Tíminn - 12.03.1992, Síða 9
Fimmtudagur 12. mars 1992
Tíminn 9
Bo
Derek í
súkku-
laði!
Nú er orðiö langt um liðið síðan
við heyrðum af Bo Derek en
kannski muna einhverjir enn eftir
því þegar hún lék í myndinni 10 og
þótti þá ímynd hins fullkomna
kvenlíkama enda var maður henn-
ar, leikstjórinn John Derek,
óþreytandi við að auglýsa ágæti
konu sinnar.
Nú er Bo tekin til við kvikmynda-
leikinn á ný, og kannski hefur hún
aldrei hætt. Um þessar mundir
Ieikur hún á móti Robert Hays í
myndinni Súkkulaði, sem fjallar
um ungan milljarðamæring sem
vill kaupa súkkulaðiverksmiðju.
Auk myndarinnar 10 sem áður er
nefnd hefur Bo Derek leikið í Orca
Killer Whale og Bolero.
Zsa Zsa heldur
upp á afmæli
— en hvað er hún gömul?
Zsa Zsa Gabor er ein þeirra sem
alltaf hefur lag á því að komast í
blöð og aðra fjölmiðla, og sífellt er
verið að minna á þá rosalegu lífs-
reynslu hennar að hafa setið í þrjá
daga í fangelsi fyrir að löðrunga
lögregluþjón.
En hvað gerir hún annars — fyrir
utan það að vera alltaf að gifta sig?
Það er óleyst ráðgáta. Annað mál
er það að hún er „hagsýn" með af-
brigðum. Nánar tiltekið er hún al-
ræmd fyrir að gefa ekki þjórfé
nema í ýtrustu neyð og þjónustu-
fólk hennar ber henni ekki vel sög-
una. Það segist neyðast til að vinna
alger skítverk á heimilinu, eins og
að þrífa eftir dekurhundana henn-
ar sem fá að fara sínu fram um allt
hús. En þegar kemur að því að
launa fyrir viðvikið dregur hún
upp sýnishorn af andlitskreminu
sínu, sem ein þjónustustúlkan seg-
ir að lykti svo illa að það hljóti eitt-
hvað að vera athugavert við það.
Nískupúki, segja þeir sem til þekkja um Zsa Zsa Gabor. Hún timir þó aö leggja fé í sjóö unga mannsins
sem dansar fyrir hana í þvi sem næst engum fötum.
Zsa Zsa Gabor heldur upp á afmæliö sitt meö Evu systur sinni. En
hvaö er hún gömul? Sjálf segist hún rétt skriöin yfir sextugt, en kunn-
ugir segja hana komna á áttræöisaldur.
Raquel Welch heldur sér vel, um
það er ekki deilt, en þegar hún
mætti á Balli elds og íss í Beverly
Hills ekki alls fyrir löngu veittu at-
hugulir blaðaljósmyndarar því at-
hygli að hún hafði áður sést í sama
kjólnum, nánar tiltekið fyrir tæpum
tveim árum, en eitthvað hafði samt
breyst.
Kjóllinn leynir svo sannarlega litlu
um vaxtarlag leikkonunnar og háls-
málið er vel flegið. Þegar myndimar
voru bornar saman sást að barmur
Raquel hafði tekið róttækum breyt-
ingum. Hafði hún látið lagfæra á sér
brjóstin, var hvíslað. ,Alls ekki,“
sagði talsmaður leikkonunnar,
breytingin væri algerlega á vegum
Sama konan og sami kjóllinn meö tveggja ára millibili. En eitthvaö
hefur breyst.
móður náttúru. hafa Iifibrauð af útliti sínu að sætta
Að undanfömu hafa verið miklar sig við það sem þeim hefur verið út-
umræður um skaðsemi sílikón hlutað frá náttúrunnar hendi og að-
fegrunaraðgerða og kannski er bara laga hálsmálin því.
orðið ráðlegt fyrir þær konur sem