Tíminn - 26.05.1992, Qupperneq 1

Tíminn - 26.05.1992, Qupperneq 1
Þriðjudagur 26. maí 1992 95. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Fyrrum eigendur Isnó vilja eiga Isnó áfram: Eykon neitar að gefast upp „Hjóla- skauta- svell“ Þessir knáu krakkar voru á hjólaskautum á „skauta- svellinu" í Laugardal, en því hefur nú verið breytt þannig að unnt er að vera þar á hjólaskautum, en þessi tilraun á að standa í sumar. Tímamynd Áml Bjama Góðar lfkur eru taldar á að fyrri eigendur fiskeldisstöðvarinnar ísnó hf, Eyjólfur Konráð Jóns- son, Kristinn Guðbrandsson og Þórarinn Kristinsson, kaupi þrotabú fyrirtækisins af Fram- kvæmdasjóði og Landsbanka ís- lands. Nokkur önnur tilboð hafa borist í eignimar eða hluta þeirra. Tilboð þre- menninganna er hins vegar í allar eignir ísnó. Tilboð þremenninganna er gert fyrir hönd hlutafélags sem þeir hyggjast stofna um reksturinn. Búist er við að það skýrist á næstu dögum hvort til- boði þeirra verður tekið eður ei. Eyj- ólfur Konráð vildi ekki gefa upp hversu hátt tilboðið er. „Ég hef tröllatrú á fiskirækt. í henni liggur framtíðin og þá er ég ekki ein- göngu að tala um ræktun vatnafiska," sagði Eyjólfur Konráð. Hann sagðist hafa haft áhuga á fiskirækt í 35 ár og væri ekki tilbúinn til að gefast upp nú þó að á móti blási. -EÓ Bæklingur til styrktar baráttunni gegn steranotkun: Þær mlklu fjámpphæðir sem íþróttlmar velta í heíminum f dag, segir Óiafur Ólafsson lamllæknir veia helstu orsökina fyrir auHnni steranotkun mcðal Sþróttamanna en f gær gaf Landlæknisembættið út upplýsingahækling um steralyf. Það voru læknamir Pétur Péturs- son og Ari Jóhannesson sem tóku upplýsingamar í bæklingnum saman. Ari segir áhyggjuefni að sfærsti hópurinn sem notar lyfin geri það einungis í fegronar- og hégómaskyni, þ.e.a.s. að eldd er um að ræða fólk sem keppír í vaxt- arrækt eða b'ftingum. Notaðir em allt upp í 10-100 falda þeir skammtar sem gefnir em í lækn- ingaskyni. Landlæknisembættið telur mis- notkun stera ven algenga meðal íslenskra krafUyfíinga- og vaxtar- ræktarmanna og styðst þar við reynstu 30 lækna sem þekkja steramisnotkun og afleiðingar hennar í gegnum daglegt starf. Komið hefur í ljós að ekki er auð- velt að hætta steranotkun og getur því fylgt vanlíðan samsvaranleg þcirri hjá heróínneytendum. I bæklingnum era aukaveriranlr meðai annars kynntar og geta þær verið mjög siæmar og sumar hverjar varanlegar. Meðal helstu aukaverkana era hár blóðþrýsting- ur, kransæðasjúkdómar og tíma- bondin ófrjósemi hjá körium. Kvcnfólk fær oft aukinn hárvöxt (skegg) og djúpa rödd sem ekki ganga tíl baka þó þær hættí neyslunni. BækUngnum verður m.a. dreift í heilsuvemdarstöðvar, líkamsræktarstöðvar og tíl leikfimikennara. —GKG. Eigendur Fjölmiðlunar sf. „plataðir" til að borga 23 m.kr. of mikið fyrir Stöð 2 og vilja fá leiðréttingu: Verslunarbanki gaf rangar tölur um skuldir Stöðvar 2 Dómkvaddir matsmenn af Bæjar- þingi Reykjavíkur hafa komist að þeirri niðurstöðu að upplýsingar sem stjóraendur Verslunarbankans veittu um fjárhagsstöðu íslenska sjónvarpsfélagsins (Stöðvar 2) í árs- byrjun 1990 hafi verið rangar um sem nam 200 milljónum króna. Sá munur þýddi að Verslunarbankinn fékk 23 m.kr. of hátt verði fyrir hlutabréf þau, að nafnverði 150 m.kr., sem Fjölmiðlun sf. keyptí af bankanum í byrjun árs 1990. Fjölmiðlun sf. vill fá þetta bætt en bankinn segist engar bætur greiða nema að undangengnum málaferl- um. Við erum sáttir við matið eins og það er — því það staðfestir að það var rétt mat Fjölmiðlunar sf. að kaupin á hlutabréfunum voru byggð á alröng- um upplýsingum Verslunarbankans. Eiginfjárstaða Stöðvar 2 var neikvæð um 700 milljónir en ekki 500 millj- ónir eins og Verslunarbankinn upp- lýsti, sagði Sigurður G. Guðjónsson, Iögfræðingur Fjölmiðlunar sf., á fréttamannafundi í gær. Sigurður segir ítrekuðum tilraun- um Fjölmiðlunar sf. til að ná samn- ingum um bætur hafa verið fálega tekið af fúlltrúum Verslunarbankans. Fjölmiðlun sf. hafi því á miðju ári 1991 óskað eftir að þetta mat yrði gert og samkomulag hafi þá tekist um val á matsmönnunum, tveim lög- giltum endurskoðendum. Þótt mats- niðurstaða liggi nú fyrir breyti það ekki afstöðu Eignarhaldsfélags Versl- unarbankans sem hafi svarað því til að bætur verði einungis sóttar með málaferlum. Eigendur Fjölmiðlunar sf. hafa tekið sér frest til nk. mánu- dags til að ákveða um framhald máls- ins. En ber matsniðurstaðan ekki vitni um það að eigendur Fjölmiðlunar Sigurður G. Guðjónsson, lögfræðingur Fjölmiðlunar sf. Tlmamynd Áml BJama hafi ekki fyrirfram athugað nægilega vel hvað þeir voru að kaupa og geti þar með sjálfum sér um kennt hafi þeir keypt „köttinn í sekknum"? Sigurður segir það mjög alvarlegt mál ef menn geti ekki treyst niður- stöðutöðutölum viðskiptabanka á reikningum fyrirtækja sem bankinn hafi í gjörgæslu. Hafi verið um gá- leysi að ræða sé slíkt mjög vítavert í bankaviðskiptum. Enda hljóti bankar að vita hvað stórir viðskiptavinir þeirra skulda. í matsgerðinni segir m.a. varðandi upplýsingar: „Af gögnum málsins má ráða að áætlun frá Lánasviði Verslun- arbankans, dags. 20.12.89. (dskj. 10) hafi verið það grundvallargagn sem stuðst var við þegar kaupin voru gerð.“ Bent er á að ársreikningur fyr- ir 1989 var ekki fyrir hendi þegar kaupin voru gerð né heldur árshluta- uppgjör. - HEI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.