Tíminn - 22.01.1992, Síða 8

Tíminn - 22.01.1992, Síða 8
8 Tíminn Miðvikudagur 22. janúar 1992 Ólöf Eysteinsdóttir: Ólöf Eysteinsdóttir og Siguröur Thorlacius í hópi ráðstefnugesta fremst til hægri. reyna sig. í norska kynningarbæklingnum segir um meðferð sjúklinga að ým- is lyf séu notuð til þess að viðhalda og auka styrk vöðvanna. Einnig hefur verið beitt blóðvatnshreins- un og loks er brottnám hóstakirtils talið geta haft góð áhrif. Oft hefur viljað brenna við að sjúkdómsgreining sjúklinga með vöðvaslensfár hafi ekki reynst rétt í upphafi. Hefur fólkið jafrivel verið talið taugaveiklað, duglaust, latt eða ímyndunarveikt og í framhaldi af því fengið róandi eða kvalastill- andi lyf, hafi það kvartað um verki í vöðvum. Þessi lyf hafa auðvitað mjög alvarlegar afleiðingar fyrir sjúklingana, þar sem vöðvar þeirra slappast enn meira en ella. Sýklalyf geta einnig haft alvarleg áhrif á sjúkdóminn. Eins og fram kom í byrjun var Ólöf Eysteinsdóttir fulltrúi ís- lenskra MG-sjúklinga í Ósló. Ólöf hefur lengi þjáðst af vöðvaslensfári og hefur hún mikinn áhuga á að stofnuð verði samtök íslenskra MG- sjúklinga. Talið er að hér á landi séu nokkuð innan við tuttugu manns, sem þjást af sjúkdómnum, og er hann því lítt þekktur meðal almennings. Stofnun samtaka sem þessara er til þess ætluð að kynna sjúkdóminn með útgáfu bækíinga og blaða, veita þeim sjúklingum, sem þegar hafa verið greindir, stuðning og einnig fjölskyldum þeirra. Það er reynsla norrænu samtakanna að fjölskyldur MG- sjúklinga þurfi ekki síður upp- fræðslu og stuðning en fjölskyldur margra annarra sjúklinga. Bömin verða að læra að skilja að foreldrið er ef til vill ekki fært um að sinna þeim á sama hátt og foreldrar fé- laganna, lyfta þeim upp þegar þau eru lítil og fara með þeim á skíði eða í erfið ferðalög þegar þau stækka; og makinn verður að gera sér ljóst að hann getur þurft að taka að sér verkefni og sýna meiri tillitssemi en almennt gerist í fjöl- skyldum. Þeir, sem áhuga hafa á að taka þátt í stofnun samtaka MG-sjúklinga og fjölskyldna þeirra, geta haft sam- band við Ólöfu Eysteinsdóttur í síma 4-28-24 eða skrifað henni að Birkigrund 51, Kópavogi. Myasthenia gravis — vöðvaslensfár - - er nafn á sjúkdómi sem lítið hefur verið rætt um hér, enda talið að innan við tuttugu manns þjáist af honum hérlendis. Á hinum Norðuriöndunum hafa hins vegar verið stofnuð samtök fólks með vöðvaslensfár og í september síðastliðnum var haldin í Ósló tveggja daga ráðstefna um sjúkdóminn. Til ráðstefnunnar var boðið læknum frá öilum Norðurlöndunum sem og fulltrúum MG- sjúklinga í Noregi, Dan- mörku, Pinnlandi og Svíþjóð. Á íslandi er ekki enn til félag MG- sjúklinga. Ólöf Eysteinsdóttir sótti ráðstefnuna sem fulltrúi þeirra ís- lendinga sem eru með þennan sjúkdóm, en sjálf greindist hún með vöðvaslensfár fyrir fimmtán árum. Fulltrúi íslenskra Iækna var dr. Sigurður Thorlacius og flutti hann erindi um meðferð myast- henia gravis — vöðvaslensfárs — hér á landi. í grein í Læknablaðinu segir Sig- urður Thorlacius um sjúkdóminn: Vöðvaslensfár (myasthenia gravis) einkennist eins og nafnið bendir til af mikilli vöðvaþreytu. Þetta er sjúkdómur sem auðveldlega gleymist, þar sem hann er tiltölu- lega sjaldgæfur og sjúkdómsmynd- in oft óljós. Greining dregst því stundum jafnvel árum saman. Sig- urður segir enn fremur að áunnið VSF sé dæmigerður sjálfnæmis- sjúkdómur, það er sjúkdómur sem stafar af því að ónæmisþol líkam- ans raskast og ónæmiskerfið ræðst gegn ve^um eigin líkama. Eitt meginverkefni samtaka MG- sjúklinga á Norðurlöndum er að tryggja að sjúklingar fái sem besta aðhlynningu hver í sínu landi, að koma á sambandi milli MG-sjúk- linga svo þeir geti skipst á skoðun- um og lært hver af annars reynslu og loks að kynna MG fyrir almenn- ingi. Þetta síðasta er mikilvægt, því oft verða sjúklingar fyrir aðkasti vegna þess að fólk þekkir ekki sjúk- dóminn og hvemig hann lýsir sér. Verða þeir jafnvel fýrir óþægind- um, þar eð fólk telur þá drukkna. Fyrstu einkenni sjúkdómsins koma oft fram í augum. Lömun veldur því að augnlok síga og einn- ig veldur lömun ytri augnvöðva tví- sýni. Fólk á erfitt með að tala, tyggja og kyngja og algengt er að röddin breytist. Magnleysi í and- litsvöðvum verður til þess að and- litið verður svipbrigðalítið. Sjúk- Vettvangur lingurinn virðist dapur og jafnvel reiður og á erfitt með að sýna svip- brigði. Fólki hættir til að hrasa eða detta, það missir hluti úr höndun- um og á ekki auðvelt með að standa upp eða ganga upp og niður stiga. Erfitt getur verið að halda uppi höfðinu og ekki síður að lyfta handleggjunum. í kynningarbæklingi frá samtök- um norskra MG-sjúklinga segir að sjúkdómseinkennin séu mjög mis- munandi frá einum til annars. Flestir eru hressastir að morgni eða fyrri hluta dags, en þeim er nauðsynlegt að hvfla sig oft og nóg. Þrátt fyrir það að hvfld sé nauðsyn- leg, verður fólk að reyna að vera sem virkast og gæta þess að ein- angrast ekki, þótt það megi ekki of- Samtök MG- „Höfuðborg villta austursins“ „Vlllta austrið" er heiti athafna- manna á Vesturlöndum á Austur- Evrópu, og á það heiti við engan stað betur en Búdapest ... Búda- pest hefur farið fram úr öllum keppinautum og orðið ótvíræð höf- uðborg kapítalismans í (Austur- Evrópu),“ sagði í Newsweek 13. janúar 1992. „Vissulega eru um- skiptin frá sósíalismanum sárs- aukafull, rétt eins og í Tékkóslóv- akíu og Póllandi. Vissulega hefur boðuð sala á ríkisfyrirtækjum ekki tekist. Atvinnuleysi og verðbólga fara vaxandi, b'fskjör versnandi. Vonbrigði eru mikil og atvinnulegt bakfall á allra vörum.“ „En á göngu um Búdapest víkur uggur fyrir sælukennd.... Búdapest er gripin athafnasemi, sem hvergi á sinn Iíka í gömlu austurblökkinni... Budapest Week, viðskiptablað á ensku, hefur frá uppgangi að segja. Á hæla Playboy og Business Week mun Reader’s Digest koma út á ensku. Tekjur af ferðamönnum voru (1991) um 60% meiri en (1990) og fjórfalt meiri en 1989. Breskt fyrirtæki, United Biscuits Ltd., keypti keðju ungverskra bak- aría á 24 milljónir $. Shell... ætlar að setja upp 100 nýjar bensínaf- greiðslur. Ungverska símafélagið, ásamt útlendum samstarfsaðila, hyggst leggja inn 2 milljónir síma á næstu þremur árum og tvöfalda (síma landsins). Skráð hafa verið 7.000 samstarfsfyrirtæki við út- lenda aðila, 2.000 þeirra á síðustu þremur mánuðum. Á meðal þeirra eru mörg alkunn fjölþjóðleg fyrir- tæki, svo sem General Electric, Electrolux, General Motors, United Technologies, Sanofi, Suzuki, Nestlé, Sara Lee og Ford, svo að einungis fáein séu nefnd.“ ...Andreas Hirschler ... forstöðu- maður Investcenter, sem finnur fyrirtækjum samstarfsaðila um verslun og fjárfestingu ... hallar sér dapurlega aftur í djúpum leður- stóli: „Ég er svartsýnn ... Alls staðar blasir fátækt við — betlarar eru á götum, fólk sefur í undirgöngum gatna, búðir eru fúllar af vamingi sem enginn hefur ráð á, tveimur af hverjum þremur Ungverjum geng- ur illa að hafa fyrir útgjöldum, lífs- kjör eru hríðfallandi og veldur það félagslegri ókyrrð. Verg þjóðar- framleiðsla mun hafa fallið 5-10% (1991).“ (Hirschler bindur vonir við útlenda fjárfestingu.) „Útlendingar munu leggja til fjármagn, tækni og starfslægni — og framleiða það, sem sóst er eftir. Minnast má þess, að útlendingar áttu þriðjung lands- ins undir Habsborgar- keisaraætt- inni.“ „Útbásúnuð sala stjórnvalda á rík- isfyrirtækjum hefur runnið út í sandinn. Fyrst, í júní (1991), átti að selja helstu plastumbúðagerð landsins, Pannonplast, en af því varð ekki, er sovéski markaðurinn lokaðist. Á eftir átti að fara sala 20 annarra á sex mánuðum, allt frá ríkisferðaskrifstofunni Ibusz til Danubius-hótelhringsins, sem á 18 fyrsta flokks hótel... Að Ibusz hefur enn ekki fundist kaupandi, og salan á Danubius gekk til baka, þegar rík- isstjóm féll frá skattaívilnunum, sem hringurinn átti að mestu arð- semi sína að þakka." Búdapest átti sín giæsiskeið og var borgin rík og íburðarmikil. Nú gengur illa að rifja upp forna athafnasemi. Livingstone, skoskur tölvubær Livingstone, 43.000 ibúa bær, 24 km vestan Edinborgar. er miðstöð tölvuiönaðar á Bretlandi, og einn helsti tölvuiðnaðarbær í Vestur- Evrópu. Frá 1987 hafa tölvur og tölvu- búnaður lagt til 40% af útflutningi Skotlands og þá meira en whisky. Á Skotlandi vinna 400 fyrirtæki að tölvum og búnaði þeirra, og em nálega 100 þeirra í Livingstone, á meðal þeirra útibú frá NEC, Sea- gate, Mitsubishi, en skammt frá bænum em önnur frá IBM, Hew- lett-Packard og Digitai Equipment. Til efnahagslegs bakfalls segir nú í tölvuiðnaði, á Skotlandi sem ann- ars staðar. Úndir árslok 1991 til- kynnti Unisys lokun útibús síns á Skotlandi og missa þá 700 starfs- menn þess vinnu, og Compaq boð- ar fækkun starfsmanna um 150. Og til bakfallsins sagði þegar 1990. Mestallan níunda áratuginn óx framleiðsla tölva og tölvubúnaðar á Skotlandi um 30% á ári, en minnkaði um 1,3% 1990. Og mun hún aftur hafa dregist saman 1991. Um 50.000 manna starfa nú í tölvuiðnaði í Skotlandi.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.