Tíminn - 07.05.1992, Side 12
AtJGLÝSINGASÍMAR: 680001 & 686300
HEIÐI
BILAPARTASALA
Varahlutir í árgerðir '74-'87
Ýmsar smáviðgerðir
Kaupi bíla til niðurrífs
HEIÐI ■ BÍLAPARTASALA
Flugumýri 1SD ■ Mosfellsbn
Sfmar 668138 & 667387
AUÐVITAÐ
Suðurlandsbraut 12
ððruvisi bílasala
BÍLAR • HJÓL •
BÁTAR •VARA-
HLUT1R.
MYND HJÁ OKKUR - BÍLL HJÁ ÞÉR
SÍMI 6T9225
p i j CrSabriel SAý HOGG- DEYFAR Versiið hjá fagmönnum
\ varahlutir
jt ' ' Hamarsböféa 1 - s. 67-67-44 ]
Tíminn
FIMMTUDAGUR 7. MAl 1992
Borgarráð samþykkir 167 milljóna aukafjárveitingu til eflingar atvinnu í sumar:
Rúmar 150 m.kr. í viðhald
skólahúsnæðis og skólalóða
Borgarráð samþykkti í gær 167 milljóna kr. aukafjárveitingu
til fjölgunar starfa á vegum borgarinnar. í samþykktinni er vís-
að til yfírlýsinga ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamn-
ingana og tekið fram að hún sé gerð í trausti þess að framlag
borgarinnar verði metið í fyrírhuguðum viðræðum ríkis, sveit-
arfélaga og aðila vinnumarkaðarins um atvinnumál.
Fjárhæðin skiptist þannig: Hundr- um til viðbótar til viðhalds skóla-
að milljónum skal varið til viðhalds lóða. Þá eru rúmlega 6,5 milljónir
skólahúsnæðis og nær 54 milljón- ætlaðar til greiðslu fyrir 35 störf í 8
Ákveðið að leggja Fjórðungssamband Norðlendinga niður:
Kjördæmasamtök
koma í stað FSN
Á aukaþingi Fjórðungssambands
Norðlendinga sem haldið var á Ak-
ureyri var samþykkt að leggja
Fjórðungssambandið niður í núver-
andi mynd og stofna þess í stað ný
samtök sveitarfélaga á kjördæma-
grundvelli, fyrir Norðurlandskjör-
dæmi eystra og Norðurlandskjör-
dæmi vestra.
Stefnt er að því að undirbúnings-
vinna vegna þessa verði unnin í
sumar og endanlega frá málum
Bæjarstjórnarmeirihlutinn á
Sauðárkróki brugðist skyldu
sinni segja fulltrúar Fram-
sóknar:
Gengið þvert á
fyrri samþykktir
Bæjarfulltrúar Framsóknarflokks-
ins á Sauðárkróki komu saman til
fundar í gær og samþykktu þar
hörð mótmæli gegn sölu á meiri-
hluta hlutafjár í Skildi hf. á Sauðár-
króki til Þormóðs ramma á Siglu-
flrði.
„Lýsum við fullri ábyrgð á hendur
meirihluta bæjarstjórnar Sauðár-
króks og teljum að með vitneskju
um málið og þátttöku í ákvörðunar-
töku, um sölu hlutabréfanna, hafi
meirihlutinn brugðist skyldu sinni,
að gæta hagsmuna bæjarbúa og
gengið þvert á fyrri samþykktir bæj-
arstjórnar í þessu máli,“ segir í sam-
þykktinni.
gengið á síðasta þingi Fjórðungs-
sambands Norðlendinga sem haldið
verður í Vestur- Húnavatnssýslu í
haust.
Samkvæmt tillögum stjórnar
munu kjördæmasamtökin fyrir
Norðurland eystra nefnast; Sam-
band sveitarfélaga í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum (EYÞING), og sam-
svarandi fyrir Norðurland vestra;
Samband sveitarfélaga í Norður-
landskjördæmi vestra (SSNV). Þá
hafa verið skipaðar undirbúnings-
nefndir er vinna skulu að undirbún-
ingi stofnfundar, stofnunar og laga-
frumvarpi fyrir hvora deild. Fyrir
Norðurland eystra sitja í undirbún-
ingsnefnd: Einar Njálsson Húsavík,
Jóhannes Sigfússon Svalbarðs-
hreppi og Halldór Jónsson Akureyri.
Fyrir Norðurland vestra sitja í und-
irbúningsnefnd: Björn Sigurbjörns-
son Sauðárkróki, Bjarni Þór Einars-
son Hvammstanga, Valgarður Hilm-
arsson Engihlíðarhreppi, Björn
Valdimarsson Siglufirði og Sigfríður
Angantýsdóttir Hólahreppi.
Á aukaþinginu var samþykkt svo-
hljóðandi tillaga fjórðungsstjórnar:
.Aukafjórðungsþing Norðlendinga
haldið á Akureyri 30.apríl 1992 felur
fjórðungsstjórn að undirbúa starfs-
lok Fjórðungssambands Norðlend-
inga m.a. með hliðsjón af 103. grein
sveitarstjórnarlaga um fjárhagsleg
skil og vinna að samningum við
starfsfólk sambandsins um starfslok
þess og réttindamál."
hiá-akureyri.
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
Samgönguráðherra hefur skipað
Þorgeir Pálsson í stöðu flugmála-
stjóra í stað Péturs Einarssonar.
Þorgeir tekur vift stööunni 1. júlí
nk. Níu umsóknir bárust um stöð-
una cg meirihluti Flugráfts mælti
meft Þorgeiri.
Þorgeir Pálsson er prófessor við
verkfræðideild Háskóla íslands.
Hann nam flugvélaverkfræði í
Bandaríkjunum að loknu stúdents-
prófi og hlaut doktorsgráðu í þeim
fræðum árið 1971.
vikur við sumamámskeið ÍTR og í
íþróttamannvirkjum. Og loks tæp-
lega 6,8 milljónir til greiðslu fyrir
20 störf í 8 vikur við gæsluvelli
borgarinnar, sem þá eiga allir að
verða opnir í sumar.
Jafnframt var samþykkt að fela
forstöðumönnum veitustofnana
borgarinnar að fjölga sumarstörf-
um um samtals 100 frá því sem ver-
ið hefur undanfarin ár.
Sömuleiðis skal sérstökum starfs-
hópi falið að vinna áfram að hug-
myndum um stofnun þróunarfy-
ritækis að erlendri fyrirmynd til
stuðnings atvinnulífinu í borginni.
Og einnig samþykkti borgarráð að
fela Atvinnumálanefnd borgarinn-
ar ásamt borgarhagfræðingi sam-
skipti við fyrirhugaða samstarfs-
nefnd aðila vinnumarkaðarins, rík-
is og sveitarfélaga um atvinnumál.
Með vísan til þessara samþykkta
samþykkti borgarráð að vísa til At-
vinnumálanefndar framkomnum
tillögum um atvinnumál frá borg-
arfulltrúum minnihlutaflokkanna.
Enda hefur meirihlutinn, með
framangreindum samþykktum, í
raun tekið ýmsar tillögur minni-
hlutafulltrúanna til handargagns
og gert þær að sínum.
- HEI
Tryggvi Ólafsson í sýningarsal Gallerí Borgar.
Sýning á verkum Tryggva Ólafssonar opnuð í dag:
Stæiri fletir aðrar víddir
Sýning á verkum TYyggva Ólafssonar verður opnuð í dag í Gall-
erí Borg. Tvö ár eru liðin síðan listamaðurinn hélt síðast einka-
sýningu en hann hefur þó tekið þátt í samsýningum hér á landi
sem og erlendis á þeim tíma. Myndirnar á sýningunni eru aliar
gerðar á undanförnum tveimur árum.
„Ég hef alltaf verið á móti því að
sýna árlega. Það er of mikið," seg-
ir Tryggvi. „Fólk getur orðið
þreytt á manni."
Hann málar allar myndir tvisvar
þ.e.a.s. litlar fyrst: „Maður lærir
af reynslunni að gera vitleysurnar
litlar en ekki stórar. Svo getur
maður séð hvort myndirnar geta
borið það eða ekki, það verða
stærri fletir og þá aðrar víddir um
leið. Forvitnin við að mála felst í
að sjá hvernig myndirnar verða
þegar þær eru settar upp aftur og
auðvitað verða þær aldrei eins,
enda er það aldrei meiningin."
Titlar myndanna þykja Tryggva
mikilvægir og kýs að skrifa þá í
horn þeirra: „Mér finnst að hlut-
irnir. eigi að heita eitthvað. Nafn-
ið er aldrei úti í hött en það er
ekki alltaf vísbending fólgin í
því.“
Myndirnar á sýningunni fjalla
um heimsmyndina í nútíð og for-
tíð, náttúruna og mannskepnuna.
„Þær spanna þetta allt saman.
Þetta eru svona þankar," sagði
listamaðurinn að lokum.
Sýningin verður opin alla daga
vikunnar til 19. maí.
—GKG.