Tíminn - 12.03.1992, Blaðsíða 5

Tíminn - 12.03.1992, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 12. mars 1992 Tíminn 5 Auðlindir íslands eru takmarkaðar. Það er svo stutt síðan við íslending- ar helguðum okkur fiskislóðir, sem um aldir voru nýttar af skipum þeirra ríkja sem nú mynda Efrópsku samfélögin (ES), að það er sem andartak í aldanna rás. Meginviðfangsefnið í utanríkismálum hlýtur að vera að tryggja það, að íslendingar einir njóti arðs af þessari nýheimtu auðlind m.a. með greiðrí afurðasölu til þeirra ríkja sem um langan ald- ur sóttu fisk á íslandsmið. Nýsett lög sem takmarka rétt útlendinga til atvinnurekstrar hér á landi taka mið af þessu en sala á íslenzkum sjáv- arafurðum hefur um nokkurt skeið verið að mestu leyti tollfrjáls til þeirra ríkja sem standa að EES-samningnum og ekki stendur til að breyta því. í samningum um Efrópskt efna- hagssvæði (EES) kom fram, að ES- ríkin leita bragða til að nýta þær fiskislóðir sem íslendingar hafa nýlega helgað sér. Sjávarútvegs- ráðherra lýsti því yfír síðastliðið sumar að ekki kæmi til greina, að ES-skip fengju að veiða í íslenzkri landhelgi. Engu að síður var samið um það. Meðan íslendingar lutu samningi dana við englendinga um þriggja mfína fiskveiðiland- helgi settu þeir lög, sem bönnuðu erlendum fiskiskipum að athafna sig í höfnum landsins, í þeim til- gangi að sjálfsögðu að veiðar þeirra hér við land yrðu óhag- kvæmari og drægi úr sókn þeirra hingað. í EES-samningnum eru ákvæði sem heimila fiskiskipum ES-ríkja að athafna sig í íslenskum höfnum, þ.á m. dönskum skipum, en einnig norskum skipum, þar sem Noregur er aðili að samningn- um, þótt landið sé utan ES. Það hefur verið eignað spánverj- um að ES sótti það svo fast að skip þeirra fengju að komast inn í fisk- veiðilandhelgi íslands, að sjávarút- vegsráðherra beygði sig, og að fiskiskip ES-ríkja fengju að at- hafna sig í höfnum landsins. Minnt hefur verið á, að sókn spánverja í íslenska landhelgi sé í samræmi við ævaforna reglu við Miðjarðar- haf um að fiskislóðir væru al- menningur. Þessi regla Rómarrétt- ar var í þágu herveldis gegn hags- munum varnarlausra strand- byggja. Hún náði fyrst að móta rétt hér á norðurslóðum um árið 1500 eða 1000 árum eftir fall vestróm- verska ríkisins. Það var hins vegar forn norrænn réttur, að útgerð var takmörkuð handa þeim byggðar- lögum sem næst lágu. Það má segja, að íslendingar hafi með ár- angri sínum í landhelgismálum endurvakið forna norræna réttar- reglu með þeirri breytingu, að rík- ið kemur í stað byggðarlaganna. Þannig má líta til fortíðarinnar til að skoða átök um sjávarútvegs- hagsmuni nú á tímum. Þó skiptir hér meira máli, að það er gegn eig- inlegu eðli EES-samningsins að halda utan við meginreglur hans þátttöku í einni atvinnugrein eins ríkis, þar sem það er eitt meginat- riði samningsins að fyrirtæki að- ildarríkjanna hafi rétt til að starfa hvar sem er á svæðinu. Það er óeðlilegt, að ríki sem ætlar að halda fyrir þegna sína eina réttind- um til að stunda meginatvinnu- grein landsins, standi að slíkum samningi. Það er eins og það koma þar að sem þrír menn sitja og ætla að spila bridds og bjóðast til að vera með, með því skilyrði að fá að spila vist, þótt hinir spili bridds. Það hlýtur að leiða til þess að fjórði maður fari fljótt að spila bridds. Það var reyndar yfirlýstur tilgang- Þanttig má lita til fortíð- arinnar til að skoða átök um sjávarútvegshagsmuni nú á tímum. Þó skiptir hér meira máti, að það er gegn eiginlegu eðti EES- samningsins að halda utan við meginreglur hans þátttðku i einni atvinnu- grein eins rikis,þar sem það er eitt meginatriði samningsins að fyrirtœki aðiidarríkjanna hafi rétt til að starfa hvar sem er á svœðinu. Það er óeðtilegt, að ríki sem œtlar að halda fyrir þegna sina eina réttindum til að stunda meginatvinnugrein landsins, standi að slikum samningi. ur fremsta fulltrúa íslands, áður en hann varð forsætisráðherra, að ísland verði aðili að ES um alda- mótin. Spurður (í Útvarpinu) á þingi Norðurlandaráðs í Helsing- fors um daginn kannaðist hann við þetta og gerði engan fyrirvara við það. Þeir sem hinu megin sitja EES-samn- ingurinn I hljóta að vita um þetta markmið hans og geta því vel sætt sig við að hann segist ætla að spila vist fyrst um sinn, þótt aðrir spili bridds. Það voru ýmsir sem efuðust um það í upphafi EES-samninga, að takast mætti að tryggja það, að fiskislóð við ísland yrði óskert auð- lind íslendinga. Menn geta spurt hvers vegna ekki tókst að standa við heitstrengingu sjávarútvegs- ráðherra. Athugum að þær 3.000 lestir af karfa sem samningurinn heimilar ES-skipum að veiða hér við land eru aðeins 0,04% af öllum sjávarafla ES-ríkja. Enda þótt spánverjum sé eignuð krafan um fiskveiðar í íslenzkri landhelgi, hafa þjóðverjar átt langmest af karfaafla þeirra. Hvers vegna gerðu ES-ríkin svona litla stundarhags- muni þjóðverja að skilyrði eftir að sjávarútvegsráðherra hafði sett fram andstætt skilyrði fýrir aðild að EES? Samningarnir hljóta að sanna öðrum en þeim sem höfðu það að markmiði að gera ísland að- ila að EES hvað sem það kostaði, að upphafleg tortryggni var rétt- mæt. Hinu megin við samningaborðið Aðstoðarmaður utanríkisráð- herra, Þröstur Ólafsson (ÞÓ), á langt mál um stöðu íslendinga í heiminum í greinaflokki í Tíman- um 21., 25. og 27. febrúar („Full- veldi í framandi heimi“). Þar fjallar hann um margt, en ekki um það viðfangsefni sem að framan grein- ir, að sjá því borgið, að íslendingar megi njóta viðskipta sem víðast, svo að engir komist í sterka að- stöðu til að knýja íslendinga til að skerða þá auðlind sem þeir hafa nýlega áunnið sér. Hvers vegna er þetta mikilvæg- asta viðfangsefni utanríkismál- anna ekki með í svo löngu máli hans? Ég hygg, að það stafi af því að forysta íslendinga og ES-ríkj- anna í EES- samningum er í al- þjóðlegu fóstbræðralagi jafnaðar- manna og það er gegn hugsjón þeirra að halda fram sérstökum rétti, eins og íslendingar hafa áunnið sér með landhelginni, gegn Björn S. Stefánsson. almennum rétti til fiskveiða óháð búsetu. Það hefur alltaf reynst svo, þegar íslendingar hafa viljað treysta sér- stakan rétt sinn hér á landi eða við landið, að íslenskir jafnaðarmenn hafa beitt sér gegn því eða dregist með áhugalausir. Þannig var það Það myndust annurs konar fóstbrœðralag yftr landamœrin i þessum málum. Embœttismenn rikjanna hittast oft og bera saman bœkur sínar. Samrœming er æðsta boð- orð slíkra manna. Þeir mœla afköst sin iþeirri list að gera allar reglur eins. A fundum þeirra innræta hinir stóru og sterku (ES-mennirnir) hinum gildi sín. Sérstakur réttur íslendinga til að ráða því hyerjir stunda at- vinnu á íslandi, í sjávar- útvegi eða orkufram- leiðslu eða hverju öðru, er andstœður megingildi slíks fóstbrœðralags. við sambandssamninginn við dani 1918. Samkvæmt honum höfðu danir rétt til atvinnurekstrar hér á landi. Þeir voru til sem óttuðust það ákvæði. Tveir þingmenn, Benedikt Sveinsson og Magnús Torfason, létu það ráða afstöðu sinni og greiddu atkvæði gegn samningnum. Á þessum árum var sjávarútvegur dana ekki til þess búinn að sækja á íslandsmið, en færeyingar notfærðu sér þennan rétt danskra þegna og athöfnuðu sig hér á landi. Þegar síðan kom að því að segja upp sambandinu við dani á um- sömdum tíma, reyndu íslenzkir jafnaðarmenn að tefja fyrir. Loks var það í landheigismálunum eftir stríð, að íslenzkir jafnaðarmenn ýmist löttu þá sem voru sókndjarf- ir eða fylgdu með án hvatningar. Þótt það sé kjarni EES- samn- ingsins að koma á jöfnum rétti fyr- irtækja til atvinnurekstrar hvar sem er á svæðinu og það sé því gegn eðli hans að undanskilja sjáv- arútveg við ísland, eru menn mis- jafnlega áhugasamir og misjafn- lega hæfir til að vinna að málinu. Jafnaðarmannaflokkar álfunnar eru vegna hugsjónar og fóst- bræðralags hæfastir til að beita sér í því, enda var það svo að það voru jafnaðarmennirnir Jacques Delors frá ES og Gro Harlem Brundtland frá Fríverzlunarbandalagi Efrópu sem áttu upptökin að EES-málinu. í fiskveiðimálum hafa það verið spánverjar undir forystu jafnaðar- manna sem hafa beitt sér til að gera landhelgismál íslendinga að samningsatriði í stað þess að halda því alveg utan við, eins og sjávarút- vegsráðherra vildi. Það hlýtur að hafa verið heppilegt fyrir þessa menn, að íslenzkir fóstbræður þeirra sáu um málið fyrir íslands hönd. Þeim er eðlilegt vegna hug- sjónar að skilja málið eins og þeir sitji hinu megin við borðið. Þess vegna var ekki að undra, að skil- yrði sjávarútvegsráðherra um óskerta landhelgi var hunzað. Það myndast annars konar fóst- bræðralag yfir landamærin í þess- um málum. Embættismenn ríkj- anna hittast oft og bera saman bækur sínar. Samræming er æðsta boðorð slíkra manna. Þeir mæla afköst sín í þeirri list að gera allar reglur eins. Á fundum þeirra inn- ræta hinir stóru og sterku (ES- mennirnir) hinum gildi sín. Sér- stakur réttur íslendinga til að ráða því hverjir stunda atvinnu á ís- landi, í sjávarútvegi eða orkufram- leiðslu eða hverju öðru, er and- stæður megingildi slíks fóst- bræðralags. Með því að gera sjáv- arútvegsmál að samningsatriði er fjöregg þjóðarinnar sett í hendur manna sem eru undir sterkum áhrifum starfsnauta sinna hinu megin við borðið. Höfundur er hagfræðingur. r Fortíðarvandi Þrastar Olafssonar Þröstur Ólafsson hefur, eins og fleiri í hans sporum, átt í vanda síð- an ríki austan tjalds, þeirra á meðal Sovétlýðveldin, hrintu af sér kommúnismanum. Það var fýrst og fremst kerfi einræðis, kúgunar og mannréttindabrota sem fólkið í þessum löndum braust undan. Um hitt eru ekki allir á einu máli, hvort sósíalismi sé þar með úr sögunni. Kommúnistar hérlendis virðast hafa orðið hvumsa og týnt áttum. Sumir hafa gerst frjálshyggju- menn. Það er reyndar ekki óalgengt fyrirbæri, þegar öfgamönnum snýst hugar, að þeir hverfi á gagnstæðan pól. Tveir þessara kommúnista, Össur Skarphéðinsson og Þröstur Ólafsson, gengu í Alþýðuflokkinn, sem þá þegar hafði tekið sér pólit- íska stöðu hægra megin við íháldið. Sá, sem þetta ritar, hefur engan þátt tekið í stjómmálaumræðunni, en þó fýigst gerla með framvind- unni síðustu áratugi. í grein Þrast- ar Ólafssonar, sem birtist í Morgun- blaðinu 7. mars, var að finna furðu- legustu staðleysur og þversagnir. Það er t.d. alrangt að alger þáttaskil í hagstjóm hérlendis hafi orðið í byrjun áttunda áratugarins. Þau Lesendur skrifa urðu hins vegar í byrjun sjötta ára- tugarins. Fram að þeim tíma var eftir föngum gætt aðhalds í fjármál- um, enda tókst að halda gengi ís- lensku krónunnar stöðugu frá ár- inu 1922, þegar það var fyrst skráð, og allt fram til ársins 1950. Þá var gengið stórlega lækkað að tillögu þeirra Benjamíns Eiríkssonar og Ólafs Bjömssonar (sem báðir vom fyrrum kommúnistar eins og Þröst- ur). Þetta var fyrsta skrefið til markaðsfrelsis. Tilgangurinn var aö draga úr eftirspurn innfluttra vara og ná greiðslujöfnuði við útlönd án hafta. Gengislækkuninni var fylgt eftir með skerðingu launauppbóta til að draga enn betur úr eftirspurn- inni. Markmiði frjálshyggjunnar var náð: Skorturinn gerður að skömmtunarstjóra. Áfram var haldið á sömu braut sjö- unda áratuginn undir Viðreisn. Losað var um höft á gjaldeyrisnotk- un og verðlagi. Ekki verður lengur komið tölu á allar gengisfellingam- ar síðan. Gripið var til hávaxta á átt- unda áratugnum til að styrkja enn markaðsfrelsið. í byrjun níunda áratugarins var verðtrygging fjár- skuldbindinga tekin upp. Hún hafði lengi verið hjartans mál Alþýðu- flokksins, en Ólafur Thors kom í veg fyrir hana í Viðreisn (1960-61). Okurvextir í formi affalla, verðbóta- Þröstur Ótafsson. þáttar og raunvaxta herjuðu á bæði fyrirtæki og heimili. Skuldaupp- söfnunin varð með slíkum hraða að hvert gjaldþrotið rak annað. Fram- sóknarflokkurinn einn reyndi að stöðva þennan hmnadans af völd- um vaxtafrelsisins, en bankamála- ráðherrann Jón Sigurðsson - - ein- hver mesta óheillakráka íslenskra stjómmála — kom í veg fyrir það með aðstoð Seðlabankans í tveim síðustu ríkisstjórnum (á undan þeirri sem við tók sl. vor). Loks núna, eftir árs þjóðarsátt, hafa augu landsmanna opnast fyrir hættunni. Samtæk bæði atvinnurekenda og launþega setja vaxtalækkun á odd- inn í kjarasamningunum. Það er broslegt og um leið brjóst- umkennanlegt, þegar Þröstur Ól- afsson talar með vandlætingu um „félagslegt réttlæti og þjóðemisleg- an metnað". Ekki er langt síðan kommúnistar gengu um götur org- andi slagorð sín: „Öreigar allra landa sameinist." Eða: „Burt með herinn úr landi.“ Er unnt að taka slíka umskiptinga alvarlega? Samvinnumaður

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.