Tíminn - 05.03.1992, Blaðsíða 9

Tíminn - 05.03.1992, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 5. mars 1992 Tíminn 9 Mesta afrek Jimmys Stewart er hamingjusamt hjónaband í 43 ár! Jimmy Stewart er orðinn 83 ára og segir skýringuna á því hvað hann er unglegur vera þá að hamingjan hafi brosað við honum allt hans líf. Á leikaraferlinum lék hann í 70 myndum, en hápunkturinn var þeg- ar honum voru veitt sérstök Óskars- verðlaun fyrir framlag sitt til kvik- myndanna í 50 ár. Þá voru honum veitt Óskarsverðlaunin 1940 fyrir bestan leik í „The Philadelphia Story“. En Jimmy hefur líka verið heiðraður á fleiri sviðum: hlotið heiðursmerki fyrir vasklega fram- göngu sína sem foringi í bandaríska flughemum í síðari heimsstyrjöld og árið 1985 veitti góðvinur hans, Ronald Reagan þáverandi Banda- ríkjaforseti, honum hina forsetalegu frelsisorðu. Jimmy Stewart er álit- inn mest orðum prýddi leikarinn og óbreytti borgarinn í Bandaríkjun- um. Þetta prjál allt finnst þó Jimmy lít- ilvægt miðað við þá gæfu hans að hafa lifað í alsælu hjónabandi með Gloriu sinni í 43 ár. Hann var orðinn 41 árs þegar þau giftust 1949, en hann segir hana vera einu og stóm ástina í lífi sínu. Hann tók þá ákvörð- un að verða leikari 1932 og þá, á krepputímum, beið hans mikil vinna að koma fótunum undir sig. Síðan var hann kallaður í herinn níu mánuðum eftir að Japanir réðust á Pearl Harbor í desember 1941, og þar var hann í fimm ár. Þegar heim kom var hann atvinnulaus. Hann Gloria og Jimmy Stewart giftu sig 1949 og fóru t brúökaupsferð til Hawaii. Roseanne lætur merkja sig manninum sínum! 1992. Gloria og Jimmy Stewart hafa aldrei verið aðskilin öll þessi ár, og hamingjan hefur verið þeim stöð- ugur fylginautur. hafði þess vegna um nóg annað að hugsa en hjónaband. Enda tókst vel til, þegar hann lét loks til skarar skríða. Þau hjón eiga son og tvíburadætur og dætumar virðast hafa erft áhuga móður sinnar á dýravemd, en því áhugamáli hefur Gloria sinnt lengi og vel. Hún situr í stjóm „African Wildlife Fund“, sem, eins og nafnið gefur til kynna, beitir sér fyrir því að vemda líf villtra dýra í Afríku. Þar beinist áhugi hennar aðallega að vemdun fíia. Hún stofnaði líka dýra- garðinn í Los Angeles fyrir 25 ámm. Dætumar hafa báðar lokið námi í dýrafræði við Cambridgeháskóla og önnur þeirra dvaldist ásamt manni sínum í fimm ár í Rúanda í rann- sóknarleiðangri Diane Fossey. Öll sú velgengni, sem Jimmy virð- ist hafa notið í lífinu, hefur síður en svo stigið honum til höfuðs. Hann segir gildismat sitt vera að á hveij- um degi skuli maður vera heill í því sem maður gerir og vinna vel að hverju sem maður gengur, hvort það er starfið, ást til fjölskyldunnar, samfélagsins, föðurlandsins eða guðs. Tom Arnold horfir aðdáunarfullur á skreytinguna á baki konu sinnar. Húðflúr alls konar er í mikilli tísku í henni Ameríku um þessar mund- ir. Það var því ekki við því að búast að Roseanne Barr tæki ekki þátt í leiknum, hún lætur ekkert tæki- færi ónotað til að láta taka eftir sér. En húðflúrið hennar Roseanne er kannski ekki í alveg hversdagsleg- um stíl. Hún lét nefnilega gera nafn manns síns, umvafið rósa- skreytingu á herðablað sitt. Sem náttúrlega þýðir að hún getur ekki sjálf virt fyrir sér dýrðina nema í spegli! Annars höfum við það fyrir satt að Roseanne hafi gert manni sínum það til geðs að taka upp síðara nafn hans, Arnold, í stað Barr-nafnsins. í staðinn varð hann að gangast undir það að taka hennar trú, gyð- ingatrú. Svo að nú ku Roseanne heita Roseanne Arnold.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.