Tíminn - 12.03.1992, Síða 5
Fimmtudagur 12. mars 1992
Tíminn 5
Auðlindir íslands eru takmarkaðar. Það er svo stutt síðan við íslending-
ar helguðum okkur fiskislóðir, sem um aldir voru nýttar af skipum
þeirra ríkja sem nú mynda Efrópsku samfélögin (ES), að það er sem
andartak í aldanna rás. Meginviðfangsefnið í utanríkismálum hlýtur að
vera að tryggja það, að íslendingar einir njóti arðs af þessari nýheimtu
auðlind m.a. með greiðrí afurðasölu til þeirra ríkja sem um langan ald-
ur sóttu fisk á íslandsmið. Nýsett lög sem takmarka rétt útlendinga til
atvinnurekstrar hér á landi taka mið af þessu en sala á íslenzkum sjáv-
arafurðum hefur um nokkurt skeið verið að mestu leyti tollfrjáls til
þeirra ríkja sem standa að EES-samningnum og ekki stendur til að
breyta því.
í samningum um Efrópskt efna-
hagssvæði (EES) kom fram, að ES-
ríkin leita bragða til að nýta þær
fiskislóðir sem íslendingar hafa
nýlega helgað sér. Sjávarútvegs-
ráðherra lýsti því yfír síðastliðið
sumar að ekki kæmi til greina, að
ES-skip fengju að veiða í íslenzkri
landhelgi. Engu að síður var samið
um það. Meðan íslendingar lutu
samningi dana við englendinga
um þriggja mfína fiskveiðiland-
helgi settu þeir lög, sem bönnuðu
erlendum fiskiskipum að athafna
sig í höfnum landsins, í þeim til-
gangi að sjálfsögðu að veiðar
þeirra hér við land yrðu óhag-
kvæmari og drægi úr sókn þeirra
hingað. í EES-samningnum eru
ákvæði sem heimila fiskiskipum
ES-ríkja að athafna sig í íslenskum
höfnum, þ.á m. dönskum skipum,
en einnig norskum skipum, þar
sem Noregur er aðili að samningn-
um, þótt landið sé utan ES.
Það hefur verið eignað spánverj-
um að ES sótti það svo fast að skip
þeirra fengju að komast inn í fisk-
veiðilandhelgi íslands, að sjávarút-
vegsráðherra beygði sig, og að
fiskiskip ES-ríkja fengju að at-
hafna sig í höfnum landsins. Minnt
hefur verið á, að sókn spánverja í
íslenska landhelgi sé í samræmi
við ævaforna reglu við Miðjarðar-
haf um að fiskislóðir væru al-
menningur. Þessi regla Rómarrétt-
ar var í þágu herveldis gegn hags-
munum varnarlausra strand-
byggja. Hún náði fyrst að móta rétt
hér á norðurslóðum um árið 1500
eða 1000 árum eftir fall vestróm-
verska ríkisins. Það var hins vegar
forn norrænn réttur, að útgerð var
takmörkuð handa þeim byggðar-
lögum sem næst lágu. Það má
segja, að íslendingar hafi með ár-
angri sínum í landhelgismálum
endurvakið forna norræna réttar-
reglu með þeirri breytingu, að rík-
ið kemur í stað byggðarlaganna.
Þannig má líta til fortíðarinnar til
að skoða átök um sjávarútvegs-
hagsmuni nú á tímum. Þó skiptir
hér meira máli, að það er gegn eig-
inlegu eðli EES-samningsins að
halda utan við meginreglur hans
þátttöku í einni atvinnugrein eins
ríkis, þar sem það er eitt meginat-
riði samningsins að fyrirtæki að-
ildarríkjanna hafi rétt til að starfa
hvar sem er á svæðinu. Það er
óeðlilegt, að ríki sem ætlar að
halda fyrir þegna sína eina réttind-
um til að stunda meginatvinnu-
grein landsins, standi að slíkum
samningi. Það er eins og það koma
þar að sem þrír menn sitja og ætla
að spila bridds og bjóðast til að
vera með, með því skilyrði að fá að
spila vist, þótt hinir spili bridds.
Það hlýtur að leiða til þess að fjórði
maður fari fljótt að spila bridds.
Það var reyndar yfirlýstur tilgang-
Þanttig má lita til fortíð-
arinnar til að skoða átök
um sjávarútvegshagsmuni
nú á tímum. Þó skiptir hér
meira máti, að það er
gegn eiginlegu eðti EES-
samningsins að halda
utan við meginreglur hans
þátttðku i einni atvinnu-
grein eins rikis,þar sem
það er eitt meginatriði
samningsins að fyrirtœki
aðiidarríkjanna hafi rétt
til að starfa hvar sem er á
svœðinu. Það er óeðtilegt,
að ríki sem œtlar að halda
fyrir þegna sina eina
réttindum til að stunda
meginatvinnugrein
landsins, standi að slikum
samningi.
ur fremsta fulltrúa íslands, áður
en hann varð forsætisráðherra, að
ísland verði aðili að ES um alda-
mótin. Spurður (í Útvarpinu) á
þingi Norðurlandaráðs í Helsing-
fors um daginn kannaðist hann við
þetta og gerði engan fyrirvara við
það. Þeir sem hinu megin sitja
EES-samn-
ingurinn I
hljóta að vita um þetta markmið
hans og geta því vel sætt sig við að
hann segist ætla að spila vist fyrst
um sinn, þótt aðrir spili bridds.
Það voru ýmsir sem efuðust um
það í upphafi EES-samninga, að
takast mætti að tryggja það, að
fiskislóð við ísland yrði óskert auð-
lind íslendinga. Menn geta spurt
hvers vegna ekki tókst að standa
við heitstrengingu sjávarútvegs-
ráðherra. Athugum að þær 3.000
lestir af karfa sem samningurinn
heimilar ES-skipum að veiða hér
við land eru aðeins 0,04% af öllum
sjávarafla ES-ríkja. Enda þótt
spánverjum sé eignuð krafan um
fiskveiðar í íslenzkri landhelgi,
hafa þjóðverjar átt langmest af
karfaafla þeirra. Hvers vegna gerðu
ES-ríkin svona litla stundarhags-
muni þjóðverja að skilyrði eftir að
sjávarútvegsráðherra hafði sett
fram andstætt skilyrði fýrir aðild
að EES? Samningarnir hljóta að
sanna öðrum en þeim sem höfðu
það að markmiði að gera ísland að-
ila að EES hvað sem það kostaði,
að upphafleg tortryggni var rétt-
mæt.
Hinu megin við
samningaborðið
Aðstoðarmaður utanríkisráð-
herra, Þröstur Ólafsson (ÞÓ), á
langt mál um stöðu íslendinga í
heiminum í greinaflokki í Tíman-
um 21., 25. og 27. febrúar („Full-
veldi í framandi heimi“). Þar fjallar
hann um margt, en ekki um það
viðfangsefni sem að framan grein-
ir, að sjá því borgið, að íslendingar
megi njóta viðskipta sem víðast,
svo að engir komist í sterka að-
stöðu til að knýja íslendinga til að
skerða þá auðlind sem þeir hafa
nýlega áunnið sér.
Hvers vegna er þetta mikilvæg-
asta viðfangsefni utanríkismál-
anna ekki með í svo löngu máli
hans? Ég hygg, að það stafi af því
að forysta íslendinga og ES-ríkj-
anna í EES- samningum er í al-
þjóðlegu fóstbræðralagi jafnaðar-
manna og það er gegn hugsjón
þeirra að halda fram sérstökum
rétti, eins og íslendingar hafa
áunnið sér með landhelginni, gegn
Björn S. Stefánsson.
almennum rétti til fiskveiða óháð
búsetu.
Það hefur alltaf reynst svo, þegar
íslendingar hafa viljað treysta sér-
stakan rétt sinn hér á landi eða við
landið, að íslenskir jafnaðarmenn
hafa beitt sér gegn því eða dregist
með áhugalausir. Þannig var það
Það myndust annurs
konar fóstbrœðralag yftr
landamœrin i þessum
málum. Embœttismenn
rikjanna hittast oft og
bera saman bœkur sínar.
Samrœming er æðsta boð-
orð slíkra manna. Þeir
mœla afköst sin iþeirri
list að gera allar reglur
eins. A fundum þeirra
innræta hinir stóru og
sterku (ES-mennirnir)
hinum gildi sín. Sérstakur
réttur íslendinga til að
ráða því hyerjir stunda at-
vinnu á íslandi, í sjávar-
útvegi eða orkufram-
leiðslu eða hverju öðru, er
andstœður megingildi
slíks fóstbrœðralags.
við sambandssamninginn við dani
1918. Samkvæmt honum höfðu
danir rétt til atvinnurekstrar hér á
landi. Þeir voru til sem óttuðust
það ákvæði. Tveir þingmenn,
Benedikt Sveinsson og Magnús
Torfason, létu það ráða afstöðu
sinni og greiddu atkvæði gegn
samningnum. Á þessum árum var
sjávarútvegur dana ekki til þess
búinn að sækja á íslandsmið, en
færeyingar notfærðu sér þennan
rétt danskra þegna og athöfnuðu
sig hér á landi.
Þegar síðan kom að því að segja
upp sambandinu við dani á um-
sömdum tíma, reyndu íslenzkir
jafnaðarmenn að tefja fyrir. Loks
var það í landheigismálunum eftir
stríð, að íslenzkir jafnaðarmenn
ýmist löttu þá sem voru sókndjarf-
ir eða fylgdu með án hvatningar.
Þótt það sé kjarni EES- samn-
ingsins að koma á jöfnum rétti fyr-
irtækja til atvinnurekstrar hvar
sem er á svæðinu og það sé því
gegn eðli hans að undanskilja sjáv-
arútveg við ísland, eru menn mis-
jafnlega áhugasamir og misjafn-
lega hæfir til að vinna að málinu.
Jafnaðarmannaflokkar álfunnar
eru vegna hugsjónar og fóst-
bræðralags hæfastir til að beita sér
í því, enda var það svo að það voru
jafnaðarmennirnir Jacques Delors
frá ES og Gro Harlem Brundtland
frá Fríverzlunarbandalagi Efrópu
sem áttu upptökin að EES-málinu.
í fiskveiðimálum hafa það verið
spánverjar undir forystu jafnaðar-
manna sem hafa beitt sér til að
gera landhelgismál íslendinga að
samningsatriði í stað þess að halda
því alveg utan við, eins og sjávarút-
vegsráðherra vildi. Það hlýtur að
hafa verið heppilegt fyrir þessa
menn, að íslenzkir fóstbræður
þeirra sáu um málið fyrir íslands
hönd. Þeim er eðlilegt vegna hug-
sjónar að skilja málið eins og þeir
sitji hinu megin við borðið. Þess
vegna var ekki að undra, að skil-
yrði sjávarútvegsráðherra um
óskerta landhelgi var hunzað.
Það myndast annars konar fóst-
bræðralag yfir landamærin í þess-
um málum. Embættismenn ríkj-
anna hittast oft og bera saman
bækur sínar. Samræming er æðsta
boðorð slíkra manna. Þeir mæla
afköst sín í þeirri list að gera allar
reglur eins. Á fundum þeirra inn-
ræta hinir stóru og sterku (ES-
mennirnir) hinum gildi sín. Sér-
stakur réttur íslendinga til að ráða
því hverjir stunda atvinnu á ís-
landi, í sjávarútvegi eða orkufram-
leiðslu eða hverju öðru, er and-
stæður megingildi slíks fóst-
bræðralags. Með því að gera sjáv-
arútvegsmál að samningsatriði er
fjöregg þjóðarinnar sett í hendur
manna sem eru undir sterkum
áhrifum starfsnauta sinna hinu
megin við borðið.
Höfundur er hagfræðingur.
r
Fortíðarvandi Þrastar Olafssonar
Þröstur Ólafsson hefur, eins og
fleiri í hans sporum, átt í vanda síð-
an ríki austan tjalds, þeirra á meðal
Sovétlýðveldin, hrintu af sér
kommúnismanum. Það var fýrst og
fremst kerfi einræðis, kúgunar og
mannréttindabrota sem fólkið í
þessum löndum braust undan. Um
hitt eru ekki allir á einu máli, hvort
sósíalismi sé þar með úr sögunni.
Kommúnistar hérlendis virðast
hafa orðið hvumsa og týnt áttum.
Sumir hafa gerst frjálshyggju-
menn. Það er reyndar ekki óalgengt
fyrirbæri, þegar öfgamönnum snýst
hugar, að þeir hverfi á gagnstæðan
pól. Tveir þessara kommúnista,
Össur Skarphéðinsson og Þröstur
Ólafsson, gengu í Alþýðuflokkinn,
sem þá þegar hafði tekið sér pólit-
íska stöðu hægra megin við íháldið.
Sá, sem þetta ritar, hefur engan
þátt tekið í stjómmálaumræðunni,
en þó fýigst gerla með framvind-
unni síðustu áratugi. í grein Þrast-
ar Ólafssonar, sem birtist í Morgun-
blaðinu 7. mars, var að finna furðu-
legustu staðleysur og þversagnir.
Það er t.d. alrangt að alger þáttaskil
í hagstjóm hérlendis hafi orðið í
byrjun áttunda áratugarins. Þau
Lesendur
skrifa
urðu hins vegar í byrjun sjötta ára-
tugarins. Fram að þeim tíma var
eftir föngum gætt aðhalds í fjármál-
um, enda tókst að halda gengi ís-
lensku krónunnar stöðugu frá ár-
inu 1922, þegar það var fyrst skráð,
og allt fram til ársins 1950. Þá var
gengið stórlega lækkað að tillögu
þeirra Benjamíns Eiríkssonar og
Ólafs Bjömssonar (sem báðir vom
fyrrum kommúnistar eins og Þröst-
ur). Þetta var fyrsta skrefið til
markaðsfrelsis. Tilgangurinn var aö
draga úr eftirspurn innfluttra vara
og ná greiðslujöfnuði við útlönd án
hafta. Gengislækkuninni var fylgt
eftir með skerðingu launauppbóta
til að draga enn betur úr eftirspurn-
inni. Markmiði frjálshyggjunnar
var náð: Skorturinn gerður að
skömmtunarstjóra.
Áfram var haldið á sömu braut sjö-
unda áratuginn undir Viðreisn.
Losað var um höft á gjaldeyrisnotk-
un og verðlagi. Ekki verður lengur
komið tölu á allar gengisfellingam-
ar síðan. Gripið var til hávaxta á átt-
unda áratugnum til að styrkja enn
markaðsfrelsið. í byrjun níunda
áratugarins var verðtrygging fjár-
skuldbindinga tekin upp. Hún hafði
lengi verið hjartans mál Alþýðu-
flokksins, en Ólafur Thors kom í
veg fyrir hana í Viðreisn (1960-61).
Okurvextir í formi affalla, verðbóta-
Þröstur Ótafsson.
þáttar og raunvaxta herjuðu á bæði
fyrirtæki og heimili. Skuldaupp-
söfnunin varð með slíkum hraða að
hvert gjaldþrotið rak annað. Fram-
sóknarflokkurinn einn reyndi að
stöðva þennan hmnadans af völd-
um vaxtafrelsisins, en bankamála-
ráðherrann Jón Sigurðsson - - ein-
hver mesta óheillakráka íslenskra
stjómmála — kom í veg fyrir það
með aðstoð Seðlabankans í tveim
síðustu ríkisstjórnum (á undan
þeirri sem við tók sl. vor). Loks
núna, eftir árs þjóðarsátt, hafa augu
landsmanna opnast fyrir hættunni.
Samtæk bæði atvinnurekenda og
launþega setja vaxtalækkun á odd-
inn í kjarasamningunum.
Það er broslegt og um leið brjóst-
umkennanlegt, þegar Þröstur Ól-
afsson talar með vandlætingu um
„félagslegt réttlæti og þjóðemisleg-
an metnað". Ekki er langt síðan
kommúnistar gengu um götur org-
andi slagorð sín: „Öreigar allra
landa sameinist." Eða: „Burt með
herinn úr landi.“ Er unnt að taka
slíka umskiptinga alvarlega?
Samvinnumaður