Tíminn - 05.03.1992, Side 6
6 Tíminn
Fimmtudagur 5. mars 1992
Vangaveltur eru hafnar um kynlíf og meðgöngu uppi í himinhvolfinu og eiginleika einstak-
linga, sem þar kunna að verða getnir og fæðast:
Geimbörn op geimkynlíf er
ennþá feimmsmál hjá NASA
Geimskutla í lendingu. Talsmenn NASA telja aö þrengsli í henni
komi í veg fyrir að geimbörn komi undir um borð.
Rennur upp sá tími að menn fari að
iðka kynlíf úti í geimnum? Munu
böra fæðast í geimferðatælgum?
Munu þau verða frábrugðin böraum
er líta dagsins ljós á jörðu niðri?
Enn hefur bandaríska geimferða-
stofnunin, NASA, ekki viljað ræða
þessi efni, en brátt kann að koma að
því. Fyrstu hjónin leggja upp í geim-
ferð á þessu ári með geimskutlunni
og innan tíu ára er hugsanlegt að
kariar og konur verði samvistum
mánuðum saman í geimstöðvum.
En hafa einhver dæmi þegar gerst
um ástalíf um borð í geimskutl-
unni?
Talsmaöur stofnunarinnar, Barbara
Schwartz, er löngu orðin þreytt á
spumingum þessa efnis, því þær eru
oft lagðar fyrir hana. „Þegar menn
setja sér fyrir sjónir þrengslin um
borð í skutlunni, þá svarar þetta sér
sjálft," segir hún. „Þar er ekki kostur
á neinu einkalífi og ekkert slíkt hefur
hent.“
En sögur um slíkt hafa lengi geng-
ið, eftir að karlar og konur fóm að
fljúga saman með skutlunni, og það
hefúr gefið sögunum byr undir
vængi að sumir karlar meðal geim-
faranna eru sagðir kvenhollir í meira
lagi.
„Þessar getgátur eru vísindunum
ekki til framdráttar," segir Lynn Wil-
ey, sérfræðingur um þróun spendýra
er starfað hefúr hjá NASA frá 1984.
Hann segir að yfirmenn sínir megi
ekki heyra minnst á að rannsaka
fóstur eða þá sæðisfrumur um borð í
geimskutlunni til þess að athuga
hvaða áhrif ferðalagið hafi á þessa
þætti. Hann segir að það sé eins og
þeir vilji ekkert um slíkt fræðast. Ef
til vill er ástæðan sú að það gæti orð-
ið talsvert áfall ef óheppilegar breyt-
ingar á æxlunareiginleikum manns-
ins kæmu fram við rannsókn.
Annars viðurkennir Wiley að þetta
komi ekki svo mjög að sök, því svip-
aðar upplýsingar megi fá úr þvag- og
blóðsýnum úr geimförum, eftir að til
jarðar er komið. Öflun sæðissýni-
horna yrði og óþægilegt aukaálag á
áhafnimar, sem eru störfum hlaðnar
við erfiðar aðstæður. Þó verður ekki
fullyrt um hvort lífskraftur sæðis-
fruma helst óbreyttur úti í geimnum
nema með beinni vettvangsrann-
sókn. Þá er ókannað hvernig van-
færri konu reiddi af í geimferð, þar
sem þyngdarleysið og meiri geisíun
gætu haft sín áhrif. Athuganir hafa
sýnt að kalkinnihald líkamans
minnkar í geimferðum og enginn
veit hvort barn, sem þar yrði getið og
„Gerðu þér glaðan dag og
klipptu út þúsundkallinn." Þess-
um tilmælum beindi sænska
vikuritið Gazette til lesenda sinna
fyrir skömmu.
Á einni af síðum tímaritsins var
prentaður sænskur þúsund króna
seðill, — 10 þúsund kr. ísl. —
sem minnst 300 lesenda þess fóru
síðan með út í búð og reyndu að
borið, mundi hafa eðlilegan beinvöxt
fyrir vikið. Geislun er sex sinnum
meiri en óhætt er talið að vanfær
kona verði fyrir. Wiley segir að það
geti hraðað æxlismyndunum og
hugsanlega valdið breytingum á egg-
og sæðisfrumum.
Áætlað er að geimstöðin Freedom
taki til starfa í geimnum árið 2000 og
verður fjölmenn áhöfn um borð. í
tengslum við það er tímaritið Ad
Astra, sem er alþýðlegt en þó fræði-
legt rit um geimferðir, farið að spá í
hvort sá tími komi að farið verði að
ala upp nýjan kynstofn í geimnum;
fólk sem standist geislun og þyngd-
arleysi betur en aðrir og taki sér
frambúðarbólstað á tunglinu og
Mars.
versla fyrir. Prentunin var góð á
þúsundkallinum og pappírsgæð-
in svipuð og á ekta seðlum, a.m.k.
nægilega góð til þess að um 100
manns hafi tekist að koma eftir-
prentuninni í verð.
Réttað var í máli þessu hið snar-
asta og tímaritið dæmt til þess að
greiða dágóða sekt fyrir peninga-
fölsun. —I.VJ. Svíþjóð.
Sænskt vikurit í vondum málum:
PRENTAÐI
ÞUSUNDKALL
Apotokarar hafa margar hugmyndir um þaö hvemig spara
lyfjadreifingunm þó einungis fáar sncrli þa sjálfa
VK>l>kanf«L*4 ItUndt S*f»r t«nl h><lk-
„Gott er vín á kvöidin, gefur það
þrek. Góður finnst mér sopinn úr
apótek", er sagt að drykkjumaður-
inn hafi sagt þegar hann var að
reyna að kría út kogara í apóteldnu
á bannárunum á sínum tíma. Það
verður að teijast sorglegt ef Sig-
bvatur Björgvinsson heilbrigðis-
ráðherra er orðinn svo illa haldinn
af vinsældateysi að honum finnist
gott hólið sem hann fær úr apótek-
unum um þcssar munir, þó ýmis-
legt bendi raunar til að honum þyki
það ekki alvont Apótekarar bafa í
heilli skýrslu smjaðrað fyrir hefi-
brigðisrúðherra með því að hæla
sérstaklega aðgerðunum hans frá
því í fyrra sumar, þegar hann með
sérstökum lyfjaskatti náði í mörg
hundruð mifijónir króna frá al-
menningi með því að Íáta menn
borga fyrir lyfin sem þeir þurftu
gegn vefidndum sínum. „Það geta
ekki aUbr fengið allt fyrir ekkert,“ er
slagorð kratanna um þessar mund-
ir, þegar velferðarkerfið ber á góma
Og aukna þátttoku almennings í
kostnaði við ýmsa opinbera þjón-
ustu. Þessir sömu kratar hika hins
vegar ekki við að nota glefsur úr
skýrslu apótekaranna í áróðurs-
slómi og því er ekki að undra að þær
glefsur, sem kratamir sem nú
stjóma í hcilbrigöisráöuneyíinu
vitna í, snúast nær allar um að apó-
tekaramhr hafi nú ioks viðurkennt
hvað Sighvatur sé sqjall að spara í
lyfjum. Ekkert hefúr sést í fjölmiðl-
um um þessa skýrslu apótekara,
nema hvað Tírninn birti upp úr
henni frétt um sfðustu helgi.
Allir að spara —
nemavið
Það var sérlega fróöleg Íesn-
ing, því sparnaðartillögur apó-
tekaranna ganga meira og
minna út á að þeir fái allt fyrir
ekkert. Ósvífni þeirra jaðrar við
að vera eins-
dæmi, því til-
lögur þeirra til
sparnaðar í
lyfjadreifingar-
kerfinu snúast
fyrst og frem8t
um sparnað hjá einhverjum öðr-
um en þeim sjálfum. Þannig
vilja þeir endilega að lyfjaheild-
salarnir nái fram sparnaði að
sjúkiingarnir borgi meira með
því að borga ákveöiö hlutfall af
kostnaðinum við lyflð, að nýt-
ing lyfja batni og að fólk borði
minna af þeim. Allt er þetta gott
og blessað, en hlutur apótekar-
anna sjálfra er öllu rýrari, því
MiUill
það, sem þeir segjast geta gert,
er háð því að þeim séu tryggðar
auknar tekjur á mótl. Þannig
tala þeir um að hugsanlegt sé að
lækka smásölu-
áiagningu, ef
þeir fá einkarétt
á að afgreiða
dýralyf og að
ýmsir aðilar,
s.s. minnl
sjúkrastofnanir, sem sjálflr hafa
séð um sfn lyfjakaup, verði
skyldaðir til að kaupa í gegnum
apótek. HVað varðar álagning-
una hjá stærri apótekum, þá er
hún ekki framkvæmanleg vegtta
þess að hinn snjalii Sighvatur
er búinn að draga svo mlkið úr
tekjum apóteka að þau riða ekki
við að iækka áiagninguna hjá
sér.
Samdráttur upp á
15% aukningu
Þetta verður hálf hjákátleg rök-
semd bjá apótekurunum, í ljós)
nýjustu uppiýsinga um „sam-
dráttinn" í lyfjasölu í janúar sl.,
sem er um 15% meiri en á sama
tíma í fyrra. Þegar upp er staðið er
það niðurstaða apótekaranna aö
það eina, sem hægt sé að gera í
sparnaðarskyni í apótekum til að
réttlæta lægri álagningu, sé að
hagræða í rekstrinum. Þá eru þeir
ekki að tala um byitíngarkenndar
breytingar eins og að hætta að
eiga og reka húsnæði, sem þeir
láta iæknum endurgjaldsiaust eða
endurgjaldslítíð í té. Þeir tala um
að hugsaniega væri hægt að tölvu-
væða birgðahaldið og hagræða
eitthvað í starfsmannahaidi.
Þó þessi skýrsla apótekaranna sé
f rauninni lítíð annað en örvænt-
ingarfuil málsvöra forréttínda-
stéttar fyrir áframhaldandi for-
réttindum, hefur ektó staðiö á
hefibrigðisráðherra að vitna til
þeirra kafia hennar sem henta pól-
itískum hagsmunum hans. Raun-
ar hefur ráðherrann Íýst jrví yfir
að hann muni auka lyfiaskattinn
tfi muna, og m.a. beita til þess
þeim meðulum sem apótekaramir
hafa ráðlagt honum: hiutfafis-
greiðslum. Fróðlegt verður að sjá
hvort ráðherrann lætur smjaðrið í
apótekurunum hafa áhrif á fleiri
ákvarðanir í heilbrigöismáhim.
Það vcrður hins vegar að teljast
fila komiö, ef ráðherra, sem kenn-
ir sig við jafnaöarstefnu, verður
lflct og drykkjumaóurinn á bann-
árunum, að leita sér pólitískrar
huggunar f apótekum.
Garri
YEREVAN
Vamarmálaráðherra Armeníu
sakar Azera um að hafa skotið
niður armenska þyrlu og drepið
með því minnst 14 manns sem
um borð voru. Hann sagði að
árásin á þyrluna verði sem olía
á eld deilna þjóðanna. Ráðherr-
ann segir að hersveitir Azera
hafi skotið á þyrluna, sem var
af gerðinni Mi-26, með eld-
flaugum. Samtímis hafi her-
þyrla Azera gert árás á arm-
ensku þyrluna úr lofti. I Briíssel
í gær lýstu samtökin Læknar án
landamæra því yfir að um 35
þúsund Azerar væru nú á flótta
undan hersveitum Armena frá
borginni Agdam, sem er rétt ut-
an hins umdeilda Nagorno-Kar-
abakh-héraðs, í átt til Bakú,
höfuðborgar Azerbajdsjan.
SARAJEVO
Sveitir lögreglu og hers Júgó-
slavíu halda nú uppi lögum og
reglu í Sarajevo. Vopnaðar
sveitir Serba og múslima hafa
nú fjarlægt vegartáimana, sem
þeir komu upp í byrjun vikunnar
í borginni.
LONDON
Bresk stjórnvöld segja að niður-
staða skýrslu S.Þ. sé sú að
Líbýumenn hafi gersamlega
hundsað kröfur um framsal
tveggja manna, sem grunaðir
eru um að hafa grandað tveim
farþegaflugvélum með því að
koma fyrir sprengjum í þeim.
Bandarísk og frönsk stjómvöld
íhugi nú nýjar aðgerðir gegn
Líbýu.
KOXLU, Tyrklandi
78 menn eru látnir og 461 er
saknað í námuslysi í Tyrklandi.
Náman er I Inchirharmani I
Norðvestur-Tyrklandi, og slysið
varð með þeim hætti að
metangassprenging varð í
henni. Búið er að loka göngum
I námunni þar sem gasmengun
er og hætta á nýjum sprenging-
um. Menn, sem þar kunna að
vera inni, eru taldir af. Þetta er
talið annað mesta námuslys
veraldar.
WASHINGTON
Pat Buchanan dró verulega á
George Bush, en sigraði hann
þó ekki í forkosningum repú-
blíkana í þrem ríkjum BNA. Bu-
chanan hefur nú lýst því yfir að
hann sé líklegur til að komast á
spjöld sögunnar og verða út-
nefndur forsetaefni flokksins.
ALSÍR
Dómstóll í Alsír hefur fyrirskip-
að að leysa skuli upp Islamska
frelsunarflokkinn, flokk hreintrú-
aðra múslima. Úrskurðurinn er
kveðinn upp 10 vikum eftir að
komið var í veg fyrir næsta ör-
uggan sigur flokksins í þing-
kosningum.
NAIROBI
Kynð ríkti í gær í Mogadishu,
höfuðborg Sómalíu, eftir að
tveir herstjórar undinituðu
vopnahléssamkomulag fyrir
milligöngu S.Þ.
MOSKVA
Rússneskir embættismenn,
sem hafa eftirlit með kjamorku-
verum í ríkinu, segjast vera að
setja strangari öryggisreglur til
þess að koma í veg fyrir slys af
því tagi, sem varð I Chemobyl.
Þeir segjast hins vegar ekki
hafa umboð til slíks í öðrum
ríkjum fyrrv. Sovétríkja.