Tíminn - 05.03.1992, Blaðsíða 1

Tíminn - 05.03.1992, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 5. mars 1992 46. tbl. 76. árg. VERÐ I LAUSASÖLU KR. 110.- ÖSKUDAGSGRÍN Fjöldi barna um allt land sló köttinn úrtunnunni, íklædd fjölbreyttum furðubúningum. Öskudagsskemmtun var haldin á Lækjartorgi að vanda. Þar m.a. spilaði dauðarokksveit og gamla eimreiðin úr Arbæjarsafni var til sýnis og það rigndi tals- V6rt. Timamynd: PJetur Landlæknir telur að atvinnuleysi stórauki kostnað í heilbrigðiskerfinu: Hvað kostar heilsu- tjón af atvinnuleysi? „Svo virðist sem stjórnendum sem standa að fjöldauppsögnum, oft að nauðsynjalausu, séu ekki ljósar afleiðingar gerða sinna,“ segir Ólafur Ólafsson landlaeknir í grein í Læknablaðinu þar sem hann fjallar um heilsufarslegar afleiðingar atvinnumissis og atvinnuleysis. GETGATUR UM AUKNA HEIMASLÁTR- UN Á NAUTGRIPUM Tillaga Halldórs Ás- grímssonar fær mikla og jákvæða umfjöllun á þingi Norðurlandaráðs: Aukið sam- starf ríkja við Norður- heimskaut Forsætisnefnd Norðurlandaráðs maelir með því að tillaga Halldórs Ásgrímssonar, alþingismanns og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, um að aukið samstarf við ríki, sem liggja að Norðurheimskautssvæð- inu, verði samþykkt. TiUagan hefur fengið mikla umfjöllun og mjög góðar undirtektir á þingi Norður- landaráðs, sem nú stendur yfir í Helsinki í Finnlandi. Reiknað er með að hún verði samþykkt á þing- inu á morgun. Tillagan gerir ráð fyrir að haldin verði ráðstefna um samstarf þessa svæðis. Líklegt er talið að hún verði haldin á næsta ári. Að auki er for- sætisnefnd Norðurlandaráðs hvött til þess í tillögunni að leggja fé til verkefnisins. Þetta mál var til umræðu á fundi forsætisnefndarinnar og forsætis- ráðherra Norðurlandanna í gær, og fékk þar góðar viðtökur. Davíð Oddsson mæiti sérstaklega með því að farið yrði út í þetta verkefni. Forsætisnefndin er búin að ákveða að ræða þessa tillögu sérstaklega á fundi nefndarinnar, sem verður haldinn á Svalbarða í sumar. Á fund- inn munu koma ýmsir aðilar til að fjalla um málefni svæðisins. „Það hefur mikið verið fjallað um samstarf við Eystrasaltsríkin á nor- rænum vettvangi, en minna um okkar norðurslóðir og samstarf við þau lönd, sem eru vestur af Græn- landi og íslandi. Ég er þeirrar skoð- unar að þetta geti orðið til þess að það komi meira jafnvægi í Norður- landasamstarfið og menn verði meira meðvitaðir um það, að svæð- in norður frá eru mikilvæg og jafn- framt samvinnan við Kanada og Bandaríkin," sagði Halldór. Landlæknir vitnar til rannsókna á heilsufari atvinnulausra og þeirra, sem eigi yfir höfði sér at- vinnuleysi. í ljós hafi komið að þeim, sem missa vinnuna eða eiga það yfir höfði sér, sé hættara við háþrýstingi, blóðfitustig hækki og streituhormónið adrenalín í blóði aukist verulega. Langvarandi streita leiðir síðan gjarnan til hjarta- og æðasjúkdóma, háþrýst- ings, heilablóðfalls, magabólgna og magasárs, vöðva- og bakverkja, þreytu, svefnleysis, höfuðverkjar og alvarlegs þunglyndis, sem jafn- vel getur leitt til sjálfsmorðstil- rauna. ,Atvinnuleysi er félags-, heilsu- fars- og efnahagsleg vá, sem gerir fólk ráðþrota og vanheilt. í kjölfar þess fylgir sálarkreppa, margir lík- amlegir sjúkdómar og félagsleg einangrun. Leit fólks til heilbrigð- isþjónustu eykst mikið,“ segir landlæknir í grein sinni. • Sjá einnig blaðsíðu 3 Getgátur hafa verið uppi um að heimaslátrun á nautgripum hafi aukist síðustu mánuði í kjölfar of- framboðs á nautakjöti. Guðmundur Lárusson, formaður Landssam- bands kúabænda, segir útilokað að segja nokkuð um hvort að heima- slátrun sé að aukast eða minnka. Engar kannanir hafi verið gerðar á þessu, enda sé það nær ófram- kvæmanlegt. Tálsverður órói hefur verið á nauta- kjötsmarkaði síðan í haust. Afurða- stöðvar Iækkuðu verð til framleið- enda um 10% í haust, þrátt fyrir að þeim væri það ekki heimilt, þar sem opinber verðlagning er á þessum vörum. Margir bændur fengu grip- um sínum ekki slátrað í sláturhús- um á þeim tíma sem þeir vildu, þar sem þau tóku ekki við fleiri gripum en þau voru viss um að geta losnað við. Nú er að komast meira jafnvægi á kjötmarkaði. Offramboðið er fyrst og fremst á Suður- og Vesturlandi, en biðlistar eftir slátrun í öðrum landshlutum hafa styst verulega. Fimmmannanefnd hefur lækkað verð til bænda um 10%, og jafn- framt hafa afurðastöðvar lofað að greiða bændum skráð verð. Guðmundur Lárusson sagði útilok- að að segja eitt eða neitt um heima- slátrun. Án efa færi fram ólögleg heimaslátrun á nautgripum, en ekk- ert væri vitað um umfang þessarar starfsemi. Útilokað væri að segja hvort þessi starfsemi væri að aukast eða minnka. -EÓ -EÓ Astæða þess að grjóthlíf varð þess valdandi að nefhjól Ásdísar, nýrrar Fokker-vélar Flugleiða fór ekki niður, svo nauðlenda varð vélinni, er fundin: Hlífin rakst í klakabunka Orsökin fyrír því að nefhjól Ásdísar, nýrrar Fokker 50-vélar Flugleiða, fór ekki niður á dögunum, með þeim af- leiðingum að vélin varð að nauðlenda á Keflavikurílugvelli, er sú að þegar vélinni var ýtt út úr flugslfyli á Reykjaríkurflugvelli um morguninn rakst gijóthlífin í klakabunka og skekktist. Samkvæmt heimildum Tímans var verið að ýta vélinni afturábak út úr flugskýli á Reykjavíkurflugvelli þegar óhappið átti sér stað, en grjóthlífm leggst nánast niður við jörð og er ekki gert ráð fyrir því að vélinni sé bakkað. Grjóthlífin beyglaðist töluvert. Það eina, sem flugvirkjar gerðu, var að reyna að rétta hlífina í sitt uppruna- lega horf, í stað þess að taka hlífina af. Ekki tókst þó betur til en svo að skömmu síðar fór hjólið ekki niður þegar lenda átti á Akureyrarflugvelli með 43 farþega innanborðs. Viðmælandi blaðsins hjá Flugleiðum segir að rannsókn málsins standi enn yfir innan fyrirtækisins, en ljóst er að málið er mjög viðkvæmt innan fyrir- tækisins. Sami viðmælandi sagði að enn væri ekki farið að negla neina sem sökudólga, hvorki starfsmenn fyrirtækisins né Fokker- verksmiðj- umar. í framhaldi af rannsókn máls- ins verða viðræður við Fokker-verk- smiðjumar, en ljóst er að tjón af völd- um nauðlendingarinnar er töluvert fyrir Flugleiðir. Vélin er enn í viðgerð og leigja hefur orðið vél til hlaupa í skarðið fyrir Ásdísi. -PS

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.