Tíminn - 08.04.1992, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Miövikudagur 8. apríl 1992
ORLOF AFNUMIÐ OG
EKKERT FRÍ1. MAÍ
Mjög alvarlegt ástand er
nú ríkjandi í fínnsku
efnahagslífí. Ríkisstjóm
borgaraflokkanna sat á
rökstólum alla síðustu
helgi og nú liggja fyrir
ákvarðanir hennar um
niðurskurð ríkisút-
gjalda, sem munu hafa
mikil áhrif á hagi
fínnsks almennings í
framtíðinni.
Alls hefur finnska ríkisstjórnin
hugsað sér að beita niðurskurðar-
hnífnum svo ótæpilega, að henni
takist að spara um 130 milljarða ísl.
króna á ári hverju fram til 1995.
Helstu sparnaðarráðstafanirnar
eru lækkun ellilífeyris, barna- og at-
vinnuleysisbóta.
Auk þess vill finnska ríkisstjórnin
afnema orlofsgreiðslur til launþega.
Til að það takist, þarf þó að nást
samkomulag um þau efni milli aðila
vinnumarkaðarins.
Þá hefur einnig borið á góma að
afnema frídaga, þeirra á meðal 1.
maí. Höfuðtilgangur ríkisstjórnar-
innar með fyrirhuguðum aðgerðum
er að stöðva straum gjaldeyris út úr
landinu.
Búist er við gengisfellingu
finnska marksins innan skamms,
Finnar kljást nú við alvarlega efnahagserfiðleika í kjölfar þess að markaðir þeirra í Sovétríkjunum
hrundu, þegar sovétskipulagið féll. Þeir reyna nú með öllum ráðum að hefta neikvæðan greiðslujöfn-
uð við útlönd og styrkja innlenda framleiðslu. Myndin er af gullgrafara í nyrsta hluta Finnlands. Þar
finnst eitthvað gull, en þó varla í þeim mæli að muni um í þeim erfiðleikum sem nú blasa við Finnum.
jafnvel áður en vikan er úti, og að
hún muni leiða til slita á stjórnar-
samstarfi borgaraflokkanna. Sé hins
vegar litið til lengri tíma, þá er til-
lögum ríkisstjórnarinnar ætlað að
leiða til þess að kostnaður finnskra
iðnfyrirtækja lækki og samkeppnis-
staða þeirra batni.
Eftir að Sovétríkin hrundu töp-
uðu Finnar sínum þýðingarmesta
markaði.
Þetta hefur haft í för með sér gíf-
urlegt atvinnuleysi í landinu. Það er
nú 12% og mun fara hraðvaxandi,
verði ekkert að gert.
Hvort sem efnahagstillögur ríkis-
stjórnarinnar ná fram að ganga eða
ekki, þá er það víst að finnskur al-
menningur á erfiða og óvissa fram-
tíð í vændum, þar sem umfangs-
miklir og tryggir verslunarsamning-
ar við stóra bróður í austri til fjölda
ára í senn eru nú úr sögunni.
—IVJ, Svíþjóð
Stjómin veikari fyrir gagnvart
vandanum
Skoðanakönnunin, sem DV birti í
fyrradag, verður að teljast verulegt
áfali fyrir núverandi stjómarflokka,
en móðurflokkurinn hefur ekki
notið minna fyigis frá því 1987.
Þrátt fyrir að Alþýðuflokkurinn hafi
b»tt við sig rúmum 2% frá því er
blaðið birti skoðanakönnun í febrú-
ar sL, hefur hann eigi að síður tap-
að tapað 4% fylgi firá því í kosning-
unum og má telja víst að þótt skoð-
anakannanir séu reikular firá einum
tíma til annars, muni kratar tapa
verulegu fylgi á stjómarsamvinn-
unnl við Sjálfstæðisflokkinn, þegar
upp verður staðið úr sljómarstól-
unum. Sagan sýnir enda að Aiþýðu-
flokkurinn hefiir jafnan orðið að
gjalda meira en bróðurpart synda-
gjaldsins í sfjómum meö íhaldinu.
Kvíöaefni fyrir
forsætisráöherra
Hvað Sjálfstæðisflokknum við-
kemur, em þessar tölur nokkuð
kvíðaefni fyrir forsætisráðhcrra, en
hann virðist nú á leiðinni með flokk
sinn í ógöngur, sem minna á það er
geröist í formannstíð Þorsteins
Pálssonar. Sagt er að innan flokks-
íns sé mótframboðið gegn Þor-
steini geymt en ekfd gkymt og tak-
ist Davíð Oddssyni eÚd að halda
þeim afturbata, er flokkurinn náöi
eftir Albertsmálin, gæti farið að
hitna undir honum svo um mun-
aði. Ágreiningur mun talsverður í
þingmannaliði sjálfstæðismanna,
cins og Ingi Björa Albertsson hefúr
vitnað um í viðtali, en einingin um
núverandi formann mun riða víðar
en þar. Gefist færi á, telja sumir að
ýmsir sjálfstæðismenn væm tfl-
búnir að styðja nýjan fiambjóð-
anda. Hafa sem kunnugt er ýmsir
verið nefndir í þvi sambandi, svo
sem Magnús Gunnarsson, en vafl
þykir leika á að Þorsteinn verði boð-
inn fram aftur.
Taka ber könnunina
alvarlega
Þótt skoðanakannanir eigi að sjáff-
sögðu að taka með hæfiiegum fyrir-
vara og dæmin sýni aö þær eru
sveiflukenndar, virðast línumar að
þessu sinni þaö
skýrar að það
væm mikil mis-
tök hjá stjómar-
flokkunum að
taka könnunina
ekki alvariega. En þeir munu hugga
sig við það í bili að enn er langur
tími til alþingiskosninga, og lifa
sjáifsagt í voninni um að jafnvægi
veröi á komið eftir núverandi niður-
skurðaraðgerðir, þegar þar að kem-
ur, og fólk verði farið að sætta sig
við „thatcherismann“, sem nú er er
rekinn. En þótt kosningar séu enn
langt undan, steðja afvarieg vanda-
mál að, sem ekki verður vænst að
tíminn lækni af sjálfú sér. Þjóðar-
sáttin riðar tii fails.
Svo má brýna deigt
jára...
Verkalýðshreyflngin hefur tekið
breytingum á undanfömum árum
og verið rekin sem hver önnur hag-
stofa, eða því sem næsL Lífskjörin
eru vegin og metin með flóknum
útreikningum, sem aðeins tak-
eiga auðveldara með að ræða sam-
an, því þeir tala sama mál, sem oft
skorti á fyrrum. Hins vegar hefur
blllð mifll verkalýðsforystunnar og
launþega sjálfra aukisL Þess verður
Ld. oft vart að verkajýösfoiystuirai
gremst afskipti félagsmanna sinna,
sem henni þyfrir tala af þekfdngar-
leysi og reynsiuleysi, sé tillögum
forystunnar ekki andmælaiaust
samsinnL Þetta eykur enn á firr-
inguna og búið ervið að margir fbr-
ystumenn Íaunþega megi gá aö sér,
eigi þetta ekki að leiða tii illkynjaðr-
ar valdspillingar, sem þrífst vana-
lega best í umhverfl áhrifamanna
sem einangrast. Þessi þróun er tví-
mælalaust stjómvöidum af því tagi,
er nú sitja, í hag.
En nú er svo að sjá sem sannist
máltækið um að „svo megi brýna
delgt jám að bíti", og iaunþega-
hreyflngin er vís til að rjúfa friðinn
á vinnumaricaðinúm með alvarlegri
hætti en menn hafa orðið vitni að
undanfarin ár.
Skoðanankönnun DV leiðir í ijós
að stjóm Davíðs Oddssonar stend-
urveikiýriraðhefiaátökafþvítagi.
Hana skortir innri einingu og hún
hefur oft orðið ber að þvergirðings-
hætti og skorti á sáttfýsi, sem verða
kann afdrifaríkL taká að blása alvar-
legaámóti.
maricaður hluti
launþega ber
skynbragð á, og
því lýlgja breyt-
ingar í samskipt-
um launþega-
samtaka og ríkisvalds. Þessir aðiiar
Erlendar
fréttir
Tripoli
Hópur líbýskra manna I kröfu-
göngu hefti för bílalestar sem
flutti sendinefndarmenn SÞ til Tri-
poli, höfuðborgar Líbýu. Erindi
sendimannanna var aö ræöa
Lockerbie deiluna viö stjómvöld
landsins. Óeirðalögregla beitti
síðar táragasi þegar hópar
manna reyndu að ryðjast inn í
hótel sem hýsti sendimenn SÞ í
Tripoli. Ráðherrar Arabarikja
reyndu i Kaíró að koma á ein-
hvers konar samkomulagi milli
SÞ og Líbýu svo fresta mætti fyr-
irhuguöu viðskiptabanni gagnvart
Libýu. Það tókst ekki, enda virö-
ist óbrúanlegt bilið milli lítils
samningavilja Líbýumanna og
einurðar Vesturlanda í máli
þessu. Vesturlönd krefjast þess
að Líbýa framselji tvo menn sem
grunaðir eru um hermdarverk
sem farþegaflugvél yfir Lockerbie
i Skotlandi 1988.
Brussel
Bandarikjastjórn hefur ákveðið að
viðurkenna sjálfstæði þriggja lýð-
velda Júgóslaviu; Slóveniu, Króa-
tíu og Bosníu Herzegóvínu að
sögn James Baker utanríkisráð-
herra. Orrustuþotur sambands-
hers Júgóslavíu gerðu a.m.k.
tvær loftárásir i dögun i gærmorg-
un á staði í Bosníu- Herzegóvinu
og fimm manns fórust í eldflauga-
árás þar. Bardagarnir blossuðu
upp eftir að Evrópubandalagið
hafði viðurkennt sjálfstæði sam-
bandsríkisins sl. mánudag
Moskva
Deilur Rússa og Úkraínumanna
um yfirráð yfir Svartahafsflotanum
blossuðu upp á ný þegar bæði
tóku sig til og hugðust stjóma
ferðum fleyjanna 300 sem teljast
til flotans. Stjórnmáiaástand í
báðum ríkjunum er mjög ótryggt
og Boris Jeltsín á undir högg að
sækja með efnahagsáætlun sina
sem hann ver með oddi og egg í
landsstjórn Rússlands.
Róm
Stjómarsamstarfsflokkamir fjórir á
Ítalíu undir forsæti Giulio Andre-
otti héldu naumum meirihluta í
kosningunum á ftaliu um helgina.
Flokkamir náðu 15 þingsæta
meirihluta i neðri deild ítalska
þingsins en þar eru þingsætin alls
630. Flokkarnir fjórir; Kristilegir
demókratar sem er flokkur Andre-
ottis, Frjálslyndir og Sósíaldemó-
kratar höföu áður 40 þingsæta
meirihluta.
Bendery, Moldóvu
Andrei Kozyrev utanrikisráðherra
Rússlands var fagnað sem hetju
af rússneskumælandi aðskilnaö-
arsinnum í Moldóvu þegar hann
lagði fram friðaráætlun sem ætlaö
er að binda enda á þjóðemisdeil-
ur i Moldóvu.
Washington
George Bush, forseti Bandaríkj-
anna, hefur afturkaliað 320 milljón
dala efnahags- og hemaöaraö-
stoð til Perú í þvi skyni að sýna
andúð sina á þeim gemingi for-
seta landsins; Alberto Fujimori að
leysa upp þing landsins.
Bagdad
Vopnasérfræðingar SÞ komu til
Bagdad í gær. Þeir munu leita
eftir því hvort stjórnvöld landsins
leyfi þeim að eyðileggja mikla
kjarnorkutilraunastöð sem þau
siðarnefndu fullyrða að starfi
einungis í friðsamlegum tilgangi.
Bangkok
Yfirherstjóri Tælands og heilinn á
bak við byltingu hersins á síðasta
ári, varð i gær 19. forsætisráð-
herra landsins. I herforingjabylt-
ingunni i fyrra var löglega kjöm-
um stjórnvöldum landsins kastað
fyrir róða.