Tíminn - 12.03.1992, Síða 12
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
HEIÐI
Bl LAPARTAS ALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bt'la til niðurrifs
HEIÐI • BÍLAPARTASALA
Flugumýri 18D ■ Mosfellsbœ
Sfmar 668138 & 667387
I
HÖGG-
* DEYFAR
Verslið hjá fagmönnum
varahlutir
Hanarshöfða 1 - s. 67-6744
ÞJONUSTA
MÁLARAR
geta bætt viö sig
málningarvinnu úti sem inni
Vönduð og góð vinnubrögð
Sími 670269
ÞÉTTING OG KLÆÐNING
FIMMTUDAGUR 12. MARS 1992
Hljómleikar
til styrktar
Finni Eydal
Fjöldi hljómlistarfólks kemur fram á hljómleikum sem Zonta syst-
ur og Jazzvakning halda til styrktar Finni Eydal á Hótel Sögu 15.
mars kl 21. Finnur Eydal hefur undanfarið orðið að fljúga þrisvar í
viku til Reaykjavflcur frá Akureyri til aö fara í gervinýra.
Fyrir nokkru gengust félagar og vin-
ir Finns fyrir því að keypt yrði gervi-
nýra sem staðsett yrði á Akureyri.
Það er nú komið til landsins en
herslumun vantar upp á að borga
tækið og fylgihluti þess. Ágóðanum
af hljómleikunum á sunnudag verð-
ur einmitt varið til þess.
Á hljómleikunum á sunnudags-
kvöldið koma fram Sveiflusextett-
inn, Kristján Magnússon píanóleik-
ari og hljómsveit, Árni Scheving og
félagar, Björn Thoroddsen og Stein-
grímur Guðmundsson o.fl., Kuran
Swing, Hljómsveit Ólafs Gauks og
Anna Mjöll, Tríó Carls Möller ásamt
Andreu Gylfadóttur, Ellý Vilhjálms
og Ragnari Bjarnasyni og loks
hljómsveit Finns Eydals sjálfs ásamt
Helenu Eyjólfsdóttur og Ingimari
Eydal. Veislustjórar verða Hermann
Gunnarsson og Vernharður Linnet.
Ásta R.
á þing
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir tók
í fyrradag sæti Finns Ingólfssonar á
Alþingi. Þessa stundina sitja því
fimm konur á þingi fyrir Framsókn-
arflokkinn. Þær eru auk Ástu Ragn-
heiðar, Valgerður Sverrisdóttir og
Ingibjörg Pálmadóttir. Þá situr Þur-
íður Bernódusdóttir nú á þingi í
stað Guðna Ágústssonar og Elín
Líndal í stað Páls Péturssonar.
Stúlkurnar sem keppa um titilinn fegurðardrottning Suðurlands. Frá
Hrafnhildur, Hanna Valdís, Guðrún, Drífa og íris Björk.
Fegurðarsamkeppni Suðurlands á Hótel Örk annað kvöld:
HVER ER SÚ FALLEG-
ASTA Á SUÐURLANDI?
Fegurðarsamkeppni Suðurlands
verður haldin á Hótel Örk á
föstudagskvöldið. Alls taka sjö
stúlkur þátt í keppninni að þessu
sinni, en þetta er í sjötta sinn
sem hún er haldin.
Keppnin verður glæsileg að
vanda, rétt eins og stúlkumar.
Meðal skemmtiatriða á Örkinni
annað kvöld má nefna Spaugstof-
una, íslandsmeistaramir í S-am-
erískum dönsum sýna hvað í
þeim býr og fleira mætti nefna.
Hljómsveit Geirmundar Valtýs-
sonar mun leika fyrir dansi.
Kynnir er Þorgeir Ástvaldsson.
Stúlkumar sjö sem taka þátt í
keppninni og keppa um titilinn
fegurðardrottning Suðurlands
em íris Björk Magnúsdóttir 19
ára, Selfossi, Guðrún Eiríksdótt-
ir, 18 ára, Flúðum, Drífa Niku-
lásdóttir 18 ára, Hellu, Hanna
Valdís Garöarsdóttir, 19 ára,
Hellu, Hrafnhildur Þorsteins-
dóttir, 20 ára, Hveragerði, íris
Böðvarsdóttir, 19 ára, Eyrar-
bakka og Lára Erlingsdóttir, 23
ára, Hveragerði.
—SBS, Selfossi.
Milljarður fer til meðferðar og styrktar alkóhólistum á meðferðar- og stuðningsstofnunum:
Meðferðarstaðir um 30
Skýrsla Hagfræðistofnunar Háskólans leiðir m.a. í Ijós að stofnanir
og heimili sem eingöngu eru rekin til meðferðar og stuðnings við
alkóhólista eru nú orðin 20 talsins, auk félagasamtaka sem að stór-
um hluta snúast um sama markmið, beint eða óbeint. Útgjöld ríkis-
ins og Reykjavíkurborgar til reksturs eða styrktar þessum stofnun-
um nema orðið í kringum 1.000 milljónum króna á núverandi verð-
lagi. En þá er sleppt mörg hundruð milljóna króna kostnaði vegna
lækninga og ummönnunar alkóhólista á almennum sjúkrastofnun-
um, vegna sjúkdóma sem ofdrykkja hefur valdið.
Þótt nöfnin á þessum meðferðar- og
styrktarstofnunum komi fæst
ókunnuglega fyrir eyru, er samt sem
áður sláandi að sjá þær allar upp-
taldar á einum stað — þ.e. hve um-
fang hinnar opinberu alkóhólista-
starfsemi er orðið kostnaðarsamt og
víðtækt. Eftirtaldar 9 meðferðar-
stofnanir og vistheimili hafa yfir 285
rúmum að ráða (Ríkissp. 65, SÁÁ
120 og aðrar 100). Þess má geta að
þetta er nánast sami rúmafjöldi og
var á öllum deildum Borgarspítal-
ans í Fossvogi 1990 (fjarlægar deild-
ir þá ekki meðtaldar). Rekstrar-
kostnaður þessara stofnana og
heimila árið 1988 (reiknað á verð-
lagi 1991) var um 538 milljónir kr.,
eða um 5.200 krónur á dag hvert
rúm að meðatlali.
Skýrsla Hagfræðideildar segir
þessi stuðningsheimili fyrir
áfengissjúklinga rekin af ýmsum
líknarfélögum sem kosta rekstur-
inn með söfnunarfé og styrkjum.
Hér aö framan eru aðeins taldir
rekstrarstyrkir Reykjavíkurborgar
með starfseminni. Göngudeild
SÁÁ er rekin með styrktarfé ríkis
og borgar. Varðandi Vernd og
Kvennaathvarfið er hér talinn
helmingur þeirra styrkja sem
þessi samtök njóta frá ríki og
borg. Rök skýrsluhöfunda eru
þau, að hjá þeim sem leita aðstoð-
ar Kvennaathvarfsins sé um
áfengisvanda sé að ræða í u.þ.b.
helmingi tilvika, þ.e. þeirra sem
aðstoðar leita, sambýlisaðila eða
hjá þeim báðum. Nokkuð svipað á
við um Vernd. Varðandi beina
fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar
kemur fram að áfengissýki var af-
gerandi vandi hjá tæplega fjórð-
ungi þeirra 2.435 einstaklinga og
fjölskyldna yngri en 67 ára sem
Meðferðarstofnanir og vistheimili:
RÍKISSPÍTALAR:
Afvötnunardeild 33 A
Göngudeild 32 E
Vífilsstaðir
Gunnarsholt
Samtals 187 millj.
Vogur
Sogn
Staðarfell
Samtals 257 millj.
AÐRAR STOFNANIR:
Hlaðgerðarkot
Víðineshæli
Samtals 94 millj.
Félagsleg aðstoð
REYKJA VÍKURBORG:
Gistisk. Þinghstr. 25
Dagvist Þinghstr. 25
Áfangast. kv. Amtmannsst.
Samtals 20 millj.
&/G4.
Göngudeild
Samtals 37 millj.
leituðu aðstoðar Félagsmálastofn-
unar borgarinnar árið 1987. Vart
nokkur liður hefur hækkað meira
en þessi á síðustu árum, eða um
STUÐNINGSHEIMILI (styrkir)
Skjöldur Ránargötu
Risið Stangarholti
Þrepið Laugarásv.
Sporið Barónsstíg
Takmarkið Barónsst.
Samhjálp Hvítasm.
Dyngjan Snekkjuv.
Krossinn Álfhólsvegi
Samtals 12 millj.
ÓBEIN STUÐNHEIMILI (styrk-
ir)
Vernd (50%)
Kvennaathvarf (50%)
Samtals 7 milij.
FJÁRHA GSADS TOÐ
Aðst. R.borgar 53 millj.
Aðst. stéttarfél. 8 millj.
Sjúkradaggjöld 39 millj.
Örorkulífeyrir 228 millj.
80% frá 1985- 89, miðað við fast
verðlag. Síðara árið námu þessir
beinu styrkir jafnvirði 71 milljón-
ar kr. á verðlagi 1991.
Áfengissjúklingar fá greidda
sjúkradagpeninga á meðan á með-
ferð stendur. Vitnað er til Sjúkra-
samlags Reykjavíkur um það að
a.m.k. 25% ailra greiddra sjúkra-
dagpeninga hafi farið til áfengis-
sjúklinga. Stéttarfélög greiða
einnig sjúkrastyrki til félags-
manna sinna sem fara í meðferð.
Um örorkulífeyri og styrki er vís-
að til Öryrkjabandalagsins, sem
segir a.m.k. 10% allra slíkra
greiðslna Tryggingastofnunar rík-
isins megi merkja neyslu áfengis.
Með öðrum orðum, a.m.k. 10.
hver öryrki undir 67 ára aldri er
það vegna áfengisneyslu.
Þá er bent á að flest barnavernd-
armál sem koma á borð Félags-
málastofnunar tengjast áfengis-
neyslu á einhvern hátt. Kostnaði
af þeim sökum sé þó alveg sleppt í
þessum útreikningum vegna þess
hve erfitt sé að fá haldgóðar upp-
lýsingar.
Hér hefur aðeins verið sundur-
greindur lítill hluti þeirra u.þ.b. 6
milljarða króna sem talið er að
áfengisneysla landsmanna kosti
þjóðfélagið og þá að ótöldum
beinum útgjöldum neytendanna
sjálfra.
- HEI