir jafningjar IRA f fjölda moröa.
a r 4, ■mÆ
'Íílfh/fv
í 1 1:
Mótmælendur á Norður-
Irlandi herða drápssóknina
Belfast er höfuöborg Noröur-lrlands. En hverjir eiga aö ráöa þar?
Hverjir eiga borgina? Kaþólikkar og mótmælendur deila um yfirráö-
in með sprengjum og byssum og hafa hvorugir haft betur undan-
farin tuttugu ár.
Billy Wright er norður-írskur
mótmælandi sem gerir varúðar-
ráðstafanir. Hann er grannur og
íþróttamannslega vaxinn,
alúðlegur 31 árs maður í
gallabuxum og hvítum striga-
skóm. Hárið er mjög stuttklippt
og framkoman hrein og bein.
„Níutíu prósent af því, sem sagt
er um mig, er ekki satt. Ég reyki
ekki, ég drekk ekki og ég er ekki
geðsjúklingur."
Auðvitað hafa fáir utan írlands
heyrt Billys Wright getið, eða
nokkurra annarra í framvarðasveit
þeirra mótmælenda í Ulster sem
hafa tekið upp harðari bardagaað-
ferðir gegn kaþólikkum. Oftast er í
fréttum sagt frá sprengjum og
manndrápum IRA fyrir málstað
lýðveldisins. En Wright er líka
reiðubúinn að láta lífið fyrir mál-
stað og álítur að hið sama verði
aðrir að gera.
Einn hinna
„venjulega grunuðu“
í hvert sinn, sem enn einn voða-
atburðurinn á sér stað, er Wright
meðal hinna „venjulega grunuðu"
sem dregnir eru í sjö daga gæslu-
varðhald til yfirheyrslu. Hann hef-
ur verið fangelsaður átta sinnum
frá því hann var unglingur og einu
sinni sat hann þrjú og hálft ár inni
fyrir lögbrot sem hann vísar kæru-
leysislega til sem „hafi eitthvað
haft með byssur og svoleiðis" að
gera. Hann viðurkennir að hann sé
efsti maður á lista hvers einasta
IRA-manns í miðhluta Ulster yfir
réttdræpa.
Það er ekki auðvelt að ná tali af
Billy Wright. Blaðamanni Sunday
Times tókst það þó fyrir nokkrum
vikum, en viðtalið fór þó ekki fram
á heimili Billys þar sem kona hans
og þrjú börn lifa lífi sínu innan við
skothelda glugga, heldur bak við
rimlagluggatjöld í ósköp venju-
legri bæjarbíokk. „Ég er eins og
hnefaleikari. Ég hef fulla trú á því
að ég geti bjargað mér,“ segir
hann.
Eitraður hugsunar-
háttur að erfðum
Núverandi kynslóð Ulsterbúa hef-
ur hlotið eitraðan hugsunarhátt að
erfðum. Sumir myndu segja að
þeir bæru þess ævilöng merki;
sjálfir segja þeir að þeir séu „hert-
ir“. Hefndardráp hafa færst í vöxt
að undanförnu. Fjöldi morða IRA
stóð í stað á undanförnu ári frá ár-
inu á undan,-en dauðalistinn, sem
byssumenn mótmælenda státa af,
hefur tvöfaldast að lengd, svo að
hann jafnast nú á við lista IRA.
Mótmælendur halda því fram að
þeir hafl sett IRA í vörn með því að
miða betur út skotmörk sín.
En eitt er það sem hefur óumdeil-
anlega komið í Ijós. Það er samfé-
lag sem er eins fjarri sáttum nú og
nokkru sinni fyrr, þegar fram hef-
ur komið ný kynslóð byssumanna
undir stjórn stríðsherra, sem voru
börn þegar „vandræðin“ hófust.
Billy Wright styður þann hóp mót-
mælenda sem kallar sig Ulster Vol-
unteer Force (UVF). En enginn
viðurkennir að vera meðlimur, það
er glæpur.
Eðlileg samskipti við UVF eru í
gegnum Eagle, skrifstofu á Shank-
ill Road. Þar eru höfuðbækistöðvar
stuðningshóps við mótmælenda-
fanga, á svipaðan hátt og Ulster In-
formation Service er tengiliður
fyrir Ulster Defence Association
(UDA) og „virka deild“ þess. Ulster
Freedom Fighters (UFF). A Norð-
ur-írlandi gengur allt undir mörg-
um nöfnum.
En eins og Billy Wright bendir á:
„Eftir 20 ár vita allir hver og hvað
hver einasti maður er. Allt leyni-
makk (milli öryggisliðsins og mót-
mælendabyssumannanna) væri
marklaust. Ég veit að yfirmaður
IRA á staðnum býr í tveggja mílna
fjarlægð við sömu götu og ég. Ég
veit nafnið og heimilisfangið. En
hann er líka varkár. Þeir eru með
fimm sprengjumenn f Portadown
— náunga sem gætu sett saman
ofurlítið af semtex — en ekki
byssumenn. Þegar við vorum allir
settir í steininn fýrir nokkrum vik-
um, voru það fjórir okkar manna
og tveir af þeim og við gátum heyrt
lýðveldissinnana æpa á okkur úr
klefunum sínum: „Við ætlum að
kála ykkur“.“
Mótmælendum
fínnst þeir hafa verið
sviknir
„Þeir gætu lagt vörubíl fullum af
semtex fyrir utan húsið hjá mér
hvaða kvöld sem er og drepið fjöl-
skyldu mína. En foringinn veit að
það sama yrði gert við hans fjöl-
skyldu."
Eftir drápin á knæpum mót-
mælenda í Belfast nýlega, virðist
þögnin í hverfum þeirra þar yfir-
þyrmandi í eyrum utanaðkom-
andi.
Mótmælendur hafa ekki lengur
mikla trú á að öryggissveitir
hennar hátignar hafi neina getu
til að ráða niðurlögum IRA.
Það er almennt álitið að pólit-
ískan vilja skorti og hernaðarleg-
ar upplýsingar séu engar.
Það er líka almenn tilfinning að
mótmælendur hafi verið sviknir.
Álit Billys Wright er að fyrr eða
síðar verði að taka upp viðræður
við IRA, en ekki fyrr en eftir að
vopnahléi hefur verið komið á og
helst eftir að yfirvöld í Dublin hafa
fjarlægt greinar tvö og þrjú úr
stjórnarskránni, en þar eru gerðar
kröfur til innlimunar á héruðun-
um sex í norðurhlutanum.
1. vinningur almanak nr. 1397
2. vinningur almanak nr. 5731
3. vinningur almanak nr. 2569
4. vinningur almanak nr. 5681
5. vinningur almanak nr. 5469
6. vinningur almanak nr. 5652
7. vinningur almanak nr. 1177
8. vinningur almanak nr. 1484
9. vinningur almanak nr. 3895
10. vinningur almanak nr. 1655
11. vinningur almanak nr. 4832
12. vinningur almanak nr. 240
13. vinningur almanak nr. 5363
14. vinningur almanak nr. 2114
15. vinningur almanak nr. 1912
16. vinningur almanak nr. 666
17. vinningur almanak nr. 5794
18. vinningur almanak nr. 1579
19. vinningur almanak nr. 753
20. vinningur almanak nr. 1841
21. vinningur almanak nr. 1371
22. vinningur almanak nr. 3109
23. vinningur almanak nr. 4694
24. vinningur almanak nr. 3317
í augum Wrights hefur írska
lýðveldishernum tekist að láta
mótmælendur „líta út fyrir að
vera aumingjar".
Hörðu mennirnir álíta núver-
andi drápsherferð þó hafa leiðrétt
þá skoðun, jafnvel þó að hún hafí
stundum haft sorgleg mistök í för
með sér — „eins og þegar litla
stúlkan var skotin í Craigavon.
Önnur [manneskjan sem myrt
var] var reyndar hryðjuverkamað-
ur, en hin — það var skelfilegt."
Það er sem sagt ekki útlit fyrir
að lát verði á blóðbaðinu á írlandi
fyrst um sinn, enda er það álit
Billys Wright að áður en sest verði
að samningaborði eigi mikið blóð
eftir að renna og núverandi dráps-
herferð mótmælenda sýni stjórn-
málamönnunum að nú sé staðan í
rauninni á byrjunarreit: eins von-
lítil og fyrir tuttugu árum.
25. vinningur almanak nr. 1067
26. vinningur almanak nr. 4668
27. vinningur almanak nr. 1530
28. vinningur almanak nr. 2671
29. vinningur almanak nr. 545
30. vinningur almanak nr. 99
31. vinningur almanak nr. 5240
32. vinningur almanak nr. 470
33. vinningur almanak nr. 2034
34. vinningur almanak nr. 844
35. vinningur almanak nr. 637
36. vinningur almanak nr. 2138
37. vinningur almanak nr. 313
38. vinningur almanak nr. 3048
39. vinningur almanak nr. 1149
40. vinningur almanak nr. 1275
41. vinningur almanak nr. 1408
42. vinningur almanak nr. 1614
43. vinningur almanak nr. 848
44. vinningur almanak nr. 3175
45. vinningur almanak nr. 2059
46. vinningur almanak nr. 1520
47. vinningur almanak nr. 4169
48. vinningur almanak nr. 428
Samband ungra framsóknarmanna
Þökkum stuöninglnn.
Jólahappdrætti
Framsóknarflokksins
Dregiö var I jólahappdrætti Framsóknarltokksins 24. desember 1991.
Vinningsnúmer eru sem hér segin
1. vinningurnr. 32544
2. vinningurnr. 21649'
3. vinningur nr. 29668
4. vinningurnr. 1745
5. vinningur nr. 32564
6. vinningur nr. 25721
7. vinningur nr. 32802
8. vinningur nr. 3865
9. vinningur nr. 17489
10. vinningurnr. 17730
11. vinningur nr. 504
12. vinningur nr. 2165
13. vinningur nr. 27981
14. vinningur nr. 32733
Ógreiddir miöar eru ógildir. Vinninga skal vitja innan árs frá úrdrætti. Frekari upplýs-
ingar em veittar I síma 91-624480.
Meö bestu kveöjum og þökk fyrir stuöninginn.
Framsóknarfíokkurinn
m
nii
Jólaalmanak SUF
Eftlrtalin númer hlutu vlnnlng I jólaalmanakl SUF: