Tíminn - 12.03.1992, Qupperneq 3
Fimmtudagur 12. mars 1992
Tíminn 3
Húsbréfakerfið opnað fyrir þeim sem ‘86 kerfið skellti á nefið á:
Húsbréfalán til fólks
af gamla biðlistanum
Félagsmálaráðuneytið hefur ákveðið að þeim sem „brunnu inni“
í ‘86 lánakerfinu verði veitt lánafyrirgreiðala í húsbréfakerfínu.
Þarna er um að ræða hóp fólks sem fengið hafði lánsrétt en beið
eftir iánsloforði þegar ‘86 kerfínu var lokað, en hafði þá keypt sér
íbúðir eða lagt í íbúðarbyggingu í von um lánsloforð þótt síðar
væri.
Að sögn Braga Guðbrandssonar, að-
stoðarmanns félagsmálaráðherra, er
ráðuneytið nú að undirbúa reglu-
gerð um það hvemig að þessu skuli
staðið, m.a. með það í huga að kom-
ið verði í veg fyrir snögga aukningu á
húsbréfoútgáfu, sem mundi auka
hættu á hækkun affalla af bréfunum.
Tálið er að með þessu muni á milli
200 og 300 manns öðlast og nýta sér
rétt til húsbréfalána út á íbúðir sem
þeir keyptu áður en lokun gamla
kerfisins var endanlega ákveðin. Að
sögn Braga reyndi Húsnæðisstofnun
að kanna hvað þama væri um stóran
hóp að ræða með því að senda út bréf
í desember til þeirra sem fengið
höfðu lánsrétt en ekki lánsloforð
þegar kerfinu var lokað. Niðurstaðan
hafi orðið sú, að vel á þriðja hundrað
manns lýstu áhuga á að nota sér rétt
til húsbréfafyrirgreiðslu.
Raunar var þessum hópi á sínum
tíma gefinn kostur á að ganga inn í
húsbréfakerfið, en þá í síðasta lagi
fyrir 15. maí 1991. En bæði var að þá
hafði ákvörðun um lokun ‘86 kerfis-
ins ekki endanlega verið ákveðin,
auk þess sem lok umsóknarfrestsins
virðast hafa farið fram hjá mörgum.
Bragi sagði þetta tvennt hafa orðið til
þess að hópur fólks sem ekki not-
feerði sér þessa möguleika á sínum
tíma, hafi farið að þrýsta á um hús-
bréfafyrirgreiðslu eftir því sem leið á
árið. Ráðuneytið hafi því ákveðið að
veita þessum hópi lánsrétt í hús-
bréfakerfinu. - HEI
Afleiðingar brunans í spenni-
stöð á Vatnsendahæð:
Sendingar
falla niður í vik-
ur eða mánuði
Eins og kunnugt er brann spenni-
stöð í tengihúsi við langbylgju-
loftnetið á Vatnsendahæð til
kaldra kola síðastliðinn sunnu-
dag. í brunanum eyðilagðist allur
aðlögunarbúnaður fyrir lang-
bylgjuloftnetið og óvíst er hversu
langan tíma tekur að fá slíkan
búnað, sem yrði annaðhvort feng-
in erlendis frá eða hann smíðaður
hérlendis. Það er því ljóst að lang-
bylgjusendingar liggja niðri ein-
hvern tíma, vikur eða mánuði. Á
meðan sendingarnar liggja niðri
er dagskrá rásar 1 send út á stutt-
bylgju allan sólarhringinn á 3295
kflóriðum, þ.e.a.s. 91 metra
bylgiulengd. -PS
Arni er ið
inn
spyrja
Ámi M. Mathiesen alþingis-
maður (SjfL) hefur lagt fram
fyrirspumir til aflra ráðherra
rfldsstjómarinnar tim auglýs-
inga- og kynningarkostnað
ráðuneytanna á árinu 1990 og
fyrstu fjóra mánuði ársins
1991. Guðrún Helgadóttir al-
þmgismaður (Alb.) hefur einn-
ig lagt fram fyrirspurnir til ráð-
herra Alþýðuflokksins um aug-
íýsingar þeirra í Alþýðublaðinu
frá 1. mai 1991 til 1. mars
1992.
Rekja má þessar fyrirspumhr
tfl fyrirspumar Áma M. Mathíe-
sen um auglýsinga- og kynning-
arkostnað fjármálaráðuneytis-
ins í ráðherrafa'ð Ólafs Ragnars
Grímssonar. Þær uppiýsingar
sem þar komu fram urðu tilefni
tii harðrar gagnrýni á Ólaf
Ragnar, en Ámi var einnig
gagnrýndur fyrir að efna til pól-
stískrar leiksýningar með fyrir-
spuminni.
Á mánudaginn lagði Guðrún
fram sínar fyrirspumir og dag-
inn cftir Iagði Árni fram sínar
fyrirspurair, en þær era á 12
þingskjölum. Ekki er leyfflegt
að spyrja fleiri en einn ráðherra
í einu og verður Ámi að leggja
fyrirspumir fyrír hvem og einn
ráðherra. -EÓ
Aðalfundur Félags eldri borgara ályktaði:
Oldrunardeild á Borgarspít
ala verði opnuð hið fyrsta
Félag eldri borgara í Reykjavík og
nágrenni hélt á dögunum aðal-
fund sinn og var hann að sögn
forráðamanna fjölsóttur. Fundur-
inn ályktaði um ýmis mál og þá
var kosinn nýr formaður félags-
ins, Kristján Benediktsson kenn-
ari, en hann tekur við af Berg-
steini Sigurðssyni, en hann hefúr
verið formaður síðustu árin.
Aðalfundurinn ályktaði um hjúkrun-
arvist þar sem segir að nú þegar bíði
um 300 Reykvíkingar eftir hjúkmnar-
vist og gerir félagið þá kröfu að Borg-
arspítalinn féi tafarlaust fé til að opna
öidrunardeildina sem var lokað í
hausL B-álman sem hýsir öldrunar-
deildina hafi verið að mestu byggð fyr-
ir fé úr framkvæmdasjóði aldraðra og
mótmælir Félag eldri borgara öllum
áformum um að taka hana undir aðra
starfsemi. Þá hafi alltaf verið gert ráð
fyrir að B- álman þjóni öldruðum og
því verði að gera kröfu til þess að hún
verði kláruð hið fyrsta.
Einnig voru á fundinum sam-
þykktar ályktanir þar sem
fundurinn fer þess á leit að lyf sem
aldraðir þurfi oft að nota sam-
kvæmt læknisráði, svo sem melt-
ingarlyf og svefnlyf verði niður-
Kristján Benediktsson, nýkjör-
inn formaöur Félags eldri borg-
ara.
greidd á ný. Þá varar félagið við öll-
um hugmyndum um að ýta rosknu
fólki út af vinnumarkaðnum og
benda þá á skerðingu vegna tekju-
tengingar ellilauna.
Félagar í Félagi eldri borgara eru
nú um 6.500 talsins. Eins og áður
sagði var á aðalfundinum kosin ný
stjórn í félaginu og var formaður
Leiðbeinendur sinna 1/3
starfa í framhaldsskólum
Um 1/3 þeirra sem kenna í framhaldsskólum hafa ekki til þess full
réttindi. Kennurum með full réttindi hefur þó heldur fjölgað frá því
á síðasta skólaári. Hlutfall réttindalausra er um 70% á Austurlandi
og Vestfjörðum og 63% á Norðurlandi vestra. Þessar upplýsingar
koma fram í svari frá menntamálaráðherra við fyrirspum frá Krist-
ínu Einarsdóttur alþingismanni.
A þessu skólaári eru stöðugildi
kennara á framhaldsskólastigi
rúmlega 1.400. Inn í þeirri tölu
eru ekki kennarar við tónlistar-
skóla eða skóla sem tilheyra heil-
brigðis- og landbúnaðarráðuneyt-
inu. 66% kennara hafa full rétt-
indi, en 33% hafa aðeins rétt til að
kalla sig leiðbeinendur. Kennarar
eru 756, en leiðbeinendur 593 þar
af 203 í minna en 3Q% starfi.
{ Reykjavík eru 25% kennslunnar
unnin af leiðbeinendum. Þetta
hlutfall er 31% á Reykjanesi, 45%
á Vesturlandi, 68% á Vestfjörðum,
63% á Norðurlandi vestra, 48% á
Norðurlandi eystra, 72% á Austur-
landi og 41% á Suðurlandi.
Á síðasta ári sinntu kennarar með
full réttindi 63,6% af allri kennslu
í framhaldsskólunum. Á þessu
skólaári er þetta hlutfall komið í
66,4%. -EÓ
Hryssa tapaðist
Hryssa tapaðist frá Skarði í Landsveit. Hún er dumbrauð og
stjörnótt. Mark líklega oddfjaðrað aftan hægra.
Upplýsingar gefa Guðni Kristinsson hreppstjóri í Skarði.
S: 98-76580 og Guðlaugur Tryggvi Karlsson í Reykjavík.
kosinn Kristján Benediktsson Kristín Jónasdóttir ritari og Þor-
kennari. Aðrir í stjórn félagsins eru steinn Ólafsson gjaldkeri.
Pétur Hannesson varaformaður, - PS
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Olíufélagsins hf.
verður haldinn föstudaginn 27. mars 1992
á Hótel Sögu, Súlnasal,
og hefst fundurinn kl. 13.30.
DAGSKRÁ
i.
Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3.
Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og
reikningar félagsins munu liggja frammi á
aðalskrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis,
viku fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og fundargögn veröa
afhent á aöalskrifstofu félagsins
Suðurlandsbraut 18, 3. hæð,
frá og með 23. mars, fram að
hádegi fundardags.
Stjórn Olíufélagsins hf.