Tíminn - 05.02.1992, Side 8

Tíminn - 05.02.1992, Side 8
8 Tíminn Miðvikudagur 5. febrúar 1992 Guðríður Gunnlaugsdóttir Guðríður Gunnlaugsdóttir var fædd 14. febrúar 1902, var því tæpra 90 ára þegar hún andaðisL Hún var fædd á Laxárbakka í Leirársveit í Borgarfirði, en sú jörð er nú í eyði. Foreldrar hennar voru Helga Sveins- dóttir og Gunnlaugur Ólafsson. Þau hjón bjuggu í nágrenni Akraness, á Rein, Stóru-Býlu og í Fossakoti undir Akraflalli. Eiginmaður Guðríðar, sem hún gift- ist árið 1928, hét Guðmundur Vetur- liði Bjamason, sjómaður. Þau hjón bjuggu allan sinn búskap á Akranesi. FVrst leigðu þau hjá systur Guðríðar, Laufeyju, að Sýruparti, en byggðu sér árið 1930 hús á Suðurgötu 62 og nefndu það Akurholt. Þau hjón eignuðust tvo syni. Eldri sonurinn Haraldur, flugumferðar- stjóri, er fæddur 2. febrúar 1929. Eig- inkona hans er Aslaug Guðmunds- dóttir. Böm þeirra eru: Þorgeir, Helga og Haukur. Yngri sonurinn, Emil, er fæddur 31. júlí 1933, nú búsettur í Hollandi, sölustjóri Flugleiða í Amsterdam. Hann er kvæntur Sigurbjörgu Gúst- afsdóttur. Þeirra synir em Kjartan Þór og Ragnar. Bamabamaböm Guð- ríðar eru fjórtán og afkomendur hennar því orðnir tuttugu og þrír. Guðríður varð fyrir þeirri sáru sorg að missa mann sinn af slysförum á besta aldri. Þá stóð hún ein uppi með syni sína unga. En hún lét ekki bug- ast, hélt heimilinu saman í mörg ár, vann fyrir því af einstökum dugnaði, kom sonum sínum til mennta og studdi að velferð þeirra sem hún mátti. Síðar flutti hún til Hafharfjarð- ar með Haraldi syni sínum og bjó í nágrenni við hann til æviloka. Ég kynntist Guðríði þegar við hjón, nýflutt til Akraness, leigðum í næsta húsi við hana á Suðurgötu 64. Þar áttum við samleið í 10 ár. Tókst fljótt með okkur góður kunningsskapur sem aldrei bar skugga á. Við áttum sitthvað sameiginlegt við Guðríður, td. hét móðir mín Guðríður og eigin- menn okkar báru sama nafn og það lét vel í eyrum. Auk þess tókst með sonum okkar góð vinátta þegar ár liðu og aldursmunar gætti minna og stendur sú vinátta enn. Við hjón fluttum með son okkar, Ormar Þór, á fyrsta ári á Suðurgötuna og við áttum svo sannarlega „Hauk í horni" þar sem þau hjón á Suðurgötu 62 voru. Þau voru alltaf boðin og bú- in að leggja okkur lið. Ófá skiptin gætti Guðríður bamsins fyrir mig þegar ég þurfti á að halda. Ég minnist þess t.d. þegar við hjónin fórum á skemmtun 1. des., þá bauð Guðríður mér að hafa drenginn fyrir mig næt- urlangt því að við bjuggumst við að koma seint heim. Þegar við svo kom- um, seint og um síðir, voru allir sofh- aðir og skollið á hríðarveður. Ég gat ekki sofnað án þess að hafe son minn hjá mér og sendi því manninn minn með sæng út í bylinn að sækja hann. Morguninn eftir man ég að Guðríður sagði við mig: „Það lá við að ég yrði bara reið þegar Guðmundur kom að sækja bamið í þessu veðri, það var eins og þið hefðuð ekki treyst mér fyr- ir því.“ Guðríður erfði þetta ekki við mig, enda ólíkt henni. Ég sá hana aldrei skipta skapi, hún var alltaf jafhgóð og hlýleg við alla. Síðar man ég eftir því að synir okkar, sem léku sér saman löngum stund- um, röðuðu flugvélamódelum á stétt- ina fyrir utan húsið, svo varla var hægt að ganga um, en þeir vom snemma áhugamenn um flug, þeir bræður Haraldur og Emil, og undi sonur minn sér vel með þeim við þann leik. Þótt hann væri yngri kom það ekki að sök, þeir tóku hann sem jafningja og alltaf var Guðríður jafn- góð, gætti þeirra og lét eitt yfir alla ganga. Þegar mér verður hugsað til þessara daga, nú að 40 ámm liðnum, þá finn ég vel hve mikils virði það er að fyrir- hitta öðlingsmanneskjur á lífsleiðinni og njóta samvista þeirra og Guðríður var svo sannarlega ein slík. Nú er hún horfin sjónum okkar til æðri heima. Ég vil að lokum þakka alla góðvild og vináttu sem Guðríður sýndi mér og fjölskyldu minni ævinlega. Sonum hennar og þeirra fjölskyldum votta ég innilega samúð mína. Guð blessi minningu góðrar konu. Óttastu ei, sú hönd er mild oghlý, sem hvarmi þreyttum lokar hinsta sirrn. Þá nóttin dvínar, dagur rís við ský ogdauðirm, lífsins þjórm, ervinurþirm. (S.V.) Pálína Þorsteinsdóttir LESENDUR SKRIFA Réttlæti Drottinn blessi mig og varðveiti. Lát mig í faðmi harts finna frið og lækning sára minna. Þú vinur hefur alltafþekkt mig, en lætur huldar leiðir kanna. Ræningja orð og lína ruglaði hugann minn. Sonur minn er mér í minni kærleiksríkt gáfumenni. En hann varð á brott tekinn af duldum mannræningjum. Þetta ljóð varð til fyrir nokkru í hugarheimi mínum. En vegna sorglegra mistaka dul- hyggjumanna, sem vita ekki hvað kristilegt siðgæði er. Við þá langar mig til að segja þetta: Það má segja að lífið sé óskrifað blað þar til búið er að koma því í bók. Nú hef ég þeg- ar skrifað mína bók. Þar sem mér finnst ég vera ósköp lítil á bókamarkaði, þá hef ég boðið þeim tveim vinum mínum að gerast einnig höfundar bókar minnar. Það eru þeir prófess- or Tómas Helgason og Böðvar Bragason lögreglustjóri. En bókina hef ég skrifað vegna þess óréttlætis sem Böðvar beitti látinn son minn, ísak Bjarnason, vegna ranghug- mynda dulhyggjumanna. Anna Bjarkan

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.