Tíminn - 07.05.1992, Side 3
Fimmtudagur 7. maí 1992
Tíminn 3
Sjömannanefnd skilar tillögum um hagræðingu í mjólkurframleiðslu og mjólkuriðnaði:
Bændum og mjólkurbúum gert
hagræða um 6% til ársloka
Sjömannanefnd leggur til í áfangaskýrslu um mjólkurframleiðslu
að gerð verði 6% framleiðnikrafa til mjólkurframleiðenda og af-
urðastöðva á næstu tveimur og hálfu ári. Nefndin leggur til að verð-
miðlun á mjólk verði hætt, en tekið verði upp flutningsjöfnunar-
gjald í staðinn. Lagt er til að 400 milljónum, sem nú eru í verðmiðl-
unarsjóði, verði varið til úreldingar mjólkurbúa. Nefndin leggur
ekki til beina fækkun mjólkurbúa, en vonast eftir að afnám verð-
miðlunar og úreldingarsjóður mjólkurbúa leiði til þess að eigendur
búanna sjái sér hag í því að fækka þeim.
Af mörgum tillögum Sjömanna-
nefndar felur tillaga nefndarinnar
um breytt hlutverk verðmiðlunar-
sjóðs í sér einna mesta breytingu.
Nefndin leggur til að verðmiðlun
mjólkur verði hætt í áföngum, og
endanlega hætt um mitt ár 1994. í
staðinn verði tekið upp flutnings-
jöfnunargjald.
Nefndin telur að verðmiðlunarkerfi
mjólkuriðnaðarins, sem að stofni til
er frá árinu 1934, sé úrelt og hafi
verkað letjandi á hagræðingu í
mjólkurbúum, auk þess sem í því
hafi beinlínis falist hvati til mjólkur-
búa að fjárfesta. Nefndin segir að
verðmiðlunin sé veigamikil orsök
fyrir offjárfestingu í mjólkuriðnaði.
Nefndin leggur til að tekið verði
upp flutningsjöfnunargjald til að
styrkja flutning frá bændum, styrkja
flutning afurða milli svæða og til að
styrkja lítii mjólkurbú sem stjórn-
völd telja óhjákvæmilegt að starfi
áfram. Tálið er að þetta gjald geti
samtals aldrei orðið hærra en 60
milljónir á ári. í gegnum núverandi
verðmiðlunarkerfi hafa hins vegar
verið innheimtar á bilinu 300-450
milljónir á ári. Verðmiðlunin var t.d.
383 milljónir árið 1990.
Þá leggur nefndin til að það fjár-
magn sem nú er í verðmiðlunarsjóði
verði notað til að úrelda mjólkurbú,
en talið er að fækkun mjólkurbúa sé
áhrifaríkasta hagræðingaraðgerð
sem völ er á. í sjóðum eru núna á
bilinu 400-450 milljónir króna.
Nefndarmenn vonast eftir að þetta
tvennt, afnám verðmiðlunar og úr-
eldingarsjóður, verði til þess að eig-
endur mjólkurbúa sjái sér hag í því
að hætta eða breyta rekstri þeirra.
Til að þrýsta enn frekar á mjólkur-
búin leggur nefndin til að þau sem
sækja um úreldingarstyrk fyrir 1.
júní 1993 fá greitt allt að 90% af
bókfærðu verði fasteigna og véla og
þeir sem sæki um fyrir 1. júní 1994
fá greitt 80% verðinu. Eftir þann
tíma verði ekki veittir styrkir til úr-
eldingar.
Lagt er til að gerð verði 6% fram-
leiðnikrafa til bænda og afurða-
stöðva, 1% á síðari hluta þessa árs,
2,5% á árinu 1993 og 2,5% á árinu
1994. Vonast er eftir að þetta leiði til
þess að verð á mjólk hækki ekki
næstu 12 mánuði og jafnvel lengur.
Verð á mjólk hefur hækkað mjög
óverulega síðan 1989.
Lagt er til að verð á neyslumjólk
verði það sama um allt land, en það
sama gildi ekki um verð á unnum
mjólkurvörum. Nefndin leggur til
að núverandi verðlagningarkerfi
verði viðhaldið til ársloka 1994, en
eftir það verði staðan endurmetin.
Ástæðan fyrir því að nefndin telur
ekki rétt að horfa lengra fram í tím-
ann er sú að miklar breytingar eru
að eiga sér stað í rekstarumhverfi
greinarinnar. Þar er vísað til EES-
samningsins og draga að samkomu-
lagi um GATT.
Gerð er tillaga, í samræmi við
ákvæði búvörusamnings, um að
heildarframleiðsluréttur bænda
verði jafn innanlandsneyslu. Þetta
þýðir að framleiðsluréttur verður
lækkaður úr 104,5 milljónum lítra í
100 milljónir lítra. Miðað er við að
fullvirðisrétturinn verði bættur með
því að greiða 50 krónur á hvem lítra
úr verðmiðlunarsjóði. Heildar-
greiðslan gæti numið 250 milljón-
um króna. Þar sem stefnt er að því
að verja öllum fjármunum verð-
miðlunarsjóðs til úreldingar mjólk-
urbúa er reiknað með að verðmiðl-
unargjald verði innheimt áfram, en
það verði þó lækkað stig af stigi.
Verðmiðlunargjaldið er í dag 3,79%
af heildsöluverði, en má hæst vera
5,5%.
Þá er gert ráð fyrir að niðurgreiðsl-
ur á verði mjólkurvara verði hætt
um næstu áramót, en teknar verði
upp beinar greiðslur til bænda. Ár-
legar niðurgreiðslur vegna mjólkur-
afurða í dag eru um 2.370 milljónir.
í búvörusamningnum var ákveðið
að útflutningsbótum verði hætt 1.
september í haust. Þetta er mikil
breyting fyrir bændur. Ríkissjóður
sparar við þetta um 300 milljónir á
ári vegna útflutnings á mjólkuraf-
urðum. Tálið er að þetta ásamt
breytingum sem Sjömannanefnd
leggur nú til geti sparað ríkissjóði
allt að 900 milljónum á árunum
1993-1994.
Samkvæmt búvörusamningnum
verður tekið upp greiðslumark sem
hverju lögbýli verður úthlutað, líkt
og þegar hefur verið gert í sauðfjár-
framleiðslu. Miðað er við að í upp-
hafi haldi bændur óskertri bein-
greiðslu þó að þeir framleiði á bilinu
92-104% af greiðslumarki. Þessum
hlutföllum getur landbúnaðarráð-
herra breytt.
Sjömannanefnd leggur til að land-
inu verði skipt í eitt sölusvæði og
mjólkurbúum verði í sjálfsvald sett
hvort þau starfi sjálfstætt, taki upp
samvinnu/verkaskiptingu sín á milli
eða sameinist. Einkaréttur mjólkur-
bús til að selja dagvöru úr mjólk og
skylda þess að sjá um að framboð
þeirra sé nægt hverju sinni innan
sölusvæðis fellur þar með niður.
Þá leggur nefnd til að frá og með
næstu áramótum verði aflétt þeim
hömlum sem nú eru á viðskiptum
með fullvirðisrétt. -EÓ
Guðmundur Lárusson, formaður Landssambands kúabænda, er harðorður í garð fulltrúa bænda í Sjömannanefhd:
„Mér líst illa á þetta“
„Mér líst illa á þetta,“ sagði Guðmundur Lárusson, formaður
Landssamband kúabænda (LK), þegar Tíminn innti hann álits á
áfangaskýrslu Sjömannanefndar um mjólkurframleiðslu. Guð-
mundur sagði að kúabændum finnist óeðlilegt að gerð sé sama
framleiðnikrafa til þeirra eins og afurðastöðva þar sem verð til
bænda hafi lækkað um 12% á síðustu tíu árum á sama tíma og
vinnslu- og dreifíngarkostnaður hafi aukist um 10%.
Guðmundur gagnrýnir fúlltrúa séu gerðar sömu framleiðnikröfúr til
bænda í nefndinni og segir að tillög-
umar sem þeir hafi skrifað undir séu í
andstöðu við vilja bænda.
„Stjóm LK skrifaði stjóm Stéttarsam-
bands bænda fyrir viku þar sem hún
gerði alvarlegar athugasemdir við
nefndarálitið eins og það leit út þá.
Nefndarálitið hefur ekki breyst í nein-
um meginatriðum síðan þannig að
gagnrýni okkar á álitið stendur óhögg-
uð.
Við sættum okkur ekki við það að það
Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda, vísar gagnrýni Guðmundar Lárussonar á bug:
„Eru ekki andstæðingar“
„Ég tel að það megi ekki stilia mjólkuriðnaðinum og bændum upp
sem andstæðingum. Þessir aðilar þurfa í sameiningu að takast á við
kröfu neytenda um lægra verð á mjólkurafurðum,“ sagði Haukur
Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda, um gagnrýni for-
manns Landssambands kúabænda á tillögur Sjömannanefndar og
störf fulltrúa bænda í nefndinni.
Haukur sagði að í reynd séu gerðar
meiri framleiðnikröfur til mjólkur-
iðnaðarins en bænda. Hann benti á að
iðnaðurinn hafi fallið frá 1,5% hækk-
un á umbúðagjaldi um síðustu mán-
aðamót, en Fimmmannanefnd var
búin að samþykkja hækkunina. Auk
þess verði sjálfvirk afkomutrygging
mjólkuriðnaðarins, sem verðmiðlun-
in hefur í reynd verið, afnumin. Hauk-
ur sagði að þessi afkomutrygging hafi
verið hvorki meira né minna en 10%
af vinnslu- og dreifingarkostnaði
mjólkur. Hann benti jafnframt á að
bændur fái launalið sinn hækkaðan
um 1,7% 1. júní. Þetta sé gert með því
að lækka framlag í verðmiðlunarsjóð
þannig að verð mjólkur hækki ekki.
Haukur sagði að nefndin hafi verið
sammála um að ekki væri hægt að
gera 6% framleiðnikröfu til bænda
nema þeir fengju skerðingu á ffam-
leiðslurétti bætta. Hann sagðist ekki
vera sammála Guðmundi um að betra
hafi verið að sleppa því að bæta skert-
an framleiðslurétt og hafa framleiðni-
kröfuna lægri. Hann sagðist sömu-
leiðis ekki vera sammála Guðmundi
um að nefndin leggi til að þetta verði
gert með upptöku á nýju gjaldi. Verð-
miðlunargjaldið verði áfram innheimt
að hluta til ef allt það fé sem nú er í
sjóðnum verði varið til úreldingar
mjólkurbúa. Haukur sagði að ágrein-
ingur um þetta atriði sé léttvægur í
sínum huga.
Haukur sagði það rétt hjá Guðmundi
að fúlltrúar Stéttarsambandsins í
nefndinni væru þar sem einstaklingar.
Þeir gengju óbundnir að nefndarvinn-
unni líkt og þeir gerðu í fýrra þegar
nefndin skilaði tillögum um sauðfjár-
ffamleiðsluna.
Haukur sagði að það sé erfitt að ætl-
ast til þess að starfsstétt styðji tillögur
þar sem vegið er að þeirra kjörum, en
segja megi að nefhdin leggi til að kjör
kúabænda séu skert ef litið sé á
skammtíma áhrif þeirra. Til langs
tíma muni tillögumar bæta hag
mjólkurframleiðenda. Tillögumar
miði að því að auka markaðshlutdeild
mjólkurvara. Haukur sagði betra fyrir
bændur að selja aðeins meira á lægra
verði, en selja minna á hærra verði.
„Það var mitt mat að það væri betra
að nefndin skilaði þessum tillögum tíl
ráðherra heldur en að skila engu. Ég
tek það skýrt fram að þetta eru tíllög-
ur. Við höfum óskað eftir því við ráð-
herra að strax í dag verði hafhar um-
ræður í búvörusamninganefnd um
málið,“ sagði Haukur að lokum.
-EÓ
mjólkurframleiðenda og til vinnslu-
stöðva. Verð tíl bænda hefur lækkað
um 12,4% á 10 árum á sama tíma og
vinnslu- og dreifingarkostnaður hefur
hækkað um 10,5%. Mjólkurffam-
leiðsla er rekin með tapi í dag sam-
kvæmt útreikningum Þjóðhagsstofn-
unar og Hagþjónustu landbúnaðarins,
en mjólkurvinnsla er rekin með hagn-
aði samkvæmt útreikningi sömu aðila.
Við sættum okkur heldur ekki við að
Sjömannanefhd skuli leggja til að nið-
urfærsla fúllvirðisréttar verði greidd
með því að leggja á nýtt gjald á neyt-
endur. Við höfúm lagt það til að fram-
leiðnikrafan verði minnkuð niður í 1%
á ári og bótunum verði sleppt Það
kemur í sama stað niður fyrir neytend-
ur og framleiðendur. Ég er sammála
þeirri skoðun landbúnaðarráðherra að
ekki eigi að leggja á ný gjöld í landbún-
aði.
Þá höfum við mjólkurframleiðendur
krafist þess að fá bætur úr ríkissjóði
fyrir niðurfærslu á framleiðsluréttí líkt
og sauðíjárbændur fengu í fyrra. Sjö-
mannanefnd hefur hafnað því, en legg-
ur tíl að bætumar verði greiddar með
gjaldi sem lagt verður á neytendur.
Þetta álit sem nú liggur fýrir er ekkert
annað en álit einstaklinga úti í bæ. Þó
að þeir séu tilnefndir af þessum sam-
tökum þá eru þetta einstaklingar. Það
hefur komið í Ijós að bakland þeina
einstaklinga sem Stéttarsamband
bænda tilnefndi í nefndina er ekki
sterkt Þeir hafa ekki samþykkt stjóm-
ar Stéttarsambandsins á bak við sig, en
þeir hafa hins vegar samþykkt stjómar
LK þar sem þeim leiðum sem lagt er til
að famar verði er mótmælt Þeim ætti
því að vera ljóst að þessar tillögur, sem
þeir hafa skrifað upp á, eru í andstöðu
við framleiðendur," sagði Guðmundur.
Guðmundur sagðist líta svo á að mál-
ið sé nú í höndum búvörusamninga-
nefndar. Hann sagði að þar muni fúll-
trúar LK halda fast og óhikað fram sín-
um sjónarmiðum . -EÓ
Aðalfundur
Samtaka áhugafólks um áfengis-
og vímuefnavandann
verður haldinn laugardaginn 16. maí 1992
kl. 14 að Síðumúla 3-5.
Dagskrá: Aðalfundarstörf samkvæmt
lögum félagsins.
Stjórn SÁÁ
Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann
&&&